Morgunblaðið - 17.10.1973, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1973
Kristinn Jörundsson átti stórgöðan Ieik með tR-ingum á
móti Armanni, meðfylgjandi mynd sýnir Kristin kominn f skot-
færi framhjá Jóni Sigurðssyni, (Ljósm. Mbl. K.Ben.)
Leikið um
þriðja sætið
Fylkir og Armann leika sfn á
milli um 7. og 8. sæti Reykja-
vfkurmótsins f handknattleik f
Laugardalshöllinni f kvöld.
Hefst leikurinn klukkan 20.15,
en að honum loknum leika ÍR
og KR um þriðja sætið f
mótinu. Urðu IR og KR númer
tvö f sfnum riðlum. iR-ingar
eru sigurstranglegri á pappfrn-
um. en sigur þeirra alls ekki
öruggur þvf KR-ingar hafa
komið sterkari úr leikjum
sfnum f mótinu, en búast hefði
mátt við.
Badminton
hjá Víkingi
Badmintondeild Vfkings hef-
ur nú hafið starfssemi sfna af
fullum krafti, en deildin hefur
þó enn nokkra tfma aflögu. Eru
þar hádegistfmar á mánu-
dögum og miðvikudögum,
Heimir Sigurðsson varaformað-
ur deildarinnar verður til við-
tals f LaugardalshöIIinni milli
klukkan 12 og 13 f dag og geta
þeir, sem áhuga hafa, orðið sér
úti um tfma í dag.
Þjálfarar funda
Aðalfundur Knattspyrnu-
þjálfarafélagsins verður hald-
inn að Sfðumúla 11 f kvöld og
hefst klukkan 20. Fundarefni
er venjuleg aðalfundarstörf.
Þjálfarar eru hvattir til að
mæta og sýna samstöðu.
Kastmót A
Kastmót Armanns f kúlu-
varpi og kringlukasti karla og
kúluvarpi kvenna fer fram á
Melavellinum f dag og hefst
klukkan 15.30.
Ársþing FRÍ
Arsþing Frjálsfþróttasam-
bands tslands verður haldið á
Hótel Loftleiðum dagana
17.—18. nóvember og hefst
klukkan 14 báða dagana. TiIIög-
ur til afgreiðslu á þinginu
þurfa að berast FRl 14 dögum
fyrir þing.
Ársþing BSÍ
Arsþing Borðtennissam-
bands tslands verður haldið að
Hótel Esju næstkomandi laug-
ardag 21. október og hefst þing-
haldið kl. 14.00.
Stadion sigraði
Danska liðið Stadion sigraði
júgóslavneska liðið Borac frá
Banja Luka með 19 mörkum
gegn 16 f seinni leik liðanna f 1.
umferð Evrópubikarkeppninn-
ar f handknattleik. Leikurinn
fór fram f Kaupmannahöfn.
Fyrri leikinn, sem fram fór f
Sarajevo unnu Júgóslavarnir
20—10, og halda þvf áfram í
keppninni. t leiknum f Kaup-
mannahöfn skoraði Gunnar
Nielsen flest mörk fyrir
Stadion 6, en Bijilic var mark-
hæstur Júgóslavanna með 7
mörk.
Kristinn lagði grunninn
að góðum sigri IR-inga
Kristinn Jörundsson sýndi það
og sannaði og sannaði á mánu-
dagskvöldið, að hann er okkar
albesti bakvörður í körfu-
knattleik. tR lék þá gegn
Armanni og vann stóran sigur.
Maðurinn bak við sigurinn var
Kristinn, sem átti snilldarleik,
sérstaklega f fyrri hálfieik, en
meiddist f byrjun sfðari hálfleiks
og náði sér ekki verulega upp
eftir það. Stórsigur tR f þessum
leik 76:58 gefur liðinu aukna von
f mótinu og hver hefði gert ráð
fyrir þvf í upphafi mótsins. Nú
um helgina kom enn eitt áfallið
yfir liðið, Anton Bjarnason gekk
að nýju yfir f HSK, en tR-ingar
höfðu alið þá von f brjósti að
hann myndi leika með liðinu f
vetur. Að vfsu bætir það úr skák,
að líklegt er að Agnar Friðriksson
hefji æfingar með liðinu innan
skamms.
Ármannsliðið olli miklum
vonbrigðum í þessum leik. Liðið,
sem sýndi svo góðan leik gegn KR
fyrr i mótinu, var nú yfirspilað á
öllum sviðum leiksins, og oft var
ekki heil brú í leik liðsins. Með
þann mannskap, sem liðið hefur
yfir að ráða, á það að vera í
fremstu röð, en liðið er svo
mistækt, að slíkt getur ekki orðið
að óbreyttu.
Ármenningarnir héldu í við ÍR
f byrjun leiksins, og staðan eftir
7 mín. var 12:10. En á næstu
þremur mín. breytti ÍR stöðunni í
24:10, og þar af skoraði Kristin 10
stig í röð. Mesti munur á liðurium
í fyrri hálfleik var 15 stig, 32:17
fyrir ÍR, en í hálfleik var staðan
34:27.
Strax í byrjun síðari hálfleiks
meiddist Kristinn, og það var ekki
að sökum að spyrja. Armenningar
minnkuðu muninn strax í þrjú
stig, og það þótt Jón Sigurðsson
sæti hjá vegna þess að hann var
með 4 villur. Þá kom Kristinn inn
á að nýju, og þótt hann gæti ekki
beitt sér að fullu eftir þetta þá
hafði hann mjög jákvæð áhrif á
leik liðsins. ÍR-ingar juku forskot
sitt að nýju, og síðustu fimm mín.
leiksins var um slgjöra sýningu að
ræða. Armenningar höfðu þá
gefist upp, Jón Sigurðsson var
kominn með 5 villur, og þrír aðrir
leikmenn liðsins voru með 4.
Það gat því ekki farið nema á
einn veg, ÍR vann stóran sigur og
lokatölur urðu 76:58 eins og fyrr
sagði.
Það, sem einkennir ÍR-liðið
núna, er mikil leikgleði. Allir
leikmenn liðsins berjast eins og
þeir geta, og aldrei var slakað á.
Auk Kristins áttu þeir mjög
góðan leik Þorsteinn Gíslason og
Kolbeinn Kristinsson, sem nú er
að ná sinni fyrri getu.
Það var einungis Símon
Ólafsson, sem sýndi einhverja
umtalsverða getu f þessum feik,
þótt hann ætti dauða kafla inn á
milli. Jón Sigurðsson réð ekkert
við Kristin f vörninni, og ÍR-ingar
gáfu honum aldrei neinn frið í
sókninni.
Stigahæstir: ÍR: Kristinn 27,
Þorsteinn 17.
Armann: Símon 16, Birgir öm og
Jón Sigurðsson 9 hvor.
r
KRvann ISá fyrstu mínútum
— og nú eiga þeir aðeins eftir að mæta IR-ingum
Það var aldrei nokkur vafi á þvf
hvort Iiðið myndi sigra f leik KR
gegn IS. KR-ingar gengu að
leiknum með það eitt f huga að
knýja fram úrslit strax og það
tókst án teljandi erfiðleika.
KR-ingar hafa þvf leikið alla
sina leiki nema gegn tR, og nú er
spurningin, hvort þar verður um
hreinan úrslitaleik að ræða eins
og undanfarin ár.
KR-ingar sýndu það í fyrri
hálfleiknum að liðið er í mikilli
framför þessa dagana. Þeir náðu
fljótt mikilli yfirburðastöðu 14:2
og síðan 26:8. IS menn fengu
aldrei stundlegan frið f sóknar-
aðgerðum sínum, boltinn var
hirtur af þeim án nokkurrar
miskunnar, og og stuttu síðar var
karfa skoruð hinum megin á
vellinum. Staða i hálfleik 35:16
gefur nokkuð góða mynd af
þessu.
KR-ingar léku ekki eins
ákveðið í síðari hálfleiknum, og
ÍS tókst að minnka muninn hægt
en bítandi allan tímann. Þegar
svo þrjár mín. voru til leiksloka
var munurinn aðeins fjögur stig.
En þrátt fyrir það hafði maður
það á tilfinningunni að sigur KR
væri ekki í hættu. Það hafði e.t.v.
mikið að segja fyrir ÍS að inná-
skiptingar voru oft á tfðum furðu-
legar, t.d. sátu þeir báðir hjá
Albert og Steinn, þegar mest reið
á fyrir liðið að notfæra sér krafta
þeirra. Lokatölur 69Í63 fyrir KR.
KR-liðið var mjög jafnt sem
oftar, þeir Kolbeinn, Gunnar,
Guttormur, Birgir og Kristinn
áttu allir mjög góða kafla í
þessum leik, og verða illstöðvandi
í vetur. Gunnar Gunnarsson átti
nú sinn besta leik í langan tfma,
og þegar þessi gállinn er á honum
er hann einn okkar alsterkustu
bakvarða.
ÍS-liðið var hvorki fugl né
fiskur í þessum leik, þrátt fyrir að
þeir næðu að bjarga andlitinu í
síðari hálfleik. Það var aðeins
einn maður, sem skar sig úr, bak-
vörðurinn Þorleifur Björnsson.
Allt of mikið var um pat og fum,
og rangar sendingar skiptu
sennilega tugum. Undarlegt eftir
góðaframmistöðu liðsins í haust.
Stigahæstir: KR: Birgir Guð-
björnsson 18, Kolbeinn Pálsson
og Guttormur 14 hvor.
IS: Ingi Stefánsson 15, Bjami
Gunnar 14.
Getrauna tafla nr. 9 >,o •H 40 cö i—1 U o s Albýðublaoið Vísir •H •r; i—1 •H > 40 VD •n A Tíminn •H •H vH -P ctf ‘rz 05 <D 3 40 0 CQ Sunday Times Sunday People P Cu u ö CD i—1 0 EH >; ctí CO Sunday Express News of The 'World ! Observer SA 1 MTA X LS 2
Arsenal-Ipswich 1 1 2 í 1 1 i 1 i i V X 9 2 1
Coventry-West Ham X 1 1 í 1 X 2 1 í i 1 2 8 2 2
Derb.y-Leicester í 1 1 i 1 í X 1 X i X 1 3 0
Everton-Burnley X 1 X 2 2 2 2 X í X 1 1 4 4 4
Leeds-Liverpool í 1 1 2 X 1 X 1 í X 2 X 6 4 2
Man.Utd.-BirminKham i 1 1 1 1 1 1 1 í 1 1 1 12 0 0
Newcastle-Chelsea 1 1 1 1 1 1 1 1 X 1 X X 9 ð 0
Norwich-Tottenham X V w 2 2 1 2 2 X X X 2 2 1 8 6
Sheff.Utd.-Man.City X 1 X X 1 1 X X 1 1 2 1 6 9 1
Southampton-Stoke 1 1 1 X 1 X 2 1 X X X 1 6 9 1
Wolves-QPR 1 1 X 1 1 1 1 X 1 X 1 1 9 9 0
Pulham-Sunderland 2 1 X 2 X X -1.1-X khi 4 5