Morgunblaðið - 14.06.1974, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JUNI 1974
Austfirðingar —
Austfirðingar
Baráttuhátið verður
i Valaskjálf á
Egilsstöoum
laugardaginn
1 5. júní
og
hefst kl. 22.00.
Dagskrá:
^ Halli og Laddi skemrnta
9 Söngflokkurinn Þokkabót
^ Stutt ávörp: Markús Örn Antonsson
og Sverrir Hermannsson
£ Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir
dansi til kl. 02.00.
SUS — kjördæmasamtökin
Kosningaskrifstofa
Sjáifstæðisflokksins
í Kópavogi er að Borgarholtsbraut 6,
símar 40708 og 43725.
Opið frá kl. 9 til 18 daglega.
Skrifstofustjóri er Bragi Michaelsson.
Heimasími 42910.
Kópavogur
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna i Kópavogí er boð-
að til áríðandi fundar í Sjálfstæðishúsinu við Borgar-
holtsbraut fimmtudaginn 1 3. júní kl. 20.30.
Dagskrá: I. Bæjarmál
II. Gunnar Thoroddsen ræð:r um
stjórnmálaviðhorf ið.
Stjórnin.
Akranes
D-listaskemmtun
Kosningaskernmtun verður haldin
í Hótel Akranes sunnudaginn 16.
júni n.k.og hefstkl. 21.00.
Ávörp: Geir Hallgrimsson' formaður
Sjálfstæðisflokksins og Jón
Árnason, Jón Sigurðsson og Valdimar Indriðason.
Tvisöngur
Hljómsveit Kalla Bjarna leikur fyrir dansi.
Sjálfstæðisfélögin Akranesi.
Grundarfjörður
Baráttuþing verður haldið í samkomuhúsinu
laugardaginn 1 5. júní kl. 1 5.00.
Ræðumaður verður Gunnar Thoroddsen.
Ávörp flytja: Jónína Mikkelsdóttir. Jón Sigurðs-
son, Ellert Kristinsson
Fundarstjóri verðurÁrni Emilsson.
SUS — kjördæmasamtökin.
Sjálfstæðishús
Sjálfboðaliðar
Sjáltboðaliða vantar til ýmissa verkefna i nýia Siálfstæðishúsinu kl.
1 3:00 til 1 8:00, laugardag. Vinsamlegast takið með ykkur hamra og
kúbein.
Sjálfstæðismenn athugið, að mjög áriðandi er að fjölmennt verði til
sjálfboðavinnu næstu laugardaga.
Sjálfstæðismenn:
VIÐ BYGGJUM SJÁLFSTÆÐISHÚS.
Byggingarnefndin.
BNdudalur V-Barða-
strandasýsla
Aðalfundur Neista, F.U.S. i Vestur-Barðastranda-
sýslu verður haldinn i félagsheimilinu Bildudal
föstudaginn 1 4. júni n.k. og hefst kl. 20:30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Friðrik Sophusson formaður S.U.S. og dr.
Þráinn Eggertsson lektor koma á fundinn.
Stjórnin.
ísafjörður
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn i
Sjálfstæðishúsinu laugardaginn 15. júní n.k. kl.
16:00.
Framsöguræður flytja Ellert B. Schram fv. alþm.,
dr. Þráinn Eggertsson lektor og Friðrik
Sophusson form. S.U.S.
Fundurinn er öllum opinn.
Kjödæmissamtök ungra
Sjálfstæðismanna.
Fylkis F.U.S.
óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:
Blaðburðarfólk óskast.
Garöahreppur
Arnarnes og Flatir.
Ólafsvík
Vantar umboðsmann strax.
Uppl. á afqreiðslunni í síma
10100.
Hvammstangi
Umboðsmaður ' óskast
strax. Upplýsingar hjá
Karli Sigurgeirssyni í síma
1350 og hjá afgreiðslunni
í síma, 101 00.
Innri-Njarövík
Umboðsmaður óskast til að
annast dreifingu og inn-
heimtu fyrir Mbl. Uppl. hjá
umboðsmanni. Sími 6057
og hjá afgreiðslumanni í
Reykjavík. Sími 10100.
Vestmannaeyjakonur
heima og heiman ath:
Hin árlega orlofsferð okkar verður að Laugar-
vatni dagana 22. til 29. júní. Þær konur sem
hafa áhuga, hringið í Kristínu Baldviris S. 66
og Guðbjörgu Hjörleifs í S. 288.
Veiðileyfi
Landssamband veiðifélaga tilkynnir
Veiðileyfi í eftirtöldum ám og vötnum eru seld á
skrifstofu Landssambandsins í Bankastræti 6.
Laxá í Aðaldal, tímabil 16/6 til 30/6.
Fnjóská bleikjuveiði, Arnarvatn, Arnarvátns-
heiði, Hóp í Húnavatnssýslu, Skjálfandafljót.
Silungsvötn á Sléttu
Sigurstaðavatn, Nesvatn, Harðbaksvatn,
Hraunhafnarvatn, Kötluvatn, vatnasvæði
Deildarár.
Nýr
kaleikur
Mælifelli, 5. júní.
A HVlTASUNNUDAG barst
Mælifellskirkju kaleikur að gjöf
frá börnum síra Bjartmars Krist
jánssonar og frú Hrefnu Magnús-
dóttur, en þau sátu á Mælifelli
1946—1968. Enginn kaleikur var
til í kirkjunni, en fenginn að láni
á nágrannakirkjunum í Goðdölum
eða á Reykjum, þegar fremt var
og tekið til altaris. Var kaleikur-
inn því enn kærkomnari gjöf en
ella, sem vænta má, og kirkjan nú
að verða sæmilega búin, nema
hvað orgel er mjög lélegt.
Börn og niðjar síra Jóns Ó.
Magnússonar, síra Sigfúsar Jóns-
sonar, sfra Tryggva Kvaransog nú
síra Bjartmars hafa gefið kirkju
gamla heimastaðarins dýrmæta
muni, sem prýða hana og búa
hana betur til þjónustunnar. Af-
staða prestsbarna til prestsset-
ursins, þar sem þau alast upp, er
að þvf leyti ólík hinu, sem al-
mennast er, að eignarhald er ekk-
ert þegar faðir þeirra flytzt burt
eða deyr, og ávallt óvfst að ætla
hver kemur á staðinn, en skylt að
rýma. Það er svo undir ýmsu kom-
ið, hvort sambandið rofnar, þegar
tíminn græðir sár eftirsjár og til-
finningar æsku og elsku fjarlægj-
ast. Hér hefur farið á þann veg,
sem greindi, að prestsbörnin frá
Mælifelli gleyma ekki gömlu
stöðvum, en hugurinn þar, sem
áður var heima.
A kaleikinn er letrað nafn
kirkjunnar og dagsetningin: 2.
júní 1974. Gripir sem þessi verða
gjarna gamlir. Um langan ókom-
inn tfma mun þvf hvítasunnudag-
urinn í ár verða minningadagur í
sögu Mælifellskirkju. Eins og vor-
ið í gróandi þess og ilmi, fagur
vottur um þroska og ávöxt hins
góða, er aldrei þrýtur, meðan ekki
linnir vor og sumar f landi og
anda.
Fyrir hönd safnaðarins færi ég
alúðarþakkir systkinunum frá
Mælifelli, en þau eru: Snæbjörg
húsfreyja í Dölum vestur, Krist-
ján og Benjamín, báðir að námi,
Jónfna húsfreyja á Silfrastöðum,
Fanney, gift á Akureyri og
Hrefna, unglingur í foreldrahús-
um á Laugalandi f Eyjafriði.
sfra Ágúst
Atvinnulausum
fjölgar um 42
UM SÍÐUSTU mánaðamót voru
383 íslendingar á atvinnu-
leysisskrá, og hafði þeim
fjölgað um 42 frá f.vrra mánuði.
Hafði atvinnulausum fjölgað
bæði f kaupstöðum og kauptún-
um. Atvinnuleysi er stórum
algengara hjá konum en körl-
um, og mest er það hjá verka-
konum og iðnverkakonum.
Fólki á atvinnuleysisskrá
hafði fjölgað mest í Re.vkjavfk
og þar voru þeir flestir en einn-
ig hafði atvinnulausum fjölgað
á Isafirði. 1 kaupstöðum var
næstmest atvinnuleysi á
Akranesi. I kauptúnum var at-
vinnuleysi mest á Hólmavík, en
þar voru 35 atvinnulausir, þar
af 33 verkakonur.
Leiðrétting
I FRÉTT í gær um vinnudeilur
við Sigöldu var ranghermt að Páll
Ólafsson væri verkfræðingur
Energoprojekt. Hann er verk-
fræðingur Landsvirkjunar.