Morgunblaðið - 17.10.1973, Side 25

Morgunblaðið - 17.10.1973, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1973 25 ffleÖinofgunkaffinu mr _ 11 ^ Blddu aðeins, vinur. Ég ætla bara að slökkva á stereó- græjunum svo að ég heyri hvað þú ert að segja. Gettu hver er komin með lögfræðinginn sinn. _ .......................................... — Hvað er eiginlega að þér, manneskja? Áður fyrr fannst þér alltaf mest gaman þegar það var Iff og f jör I kringum þig. ^ciö^nu^PÁ Jeane Dixon Spáin er fyrir daginn í dag Hrúturinn 21. marz —19. apríl Ljúktu þvf, sem þú ðtt ógert, áður en þú hefst handa um nýjar framkvæmdir. Það þýðir ekki að veraað grauta í of m örgu samtfmis. Heimilislffið ánægjulegt, enda þótt ekki sé neinna stórviðburða að vænta. Nautið 20. aprfl — 20. maí I dagsins önn þarftu að einbeita þér að störfum þfnum oggæta þess að láta utanaðkomandi truflanir ekki tefja þig, því að útlit er fyrir, að tfminn verði ódrýgri en þú gerðir ráð fýrir. Tvíburarnir 21. maí — 20. júní Reyndu að halda þigsem mest í einrúmi í dag, og forðastu að lenda í illdeilum. Meðan þú hugsar þfn mál í ró og næði, eru líkur á að eitthvert vandamál leysist fyrirhafnarlaust. og á óvæntan hátt. Krabbinn 21. júní — 22. júlí Reyndu að fyrirgefa eitthvað, sem gert hefur verið á hluta þinn, enda þótt þér muni reynast erfitt að gleyma því. Athugaðu vel, hvar þú stendur fjárhagslega, og leggðu ekki út f neinar vafasamar fjárfestingar. Ljónið 23. júlf — 22. ágúst Láttu ekkert tækifæri ónotað til að uppræta ósamkomulag, sem ríkt hefur upp á sfðkastið. Reyndu að hvflast eins og unnt er, og gerðu þér grein fyrir, með hvaða hætti velferð heimilisins er bezt borgiði Mærin 22. ágúst — 22. september Stundum vantar talsvcrt á, að þú gerir nógu miklar kröfur, og á það jafnt við um kröfur tíl sjálf (s)(rar) þfn og annarra. Sennilega er þetta aðalástæðan fyrir þvf, að þú nærð ekki jafn góðum árangri og æskilegt er. Vogin 23. september — 22. október Nú er komið að leikslokum, og þú þarft að leggja spilin á borðið. Þú skalt vera hreinskilin(n) — það borgar sig bezt úr þvf, sem komið er. Leitaðu ráða hjáþér reynslurfkara fólki. Drekinn 23. október — 21. nóvember Þegar neyðin er stærst er hjálpin níest — og hún kemur ifr þeirri átt, sem þú áttir sfzt von á. Sýndu þakklæti þitt f verki, og vertu ekki feimin(n) við að láta tilfinningar þfnar f ljós. Bogmaðurinn 23. nóvember — 21. desember Klaufaskapur þinn, og óheppni sökum hans, er stundum með ólfkindum. Þegar maður er búinn að verða sér til skammar er ekkert annað að gera en að biðjast afsökunar, en þá verður Ifka hugur að fylgja máli, efeitthvert mark á að vera takandi á þvf. Steingeitin 22. desember — 19. janúar Láttu þér nægja að rækja skyldustörfin f dag. Þetta er ekki tfmi neinna meiriháttar afreka. Þú þarft að gera upp sakirnar við einhvern — og því fyrr því betra. Þú ættir að gera meira af því að velja þér fremur viðmælendur en viðhlæjendur. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar Þér mun ganga vel f starfi þfnu f dag, en varastu að styggja þá, sem viðkvæmir eru. Þú ættir að athuga betur heilsufar þitt. Sýndu samstarfsvilja og tilhliðrunarsemi. Kvöldið sérlega ánægjulegt heima fyrir. Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz Ekki vrrður margt til aS angra þig f dag. Þú ættir a5 gefa þérgóSan tfma til aS sinna fjölskyldu þinni, sérstaklega þeim, sem eldri eru. Einnig ættir þú aS athuga meS aSdrstti til heimilisins. Olíuviðræður Vinarborg, 11. okt. AP. FULLTRÚAR olíuríkjanna fyrir botni Persaflóaog stærstu vestrænu oliufélaganna hafa komið sér saman um nýjan fundartima til að ræða verð- hækkanakröfur framleiðend- anna, en þessar viðræður stöðv- uðust á mánudag. Nýi fundar- tíminn er á föstudag. Viðræð- urnar hafa legið niðri síðan á mánudag vegna þess, að olíu- félögin vildu fá umhugsunar- tima til að semja móttillögur gegn kröfum framleiðendanna. Til sölu vid Sörlaskjól Hæð og ris, sem er 3ja og 4ra herb. ibúðir, ásamt góðum bílskúr. Eignina má einnig nota sem 7 — 8 herb. íbúð. Vel ræktuð lóð. Mjög góð eign. Sala og Samningar Tjarnarstíg 2 símar 23636 og 14654 Góð veiði þegar gefur Góð síldveiði er nú á Norður- sjávarmiðum, þegar veður leyfir, en nokkuð brælugjarnt hefur verið þar upp á siðkastið. Bátarnir halda sig nú mest austur af Hjaltlandi, en þaðan er tæp- lega tveggja sólarhringa sigling til Danmerkur. — Um dýra- spítala Framhald af bls. 11. sjálfsagt. Rikisstjórnin mætti vel við una, ef ekkert af hennar útgjöldum væri hlægilegra í augum þjóðarinnar en þessi eina og hálfa milljón (sem ekki fæst) Raunar er það Islendingum til stórrar vansæmdar að hafa ekki sjálfir sýnt þann manndóm að koma upp slíkri stofnun af eigin rammleik. Það er rétt hjá ráðherranum, að hundahald er bannað I Reykjavik, og við þvi er ekkert að segja og líklega öldungis rétt stefna en verði þessi gjöf ekki þegin, mættum við öll hundar heita. Reykjavík 11. september 1973. Sigurlaug Björnsdóttir. Styrktarfélag Fóstbrædra Söngur grln og gaman Tvær fyrstu haustskemmtanirnar verða haldnar í Fóst- bræðrahúsinu um næstu helgi þ.e. föstudaginn 19. og laugardaginn 20. þ.m. Skemmtanirnar verða alls átta. Öllum styrktarfélögum verða send aðgöngukort að einhverri þeirra. ATHUGIÐ VEL DAGSETNINGU YKKAR KORTA, þegar ykkur berast þau. Velkomin FÓSTBRÆÐUR. betta er fyrsti vinningurinn I jólahappdrætti Krabbameinsfélagsins. Dodge-Dart 1974. Fjögra dyra bifreid med aflstyri Vegna tafa á afgreiðslu bílsins frá Bandarikjunum verður hann ekki til sýnis í Bankastræti fyrr en í byrjun næsta mánaðar. Þangað til munum vér selja happdrættismiða við Bernhöftstorf- una í Bankastræti ur SIMCA-BIFREIÐ þeirri, sem myndin að neðan sýnir. Þessi hagnýta SIMCA bifreið verður annar vinningur í happdrætti voru, sem dregið verð- ur um í desember. MIÐINN KOSTAR 100 KRÓNUR. Happdrættl Krabbamelnsfélagslns

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.