Morgunblaðið - 28.02.1974, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUpAGUR 28. FEBRUAR 1974
IÞROTTAFREniB MORGIREABSIIUS
Islandssundið
byrjar í dag
íslandssundið 1974 hefst á
morgun. Er þar um að ræða sund-
keppni með sama sniði og var á
Norrænu sundkeppninni á s.l. ári,
og er keppni þessi raunar haldin i
framhaldi af þeirri góðu þátttöku,
er var í þeirri keppni.
Það er Sundsamband íslands,
sem gengst fyrir keppninni, og
verður framkvæmd hennar hagað
á þá leið, að timabilið verður
tvískipt. Fyrra tímabilið er frá 1.
marz — 30. apríl og seinna tíma-
bilið er frá 1. júní — 31. júli.
Stendur keppnin þvi yfir í 122
daga.
Fimleikahátíð
í Danmörku
Fimleikasamband íslands hef-
ur fengið boð um að senda
sýningaflokk á fimleikahátíð í
Holstebro í Danmörku dagana 31.
maí — 3. júní 1974. Nánari upp-
lýsingar eru veittar á skrifstofu
FSÍ.
(Frétt fráFSÍ)
Hver einstaklingur má synda
200 metrana einu sinni á dag í
íslandssundinu, eins og var í
Norrænu sundkeppninni. Fær
hver þátttakandi skirteini með
númeri fyrir sitt fyrsta sund og
lætur hann síðan skrá númerið í
hvert skipti, sem hann syndir, og
fær þá viðurkenningarmiða.
Til þess að auka áhugann á
íslandssundinu verða þátttöku-
skírteinin jafnframt happdrættis-
miðar og kosta 50 krónur. Verður
dregið í lok keppninnar um glæsi-
legan vinning, sem er Morris
Martina-bifreið.
Merki íslandssundsins er
teiknað af Erni Harðarsyni, og
verða framleiddar þrjár gerðir
barmmerkja, úr kopar, silfri og
svo trimmmerki. Fyrir kopar-
merkið þarf að synda einu sinni,
20 sinnum fyrir silfurmerkið og
50 sinnum fyrir trimmmerkið,
sem sent verður i pósti frá skrif-
stofu ISÍ.
Ætlunin mun vera að efna til
keppni milli kaupstaða og héraðs-
sambanda í tengslum við íslands-
sundið og jafnvel milli félaga
innan héraðssambandanna. Að
sögn forráðamanna Sundsam-
bandsins er þó helzti tilgangurinn
með keppninni sá, að hver þátt-
takandi keppi við sjálfan sig, og
kjörorð sundsins hefur verið valið
í samræmi við það: ,,Eitt sund á
dag kemur heilsunni í lag.“
r
Agúst
keppir
áEM
ÍR-INGARNIR Sigfús Jónsson
og Ágúst Ásgeirsson tóku þátt í
hinu árlega High Park boð-
hlaupi brezkra háskóla, sem
fram fór í London um sfðustu
helgi. Kepptu þeir í sveit skóla
síns, Durham, og áttu góðan
þátt í því, að hann varð í 14.
sæti, sem þykir mjög góð
frammistaða, þar sem keppnis-
sveitimar voru á annað hundr-
að.
— Við erum mjög ánægðir
með okkar þátt í þessu hlaupi,
sagði Ágúst í viðtali við Morg-
unblaðið í gær. Við hlupum
báðir sömu vegalengd, 4830
metra, og tími Sigfúsar var
14:27,0 mín. og minn 14:37,0
mín. Hlaupið var á malbikuðum
gangstéttum og urðum við að
hlaupa hluta leiðarinnar upp í
móti, Kunnugir segja okkur, að
tími okkar í hlaupinu svari til
sama tíma í 5 km hlaupi á
braut.þannig að við erum mjög
bjartsýnir á að ná góðum ár
angri næsta sumar. Sigfús hef
ur æft mjög vel í vetur, en
æfingarnar hjá mér hafa hins
vegar verið stopulli vegna stöð-
ugra meiðsla, sem ég hef átt við
að stríða.
Ákveðið hefur verið, að
Ágúst keppi í 1500 metra
hlaupi og 3000 metra hlaupi á
Evrópumeistaramótinu innan-
húss, sem fram fer í Stokk-
hólmi dagana 9. og 10. marz n.k.
— Ég fékk bréf frá Frjáls
íþróttasambandinu, þar sem
mér var tjáð, að ég yrði sendur
til mótsins, næði ég betri tíma
en 4 mínútum á brezka innan-
hússmeistaramótinu. Eg hafði
ekki ætlað að keppa á því móti
og kostaði mikið umstang að fá
að vera með. í hlaupinu sjálfu
byrjaði ég mjög vel og hljóp
fyrstu 800 metrana á 2:05,0
mín. Þegar leið á hlaupið rugl-
aðist sá, er telja átti hringina og
gaf upp vitlausa tölu. Þetta
varð til þess að tími minn í
hlaupinu var ekki einsgóður og
efni stóðu til, eða 4:01,2 mfn.
Ágúst sagði að lokum, að æf-
ingaaðstaða í Durham væri
mjög góð. Þar væri nú komið
vorveður og kynnu hann og Sig-
fús því vel að geta æft úti við
svogóðar aðstæður.
Bjarni Jónsson skorar ámóti Virum.
Enn stórleik-
urhjáBjarna
ÁRHUS KFUM heldur stöðugt
þriggja stiga forskoti í dönsku 1.
deildar keppninni í handknatt-
leik, og virðist sem ekkert geti
héðan af komið í veg fyrir sigur
liðsins, sem nú er með 26 stig eftir
15 leiki. Helsingör heldur öðru
sætinu og er með 23 stig eftir 15
leiki.
Arhus KFUM mætti Virum um
síðustu helgi og sigraði með 26
mörkum gegn 12. Bjarni Jónsson
var bezti maður Arhus-liðsins í
þessum leik, einkum í vörninni,
en hann stjórnar varnarleik Ár-
hus-liðsins. Auk hinsgóða varnar-
leiks síns skoraði Bjarni 4 mörk,
en markhæsti Ieikmaðurinn i liði
hans var Hans Jörgen Tholstrup,
sem skoraði 7 mörk.
I þriðja sæti í dönsku 1. deildar
keppninni er Fredricia KFUM
með 20 stig en síðan koma Stadion
með 19 stig, HG með 16 stig, Eft-
erslægten með 13 stig, Stjernen
með 12 stig, AGF með 11 stig,
Skovbakken með 10 stig og Virum
er á botninum með aðeins2 stig.
Borðtennis-
mót í kvöld
OPIÐ mót unglinga og stúlkna í
borðtennis fer fram á vegum
borðtennisdeildar KR i Laugar-
dalshöllinni i kvöld, 28. febrúar,
og hefst kl. 20.00. Þátttakendur i
mótinu verðaum 60.
ÍBK
vann
UNDIRBÚNINGUR unglinga-
landsliðsins í knattspyrnu sem
tekur þátt í lokakeppni lUEFA-bik
arkeppni unglinga í Sviþjóð í maí
nlc. er nú í fullum gangi og lék
liðið sinn fyrsta æfingaleik s.l.
sunnudag og var ekki ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur,
heldur keppt við íslandsmeistara
ÍBK.
Leikurinn fór fram í Keflavík
og var hinn fjörugasti. Unglinga-
Iandsliðið lék. undan vindi í fyrri
hálfleik og sótti þá mun meira, án
þess að skora. Steinar Jóhannsson
skoraði hins vegar mark fyrir
Keflavík í einum af mjög fáum
sóknum liðsins i hálfleiknum.
i seinni hálfleik náðu íslands-
meistararnir hins vegar betri tök-
um á leiknum og skoruðu tviveg-
is. Gerðu þeir Steinar og Friðrik
Ragnarsson þau mörk.
Frammistaða unglingalands-
liðsins i þessum leik er hin athygl-
isverðasta, ekki sízt vegna þess að
í liðið vantaði nokkra af beztu
mönnum þess, þá Guðjón Hilm-
arsson, úr KR, Hálfdán Örlygsson
úr KR, Skagamennina Guðjón
Þórðarson oe Árna Sveinsson og
Vestmannaeyinginn Viðar Elí-
asson. Unglingalandsliðið mun
leika æfingaleik um næstu helgi
og mætirþá liði FH.
Spánn sigraði
SPÁNN sigraði Vestur-Þýzkaland
f vináttulandsleik í knattsðyrnu,
sem fram fór í Barcelona sl. laug-
ardag, með einu marki gegn engu.
Markið var skorað af Juan Asensi
á 19. mínútu, eftir mikil mistök í
þýzku vörninni. Skömmu fyrir lok
fyrri hálfleiks var dæmd víta-
spyrna á Spán, og tók hinn frægi
markakóngur, Gerd Muller,
spyrnuna, en spánski markvörð-
urinn Jose Iribar varði spyrnu
hans frábærlega vel.
Liverpool dregur
á Leeds í stigum
LEEDS United lenti í erfiðleikum
í leik sínum gegn Leicester í 1.
deildar keppninni í Englandi í
fyrrakvöld, enda vantaði fjöra af
aðalmönnum í liðið, þá Harway,
Mike Jones, Gordon McQueen og
Johnny Giles. Leicester átti mun
meira i leiknum, en klaufaskapur
varnarleikmanna liðsins varð til
þess, að það missti annað stigið.
Joe Jordan var kominn inn i víta-
teiginn er honum var brugðið
klaufalega og ekki var um annað
að ræða en vítaspyrnu, þrátt fyrir
áköf mótmæli Leicester-manna.
Ur vítaspyrnunni skoraði svo
Leeds, og tókst að verjast marki
allt fram til 77. minútu er Leicest-
erskoraði jöfnunarmark sitt.
Liverpool — helzti andstæðing-
ur Leeds í deildinni — náði hins
vegar báðum stigunum í leik sín-
um gegn Southampton. Aðeins
eitt mark var þó skorað í leiknum
og var þar um sjálfsmark að ræða.
Liverpool verðskuldaði hins veg-
ar sigurinn — var betri aðilinn á
vellinum frá upphafi til enda, og
átti mörg opin marktækifæri.
Útlitið versnar stöðugt hjá
Chelsea, sem mjög á óvart er í
botnbaráttunni í vetur. í fyrra-
kvöld tapaði liðið á útivelli fyrir
Ipswich 0—1. Einnig kepptu Cov-
entry og Norwich og var þar um
STEFÁNSMÓTIÐ fer fram í
Skálafelli helgina 2. og 3. marz
nk. og er það jafnframt 75 ára
afmælismót KR. Fyrirkomulag er
að nokkru leyti með nýjum hætti,
því að aðeins verður keppt í
tveimur aldursflokkum, 12 ára og
yngri og 13 ára og eldri. Stefáns-
mótið er svigmót og hefst keppni
yngra fólksins klukkan 15 á laug-
jafna og mjög harða baráttu að
ræða, sem lauk með sigri Coven-
try 1—0, og virðist nú sem ekkert
geti bjargað Norwich frá fallinu í
aðra deild.
Tveir leikir fóru fram í annarri
deild og uðru úrslitþeirra þessi:
BristolCity—Millwall 5—2
Luton Town — Swindon 2—0
ardag og í eldri flokki klukkan
13.30 á sunnudag. Rásröð verður
eftir hefðbundnu aldursflokka-
fyrirkomulagi, þannig að þeir
yngri verða ræstir fvrst.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast til Einars Þorkelssonar,
Efstalandi 2, fyrir klukkan 20
n.k. mánudagskvöld.
Stefánsmót í skíðum