Morgunblaðið - 18.12.1973, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.12.1973, Blaðsíða 15
MOKGUNBLAÐIt). MiHWUOAGUK 18. DKSKMBKK 1973 15 jBSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS=^^SSSSSSÍ Fyrsti bekkur t leikfimitfma hji Sðlveigu Halldórsdóttur, sem raunar er nemandi f 2. bekk. (Ljósm. Mbl.: Br.H.) r SAL-ast eða sálast leiklistin í landinu ÞAÐ er væntanlega ekki algengt, að skóli sé stofnaður og starfrækt- ur af nemendum sjálfum, vegna þess aðengir aðrir gerðu það fyr- ir þá. Leiklistarskóli SÁL er nú á öðru starfsári. Þegar féiagarnir í SÁL iögðu í hann í fyrrahaust með þennan nýstárlega skóla hafði enginn Ieiklistarskóli verið starfandi í landinu um alllanga hríð og virtist allt óvfst um fram- tíð leiklistarmenntunar á íslandi. Og þrátt fyrir það, að starfsemi SAL-skólans sé komin á góðan rekspöl núna og hafi raunar bætt úr algeru stöðnunarástandi f þess- um efnum, hefur hann ekki enn fengið opinbera viðurkenningu sem slíkur. En nú standa vonirtil þess, að úr verði bætt, t.d. með auknum fjárveitingum frá stjórn- völdum. Bráðabirgðastyrk fékk SÁL í haust upp á 100.000 kr. Slagsfðunni þótti tími til kominn að líta inn hjá þessum hressilega skóla, þar sem allir eru jafnrétt- háir, til þess að fræðast ofurlítið um starfsemina f vetur. Kennslan fer fram á tveimur stöðum; fyrsti bekkur niætir fj<ira daga í viku í kvöldskóla að Frf- kirkjuvegi 11, en annar bekkur fær inni f Tónabæ rnilli kl. 1 og 6, fimm daga í viku. Báða þessastað- i fær SÁL endurgjaldslaust hjá Reykjavfkurborg. Nemendafjöldinn er í vetur 14 í fyrsta bekk og 12 f öðrurn bekk. Þetta er fólk úr ýmsum áttum og aldursskeiðum, sem þó á þetta eitt sameiginlegt, — ábuga á leik- list. Aldurslágmarkið er sett við 18 ár, en hins vegar er ekkert aldurshámark. M.a. eru þarna all- margar húsmæður og mjög marg- ir vinna meðfram skólanum, — einkum þeir, sem eru í fyrsta bekk og stunda tíma á kvöldin. Karlmenn eru í nokkrum minni- hluta í skólanum, eða alls 7. Kennslustundirnar eru 22 á viku í 1. bekk og 30 í 2. bekk, og segja má, að námsgreinar séu alls um 9 talsins. Undirstaða námsins hjá SÁL er líkamsþjálfun og á hana er lögð rík áherzla. Er hún kennd minnst þrisvar í viku hjá báðum bekkjum. Annasl Ilafdís Ámadöttir kennsluna ásarnt þeini Þuríðí Friðjönsdóttur og Sólveigu Ilauksdóttur. Ililde Ilelgason kennir raddþjálfun, en Helga Hjörvar svokallaða „grúppu- dýnamík", sem ætlað er að byggja upp hópkennd meðal nemenda, skapa gagnkvæmt traust og gera þá að virkri heild. „Grúppu- dýnamíkin" er kennd í 1. bekk og undirbýr nemend- ur undir hópvinnuna í 2. bekk. Leiktúlkun er aðeins kennd i' 2. bekk. Ilana annast leikararnir Sigmundur Öm Arngrfnisson og Þórhallur Sigurðsson til skiptis. Tónlistarkennsluna sér Sigríður Pálmadóttir um ásamt Gylfa Gunnarssyni. Leikritunarsögu kenna í 1. bekk Þorvarður Ilelga- son og Þorgeir Þorgeirsson, en 2. bekkur hefur ekki enn fengið kennara í leiklistarsögu. Þá leið- beinir Þorgeir Þorgeirsson unt heimildasöfnun í islenzkri leik- ritunarsögu með 2. bekk. Hugrún Gunnarsdóttir sér svo um tíma i leikritalestri og persónugrein- ingu með 1. bekk, og einnig eru sérslakir fyrirlestratimar hjá báð- um bekkjum einu sinni f viku. Og allt er þetta skipulagt af nemendunum sjálfum, þö með samráði við kennarana, þvi að annan hvern laugardag halda báðir aðilar sameig- inlegan fund. þar sem rætt er um fjármálin. verka- skiptingu, og hin og þessi vanda- mál, sem upp koma i starfinu. Kennarar hafa þannig atkvæðis- rétt, þegar ákvarðanir eru teknar um stjórn skólans. Hins vegar ráða nemendur sína kennara sjálfir og geta einnig sagt þeim upp ef þeim líkar ekki við þá, En yfirleitt er sambandið milli nem- enda og kennara ákaflega gott. að því er SÁL-fólk segir, og kennar- arnir sýna skólastarfinu mikinn áhuga. Til þess að standa straúm af kostnaðinum við skólahaldið. einkum kaupgreiðslum til kenn- arana, greiðir hver nemandi tvö þúsund krónur í skólagjald á mánuði. Ekki nægir þetta þó til þess, að þeirn takist að greiða kennurum sínum eins gott kaup og þau vildu. 1 fyrra segja þau. að kennararnir hafi f rauninni unnið þetta sem hreina góðgerðarstarf- semi því aðeins var unnt aðborga þeim 250 kr.'á tfmann. I vetur vonast þau lil þess að fá fjárstyrk frá rfkinu þó aðekki sé Ijóst. hvað hann verður hár. en engu aðsíður telja þau lfklegt. að enn verði þau að undirborga kennarana að ein- hverju marki. Sýnir þetta ásland ekki sízt samstarfsviljann. sem skapast af hreinum áhuga á þrif- um leiklistarinnar. Auk þessa skölagjalds skjóta svo nemendur saman fyrir alls kyns öðrum útgjöldum. þeg- ar þörf krefur. Gjaldker- inn er úr hópi nemenda. og að öllu leyti skipta þeir með sér verkum um starf- Slagsfðan innti einn af kenn- urununi. Sigmund Örn Árn- grfnisson leikara, eftir áliti hans á skólanuin sem leiklist- arskóla. „Ég tei hann jafn-~ góðan þeim leiklistarskóluin, sem hér hafa verið," svaraði Sigmundur Örn, „ef ekki hetri. Það jákvæðasta við skólann finnst mér, hvað lýðræðið þrífst vel og hversu vel krökk- unum gengur aðstjórna sínum skóla sjálf. Það er oft á tíðum beinlínis aðíláunarvert." rækslu skdlans. llins vegar hefur nú verið stofnað „embætti" fram- kvæmdastjóra. sem- á að verða eins konar andlit skólans út á við. þótt að öðru leyti verði sljörn.in áfram í höndum nemenda Ilelga Hjörvar tók þetta starf að sér. en tekur ekkert fyrir það aukalega. Um framlíðina er SÁL-föIk bjartsýnt. Fái þau fjárstyrk og viðurkenningu hins opinbera. telja !>au helztu erfiðleikana að baki. Xám við skölann er miðað við fjögur ár og Ineði nemendur og kenn- arar vinna stöðugt að þ\T að möta framtíðarfyrirkomulag þess. Taka jtatt þá bæði mið ;ii' eigin reynslu af starfseminni hingað til og af fyrirkomulagi við leiklistar- skóla erlendis, þá einkum á \orð- urlöndum. Og þess má geta. að SÁL-skölinn islenzki hefur vakið mikla eftirtekt á hinu m Xorðurlöndunum Þannig tekur sköltnn á sig mynd smátt og smátt ng þatt reyna að fylgjast sem bezt með nýjungum í leiklislarkennsltt er- letidis. Segisl S.-VL-föIk ætla að berjast ötrautt til að tryggja starfsgrundvöll skólans og hafa þau lagt hart að sér við að ná sambandi við ráðamenn til að kynna þeim starf hans. Ekki segjast þau hafa orðtð vör við neikvæða afstöðu leikhúsanna til skölans. en telja mjög miktl- vægt. að téngsl-vio þatt séu sem nántist. Og þött þatt leggt ekkt áherzlu á pröf sem mælikvarða á hæfileika. vonast þau til. að það verðt þeim ekki fjiitur um föt. Kattnar tfðkaðisl það í fyrra, að kennarar gáftt nemendum um- sagnir persónulega í lok námsárs- ins um. hvernig þeir stæðu. og kynni sá háttur að verða hafður á áfram. En sem skiilastjórar og nemend- ur í senn segist SÁL-fölk leggja ríkja áherzlu á sjálfsaga. Til dæm- is er nemandi. sem ekkt hefur mætt í tíma 10 sínnum. sjálfkrafa rekinn úr skóla hafi hann ekkt gilda ástæðu fyrir skröpinu. Og þau telja reynsluna, sem lilotizt hefur af hinni iýðræðislegu stjörn þessa skóla. svo g<>ða. að þö svo að ríkisleiklistarsköli komist á lagg- irnar seint og um síðir sé ekki öruggt. að þau leggi sinn skiíla niður. — A Þ HVERT TELUR ÞU BRYNASTA VERKEFNIÐ I LEIKLISTARSKOLAMALUNUM? Þessa spurningu lagði Siagsfðan fyrir fjóra nemendur f leiklistarskóla SÁL «g einn af kennuruin þeirra. Viðar Eggertsson f 2. bekk: Mér finnst stórt atriði, að það vantar leiklistarkennslu í skól- um almennt. Það þarf að kenna leiklist alveg frá barnaskóla- stiginu og gera hana að virkum þætti í skólanánu. En brýnast er, að þessi skóli okkar verði af stjórnvöldum metinn sem slík- ur, þ.e. sem fullgildur skóli, en ekki áðeins tómstundagaman. Guðlaug Bjarnadóttir f I. bekk: Auk ríflegri fjárstvrks frá stjórnvöldum þarf SÁL-skólinn að ná tengslum við aðra leikstarfsemi, — leikhúsin sjálf, þannig að við séum viður- kennd af fleiri aðilurn en okkur sjálfum. Evert Ingólfsson I 2. bekk: Mikilvægast er. að þessi eini leiklistarskóli, sem til er í land- inu, fái að Iifa áfram. Til þess þarf peninga. Við viljum t.d. geta greitt kennurum okkar sómasamlegt kaup fyrir alla þeirra miklu vinnu. Edda Hólin f 1. bekk: Til þess að SÁL-skólinn geti starfað áfram þarf hið opinbera að viðurkenna gildt hans með fjárveitingum. Og því lyrr þvt betra. Þetta er nú einu sinni eini leiklistarskölinn i landinu. Sigrfður Pálinadóttir tónlistar- kennari: Þegar þessi höpttr fór af stað var enginn leiklistarsköli til hér. Xú er hann á öðru starfs- ári. Krakkarnir hafa tmnið svo vel við að koma skölanum á faslan grundvöll. að alger nattð- syn er. að yfirvöld viðurkenni hann sem slíkan á borði setn f orðt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.