Morgunblaðið - 03.01.1974, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1974
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Gjörið svo vel að segja mér,
hvernig ég get vitað, að til sé
Guð.
Lftið í kringum yður. Augu yðar sjá sannanir,
hvert sem litið er. Biblían segir: „Hið ósýnilega
eðli hans, bæði hans eilífi kraftur og guðdómleiki,
er sýnilegt frá sköpun heimsins, með þvf að það
verður skilið af verkunum.“ í sálmunum lesum
við:
„Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin
kunngjörir verk hans handa. Hver dagurinn af
öðrum mælir orð, hver hlýtur að sannfærast um, að
allt þetta hefur ekki orðið til af tilviljun. Guð skóp
það. Láttu andann, sem er í yður, einnig komast að
raunum, að Guð er andi og að hann er alltaf nálægur.
Biðjið hann þess af einlægu hjarta, að hann gefi
yður vissu þess í hjarta yðar, að hann er Guð og að
hann elskar yður. Verið það einlægur, að þér takið
Biblíuna, bók Guðs, og athugið, hvað hún segir um
hann.
í náttúrunni sjáið þér mátt og tign Guðs. í Biblí-
unni lærið þér um elsku Guðs, elsku, sem er svo djúp
og knýjandi, að hann kom niður til þessarar jarðar
til þess að endurleysa okkur sér til handa. Lesið
guðspjall Jóhannesar frá upphafi til enda í einni
lotu. Lesið það aftur. Ef þér eruð að leita Guðs af
einlægni, þá gerið þetta, sem ég hef bent yður á. Já,
gengið feti framar: Segið honum, að þér séuð fús til
þess að gefa honum hjarta yðar og lifa honum. Ef
þér gerið það, þá lofa ég yður, að þér munið komast
að raun um, að Guð er til og að hann lifir í hjarta
yðar.
t
Útför eiginmanns mínsog föður,
KNUD HENRY PEDERSEN.
.fer fram frá Fossvogskirkju. föstudaginn 4 janúar kl. 1 0.30. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð
Guðrún H. Pedersen,
Willy Pedersen.
t
Útför móður okkar
HALLFRlÐAR EINARSDÓTTUR,
Austurbrún 6,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 4 janúar kl. 1 3.30.
Steinunn Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Sigríður Ben. Sigurðardóttir,
Lúðvík Lúðvíksson.
t
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja á Flugumýri,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Sauðárkróks 22. desember s.l., verður
jarðsett frá Flugumýrarkirkju fimmtudaginn 3. janúar klukkan 2.
Vandamenn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN ÞÓRÐARSON,
kaupmaður, Laugavegi 81,
sem andaðist 25. des. sl., verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni i
Reykjavík, föstudaginn 4 janúar kl. 1 5.00.
Margrét Sæmundsdóttir,
Þóra Jónsdóttir, Björn Björnsson,
Þórður S. Jónsson, Jón S. Þórðarson,
Margrét Þórðardóttir, Steingrimur Jón Þórðarson.
23
Hvers vegna
fóstureyðingar
á íslandi ?
Það er mikið rætt og ritað um
þann þátt mannlegrar eyðilegg-
ingaraðferðar, sem nefnd er
fóstureyðing, og felst í því að
bera börn út, áður en þau fæð-
ast.
NU þegar jól eru nærri er
mikið talað um eina barnsfæð-
ingu, jólabarnið, Jesúbarnið,
son hinnar umkomulausu móð-
ur í asnastallinum. Hætt er nú
við, að hann hefði varla komizt
lengra en þrjá mánuði á leiðina
hjá „skynsamri" móður nú á
dögum.
En hvað um það. Hann sagði
samt seinna, eftir allt, sem
hann hafði gengið í gegnum
sem réttdræpt barn í bersku,
flóttabarn i æsku og Guðsbarn í
ofsóknum, misskilningi, fyrir-
litningu og þjáningum: „Ég er
lífið.“
Hann sagði líka um þá, sem
höfðu brugðizt lífinu með und-
anslætti og sjálfelsku og orð-
ið öðrum til ills og
afvegaleiðslu:
„Betra væri honum að hafa
aldrei fæðzt.“ Til eru þau lönd
og þau eru mörg, þar sem fólki
fjölgar alltof mikið og milljónir
deyja úr skorti árlega. Mann-
fjölgunarvandamálið er eitt
brýnasta úrlausnarefni félags-
málafræðinga næstu áratugi.
Þar horfir málið alvarlega við í
mörgum. tilvikum og e.t.v.
mörgum betra i bili að hafa
aldrei fæðzt, meðan fólk er að
læra að lifa í landi sinu. Og til
eru þeir einstaklingar, sem
virðast ganga móti svo miklu
böli, að sagt gætu: „Betra hefði
mér að hafa aldrei fæðzt.“ En
flestum þykir nú samt gjöf lífs-
ins eða lífið bezt allra gjafa. Og
jólabarnið taldi eitt mannslíf
öllu öðru dásamlegra í sjálfu
sér. Og því er spurning sú sett
fram, sem hér er höfð að fyrir-
sögn: Þurfum við fóstureyðing-
ar á íslandi?
Látum aðrar þjóðir um sínar
ástæður. En hverjar ástæður
eru hér á landi fyrir svo fárán-
legu fyrirbrigði sem fóstureyð
ing er? Hér í landi lífs og frið-
ar.
Hér eru öll ráð tiltæk til þess
að koma í veg fyrir frjóvgun.
Hver heilvita manneskja ætti
að vera fær um að nota þau,
bæði pillur og verjur eða hvað
það nú allt heitir, sem ráð er á
til þess. Og fyrir alla afkomu og
samvizku einstaklings ætti
það að nægja og vera sjálfsagt.
Hér er fólk svo sannarlega
ekki of margt ennþá. Og hvert
barn, sem fæðist, má teljast
Guðsgjöfin æðsta, samanber
jólafögnuð yfir fátæku barni
umkomulausrar móður.
Hér er afkoma fólks og lífs-
kjör öll á borð við hið bezta,
sem annars staðar er til í heim-
inum. Hvers vegna ekki að
leyfa barni að njóta þess?
Hér bfður fjöldi hjóna, sem
hafa ágætar aðstæður og upp-
lag til að ala upp börn, veita
þeim ástúð og umhyggju, eftir
því að fá barn til uppeldis og
umráða. Stundum verður sú bið
býsna löng. Stundum óþolandi
bið. Það er þvi engin áhætta
neinni móður, sem ekki er fær
um að annast barn sitt, þótt
hún eignist það. Félagslegar á-
stæður eru því vart til á ís-
landi fyrir útburði barna eða
fóstureyðingum.
Við, sem erum fósturbörn og
lifðum það allt af, sem áður var
á slfkum vegi, vitum þetta og
þykir þó enn svo ósköp gaman
og gott að fá að lifa, himneskt
að lifa. Við erum óendanlega
þakklát bæði móðurinni um-
komulausu, sem tók áhættuna,
af því að hún vissi ekki annað
auminginn, (Guði sé lof) og
þeim, sem báru okkur svo fram
til lífsins, þótt erfitt væri. Gefið
því börnin eða færið þau í fóst-
ur heldur en að eyða og deyða.
Leyfið heiminum enn að eign-
ast þá, sem þið viljið ekki. Eina
nauðsyn til eyðingar fósturs, og
hún er líka í flestum tilvikum
sjálfsögð, hér á íslandi alls-
nægtanna nú, er sú, að líf móð-
urinnar sé i voða. Sé ekki hægt
að bjarga nema einu lífi af
tveim eða fleiri, þá verður allt-
af að bjarga því, sem bjargað
verður, einmitt vegna þess, hve
lifið er dýrmætt og dásamlegt.
Komið því I veg fyrir frjóvg-
un. Það er aðalatriðið. Verði
samt sem áður „slysabörn", þá
gefið þau öðrum sem þrá börn.
Þakkið forsjóninni fyrir, hve
ástæður eru góðar á Islandi og
ekkert offjölgunarvandamál
fyrirsjáanlegt. Leyfið að sjálf-
sögðu læknum og mæðrum að
bjarga þvi, sem bjargað verður,
ef um ekkert annað er að velja.
Svo þurfum við engar fóstur-
eyðingar á íslandi.
Haukur Ingibergsson -
HUOMPLÖTUR
Magnús og Jóhann
Candy girl/Then
Orange
Stereo
I u.þ.b. ár hafa Keflviking-
arnir Magnús og Jóhann verið á
samningi hjá enska fyrirtækinu
Orange og hafa á þeim tima
sungið inn á nokkrar plötur,
sem settar hafa verið á brezkan
markað — án þess þó að hafa
náð verulegri sölu. Hafa plötur
þessar þó fyllilega staðizt sam-
anburð við aðrar brezkar plöt-
ur, bæði hvað snertir lögin
sjálf, útsetningar og tækni-
vinnu. Hins vegar er Orange
lítið fyrirtæki og grunar mig,
að dreifingarkerfi þeirra og þó
kannski sérstaklega samband
við útvarpsstöðvar, poppblöð og
aðra auglýsingaraðila sé ekki
eins gott og hjá stærri fyrir-
tækjum.
Candy girl minnir um sumt á
lagið Sugar, sugar, sem gekk
fyrir fjórum árum, ekki þó lag-
línan sjálf heldur takturinn, og
eins og „Sugar“ er Candy girl
mjög gott „commercial" lag,
eins og vinsældir þess á ís-
lenzka vinsældalistanum sanna.
Then er þyngra, flóknara og
rólegra og minna er borið í, und-
irleikinn, enda er söngurinn
aðalatriðið og er hann stíl-
hreinn hjá Magnúsi og Jóhanni,
sem með smá heppni gætu orð-
ið fyrstir íslenzkra til að öðlast
frægð og frama erlendis.
Pónik
Lífsgleði/Hví þá ég
Á.A.-records
Stereo
Þetta virðist mér vera ein af
þessum plötum, sem koma út,
ná ekki miklum vinsældum og
eru gleymdar eftir hálft ár.
Lagið „Hví þá ég (Why me?) er
nýgengið yfir og verður tæp-
lega endurvakið í íslenzkri út-
gáfu og „Lífsgleði“ (Oh July)
er nýkomið á plötu í frábærum
flutningi Þuríðar Sigurðardótt-
ur. Og þegar hvorugt laganna
hefur tel.iandi líkur á að slá í
gegn þá skiptir litlu þó að plat-
an sé þokkalega gerð; það er
t.d. góður blástur í „Lífsgleði",
en þóær eins og Pónikarnir hafi
verið eitthvað feimnir i hljóð-
rituninni, því að þetta er svo
líflaust. Þorvaldur Halldórsson
er kominn í Pónik og „Hví þá
ég“ er einmitt lag fyrir hans
rödd, en leiðinlegt suð á plöt-
unni spillir flutningnum nokk-
uð.
Alice Cooper
Muscle of love
Stereo, LP
Fálkinn
Alice Cooper er ein skærasta
stjarnan í U.S.A. þessa mánuð-
ina og mikinn hluta frægðar-
innar á hann því að þakka,
hversu mikla athygli hljómleik-
ar hans hafa vakið, en hann
höfðar óspart til ógeðsleghéita
og sadisma, t.d. er hann sálgar
hænum á sviðinu, og á seinustu
hljómleikaferð mun hann hafa
endað hljómleikana með því að
afhausa sjálfan sig f mikilli fall-
öxi, og var það að sögn afskap-
lega eðlilega gert.
Tónlist Alice Cooper er fyrsta
flokks rokk, einfalt, með hörð-
um og ákveðnum takti og geng-
ur þessi tónlist á allri þessari
plötu, en frægasta lag plöt-
unnar er titillagið, Muscle of
Love. Er þetta plata, sem rokk-
arar ættu ekki að láta fara fram
hjá sér.