Morgunblaðið - 03.01.1974, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1974
Séra Bernharður Guðmundsson skrifar frá Addis Abeba:
„ Ó, Zambía,
þú landið
bezta á jörð ”
Það ríkir algjört öngþveiti í
flugvélinni. Þjónustuliðið er á
hlaupum, samkvæmt reglum á
sjálfsagt að fara að bera fram
matinn. Það er búið að dreifa
dagblöðum og bjóða drykki
með mesta sóma. En svo mikið
fyrirtæki, sem að bera fram
mat fyrir l’OO manns, er hinum
ungu flugfre.vjum og þjónum
greinilega ofviða. Það tekur
langan tima að setja á bakkana,
gleymist að hita kaffið, og þeg-
ar við lendum eftir þriggja tíma
flug, hefur aðeins helmingur
farþeganna fengið skammtinn
sinn. I rauninni erum við, sem
vanhaldin erum, dálítið gröm
— og þó. Þetta unga fólk hefur
gert sitt bezta og brosir breiðu
afvopnandi brosi. þegar það af-
sakar seinaganginn. — Hverju
máli skiptir, hvort maður fékk
veitingar eða ekki? Við erum
komin heilu og höldnu á leiðar-
enda. Að vissu leyti var það
hressandi að hafa i þjónustuliði
ungt fólk, sem sveif ekki um
með straumlínusniði, ópersónu-
legt ög einkennalaust eins og
flest starfsfólk stóru flugfélag-
anna. Þar ber líka að hafa í
huga, að flest þeirra eru fædd í
strákofa, og hafa sem börn orð-
ið að bera vatn kilómetrum
saman til heimabrúks. Er þá að
furða að það vefjist fyrir þeim
sitthvað í hinum vestrænu mat-
arsiðum, sem skylt virðist að
hafa um hönd í flugvélum,
einnig hér í Afríku, þar sem ég
er eini hvíti farþeginn. Og lífið
hér um borð í zambísku flugvél-
inni er á margan hátt einkenn-
andi fyrir Iandið og þjóðina,
sem byggir Zambiu.
Að fá sitt
sjálfstæði
Fyrir níu árum rifu blökku-
menn sem byggðu Ruodesin sig
lausa frá hinni hvítu aðskiln-
aðarstefnu valdhafanna, og
stofnuðu sjálfstætt ríki i
Norður-Ródesíu og nefndu það
eftir fljótinu Zambezi, sem fær-
ir blessun vatnsins um þetta
þurra land, Zambiu. Þá höfðu
um 100 íbúanna hlotið háskóla-
menntun og um 1100 fram-
haldsskólamenntun. Allir þeir
voru kallaðir til forystustarfa
og mikil áherzla lögð á mennt-
un yngri kynslóðarinnar, þann-
ig að hvar sem maður kemur á
opinberar stofnanir i landinu
er það barnungt fólk, sem fæst
við hin viðamestu störf. Sökum
reynsluleysis verður sjálfsagt
margt axarskaftið, en allir gera
sitt bezta, brosa breitt af mis-
tökum eða fela þau — og jörðin
snýst þrátt fyrir allt.
En þetta hafa verið erfið ár.
Allt samgöngukerfi landsins er
í beinum tengslum við
Rhodesíu og leiðir til hafnar-
borga S-Afriku. Sambúð rikj-
anna hefur farið æ versnandi
vegna apartheidstefnu
Rhodesiu, og nú hefur landa-
mærum ríkjanna verið kyrfi-
lega lokað. Og það er auð-
veldara um að ræða en í að
komast, mjög miklir erfiðleikar
eru nú með aðdrætti og útflutn-
ing, og því er vöruskortur mik-
ill og bág afkoma. Auðvitað
kemur ekki til greina að opna
landamærin til Rhodesíu.
Koparsala og
kverið rauða
Hins vegar er vor í lofti. Kín-
verjar eru að leggja járnbraut
frá hafnarborginni Dar Es
Salaam í Tanzaníu niður til
Zambíu. Þeir eru reyndar
komnir langleiðina. Zambía
nær hvergi að sjó og þar sem
helzti útflutningur landsins er
kopar, sem sendur er til
Evrópu, er lífsnauðsyn að hafa
aðgang að öruggri höfn.
Kínversku verkamennirnir
eru Zambíubúum mikil ráð-
gáta. Þeir vinna 12 tíma á dag
alla daga vikunnar, eru sífellt
3—4 saman, og sýna sjaldnast
nein merki gleði eða amsturs,
er þeir deila út rauða kverinu
og brosa gjarnan við börnum og
leggja brautina með ótrúlegum
hraða. Og þegar brautin kemur
verður allt betra, segir Kenn-
eth Kaunda forseti, og orðum
hans er ljúft að lúta.
Á skjánum
Ég horfði á sjónvarpið eitt
kvöld. Þar voru myndaratriði,
en einhvern veginn bilaði út-
haldið, og sjö sinnum á sama
kvöldinu kom skiltið: Afsakið
smávegis bilun! En þulan kom
okkur í gott skap í hvert sinn,
er hún kynnti að dagskráin
hæfist að nýju. Enda sagði hún
að þetta sjónvarp væri svo
mikið galdratæki að vonlegt
væri, að eitthvað færi úrskeiðis.
Og það eru orð að sönnu.
En þarna býr ung þjóð, sem
ætlar sér fullan hlut meðal
þjóðanna, stendur að vísu enn á
brauðfótum, en viljinn, áræðið
og metnaður er ómældur og
vafalaust verður innan tiðar
komið velferðarþjóðfélag í því
landi, ef það er þá eftirsóknar-
vert.
Húsmœðraskóli með hlóðir
hugsun og verklag íbúanna.
Þarna eru fleiri stofnanir, sem
kirkjan rekur til uppbyggingar
hinu unga þjóðlífi, en merki-
legastur er húsmæðraskólinn.
AS kunna sig
Þegar Zambía varð sjálfstæð
fyrir nokkrum árum, voru þeir
fáu, sem menntun höfðu,
kallaðir til forystustarfa, m.a. i
utanríkisþjónustu. Eiginkonur
þessara manna voru flestar
ómenntaðar, höfðu verið í þorp-
inu heima, meðan maðurinn
gekk á trúboðsskólann og var
kannski siðar kostaður tii náms
erlendis. Þegar eiginmennirnir
urðu skyndilega ráðherrar eða
sendiherrar. kom i ljós, að
konur þeirra kunnu lítt til þess
að standa við hlið þeirra í hinni
nýju stöðu. Því gerðist það oft,
að hinir nýorðnu frammámenn
skildu við konur sínar og fundu
sér aðra konu, sem kunni ögn í
ensku og gat gengið í hæla-
háum skóm.
Þarna var verulegt vandamál
á ferðinni, og því stofnaði
kirkjan þennan skóla og i
fyrstu árganginum voru 3 nú-
verandi ráðherrafrúr og for-
setafrúin, frú Kaunda. Þær
lærðu einföldustu matseld,
reglur um framkomu og annað
slíkt, er auðveldaði þeim að
standa við hlið manna sinna, en
fyrst og fremst var þeim bent á
gildi þess að vera sfrá Afríku,
frá Zambíu og að svört menn-
ing er sízt síðri þeirri hvítu,
þótt hún sé öðru vísi.
Nú tekur skólinn við
nemendum af öllum stéttum og
á öllum aldri, þær mega hafa
tvö yngstu börnin með sér.
Nemendurnir búa i litlum hús-
um, 4 konur i hverju með börn
sín, sem á daginn eru á barna-
heimili skólans.
1 eldhúsinu eru hlóðir, og
vatnskrani utan við húsið.
Engin kvennanna hefur raf-
magn á heimili sínu, skólinn
mætir þeim aðstæðum og
kennslan felst í að hjálpa þeim
að lifa betur, þegar þær koma
heim og geta miðlað nágrönn-
um sinum af reynslunni. Það
var kennt ítarlega um meðferð
ungbarna, en hinn geysihái
ungbarnadauði skapaðist fyrst
og fremst af fáfræði og for-
dómum mæðranna.
Essie Johnson
Þann dag, sem ég heimsótti
Mindolo, átti að taka í notkun
sjúkraskýli, enda veitir ekki af,
árlega fæðast 5—6 börn á hús-
mæðraskólanum. Fyrsta for-
stöðukona skólans Essie John-
son var komin í heimsókn, en
skýlið skyldi bera nafn hennar.
Skólakórinn söng og einn
nemendanna stjórnaði og leið-
sögumaðurinn sagði, að hæfi-
leikar til ótrúlegustu starfa
kæmu fram hjá nemendum, er
þeir kæmust í þetta hvetjandi
umhverfi. Skýlið var vígt og'
nemendurnir upphófu fagn-
aðarsöng og dans. Þær voru
klæddar í mjög litskrúðug pils,
með viðamikinn höfuðbúnað úr
sama efni, enda eru þær höfð-
inglegar ásýndum. Söngurinn
og dansinn magnast, forstöðu-
konan, hjúkrunarkonan og
Essie Johnson leiða dansinn
Essie er kanadísk, en stígur
dansinn af mýkt, sá klúrleiki,
sem oft einkennir dans hvítra
manna eftir afrískum takti, sést
ekki, og innan tíðar eru allir
viðstaddir gengnir í dansinn,
líka ég, þrátt fyrir kæfandi hita
og þrönga skó.
Hvernig ertu í
fætinum?
Skömmu Siðar er ég haltra til
kaffiborðs, fannst mér ég heyra
kallað á islenzku. En slikt er
óhugsandi hér í miðri Zambíu,
og ég skeyti engu slíkum of-
heyrnum. En röddin heyrist
aftur, það er ekki um það að
villast: Hvernig ertu í fætinum,
er kallað til mín!
Þetta er þá Essie Johnson;
heldur glaðhlakkaleg. Hún seg-
ist hafa frétt, að ég væri
islenzkur og sjálf hafi hún
veriðgift Islendingi. Hann séra
Jakob sá um jarðarförina, bætti
hún við.
Essie hafði sem sé gifzt Gunn-
steini Jónssyni systursyni séra
Hermanns Hjartarsonar og
bjuggu þau í Wynyard Sask,
þar sem séra Jakob þjónaði í
eina tíð. Tengdamóðir Essie fót-
brotnaði, er hún dvaldist hjá
ungu hjónunum, og því lærði
Essie spurninguna, sem Gunn-
steinn spurði móður sína á
hverjum degi: Hvernig ertu í
fætinum?
Séra Jakob
Og Essie spyr margs um séra
Jakob og fjölskyldu hans og er
ekki hissa, að „his redhaired
kids“ eru meðal fremstu rithöf-
unda okkar.
Þetta er í rauninni lítii ver-
öld, það er sem sagt fólk í miðri
Afríku, sem vill fá að vita um
sjóleiðina til Bagdad, Hvað er í
blýhólknum og Tyrkja-Gudda
og annað það, sem Rev. Jakob
Jónsson and family hafa stuðl-
að að til menningar síns lands.
Og hvað er mitt land eða þitt,
erum við ekki öll í sömu veröld,
spyr Essie Johnson og bætir við
á hlæjandi failalausri íslenzku:
Hvernig ertu í fætinum, í Zam-
bíu.
ÞEIR, sem hafa komið í
heimsókn á húsmæðraskóla,
hamast við eldhúsin spegilgljá-
andi, þar sem eldavélar, hræri-
vélar og ísskápar standa i röð-
um, og saumavélarnar og vef-
stólarnir f næstu stofum, en
ungar stúlkur með vor í augum
og von i hjarta — flestar með
trúlofunarhring að auki, —
bera fram krásir, yndi augna
sem munns. Þannig finnst
manni, að húsmæðraskólar eigi
að vera, og með þá hugmynd
i kollinum var undarlegt að
koma á húsmæðraskólann í
Mindolo í Zambíu.
Mindolo er mikið skólasetur.
Þar rekur kirkjan skóla fyrir
blaðamenn og útvarpsstarf-
semi, þar er skóli fyrir æsku-
lýðsleiðtoga, þar er skóli sem
menntar handavinnukennara,
með sérstöku tilliti til þess, sem
er eiginlegt og upprunalegt í
zambískri verkmenningu. Slíkt
er mikils virði til aukins sjálfs-
trausts þjóðarinnar, að hún
geri sér ljóst, að hún býr yfir
arfi, sem jafnast á við verk-
menningu annarra þjóða. 1 stað
þess að apa vestræn form og
aðferðir sem eru framandi
fyrir Zambiubúa, er byggt á
þvi og við það prjónað, sem
fyrir er í landinu og er í takt við