Morgunblaðið - 21.06.1974, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JUNI 1974
17
Leggja skæruliðar í
Angóla niður vopn?
Lissabon 20. júní AP—NTB
STÆRSTA frelsishreyfingin f
portúgölsku nýlendunni, Angóla
er sögð hafa lýst þvf yfir, að hún
ætli að láta af hernaði sfnum og
hefja þess f stað þátttöku f lands-
málum á friðsamlegan hátt lögum
samkvæmt. Það var portúgalska
fréttastofan Lusitania sem skýrði
frá þessu f dag, og hafði fregnina
eftir lftilli og lftt þekktri
kaþólskri útvarpsstöð f Angola,
„Luanda 74“. Hafði útvarpsstöðin
rofið dagskrá sfna f gærkvöldi til
að skýra frá þessu.
Stjórnvöld f Lissabon tóku
þessari fregn þvf með varkárni,
og báru sumir brigður á sann-
leiksgildi hennar. Embættismað-
ur f portúgalska utanrfkisráðu-
neytinu sagði, að ef fréttin væri
rétt, þá tæki rfkisstjórn Portúgals
öllum skrefum f friðarátt með
fögnuði.
Umrædd frelsishreyfing, Þjóð-
hreyfinging fyrir frelsun Angola,
er ein af fimm frelsishreyfingum
í landinu. I frétt útvarpsstöðvar-
innar sagði, að hreyfingin hygðist
nú ætla að taka þátt í stjórnmál-
um á eðlilegan hátt, vegna hinnar
nýju stefnu portúgölsku ríkis-
stjórnarinnar.
Heima í Portúgal stendur enn
verkfall starfsmanna símans, en
leiðtogar þeirra hafa þó ákveðið
að hefja á ný samningaviðræður.
Ríkisstjórnin hefur lýst kröfur
þeirra ósanngjarnar og andstæðar
hagsmunum þjóðarinnar.
Samband á
ný milli A- og
V-Þýzkalands
Berlín, Bonn 20. júní. AP-NTB
AUSTUR- og Vestur-Þýzkaland
hófu í dag formlega stjórnmála-
samskipti sín í milli í fyrsta
skipti, síðan ríkin tvö risu úr rúst-
um þriðja ríkis Adolf Hitlers eftir
síðari heimsstyrjöldina. Staðfest-
ing sendiherranna seinkaði um
einn mánuð vegna Guilleaume-
njósnamálsins, sem varð Willy
Brandt að falli, og það var ekki
fyrr en í dag, að sendiherrarnir
Guenter Gaus frá Vestur-Þýzka-
landi og Michael Kohl frá Austur-
Þýzkalandi fengu gagnkvæma
staðfestingu.
Þá samþykkti vestur-þýzka
þingið í dag samninginn um eðli-
legt samband Vestur-Þýzkalands
og Tékkóslóvakíu. Stjórnarand-
staðan greiddi hins vegar atkvæði
gegn samningnum.
N-vietnömsku
skipi var sökkt
Saigon, 20. júní. AP.
S-VIETNAMSKT herskip sökkti i
dag, skammt undan strönd S-Viet-
nams, 80 tonna landgöngu-
pramma frá N-Vietnam, hlöðnum
vopnum og skotfærum. Er þetta
fyrsta n-vietnamska skipið, sem
S-Vietnamar sökkva, frá þvi
friðarsamningarnir um Vietnam
tóku gildi fyrir u.þ.b. 17 mánuð-
um, eða í janúarlok 1973. Gerðist
þetta tæpa 30 metra frá strönd-
inni, undan Cua Viet, rétt við
hlutlausa beltið. Þar var áður s-
vietnömsk flotastöð en hún féll i
hendur N-Vietnama daginn, sem
vopnahléð gekk i gildi.
S-vietnömsk yfirvöld hafa áður
sagt frá hergagnaflutningum til
staða í höndum N-Vietnama rétt
við hlutlausa beltið, m.a. kín-
verskum og a-þýzkum skipum, en
ekki hefur verið ráðizt á slík skip
fyrr.
Og hér eru nokkrir af ráðherrunum við opnunarathöfn fundarins. F.v.
Henry Kissinger, Bandarfkjunum, Mario Soares, Portúgal, Eugéne
Schaus, Luxembourg, Spyros Tetenes, Grikklandi og Ove Guldberg,
Danmörku.
Hér sjást tveir af utanrfkisráðherrum Atlantshafsbandalagslandanna
við komuna til Ottawa s.l. mánudag. Til vinstri er James Callaghan,
utanrfkisráðherra Bretlands, og til hægri Einar Ágústsson, utanrfkis-
ráðherra tslands.
FELLUR RÍKIS-
STJÓRNWILSONS?
greiða skuli verkalýðsfélögunum
greidda skatta. Var frumvarpið
fellt með 308 atkvæðum thalds-
flokksins. Frjálslynda flokksins,
Skozkra þjóðernissinna o.fl. gegn
299 atkvæðum Verkamanna-
flokksins. Þetta leiddi til þess, að
stjórnarandstaðan krafðist nýrra
kosninga þegar f stað, og mun
Harold Wilson nú einnig vera
undir þrýstingi frá sfnum eigin
ráðherrum um að boða til kosn-
inga. Ekki er þó talið að úr þvf
verði fyrr en f haust.
Er talið, að atkvæðagreiðslan í
neðri málstofunni í gærkvöldi
boði nýja atlögu stjórnarandstöð-
unnar gegn rfkisstjórn Wilsons.
Henni var haldið áfram í dag,
þegar stjórnarandstöðuflokkarnir
með Edward Heath, leiðtoga
íhaldsmanna í broddi fylkingar,
réðst harkalega á stefnu stjórnar-
innar í atvinnumálum og áform
hennar um þjóðnýtingu fyrir-
tækja.
London 20. júniNTB.
LtKUR bentu til f dag, að boðað
yrði til nýrra þingkosninga f Bret-
landi f haust, eftir að minnihluta-
stjórn Verkamannaflokksins und-
ir forsæti Harold Wilsons beið
sinn mesta pólitfska ósigur á f jög-
urra mánaða valdaferli sfnum.
Það var f gærkvöldi sem stjórnar-
andstaðan felldi á þinginu frum-
varp stjórnarinnar um að endur-
Wilson riðar til falls.
Kaupmannahöfn,
20. júniNTB
SAKSÖKNARI danska rfkis-
ins f fjársvikamálum lagði f
dag fyrir borgarréttinn í
Kaupmannahöfn ákæruskjal f
máli þingmannsins Mogens
Glistrups. Þau eru upp á 143
blaðsfður.
Undirbúningur
fundarins í
Brússel hafinn
Ottawa, París, 20. júní AP-NTB
□ EFTIR hinn velheppnaða ráð-
herrafund aðildarlanda Atlants-
hafsbandalagsins f Ottawa, sem
lauk f gær, eru NATO-löndin nú
að undirbúa toppfundinn f
Briissel á miðvikudag f næstu
viku, en á þeim fundi mun Nixon
Bandarfkjaforseti gera evrópsk-
um starfsbræðrum sfnum grein
fyrir fyrirhugaðri ferð sinni til
Sovétrfkjanna. Einnig munu lcið-
togarnir 15, sem fundinn sækja,
undirrita Atlantshafssáttmálann,
sem samþykktur var f Ottawa.
Eins og frá hefur verið skýrt,
mun Valery Giscard d’Estaing,
forseti Frakklands, ekki mæta f
Brússel, og heimiidir f Parfs
hermdu f dag, að ástæðan væri sú,
að hann hefði áður verið búinn að
ráðstafa sér þennan sama dag til
viðræðna við íranskeisara.
Q] Henry Kissinger, utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna, sagði á
blaðamannafundi við lok Ottawa-
fundarins, að viðræðurnar þar
hefðu verið mjög gagnlegar og
uppbyggilegar. I sama streng
tóku aðrir ráðherrar, þ. á m. Jean
Sauvargnargues, utanrfkisráð-
herra Frakklands.
Auk Atlantshafssáttmálans var
öryggismálaráðstefna Evrópu
helzta umræðuefni Ottawafund-
arins, og í lokayfirlýsingunni
segir, að mál þar þróist „misjafn-
lega“. „Enn er miklu starfi ólokið,
t.d. í lykilmálum eins og bættum
mannlegum samskiptum og greið-
ari upplýsingamiðlunum, svo og
uppbyggingu gagnkvæms
trausts". Voru ráðherrarnir sam-
mála um að halda viðræðunum f
Genf áfram með þolinmæði og
ákveðni. Látin voru f ljós nokkur
vonbrigði með stífni Sovétríkj-
anna í þessum efnum.
Utanríkisráðherrar Grikklands
og Tyrklands áttu í gær með sér
fund í Ottawa til þess að reifa þau
vandamál, sem upp hafa komið í
sambúð þessara tveggja banda-
lagsþjóða, þ.e. vegna kannana á
olíuvinnslu í Eyjahafi, svo og hins
eilífa Kýpurvandamáls. Lýstu
ráðherrarnir því yfir að fund-
inum loknum, að þeir væntu þess,
að hann leiddi til „áþreifanlegs
árangurs”.
Forsætisráðherra
Pakistans, Bhutto
fer til Bangladesh
Islamabad, Pakistan,
20. júní AP.
FRÁ ÞVl var skýrt f Islamabad f
dag, að Zulfikar Ali Bhutto, for-
sætisráðherra Pakistans, mundi
fara f þriggja daga opinbera
heimsókn til Bangladesh 27. júnf
nk„ en Bangladesh var, sem kunn
ugt er, áður fyrr hluti Pakistans
og jafnan kallað Austur-Pakistan.
Þar háðu Indverjar og Pakistanar
styrjöld árið 1971, sem lyktaði
með þvf, að landið varð sjálfstætt.
Markar þessi heimsókn Bhuttos
tfmamót f samskiptum rfkjanna
og er ætlað að verða tákn þess, að
sættir hafi tekizt milli þeirra, eða
eins og starfsmaður pakistanska
utanrfkisráðuneytisins sagði:
„Þetta er mikilvægt og stórt skref
á vegi sátta, friðar og vináttu
rfkjanna".
Mujibur Rahman fursti, for-
sætisráðherra Bangladesh, bauð
Bhutto f þessa heimsókn, þegar
hann var í Lahore í Pakistan í
febrúar sl. og tók þátt í ráðstefnu
leiðtoga 37 ríkja múhameðstrúar-
manna.
Búizt er við, að tekið verði upp
eðlilegt stjórnmálasamband milli
Bangladesh og Pakistan meðan á
heimsókn Bhuttos stendur. 1 för
rneð honum verður fjölmenn
sendinefnd, þingmanna,
embættismanna og blaðamanna,
og hefur stjórn Indlands veitt
leyfi til þess að flugvélar for-
setans fljúgi yfir Indland. Flug
pakistanskra flugvéla yfir
indverskt land hefur verið bann-
að frá því í febrúar 1971.
Samskipti Pakistans og
Bangladesh hafa smám saman
verið að taka á sig eðlilegt form.
Fyrsta skrefið í þá átt eftir
styrjöldina var, að Bhutto lét
Mujibur Rahman lausan úr
fangelsi í Pakistan, þar sem hann
var í haldi meðan barizt var í
austurhlutanum. Síðan kom að
því, að Bhutto viðurkenndi sjálf-
stæði Bangladesh og stjórn
Bangladesh ákvað að hætta við að
draga 195 pakistanska fanga fyrir
rétt og saka þá um stríðsglæpi
eins og til stóð.