Morgunblaðið - 25.05.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAI 1974
19
Sýning í franskri nútímalist:
„Mannvirki og munir”
S.l. mánudag var opnuö f
Kranska bókasafninu aó Laufás-
vegi 12 sýning á franskri nútíma-
1 ist. Sýningin er hingaó komin á
vegum menningarmáladeildar
franska utanrfkisráóuneytisins,
en uppsetningu hennar annast
frú Valentíne Fougére.
Frúin fór fyrst með sýninguna
til Írlands þar sem þægilegt var
aó koma því vió, en sýningin átti
fyrst og fremst að fara hingað til
lands.
A sýningunni gefur að Ifta
grafíkverk, málverk, vefnað,
skartgripi og líkön og myndir af
byggingum. Þetta eru verk
ýmissa frægra listamanna, en
einnig ungra og óþekktra.
Á sýningunni er m.a. mynd'af
fjölbýlishúsi einu, sem reist hefur
verið í úthverfi Parísarborgar, og
er það gert af frægum arkitekt,
Renaudie að nafni, en hjá honum
hefur Líney Skúladóttir arkitekt
starfað.
Takmark sýningarinnar er, eins
og nafnið gefur reyndar visbend-
ingu um, að sýna hvernig hægt er
að tengja listsköpun og nánasta
umhverfi mannsins. Þar kemur
ljóslega fram, að list er ekki ein-
ungis fagurfræðileg eða listmunir
ætlaðir til skrauts, heldur brýzt
listin fram í hinu daglega lífi,
enda þaðan runnin.
T.d. er sýnt hvernig koma má
fyrir ódýrum skreytingum á
byggingum og öðrum mannvirkj-
um, skreytingum, sem eru ekki
svo rammlega gerðar og vandað-
ar, að til þess sé ætlazt að þær
standi um aldur og ævi.
Sýningin er hvorki mjög marg-
brotin né viðamikil, en ætla má að
arkitektar og áhugamenn um
umhverfi það, sem við hrærumst
í, hafi af henni talsvert gagn og
ánægju.
Steinþór Marínó í Hamragörðum
I HAMRAGÖRÐUM vió Hávalla-
götu stendur yfir málverkasýning
Steinþórs Marinós Gunnarssonar
listmálara, þar sem sýndar eru 44
m.vndir málaóar á sfóustu 5—6
árum. Sýningin er tvfþætt, annars
vegar eru upphle.vptar „relief“
m.vndir en hins vegar olfumál-
verk, og er um aó ræóa landslags-
m.vndir, portret, ffgúrur og stfl-
færóar stemmningar.
Hinar svokölluðu “relief"
myndir eru frekar sjaldgæfar á
sýningum hérlendis, en myndir
þessar þurfa sérstaka lýsingu,
þannig að skuggi myndist í holun-
um í verkinu til að efnið komi
sem skýrast I ljós. Steinþór hefur
nokkuð kynnt sér þessa tegund
myndlistar erlendis og sagði í
stuttu samtali við Mbl. í gær, að
hann væri undrandi á því hve
myndlistarmenn hér notuðu hana
lítið.
Þetta er sjötta sýning Stein-
þórs, en hann hefur áður sýnt
tvisvar I Reykjavík, en einnig
tvivegis í Noregi og einu sinni í
Stykkishólmi. Síðasta sýning hans
var í Bogasalnum 1971. Sýningin
verður opin til 26. maí frá
klukkan 14 til 22 daglega. Allar
myndirnar eru til sölu og hafa
þegar margar selzt.
Steinþór sagði Mbl. að hann
hefði áhuga á að fara til Frakk-
lands á næstunni og halda þar
sýningu, en einnig kæmi til
greina að setja upp aðra sýningu
hér á næsta ári.
Málverk og tálgur
á sýningu í Hafnarfirði
1 FYRRADAG var opnuð í Ión-
skólanum f Hafnarfirði sýning á
verkum Jóns Gunnarssonar og
Snorra Karlssonar. A sýningunni
eru um hundrað olíu-, vatnslita-
og pastelmyndir eftir Jón og 12
verk eftir Snorra, sem hann nefn-
ir yrkingar f tré.
Sagði Snorri f samtali við Mbl.
að hann vildi kalla þessi verk
tálgur í stað skúlptúrs og væri þar
komið ágætt orð í málið. Sagði
Snorri að myndum sinum á sýn-
ingunni væri þannig raðað að
fyrstu stafirnir í nafni hvers
verks mynduðu orðið tálguskáld,
og gæti hann kannski frekar
kallað sig það en listmálara.
Þetta er fyrsta sýning Snorra,
en Jón Gunnarsson hefur sýnt
áður bæði heima og erlendis.
Myndir Jóns eru m.a. landslags-
myndir og myndir frá sjávarsíð-
unni. Allar myndirnar eru ný-
legar, unnar á síðustu þremur ár-
um. Á fyrsta degi sýningarinnar
keypti Lista- og menningarsjóður
Kópavogs sitt hvort verkið af
þeim Jóni og Snorra, en allar
myndirnar á sýningunni eru til
sölu. Sýningin verður opin til 3.
júní n.k.
Ný stjórn í Israel
Hefur aðeins eins atkv. meirihluta
Tel Aviv, 24. mai AP. NTB.
TVKIR fsraelskir stjórnmála-
flokkar, Oháói frjálslyndi flokk-
urinn og Borgararéttindasam-
bandió ákváóu í gærkvöldi aó
ganga til samstarfs vió Verka-
mannaflokkinn um aó mvnda rík-
isstjórn undir forsæti Itzaks Rab-
ins. Stjórnin hefur aóeins eins
atkvæóis meirihluta á þingi og
ber stjórnmálafréttariturum sam-
an um, aó starfsaóstaóa hennar
geti oróió mjög erfið.
I málefnasamningi segir að gert
Paris, 24. mai AP.
VALERY Giscard d'Estaing sór í
dag franska stjórnlagaráóinu
embættiseið sem 20. forseti
Frakklands, en sfðan veróur Gis-
card formlega settur inn f emb-
ættió á mánudag.
Endanlegar nióurstöóutölur úr
forsetakosningunum í Frakk-
landi hafa nú verió birtar og fékk
Giscard 13.396.203 atkvæói, en
Mitterand hlaut 12.971.604 atkv.
Enn hefur forsetinn nýi ekki
skýrt frá því hverjir muni fara
með ráðherraembætti í nýrri rík-
isstjórn, en blaðið France-soir
spáði í dag að Michel Jobert yrði
sé ráð fyrir að Trúarlega þjóðar-
sambandið geti gengið inn i
stjórnarsamstarf innan sex mán-
aða. Um skipan ráðherraembætta
er talið, að verði nokkrir erfið-
leikar. Yigal Allon aðstoðarfor-
sætisráðherra ætlar t.d. ekki að
fara i stjórn. Búizt er við að ráð-
herralisti verði birtur um eða eft-
ir helgina.
Sex arabiskir skæruiiðar voru
drepnir og tveir aðrir teknir
höndum í gærkvöldi, en þeir kom-
ust inn i ísrael um Golanhæðir og
skipaður utanríkisráðherra. Bent
er á að Jobert hafi verið náinn
samstarfsmaður Georges Pompi-
dou og hann hafi átt rfkan þátt i
að móta þá utanríkisstefnu sem
Frakkar hafi fylgt og m.a. leitt til
ösamkomulags við Bandaríkin.
I Bonn sagði Helmut Schmidt
kanslari, að þeir Giscard mundu
vinna að þvi i sameiningu að
finna áætlun fyrir EBE, sem gæti
leitt bandalagið úr þeirri sjálf-
heldu, sem það væri í nú.
Schmidt sagði, að milli þeirra
Giscards væri skilningur og vin-
átta, sem ætti að gera þeim þetta
verk ljúft og jákvætt.
ætluðu að taka konur og börn i
gíslingu og heimta að skæruliðar i
fangelsum i Israel vrðu látnir
lausir.
Til átaka hefur komið milli
Israela og Sýrlendinga i gær og
dag og segjast aðilar hafa háð
loftbardaga og ber hvor að sér
hafi vegnað betur.
Njósnasögu
neitað
Bonn, 24. mai NTB. AP.
TALSMAÐUR vestur-þýzku
stjórnarinnar hefur eindregió
vfsaó á hug þeim staöhæfing-
um, sem birtust í Kölnar-
blaóinu Capital. aö Gúnther
Nollau, yfirmaður v-þýzku
örvggisþjónustunnar, sé
njósnari Austur-Þjóðverja.
Capital kvaöst hafa upp-
lýsingar sfnar úr skýrslu CIA,
en bandarfsk stjórnvöld hafa
einnig borið þessa fullyróingu
til baka. Nollau kom til V-
Þýzkalands sem flóttamaöur
frá Austur-Þýzkalandi áriö
1950. Hann hefur nú í huga
málsókn gegn Capital fyrir
ærumeióandi og ósannan
áburó, aö sögn fréttastofnana.
Embættistaka Giscards
er á næstu grösum
N-Irland:
Ekki samið við öfgamenn
Belfast, 24. maí AP. NTB.
BKEZKIK og noróur-írskir leiö-
togar vilja ekki frekar nú en áöur
setjast aö samningum viö öfgaöfl
mólmælenda, sem hafa koniiö af
staö umfangsmiklum verkfallsaö-
geröum á N-Irlandi. Um viöræður
getur ekki oróiö aö ræöa viö þá
aðila, sem ekki halda sér innan
ramma laganna. Svo segir í orö-
sendingu sem gefin var út í Lond-
on í dag, aö loknum fundi
Harolds Wilson, forsætisráðherra
Bretlands og noröur-írska stjórn-
málaleiötoga, sem komu til Lond-
on 1 morgun til viöræðna, að
frumkvæöi Wilsons.
Vilhjálmur Bergsson sýnir
sem hann dvaldi áður við mynd-
listarnám. Síðasta sýning hans
var í Reykjavík 1972.
Strax að loknum ofangreindum
fundi kvaddi Harold Wilson
stjórn sína saman og gerði þar
grein fyrir ástandinu á Norður-Ir-
landi og til hvaða ráðstafana vrði
gripið til að halda uppi lögum og
reglu i landinu.
í fréttum frá Belfast í kvöld
segir að ástandið þar sé ögn
skárra nú. eftir að verklýðsráð
Ulsters hafði fallist á að leyfa
ýmsar undanþágur um vöru-
flutning til orkuvera. Margir
verklýðsleiðtogar halda þó enn
fast við að þeir hopi hvergi og
skipti þá engu, hvort herinn taki í
taumana.
VILHJÁLMUR Bergsson list-
málari sýnir um þessar mundir 1
Norræna húsinu 39 málverk og
fjölda teikninga, sem hann vann
á árunum 1964—74. Sýningin
nefnist Samlifrænar vfddir og
sagði Vilhjálmur í samtali vió
Morgunhlaöiö f gær, að ástæðan
fyrir nafngiftinni væri sú, aó
hann hefði sótt vföa til fanga í
sambandi viö sína myndsköpun,
af ýmsum sviðum Iffsins bæói
hlutlægum og huglægum. Upp-
haflega ætláði Vilhjálmur aó
sýna mun fleiri teikningar en úr
varó, en hann kvaðst hafa hætt
við þá fyrirætlun vegna lélegrar
lýsingar í ganginum viðsýningar-
salinn f Norræna húsinu. Sagói
Vilhjálmur aó hann mundi láta
sýningu þessara teikninga bíóa
betri tfma, en hann á pantaöan
sýningartfina á Kjarvalsstöóum
1976.
Þegar eru sjö myndanna seldar
og m.a. hefur Borgarlistasafnið
ákveðið að festa kaup á einni
mynd. Verður það þriðja mál-
verkið, sem borgin kaupir af
Vilhjálmi. Þetta er tíunda sýning
Vilhjálms, en hann hefur sex
sinnum áður sýnt í Reykjavík og
þrisvar i Kaupmannahöfn, þar
Argentínsk sýning hjá SUM
NÚ STENDUR yfir f Gallerf SÚM
og á Mokka myndlistarsýning
argentfnsk aó uppruna, þar sem
sýnd eru 148 verk eftir 69 lista-
menn frá 16 þjóóum og mun vera
einhver stærsta listsýning sem
hérlendis hefur verió haldin. Sýn-
ingin f.vlgir þeirri stefnu, sem
heitir hugm.vndalist, og gefur
hugm.vnd um flestar greinar
stefnunnar. Hugm.vndalist er
fremur ung listgrein, sem vaxiö
hefur vegna vfsindahyggju og
þarfa nútfmans fyrir kenningar,
þótt upprunann sé aó finna á
Endurreisnartfmabilinu.
Verkin á sýningunni eru eftir
fólk úr ýmsum greinum vísinda:
prófessora í vistfræði, málvísind-
um, rafeindasérfræðinga, efna-
fræðinga, heimspekinga og form-
rannsóknarmenn, sem starfa við
háskóla allt frá Tucuman til
Haifa. List hugmyndalistamanna
styðst oft aðeins lauslega við sjón
og myndskyn mannsins.
Sýningin er fengin frá CAÝC
(Miðstöð lista og mannlegra sam-
skipta) í Buenos Aires. Áður hef-
ur hún verið í Tokío, á alþjóðlegu
listasamkomunni í Pamplona, í
Madrid og á listahátfðinni f Edin-
borg. CAYC-stofnunin er einstök
sinnar tegundar og leggur eink-
um stund á rannsóknir á hegðun
lista og vísinda og skyldleika þess-
ara tveggja greina. Þar var haldin
ein fyrsta sýning á hugmyndalist
og bar hún heitið 2.972.543.
I fréttatilkynningu frá Gallerf
SÚM, segir að með sýningu þess-
ari sé blað brotið í sögu félagsins
og alþjóðlegt samstarf hafið á
sviði lista og vísinda.