Morgunblaðið - 18.12.1973, Síða 6
6
MORttt’XBi/ADi♦): ÞRHMFtfcWtMttH.'ORSRM«KR 1973......
DMCBÖK
í dag er þriðjudagurinn 48. desember, 352. dagur ársins 1973
Eftir lifa 13 dagar.
Árdegisháflæði er kl. 00.59, síðdegisháflæði kl 13.28.
En er vér erum börn. þá erum vér líka erfingjar, og það erfingjar
Guðs, samarfar Krists; því vér líðum með honum, til þess að við
verðum einnig vegsamlegir með honum. Því að ég hygg, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem á oss mun
opinberast. (Rómverjabréfið, 8.17—18).
Þann 24. nóvember gaf séra
Bragi Friðriksson saman í hjóna-
band í Kálfatjarnarkirkju Mar-
gréti Asgeirsdóltur og .Jón Mar
(iuðmundsson. Heimili þeirra
verður að Aragerði 17. V/igiun
(I jósmyndast. Suðurnesia >
Þann 3. nóvember gaf séra
Oskar J. Þorláksson saman f
hjónaband í Dómkirkjunni Ingi-
bjiirgu Sveinbjörnsdóttur og
Gunnar Skúlason. Heimili þeirra
verður aðSléttuvegi 6. Selfossi.
( Ljósmyndast. Þóris).
Vikuna 14. — 20. desember er
kvöld-, nætur- og helgidagavarzla
lyfjabúða i Reykjavík í Iðunnar-
apóteki og Garðsapóteki. Nætur-
varzlan er í Iðunnarapóteki.
Læknastofur eru lokaðar á
laugardögum og helgidögum, en
læknir er til viðtals í göngudeild
Landspítalans í síma 21230.
Almennar upplýsingar um
lækna- og lyfjabúðaþjónustu í |
Reykjavík eru gefnar í símsvara ■
18888.
Mænusóttarbóiusetning fyrir
fullorðna fer fram í Heilsu-
verndarstöðinni á mánudögum kl.
17.00—18.00.
Vaktmaður hjá Kópavogsbæ —
bilanasími 41575 (símsvan).
Tannlæknavakt er f Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla
laugárdaga og sunnudaga kl.
17—18. Sími 22411.
BLÖB 0G TlMARIT
Úlfljótur. blað laganema. 4. tbl.
26. árgangs, er kominn út og er
efni hans m.a. verðlaunaritgerð
Steingríms Gauts Kristjánssonar
héraðsdómara um réttindi og
skyldur sveitarstjórnarmanna og
greinar eftir Þór Viihjálmsson
prófessor um samband stjórn-
málamanna og embættismanna í
litlu þjóðfélagi, llörð Einarsson
hrl. um fébótaábyrgð fasteignar-
eiganda á búnaði hennar og Jöna-
tan Þórmundsson prófessor um
mútur.
Barnablaðið. kristilegt blað fyr-
ir börn og unglinga, 3. tbl. 36. árg.
er komið út. I blaðinu eru sögur.
vers og annaðefni viðhæfi barna
og unglinga.
Hlynur, 11. tbl. 21. árg. er kom-
inn út. Útgefendur eru S.Í.S..
Starfsmannafélag S.l.S. og Félag
kaupfélagsstjóra. í ritinu er efni
um samvinnumál hér og erlendis,
grein urn atvinnuskiptingu. or-
lofsbúðir l.fl.
Munið
jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
að Njálsgötu 3. — Opið frá kl.
10—6.
| SÖFiMIIM
Myndasafn Einars Jónsson-
ar verður lokað vegna viðgerða
fyrst urn sinn.
Faldafeykir
Eldsnemma i morgun kom
Faldafeykir. Igamla daga gekk
allt kvenfólk i pilsum. og þá var
það eftirlætisiðja Faldafeykis
að stríða kvensunum með því
að blása á þær. Hann blés svo
fast, að „faldarnir lyftust og
sfðpilsin sviptust", og þá var nú
Faldafeyki dillað. \’ú skemmtir
hann sér ekki eins vel og áður.
vegna þess að nú er flest kven-
fölk farið að vera í sfðbuxum.
nema þegar það hefur mest við.
Annars eru jólasveinarnir
svo vanafastír. að þeim gengur
illa að laga sig að breyttum
aðstæðum Þess vegna hefur
Faldafeykir ekkert hætt að
blása. en nú blæs hann aðallega
út í loftið svo að bræður hans
eru farnir að halda. aðhann sé
meira en lítið skrýtinn.
| IMÝIR BORGAHAR
A Fæðingarheimili Reykja-
víkur fæddist:
Steinunni Skúladóttur og
Guðna Erlendssyni, Re\nimel 72.
Re'ykjavík. sonur þann 8. desem-
ber. Ilann vó rúmar 12 merkur og
var48 sm að lengd.
Guðrúnu Sigurborgu Viggós-
dóttur og Jóhanni Ólafssyni. Mel-
gerði 17, Kópavogi. dóttur. þann
8. desember. Hún vó rúmar 13
merkur og var 50-sm að lengd.
Guðfinnu Kjartansdóttur og
Uag bj art i S ig ur b ran dssy ni,
Dvergabakka 8. Reykjavík, sonur,
þann 9. desember. Ilann vó tæpar
16 merkur og var 51 sm að lengd.
Kristfnu Benediktsdóttur og
Friðjóni Sæmundssyni, Gullteigi
29. Reykjavík. dóttir, þann 9.
desember. Hún vó tæpar 16
mei-kur og var 53 sm að lengd.
MUNIÐ
JÓLASÖFNUN
MÆÐRASTYRKS-
NEFNDAR
NJALSGÖTU 3.
Ast er
....að vefja honum
um fingur þér, án
þess að hann
taki eftir því
LÁRÉTT: 1. henda 6. ben 8. af-
dráttarlaus 11. vafa 12. titill 13.
klaki 15. forskeyti 16. hvílist 18.
berjum
LÓÐRÉTT: 2. ílát 3. maður 4.
kögur 5. ógæfa 7. reyktum 9.
skammstöfun 10. klukku 14.
útlæg 16. 2 eins 17. skammstöfun
Lausn á síðustu krossgátu
LÁRÉTT: 1. malur 5. áls Í. nögl 9.
si 10. ilsigið 12.XX 13. nesi 14
ónslö. eitla
LÓÐRÉTT: 1. menínu 2. lags 3.
ullinni 4. RS 6. sfðina 8. öln 9. sís
11. gest 14. ÓE.
FRÉTTIR
K.F.l'.K. heldur jólafund sinn í
kvöld kl. 20.30 að Amtmannsstíg
2.
1 SÁ IMÆSTBE5T1 ~
Fyrirsögn í dönsku blaði:
Lfk fannst í Nýhöfninni — var á
ferðalagi.
Þann 3. nóvember gaf séra llall-
dór S. Gröndal saman í hjónaband
í Frfkirkjunni Sígrúnu Harðar-
dóttur og Steinþór Magnússon.
Heimili þeirra verður að Mýrar-
holti 8, Ólafsvík.
(Ljiismyndast. Þóris).
Þann 10. növember gaf séra
Bjarni Sigurðsson saman í hjóna-
band í Lágafellskirkju Hjördísi
Guðmundsdóttur og Þórð Ilauks-
son Heimíli þeirra verður að
Merkjateigi 2. Mosfellssveit.
( Ljcismyndast. Þóns).
Jóla-
getraun
barnanna
I þessum fimmta þætti jólagetraunarinnar, á eins og í fyrri þáttum
að tnerkja við, hver eftirfarandi texta á við myndina.
a) Nú ætla ég að muna aðsenda jólapóstinn á réttum tíma.
b) Sérðu ekki, að þaðstendur, að reykingar eru bannaðar.
c) Ef ég ekki f æ stóra og fullkomna Járnbrautarlest, þá
sleppi ég.
Þegar þið svo hafið fengið alla þættina átta. þá sendið þið okkur
getraunaseðlana merkta. Svörin eru létt, en sá sem heppnastur er fær
skauta ásamt skóm f verðlaun. Getrauninni lýkur eftir þrjá daga og
síðan er gefin viku skilafrestur. Munið, við viljuni fá alla seðlana í
einu, en ekki jafnóðum.