Morgunblaðið - 18.12.1973, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.JUDAGUR 18. DESEMBER 1973
35
Helgi Einarsson með forláta vasa úr sýrubrenndum kristal. —
Ljósmynd IWbl. Ol.K.M.
Flytur inn listkristal
frá Feneyjum
HÚSGAGNAVERZLUN Helga
Einarssonar hefur nú hafið inn-
flutning á Feneyjakristal í stór-
um stíl, en Iistkristal 1 af þessari
gerð er einn sá kunnasti f heimin-
um, enda er hér um að ræða 600
ára gamla iðngrein, sem hefur
verið f stöðugri þróun. Kom þetta
fram á blaðamannafundi hjá
verzluninni.
Það hefur löngum verið sagt
um Feneyjakristalinn, að hon-
um f.vlgi ávallt að vera til
gagns, gleði og prýði. Fyrirtækin,
sem Helgi Einarsson skiptir við,
eru þekktustu fyrirtækin, sem
framleiða Feneyjakristalinn og
bæði eru heimskunn og selja út
um allan heim. Er ísland nyrsta
landið, sem Feneyjakristall er
seldur til. Helgi flytur m.a. inn
frá eynni Murano í Feneyjum,
sem í aldaraðir hefur verið kunn
fyrir listmunagerð í kristal.
Helgi Einarsson er eini aðilinn
á íslandi/ sem flytur inn kristal
frá Feneyjum. Hver einasti hlul-
ur er ^lásinn og því eru engir
tveir hlutir eins. Hver hlutur er
sjálfstæð handavinna og á boð-
stólum eru margs konar styttur úr
marglitum kristal, vasar, kerta-
stjakar, skálar og fleira. Þá er
einnig það nýjasta í kristalgerð-
inni frá Feneyjum, en það er
sýrubrenndur kristall.
Litasamsetningin í þessum
kristal er algjört leyndarmál
hvers framleiðanda. Kristalgerð-
armenn annarra þjóða hafa lengi
reynt að ná hinni margslungnu
samsetningu Feneyjakristalsins,
en ýmsum atriðum hafa þeir ekki
getað náð. Verðið á þessum list-
kristal frá Fbneyjum er frá 1000
kr. og upp í liðlega 20000 kr.
Húsgagnaverzlun Helga Einars-
sonar er að Laugavegi 168, Nóa-
túnsmegin, en Helgi, sem er víð-
kunnur fyrir húsgagnafram-
leiðslu sína, er nú aðleggja þá iðn
á hilluna, en verzlun hans mun
halda áfram.
FLOSI SLETTIR
ÚR KLAUFUNUM
„Slett úr klaufunum" heitir
nýútkomin bók eftir Flosa
Olafsson. I’etta er fyrsta bók
Flosa, enda er hann fastráðinn
leikari við Þjóðleikhúsið og
stundar íitverk aðeins i tóm-
stundum. Flosi hefur þó víða
drepiðniður penna, meðal annars
skrifað marga útvarps- og sjón-
varpsþætti og blaðagreinar, og nú
í rúmlega eitt ár haft fastan þátt í
Þjóðviljanum á laugai;dögum.
Þessi bók Flosa er 180 blaðsiður
og myndskreytt með skop-
teikningum eftir Áma Elfar.
Skiptist hún i tvo höfuðþætti.
„Ugluspegla”, sem eru skrum-
skælingar á þvi, sem borið hefur
fyrir augu og eyru í samtíðinni að
undanförnu, og „Dægurþras”, þar
sem höfundur fjallar um landsins
gagn og nauðsynjar í þvi borslega
ljósi, sem hann sér umhverfi sitt.
I formála segir höfundur um
sjálfan sig og bókina m.a.:
„Ekki er hægt í stuttu máli að
gera nokkra viðhiítandi grein
fyrir hinum óvenjulega og per-
sónulega stíl Ftosa Ölafssonar,
sem tekið hefur sér skáldanafnið
Flosi, en þó er vert að benda á
hina epfsku heiðríkju, sem baðar
allt í hvellbjörtu ljösi samtíðar og
fortíðar og er krydduð djúpstæðri
alvöru og hugljómun hins glögga
rannsakara.
Stíll er meitlaður, tilhöggvinn
og jaðrar oft við að vera
kristallaður eða útvatnaður.”
Bökin er prentuð hjó Prent-
smiðjunni Ilólum. en útgefandi er
Ileimskringla.
□ KULDAFLÍKUR í MIKLU ÚRVALI - MJÖG GÓO VERD FYRIR
EKTA RÚSKINSVÖRUR.
□ MAPPA LEDURJAKKAR - STÖR NÚMER.
□ FÖT MED VESTI (atll. VESTIN INNIFALIN í VERÐINU
OG GERIR ÞAU EKKI DÝRARI) HÖNNUD AF COLIN PORTER -
MJÖ6 GÖD EFNI - VÖNDUD FRAMLEIDSLA.
□ SHETLAND ULLARPEVSUR 06 VESTI - GÖÐ VERD.
□ SKVRTUR, RINDI OG SLAUFUR f GEYSIMIKLU URVALI.
□ STAKIR JAKKAR OG DUXUR 0.M.FL. 0JH.FL.
LÆKJARGÖTU 2 SÍMI 21800