Morgunblaðið - 21.06.1974, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.06.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JUNÍ 1974 25 Guðbjörg Guðmundsdóttir Kotka - Kveðja úr Húnaþingi um Húnaþing. Hvar sem spor hennar lágu vildi hún bæta sam- tíð sína og glæða með samferða- mönnum sínum fegurðarþrá. Svo fer um marga þeirra, er nú minn- ast frú Guðbjargar Kolka, sem kvödd er hinztu kveðju f dag, sem Jóni biskupi ögmundssyni, er hann mælti þegar hann minntist Isleifs fóstra síns: „Hann kemur mér ávallt í hug er ég heyri góðs manns getið.“ Á þeim árum er frú Guðbjörg settist hér að í héraðinu, var víða mikill skortur, einkum við sjávar- síðuna. Hefi ég fyrir satt, að hún hafi ávallt verið fyrst á vettvang, til þess að veita þeim hjálp og likn, er af einhverjum ástæðum áttu um sárt að binda. Þau hjón eignuðust fjögur börn, þrjár dætur sem allar eru á lífi, giftar og búsettar syðra. Son sinn Guðmund misstu þau fyrir allmörgum árum. Fyrir nokkrum árum gáfu þau hjón Skálholtsstað Kveðja úr Húnaþingi. VIÐ þjóðveginn til Norðurlands, ris mikil og fögur bygging á hægri hönd á bökkum Blöndu. Þetta er Héraðshæli Austur-Húnvetninga. Þegar inn er komið, blasa við tvær brjóstmyndir í stigagangi. Þær eru af læknishjónunum frú Guðbjörgu og Páli Kolka. Hann var aðalhvatamaðurinn að bygg- ingu héraðshælisins og þau hjón húsbændur fyrstu árin eftir stofnun þess. Eigi verður svo minnst á þetta „stóra heimili“, að frú Guðbjargar verði þar eigi rækilega minnzt, svo og sögu Húnvetninga um nær þrjá ára- tugi. Hún var borin til grafar í Reykjavík í gær. Frú Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka fæddist þann 8. október árið 1889 að Hvammsvík í Kjós, dóttir hjónanna Guðmundar Guðmundssonar bónda þar og Jakobinu Jakóbsdóttur frá Valda- stöðum í Kjós. Ung að árum gift- ist hún Páli Kolka, lækni, og fluttu þau til æskustöðva hans norður í Húnaþing árið 1934, þar sem hann var héraðslæknir um nær 30 ára skeið. Frú Guðbjörg festi þegar rætur f Húnaþingi og bjó manni sínum og börnum glæsilegt heimili, svo að orð fór af víða. Bjuggu þau lengst af í gamla sjúkrahúsinu á Blönduósi. Mátti segja, að læknis- heimilið væri í alfaraleið, þvi að í næsta nágrenni var viðkomu- staður áætlunarbílsins til Norður- lands. Mátti og heita að í nær hverri ferð væri einhver er ætti erindi við læknishjónin. Þannig var heimili þeirra Guðbjargar og Páls opið öllum er að garði bar. Sá er þetta ritar var svo hepp- inn að kynnast þessum ágætu hjónum og njóta vináttu þeirra. Verður mér ætíð ríkt í huga, er ég kom fyrst á læknisheimilið á Blönduósi ungur að árum ásamt foreldrum mínum, hversu höfð- ingsskapur og rík gestrisni réðu þar rfkjum og hversu heimili þeirra mótaðist af íslenzkri hefð og fslenzkri menningu. Það var minnisstætt fyrir ungling að kynnast slíku menningarheimili, en þar var hlutur frú Guðbjargar eigi minni en húsbóndans. Frú Guðbjörg tók snemma þátt í félagsstörfum og átti ásamt manni sínum þátt í að stuðla að mörgum framfara- og menningar- málum vftt um Húnaþing. Alla tíð i erfiðu læknisstarfi sínu naut Páll mikilsverðs stuðn- ings konu sinnar, en þau voru mjög samtaka um að hlynna sem bezt að hinum sjúku. Var eigi ótítt, að frú Guðbjörg tæki sjúkl- inga inn á heimili sitt um lengri eða styttri tíma, er margt var á sjúkrahúsinu. Hugsa því margir Húnvetningar til hennar í dag með þakklæti í huga. Ekkert stóð henni þó nær en kristin kirkja. Hana vildi hún efla og styrkja. Hún var m.a. í sóknar- nefnd Blöndóssafnaðar um langt skeið og formaður sóknarnefndar. Einnig annaðist hún kirkjuna um langt árabil. Skal henni því þökkuð öll þessi ómetanlegu störf, er hún vann Guðs kristni LAFS GAUKS allt bókasafn sitt til minningar um Guðmund son sinn. Árið 1960 fluttu þau hjón úr héraði til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu að Bergstaðarstræti 81. Varð mikið skarð fyrir skildi við brottför þeirra. Mann sinn missti frú Guðbjörg árið 1971. Enn um langan aldur munu heilladrjúg spor frú Guðbjargar og Páls Kolka sjást hér um Húna- þing og bera vott um göfuga héraðshöfðingja, er áttu svo mik- inn þátt f þvf að móta samtíð sína til betra og fegurra lífs. Ég vil f lok þessara fáu og fátæklegu orða minna þakka frú Guðbjörgu Kolka fyrir trygga vin- áttu á liðnum árum og sendi dætr- um hennar og öðrum ástvinum samúðarkveðjur yfir fjöllin. Söfn- uður Blöndósskirkju þakkar henni vel unnin störf um langt árabil. Austur-Húnvetningar allir kveðja hina göfugu konu og þakka af alhug bjartar og fagrar samverustundir á liðnum áratug- um. Árni Sigurðsson. Friðrik A. Jónsson Friðrik prýddi. Algengt er að ætla þá sterka og harða, þar sem vilj- inn og athafnasemin setur meiri svip á ytra gervi þeirra en tilfinn- ingarnar, og oft er það líka svo, að þeir undiroka tilfinningar sínar og jafnvel deyfa þær, með hinni vægðarlausu athafnasemi. Svo var þvf ekki varið með Friðrik. Hann átti hjartalag svo hlýtt og frjótt, að fátítt er, hvort heldur um athafnamenn er að ræða, eða venjulega menn. Þrátt fyrir yfir- buróa dugnað sinn markaðist öll hans afstaða af mannkostum og hjartagæzku. Einnig á því sviði var hann afburðamaður, háttvís og nærgætinn í öllum athöfnum. Þess vegna naut hann hins ský- Iausa trausts, jafnt viðskiptavina sem meðborgara, er honum kynntust. Kynni okkar voru ekki löng og urðu til gegn um kynni barna minna af honum og heimili hans. En fyrir þau kynni var hann í mínum augum ein af þessum mannperlum, sem lengst ná i því að eignast skilyrðislausa tiltrú. Fyrir þessa eiginleika mun ég minnast hans í hópi hinna merk- ustu manna, sem ég hef kynnzt. Vil ég þakka honum fyrir það fordæmi, sem hann gaf og fjölda óséðra góðverka hans. Hann naut þeirrar gæfu, að eignast þann maka, sem trúföst stóð við hlið hans, í öllum störfum hans, risnu og velgjörðum. Áreiðanlega hefur hann ýmsa hitt, sem hann hefur haft þau áhrif á, að góðir menn koma í góðs manns stað. Óska ég þess fyrst og fremst börnum hans. Veit huggun þeim, sem harma nú, hvíld væra þeim er sefur. Sigurður Pálsson, Lifendum, guð minn, líknar þú, Liðnum þú miskunn gefur. Veit huggun þeim, sem harma nú, hvíld væra þeim er sefur. Góðir menn, drottinn, gef þú, að í góðra manna komi stað; á öllu ráð einn þú hefur. 'Svo mælti Sveinbjörn Egilsson við mannslát, og túlkar það hugs- anir mínar við fráfall Friðriks A. Jónssonar. Alkunnugt er hver af- burðamaður hann var í störfum sínum, og ætla ég ekki að fjölyrða um það. En Friðrik A. Jónsson var afburðamaður á öðru sviði, sem færri þekkja til. Hann var búinn mannkostum og hjart^- gæzku í svo ríkum mæli, að fág^ett er. Atgervis- og atorkumenn eru margir til, en ekki hafa þeir nærri allir það mannkostaatgervi, sem Íbuð til leigu 6 herbergja sérhæð við Sólheima er til leigu. Ibúðin er 2 stofur, 4 svefnherb., eldhús og bað. Tilboð sendist Mbl. fyrir miðvikudag 26. þ.m. merkt: íbúð—1443. Ung stúlka með kennara- og stúdentspróf sem stundar nám í sérkennslu erlendis óskar eftir sumar- vinnu. Upplýsingar í síma 1 5842 frá kl. 9—2. Sveinspróf Sveinspróf í húsasmíði hefjast mánudaginn 24. þ.m. kl. 8.00 1 Iðnskólanum í Reykjavík. Prófnefndin. 7 til 9 mánuðir Mig vantar íbúð í þennan tíma. Þrennt í heimili (uppkomin). Fyrirgreiðslu heitið. Tilboð merkt: „Hljóðlátt, algjör reglusemi — 1 425." sendist Mbl. fyrir þriðjudag. Rúta — 22ja manna Merzedes Benz rúta árg. 1970 með stórum hurðum að aftan til sölu og sýnis að Funahöfða 19 kl. 9—4 í dag. Tilboð opnuð kl. 17.00 í skrifstofunni Grettisgötu 56. Byggingarfélagid Ármannsfell h. f. Iðnaðarmenn óskast Óskum að ráða til starfa eftirtalda iðnaðar- menn: 1. járnsmiði 2. rafsuðumenn 3. nema í málmiðnaði. Upplýsingar veitir verkstjórinn í síma 81130 virka daga kl. 8 — 1 7.30. Mötuneyti er á vinnustað. Vegagerð ríkisins Mötuneytisráðskona Stjórutjarnaskóli, S-Þing, óskar að ráða ráðskonu I mötuneyti skólans frá 1. sept. n.k. Fjöldi kostgangara er um 1 20 manns, og er æskilegt að viðkomandi hafi góða menntun og/eða starfsreynslu við hliðstæð störf. Æskilegt væri, að umsækjandi gæti tekið að sér nokkurra tíma kennslu á viku i hússtjórn og matreiðslu. Góð laun, og miklir atvinnumöguleikar á staðnum fyrir hugsanlegan maka. Starfinu fylgir rúmgóð einstaklingsibúð, sem hægt er að nota eins fyrir barnlaus hjón eða e.t.v. hjón með 1 barn. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri: Viktor A. Guðlaugsson simi um Fosshól, S-Þing, sem jafnframt verður til viðtals föstudaginn 21. maí kl. 1 7 —19 og laugardaginn 22. mai kl. 1 3.00—1 5.00 á Hótel Esju, herbergi nr. 510 simi 82200 Umsóknarfrestur er til 1. júli n.k.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.