Morgunblaðið - 18.12.1973, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18 DESEMBER 1973
Föstu launin
hjá BSRB
Hér fer á eftir tafla yfir launa-
flokka og launaþrep hins nýgerða
kjarasamnings milli fjármálaráð-
herra og Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja fyrir tímabiliS 1.
janúar 1974 til 30. júní 1976. Þar
segir svo í 1. grein samningsins
um föst laun:
Föst mánaðarlaun starfsmanns,
sem gegnir fullu starfi samkvæmt
8. gr., skulu vera sem hér segir í
neðángreindum launaflokkum,
frá og með 1. janúar 1974, sam-
kvæmt nánari ákvæðum samn-
ings þessa, miðað við vísitöluna
149,89.
Þriðja bók Cannings
komin út á íslenzku
Hl'LlD andlit nefnist ný bók eft-
ir Yictor Canning, sem bókaút-
gáfan Stafafell hefur sent frá sér.
Fjallar sagan um mann. sem sak-
laus hefur verið dænidur í ;evi-
langt fangelsi fyrir inorð, en tekst
að strjúka og hafa upp á
morðingjanuni eftir ýniiss konar i
þrekraunir.
Aður hafa komið út eflir Vietor
■ anning á íslenzku bækurnai
Röinm eru reiðitár. Slönguáætl-
unin og Sporðdrekabréfin. Ilefur
Canning getið sér gotl orð fyrir
hugvitssemi og frásagnarlist.
Hann hefur stundað blaða-
mennsku og ýmiss konar ritstörf
og hefur m.a. samið mörg kvik-
myndahandrit.
Ilin nýútkoinna bók er 188 blað-
síður. Ingólfsprent h.f. sá um
setningu og prenlun.
Launa-
flokkur 1. þrep 2. þrep 3. þrep 4. þrep 5. þrep
10. 29.271 30.611 32.228 33.945 35.661
11. 30.611 32.228 33.945 35.661 37.377
12. 32.228 33.945 35.661 37.377 39.265
13. 33.945 35.661 37.377 39.265 41.667
14. 35.661 37.377 39.265 41.667 44.070
15. 37.377 39.265 41.667 44.070 46.315
16. 39.265 41.667 44.070 46.315 48.560
17. 41.667 44.070 46.315 48.560 50.806
18. 44.070 46.315 48.560 50.806 53.051
19. 46.315 48.560 50.806 53.051 55.297
20. 48.560 50.806 53.051 55.297 57.542
21. 50.806 53.051 55.297 57.542 59.787
22. 53.051 55.297 57.542 59.787 62.033
23. 55.297 57.542 59.787 62.033 64.278
24. 57.542 59.787 62.033 64.278 67.325
25. 59.787 . 62.033 64.278 67.325 70.372
26. 62.033 64.278 67.325 70.372 73.420
27. 64.278 67.325 70.372 73.420 76.467
28. 67.325 70.372 73.420 76.467 79.514
B1 83.074 83.074 83.074 83.074 83.074
B2 87.886 87.886 87.886 87.886 87.886
B3 92.697 92.697 92.697 92.697 92.697
B4 97.509 97.509 97.509 97.509 97.509
B5 103.122 103.122 103.122 103.122 103.122
Grunnlaun samkvæmt þessari grein skulu hækka um 3% þann 1.
desember 1974 og þau grunnlaun skulu hækka um 3% þann 1.
september 1975.
Okkur er ánægja að tilkynna
þeim fjolmörgu, sem hafa
keypt af okkur kæliskápa og
þvottavélar og eru ánægðir
með þau kaup, að nú hofum
við einnig á boðstólum Ignis
eldavélar, sem einnig má
mæla með sem sérstakri
gæðavoru
Við bendum meðal annars á,
að fylgjandi er grill
asamt rafknunum
grillteini.svo að nú er hægt að
elda matinn með þeim^hætti,
sem mest tíðkast nú — grillið
læri, kjúklinga eða annan mat
eftir hentugleikum, og smekk,
og látið hitastilli og klukku
vera yður til hjálpar við að fá
sem beztan mat með sem
minnstri fyrirhöfn,
Það er tryggt með þessarí
IGNIS vél, sem er að öðru
leyti búin eins fullkomlega og
kröfur eru gerðar til víða um
heim
Og um hagstæðara verð er
vart að ræða núna
Og þegar þér kaupið IGNIS,
skuluð þér muna, að þar fer
tvennt saman, sem aðrir bjóða
ekki —
ITALSKT HUGVIT OG HAND
LAGNI
ISLENSKUR LEIÐARVISIR
FYLGIR — IGNIS VERÐ
VARAHLUTA OG
VIÐGERÐAÞJONUSTA.
HVERS VIRÐI ER ÞEKKING
OG ÞJÓNUSTA FAGMANNA’
RAFIÐJAN
VESTURGÖTU 11 SÍM! 19294
RAFTORG
WAUSTURVOLL SÍMI 26660
Það veldur mestum erfiðleikum í umferðinni þessa dagana, hvað
margir ökumenn leggja bifreiðum sínum ólöglega.
Engar umferðartak-
markanir fyrir jólin
LÖGREGLAN í Reykjavfk hefur
ákveðið að auglýsa ekki takmörk-
un á umferð fyrir jólin, eins og
venja hefur verið, heldur mæta
aukinni umferð með leiðbeining-
um til ökumanna og vegfarenda
um að fylgja settum reglum. Hins
vegar mun lögreglan grfpa til ráð-
stafana og takmarkana á umferð
eftir því sem tilefni er til hverju
sinni, en reynt verður að banna
og takmarka umferð sem allra
minnst.
Mikilvægt er að ökumenn velji
réttar akstursleiðir og aki ekki að
óþörfu um þær umferðargötur,
sem mest umferðarálag er á. Öku
menn, sem ætla frá austurborg-
inni í miðborgina eða vesturborg-
ina eru beðnir að aka ekki um
Laugaveg, heldur Skúlagötu eða
Hringbraut, enda getur það spar-
að þeim 15 — 20 mfn. töf.
Fólk er hvatt til að aka ekki á
milli verzlana, heldur finna bif-
reiðum sínum stæði og ganga
milli verzlananna. Það veldur
mestum erfiðleikum í umferð-
inni þessa dagana, hvað
margir ökumenn leggja
bifreiðum sínum ólöglega. Þeir
geta átt von á því, að lögregl-
an neyðist til aðfjarlægja bifreið-
ar þeirra, auk þess sem þeir verða
kærðir. Gjaldskylda við stöðu-
mæla er jafnlengi og verzlanir
eru almennt opnar. Frá og með
miðvikudeginum 19. des. verða
stöður bifreiða á stóru svæðunum
við Vonarstræti og Vesturgötu
takmarkaðar við 60 mín. Þeim til-
mælum er beint til starfsfólks
verzlana og stofnana í miðborg-
inni að leggja ekki bifreiðum sín-
um allan daginn á almenn bif-
reiðastæði, sem ella nýtast fyrir
viðskiptamenn.
(Frá lögreglunni.)
GÓÐ RÆKJUVEIÐI
BÍLDUDALSBÁTA
Bíldudal, 17. des.
Nú hefur verið gert hlé á
rækjuveiðunum, frá 14 des. til
17. jan. Aflinn á haustvertíðinni
er 241 lest hjá 12 bátuin. en var á
sama tíma í fyrra 208 lestir hjá
14 bátum. Þannig að þetta er með
betri vertíðum rækjubátanna.
Af iahæstu bátarnir eru: Vfsir
34'.• lest. Helgi Magnússon 29'i
le*t og Sx anur 26.4 lestir.
Einn bátur er gersður úl á linu.
Arni Kristjánsson Hann byrjaði
seint í növember og aflinn hefur
verið mjög tregur.
Hér er snjólítið í b.vggð, en ein-
hver snjór á fjöllum. En þó er
nokkurn veginn fært daglega'
vestur yfir Hálfdán. Kuldatfð hef-
ur verið mikil og aðfararnótt
föstudags komst frostið niður í 17
stig.
F.vrstu dagana f des. var opnuð í
stórbættum húsakynnum verzlun
Jóns S. Bjarnasonar og er hún hin
glæsilegasta — Fréttaritari.