Morgunblaðið - 18.01.1974, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANUAR 1974
SUNNUDUtGUR
20. janúar
Dagskrá
næstu viku
Pat O'Brien og James Cagney I laugardagsm.vnd sjónvarpsins, „Englar með óhrein andlit“.
17.00 Endurtekið efni
Baobab-tréð
Bresk fræðslumynd um sér-
kennilega trjátegund f
Afríku og fjölskrúðugt fugla-
og dýralíf i limi trjánna.
Þýðandi og þulur Gylfi Páls-
son.
Aður á dagskrá 8. desember
1973.
18.00 Stundin okkar
Sýnd verður 3. myndin um
Matta frá Finnlandi. Hún
heitir Matti og Pétur.
Stúlkur úr íþróttafélaginu
Gerplu leika listir sínar.
Halldór Kristinsson syngur
vísur Ingu Dóru.
Róbert bangsi og Billi skúnk-
ur lenda i ævintýrum, og loks
lýkur stundinni með spurn-
ingaþætti ellefu ára barna.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Veður og auglýsingar.
20.25 Ert þetta þú?
Fræðslu- og leiðbeiningaþátt-
ur um fyrstu hjálp á slysstað.
20.35 Fjölleikahús barnanna
Heimsókn á barnasýningu i
Fjölleikahúsi Billy Smarts í
Lundúnum.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
(Evrovision — BBC).
21.35 Hvað nú, ungi maður?
Austurþýsk framhaldsmynd,
byggð á samnefndri skáld-
sögu eftir Hans Fallada.
3. þáttur, sögulok.
Þýðandi Öskar Ingimarsson.
Á mánudagskvöld kl. 20.30
sýnir sjónvarpið sovézkt sjón-
varpsleikrit, sem gert er eftir
hinni frægu fáránsögu Nicolai
gogols FRAKKINN. Þessi saga
er sennilega sú kunnasta af
sögunum í Sanktí Péturs-
borgar-hringnum svokallaða.
en i honum eru nokkrar slíkar
fáránsagnir eins og „Nefið".
„Dagbók vitfirrings", og
„Vagnínn", — allt óborganleg-
ar absúrdstúdíur á Iífi ein-
manna mannvera í borgarbákn-
inu Sankti Pétursborg. Þessar
sögur, sem um margt eru þó
ólíkar innbyrðis hvað varðar
efnistök, skrifaði meistari
Gogol beint út úr kviku eigin
Nicolai Gogol — einn af mestu
rithöfundum Sovétrfkjanna
fvrr og sfðar. Kápan, sjónvarp,
mánudagur kl. 20.30
þjáninga, og valdi þeim —
ósjálfrátt frekar en sjálfrátt —
þann frásagnarhátt, sem bezt
hæfir inntaki þeirra, þ.e. hinn
fáránlega. í þeim verður allt að
einu, — sárkvalið sálarlíf sógu-
„hetjanna" og hið félagslega
umhverfi þeirra — allt birtir
þetta mvnd af heimi án
miskunnar, réttlætis og merk-
Efni 2. þáttar:
Pinneberg-hjónin hafasestað
í Berlín hjá móður Jóhannes-
ar. Hann fær laklega borgaða
vinnu sém sölumaður í fata-
verslun. Eftir langa leit og
mikla fyrirhöfn tekst Gibbu
að finna íbúð, þar sem þau
geta búið ein útaf fyrir sig.
Þar una þau hag sinum vel,
ingar. Það er heiinur nútímans,
Heimur „firringar", sem Gogol
skynjaði kannskí manna f.vrst-
ur, og áður en orðið varð að
ofnotaðri klisju.
FRAKKINN er sagan af upp-
hefð og falli Akaky Akakievich,
manns, sem lenti í því að láta líf
sitt snúast um eina táknræna
flík. Raunar er nafn leikritsins
kailað KÁPAN af þýðanda
sjónvarpsins. Leikstjórinn
nefnist Batalov, en í hlutverki
Akaky aumingjans er Roland
Bi kov.
A miðvikudag kl. 20.55
standa vonir til að unnt verði að
flytja nýja íslenzka mynd gerða
sérstaklega fyrir sjónvarpið af
þeim Asgeiri Long, Páli Stein-
grfmssyni og Ernst Kettler um
félagsleg áhrif Vestmannaeyja-
gossins, og þá einkum með til-
liti til „landnámsins“ á megin-
Iandinu, enda nefnist myndin
5000 ÓBOÐNIR GESTIR. Þessa
forvitnilegu mynd er ætlunin
að sýna á miðvikudag 23. janú-
ar en það var einmitt þann dag
fyrir einu ári, sem gosið hófst.
Það eina, sem komið getur í
veg fyrir að unnt verði að sýna
myndina þá, er verkfallsöng-
þveitið í Bretlandi, en þar er
Asgeir Long staddur þessa dag-
ana til þess að fá myndina
kópíeraða. Og hér heima
hamast þeir Páll og Ernst við að
ganga frá sfnuin hluta mvndar-
innar, en þeir félagarnir 1
Kvik skiptu meðsér verkum, —
Páll.sér um textann en Ernst
um hljóðið, á meðan Ásgeir fór
út með filmurnar. 1 þessu vinna
þeir nú baki brotnu til mið-
nættis á hverju kvöldi. „Þetta
hefur verið og verður heil-
mikill sprengur", sagði Páll í
stuttu spjalli.
„Við gerðum samning við
sjúnvarpið f júlí um gerð
myndarinnar og þá áttum við
talsvert efni fyrir frá þeim
tfma, sem mest gekk á i gos-
inu". En Páll kvað svo þróun-
ina síðan hafa orðið á nokkuð
annan hátt en menn bjuggust
þrátt fyrir þröngan fjárhag,
og brátt líður að því, að
Gibba verði léttari.
22.30 Nixon og f jölmiðlarnir
Sænsk mynd um samband
Bandarikjaforseta við fjöl-
miðla í landinu.
Meðal annars er fjallað nokk-
uð um framvindu Watergate-
málsins.
Þýðandi og þulur Dóra Haf-
steinsdóttir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
23.00 Að kvöldi dags
Séra Jónas Gísiason flytur
hugvekju.
23.10 Dagskrárlok.
í HIÍAÐ EB AÐ SJA?
við. Félagsleg röskun varð í
raun mun minni en líkur stóðu
til, og úr flestum málum
rættist. Af þessum orsökum
sagði hann mynd þeirra félaga
verða talsvert ólíka því hand-
riti, sem upphaflega var gert.
„Það má eiginlega segja, að
það, sem setti mest strik í
reikninginn var, að gosið sveik
okkur með þvf að hætta svona
snemma," sagði Páll og hló.
Þannig hefði mannlífið í Vest-
mannaeyjum orðið sjálfu sér
líkt á ný fyrr en ella hefði
orðið.
„En ég vona og held, að
myndin ætti ekki að verða
leiðinleg hjá okkur. Það er gott
teinpó í henni," sagði Páll
Steingrímsson að lokum.
Laugardagsmynd sjónvarps-
ins er að þessu sinni bandarísk
giæpamynd frá árinu 1938, sem
nefnist á frummálinu ANGELS
WITH DIRTY FACES (Englar
með óhrein andlit). Laugar-
dagsmyndirnar hafa að undan-
förnu verið með allra bezta
móti, enda mun sjónvarpið hafa
komizt í feitt fyrir skömmu, er
það fékk nokkrar úrvalsmyndir
í einni kippu. Allmargar þeirra
höfum við nú þegar séð, m.a.
yfir hátíðarnar, og sem dæmi
um það, sem kvikmyndaunn-
endur geta átt von á má nefna
hina annáluðu mynd Charles
Laughton „Night of the
Hunter", afar magnað verk,
sem fengið hefur menn til að
harma það mjög, að Laughton
stjórnaði ekki fleiri myndum.
Til þess að kóróna frammistöðu
kvikmyndaveljenda sjónvarps-
ins ættu forráðamenn endilega
að reyna að koma á föstum mið-
vikudagsmyndum eins og eitt
sinn var. Þá gætum við vissu-
lega farið að hrópa húrra.
En myndin á laugardaginn í
næstu viku er t.d. athyglisverð
fyrir það, að í henni leika tvær
af goðsögnum bandarískra
kvikmynda, menn, sem með
timanum hafa orðið eins konar
persónugervingar „gangster-
Jennifer Wilson leikur
Jennifer Kingsley f
BRÆÐRUNUiVI, sem enn sér
ekki fyrir endann á. Nýr flokk-
ur um þá hefst í næsta mánuði.
Sjónvarp, þriðjudágur kl.
20.30
myndarinnar" svokölluðu.
Þetta eru þeir James Cagney og
Humphrey Bogart, en Bogart
mun þó vera í veigaminna hlut-
verki. I öðru aðalhlutverkinu
er hins vegar Pat O’Brien,
annar gamall Hoílywoodjaxh
sem hér leikur að venju Ira,
sem auk þess verður prestur.
Það kann að gefa nokkra vís-
bendingu um hvað um er að
ræða. Þetta er nokkuð mórölsk
glæpamynd. O’Brien og Cagney
leika menn, sem báðir eru i
sömu súpunni en hlutskipti
þeirra verður ólikt, — O’Brien
verður sem sagt prestur, en
Cagney morðingi.
Ekki ber mönnum saman um
hvort mynd þessi sé góð eða
vond, spennandi eða leiðinleg.
Alla vega ætti hún að vera for-
vitnileg. Leikstjórinn er
Michael Curtiz, einn af traust-
ustu mönnum skemmtimynda-
iðnaðarins i Hollywood, kunnur
af myndum eins og „Yankee
Doodle Dandy", „Casablanca",
„The Adventures og
Huckleberry Finn" o.fl.
A1MUD4GUR
21. janúar 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Frakkinn
Sovéskt sjónvarpsleikrit,
byggt á samnefndri smásögu
eftir rússneska rithöfundinn
NicolæGogol (1809 — 1852).
Þýðandi Lena Bergmann.
Leikritið er gamansöm ádeila
á skrifstofuveldi og pappirs-
fargan. Aðalpersónan er
skrifstofumaður á lágum
launum. Hann er ekki heilsu-
hraustur og þolir illa vetrar-
kuldann í Moskvu. En góðar
skjólflíkur eru dýrar og ekki
á færi fátækra skrifstofu-
manna að kaupa slíka
munaðarvöru.
21.40 Hvar er verkurinn?
Bandarísk fræðslumynd um
áhrif sársauka á fólk og leiðir
til að lina þjáningar.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.30 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDKGUR
22. janúar 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Bræðurnir
Bresk framhaldsmynd.
8. þáttur. Hættuleg tlmamót
Þýðandi Jón O. Edwald.
Efni 7. þáttar:
Brian fellst á áætlanir konu
sinnar um kaup á stærra
húsi, þótt hann álíti raunar,
að fjárhagur þeirra leyfi ekki
sllkt. Samningurinn við Borr-
et-fyrirtækið er staðfestur,
og byrjað er að byggja hinar
nýju vöruskemmur. Jennifer
hefur komist I kynni við mið-
aldra sölumann, en Barbara,
dóttir hennar er lítið hrifin
af því, og ráðgerir að flytja
að heiman.
Hagur Hammondfyrirtækis-
ins virðist standa með blóma,
en dag nokkurn berast fréttir
um að verkfall hafnarverka-
manna sé á næsta leiti, og
það gæti haft óheillavænleg
áhrif á rekstur flutningabil-
anna.
21.25 Heimshorn
Fréttaskýringaþáttur um er-
lend málefni.
Umsjónarmaður Jón Hákon
Magnússon.
22.00 Skák
Stuttur, bandarískur
skákþáttur. Þýðandi og þulur
Jón Thor Haraldsson.
22.05 Jóga til heilsubótar
Bandarískur myndaflokkur
með kennsiu í jógaæfingum.
7. þáttur.
Þýðandi og þulur Jón O. Ed-
wald.
22.30 Dagskrárlok
Sjónvarps- og útvarpsdag-
skráin er á bls. 23.
AHÐMIKUDKGUR
23. janúar 1974
18.00 Kötturinn Felix .
Tvær stuttar teiknimyndir.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.15 Skippí
Ástralskur framhaldsmynda-
flokkur.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.40 Svona eru börnin ...
á Seylon
Norskur fræðslumyndaflokk-
ur um daglegt líf og leiki
barna íýmsum heimshlutum.
Þýðandi og þulur Ellert Sig-
urbjörnsson.
19.05 Hlé
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lff og fjör f læknadeild
Breskur gamanmyndaflokk-
ur.