Morgunblaðið - 21.06.1974, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JUNl 1974
21
Islenzkur markaður hf. hefur aflað 285.6
milljóna í gjaldeyri — og lagt 23.8 milljónir
til starfsemi Ferðaskrifstofu ríkisins
NYLEGA féll dómur í máli
Ferðaskrifstofu rfkisins gegn
Islenzkum markaði h.f. Þar sem
í fréttum af þessum dómi og af
málarekstrinum vegna hans
undanfarin ár hefur gætt nokk-
urs misskilnings og jafnvel mis-
túlkunar þykir rétt að eftirfar-
andi komi fram.
Hæstiréttur dæmdi íslenzkan
markað h.f. til að greiða Ferða-
skrifstofu ríkisins 2.9 millj.
króna en ekki 10 milljónir
króna eins og fjölmiðlar hafa
sagt, samkvæmt aðfengnum
upplýsingum.
Hér er ekki um greiðslu
skaðabóta að ræða heldur sér-
stakan skatt sem íslenzkum iðn-
aði er gert að greiða til reksturs
Ferðaskrifstofunnar eins og
skýrt er frá hér að neðan. En
hver eru tildrög þessa máls?
Stofnendur fyrirtækisins
og tilgangur þess.
Islenzkur markaður h.f. var
stofnaður árið 1970 af nokkrum
stærstu iðnaðar framleiðslufyr-
irtækjum landsins á sviði sam-
vinnu og einkareksturs.
Stærstu hluthafar eru t.d. Sam-
band Isl. Samvinnufélaga, Ála-
fo,ss h.f., Osta og Smjörsalan
s.f., Glit h.f., Sláturfélag Suður-
lands auk 14 annarra iðnfyrir-
tækja.
Tilgangurinn með stofnun
fyrirtækisins var að nýta betur
þá möguleika sem fyrir hendi
voru á Keflavíkurflugvelli til
kynningar, markaðsrannsókna
og sölu íslenzks iðnvarnings og
afurða til þeirra hundruð þús-
unda farþega sem fara um flug-
völlinn árlega á ferð milli
heimsálfanna. Gerður var
samningur um verzlunaraðstöð-
una, hvaða vörur mætti verzla
með og annað, við Utanríkis-
ráðuneytið hinn 9. júní 1970.
Samkvæmt honum reisti is-
lenzkur markaður h.f. algerlega
á eigin kostnað 615 fermetra
verzlunarviðbyggingu við flug-
stöðina. Kostnaður við hana
nam 8.5 milljónum króna og var
byggingin afhent ríkinu strax
til eignar en útlagður bygginga-
kostnaður reiknaður sem fyrir-
fram greidd húsaleiga.
Árangur og vörusala.
Árangur af starfsemi fyrir-
tækisins frá 1. ágúst 1970 til 1.
júnf 1974 hefur verið mjög góð-
ur að mati allra sem nálægt
sölumálum íslenzkrar iðnfram-
leiðslu koma. Margar nýjar
framleiðsluhugmyndir og
endurbætur hafa þróast með og
fyrir tilstilli fyrirtækisins, og
fjölmörg ný viðskiptasambönd
milli framleiðenda og erlendra
heildsölu og smásölufyrirtækja
hafa myndast. Söluvörur fyrir-
tækisins eru samkvæmt fyrr-
nefndum samningi eingöngu
vörur framleiddar af innlend-
um iðnfyrirtækjum, aðallega úr
íslenzkum hráefnum, og nam
t.d. sala á vörum úr fslenzkri ull
51.0% af heildarsölunni á
síðastliðnu ári. Gærur og skinn
eða vörur unnar úr þeim
13.5%, matvara 8.4%, skart-
gripir 8.0% keramik 6.9%.
Fyrirtækið hefur undanfarin 3
ár gefið út 48 síðna póst-
pöntunarlista í 100.000 eintaka
upplagi hvert ár og hefur hon-
um verið dreift víða um heim.
Verzlun með þessari póstsölu-
aðferð hefur vaxið ár frá ári og
hefur vörulistinn verið mikið
notaður til kynninga á fram-
leiðsluvörum okkar, landi og
þjóð.
Heildarvörusala fyrirtækis-
ins frá upphafi er 303.9 milljón-
ir króna þaraf 285.6 milljónir í
erlendum gjaldeyri eða um
94%. Til samanburðar má geta
þess að gjaldeyrisskil Frí-
hafnarverzlunar ríkisins námu
t.d. árið 1972 brúttó um 41% af
heildarsölu.
„Transitgjaldið“ og
grundvöllur þess.
I fyrrgreindum samningi Í.M.
og ráðuneytisins eru ákvæði
um að fyrirtækið skyldi greiða
21 krónu af hverjum „transit-
farþega" og skyldi það skoðast
sem þóknun til Ferðaskrifstof-
unnar fyrir aðstöðumissinn á
flugvellinum. Þetta ákvæði var
alger forsenda þess að aðstaðan
fyrir iðnaðinn fengist í flug-
stöðvarbyggingunni og var ekki
til umræðu nein breyting á því.
Ferðaskrifstofa ríkisins rak
áður litla verzlun í flugstöðinni
og taldi sig hafa haft 6.9
milljóna króna hagnað árið
1969 af 27.2 milljóna sölu. í
samningaviðræðum um þóknun
til Ferðaskrifstofunnar fyrir
aðstöðumissinn óskuðu forráða-
menn islenzks markaðar h.f.
eftir nánari upplýsingum úr
bókhaldi F.r. til að sannprófa
þessar tölur en því var hafnað.
Ekki fékk Seðlabanki islands
heldur upplýsingar úr bókhald-
inu, en hann stóð að gerð hlut-
lausrar skýrslu um rekstur
verzlunar Ferðaskrifstofunnar
og rekstur islenzk markaðar h.f
á vegum og fyrir tilmæli Utan-
ríkisráðherra á síðastliðnu ári.
islenzkur markaður h.f. hefur
því alltaf tekið þessar upplýs-
ingar um rekstrarhagnað
Ferðaskrifstofunnar með
nokkrum fyrirvara.
Hverjir eru „transitfar-
þegar“?
Varðandi túlkun „transitfar-
þega“-hugtaksins hafa forráða-
menn Í.M. h.f. ávallt litið svo
á, að „transitfarþegar" væru
þeir einir, sem kæmu og hefðu
stutta viðdvöl á „transitsvæði“
flugvallarins án þess að koma
„inn f landið" þ.e. gegnum
vegabréfaeftirlit og tollskoðun.
Vegna þessara farþega hefur
fyrirtækið ekki mótmælt
greiðsluskyldu. Hinsvegar hef-
ur greiðsluskyldu verið mót-
mælt vegna farþega sem sitja
kyrrir í flugvélum meðan á við-
dvöl stendur þareð fyrirtækið
hefur enga möguleika til að
hafa viðskipti við þá.
Megindeilan hefur staðið um
brottfararfarþegana þ.e. út-
lendinga sem hverfa úr landi
eftir stutta eða langa viðdvöl og
hafa því lokið sínum kaupum í
Reykjavík, annars vegar, og svo
hins vegar íslendinga á leið til
útlanda f viðskiptaerindum eða
á leið til Mallorca, Canarieyja
eða annara sólarstaða. Þeir
skipta tugþúsundum árlega.
Þessa brottfararfarþega hefur
Í.M ekki viljað telja sem
„transitfarþega" þar sem það
samræmist ekki alþjóðlegri
túlkun „transithugtaksins“ og
af þeim hafa forráðamenn fyr-
irtækisins neitað að greiða
„transitgjaldið", enda eru við-
skipti við þá hverfandi lítil. Um
þetta atriði hefur deilan og
málaferlin raunverulega stað-
ið.
fslenzkur iðnaður og
F erðaskr if stof an.
islenzkur markaður h.f. hef-
ur frá upphafi greitt til rekst-.
urs Ferðaskrifstofu rikisins kr!
23.8 milljónir og eru það nær
einu föstu tekjur hennar til
starfsemi sinnar.
Ferðaskrifstofan hefur á
seinni árum oft verið umdeild
stofnun, bæði tilvera hennar,
starfsemi og annað, en til þess
máls vill undirritaður enga af-
stöðu taka. Hinsvegar er aug-
ljóst, að ef þróa á og auka ferða-
þjónustu í landinu þarf til þess
gott skipulag og mikið fjár-
magn. Það getur þó ekki með
neinni skynsemi verið hægt að
ætlast til þess að hinn ungi út-
flutningsiðnaður sem á i mikl-
um erfiðleikum, og berst fyrír
tilveru sinni, geti staðið undir
slfkri sérstakri skattheimtu til
ferðamála. Til þeirra þarf fasta
og örugga tekjustofna svo að
þessi atvinnuvegur megi halda
áfram að vaxa og eflast og
gegna því mikilvæga hlutverki
sem honum hlýtur að vera
ætlað i framtíðinni.
Jón Sigursson
framkvæmdastjóri
Omannúðleg með-
ferð á hrossum
FYRIRSÖGN í Morgunbi. 22. maí
yfir viðtali við Ragnar Fefixson,
bílstj. á Akranesi.
Tilefni viðtalsins var flutning-
ur hrossa „af höfuðborgarsvæð-
inu', vestur á Snæfellsnes við
vitaverðan aðbúnað, og slys. er af
honum hlauzt. Hryggilegt slvs,
sem þeir, er að flutningunum
stóðu læra vafalaust af, og vildu
áreiðanlega gefa talsvert til. að
ekki hefði orðið.
En það er ekki nóg, að þeir læri
af því. Þetta slys þyrfti að verða
viðvörun öllum, er gripaflutninga
annast.
í lögum og reglugerð eru skýr
ákvæði um aðbúnað við gripa-
flutninga. Og á því leikur enginn
vafi, að þau ákvæði eru iðulega
þverbrotin. Umrætt slys hefði því
eins getað hent einhverja aðra.
Ohætt mun að fullyrða, að eftir-
lit og framfylgd laganna sé ekki á
marga fiska, enda lítt framkvæm-
anlegt, meðan þeir, er gripi flvtja,
eru ekki skyldaðir til að bera að-
búnað allan undir dýralækni, lög-
reglu staðarins, eða fulltrúa dýra-
verndarfélags. Þau ákvæði verður
að setja og fylgja þeim fast eftir.
Viðtal átti ég, undirritaður, við
Viðar Einarsson lögregluþj,, er
stöðvaði umræddan flutningabíl.
Einnig Gísla Búason hreppstjóra,
að Ferstiklu. En hann sendi sýslu-
manni skýrslu um slysið. Hann
kvað Ragnar ekki hafa kveðið of
fast að orði i lýsingu sinni á slys-
inu.
Eigendur hrossanna eru tveir.
Hef ég rætt við þá báða. Hvorug-
ur reyndi að draga fjöður vfir
alvarleg mistök sín en þeir leið-
réttu þær tölur, er birtar höfðu
verið um fjölda hrossanna. A bíln-
um hefðu verið 19 trippi og 3
hestar fullorðnir. Ekki 28—30. Af
bílnum voru svo tekin 9 hross. þar
sem slvsið varð. áfram haldið með
12, sem talið hefur verið hæfileg-
ur fjöldi í bilinn.
Umræddir flutningar hafa vak-
ið almenna athvgli og gremju i
garð þeirra, er að flutningunum
stóðu. En hvers vegna? Vegna
slyssins. Ella hefðu flutningarnir
enga athygli vakið, og kannski
enginn gert sér grein fvrir hinum
fráleita aðbúnaði. Það er þvi
knýjandi nauðsyn, að engum leyf-
ist gripaflutningar án eftirlits.
Það verður að fyrirbyggja að slys
vegna lélegs aðbúnaðar hendi.
Biðum ekki fleiri slysa.
Iðuiega heyrist deilt á dýra-
verndaríélögin, eins og þau séu
ábyrgur aðili um framfylgd lag-
anna. En þvi fer fjarri. Dýra-
verndarfélög eru frjáls samtök
áhugafólks. Þau hafa enga eftir-
litsskyldu. Stjórnendur eru yfir-
leitt önnum kafnir á öðrum svið-
um og vinna félagsstörfin í hjá-
verkum ón launa. En féiögin taka
móti kvörtunum og kærum, sem
eðlilega kosta snúmnga og vinnu,
og bein útgjöld, ef nota þarf bíl.
Og hjá því verður oft ekki komizt.
Einnig við eftirlitsferðir, sem
ekki verður heldur komizt hjá. en
þyrftu að vera miklu fleiri.
Dýraverndunarfélög gera það,
sem i þeirra valdi stendur. En þau
eru ekki ábvrgur aðili um eftirlit
eða framkvæmd laganna. Valdið
og skyldan er hins opinbera. En
ég hygg, að Dýraverndarsamtökin
myndu ekkí skorast undan að
hafa á hendi eftirlit. Og ég held.
að ekki verði hjá því komizt ef
dýraverndarlögin eiga að hafa
fullt gildi, að hið opinbera taki
upp og skipuleggi raunhæft eftir-
lit, eða semji við og feli Dýra-
verndarsamtökunum að hafa það
á hendi, að meira eða minna leyti.
og leggi þeim nauðsvnlegt fé, að
minnsta kosti til að hafa fastan
erindreka til að vinna alhliða að
þessum málum. Og það rnyndi
vafalitið verða hinu opinbera
ódýrará en eftirlit á eigin hendi.
Og skvldi nokkur sá maður vera
til í landinu, er deildi á nokkra
ríkisstjórn fyrir að veita Dýra-
verndarsaintökunum, segjum.
2—3 milljónir á ári? Eða er þáttur
húsdýranna í íslenzku efnahags-
og menningarlffi í 1100 ár svo
smár, að það sé of mikið? Hafa
Samtökin þá engan fjrhagslegan
stuðning frá hinu opinbera? Jú.
50 þúsund á ári.
Segi og skrifa 50 þúsund. þetta
framlag bendir til, að Samtökun-
um sé alls ekki ætlað að hafast
mikið að i þessum málum. Æski-
legast væri, að þeirra væri engin
þörf. En þeirra er þörf, því miður.
Og þeirra verður þörf, þar til al-
menningsálitið er orðið að vak-
andi eftirliti með góðum aðbúnaði
og meðferð dýra. og þau ekki ein-
ungis metin sem þáttur í atvinnu
og hagkerfi þjóðarinnar. Þessi
þarf að verða afstaða almennings.
Enn skortir þó mjög á að svo sé.
En hverfum nú aftur augnablik
að hestinum. Hann er ekki lengur
„þarfasti þjónninn" sem ilutn-
inga og samgöngutæki. þótt hann
sé enn ungum og öndnum vndis-
auki í tilbreytingalitlu lifi. I dag
er hann fvrst og fremst til vndis-
auka, og jafnframt vaxandi út-
flutningsvara.
Telja má víst. að eigendum
hesta fari stöðugt fjölgandi. Reið-
skólanna var þvi þörf þeim, sem
alast ekki upp með hestinum. En
þótt umhirða sé góð, er það ekki
nóg. Hesturinn þarfnast líka vin-
áttu. Annars líður honum ekki
vel. Og sá, sem ekki er fær um að
knýta vináttubönd við hestinn
sinn, er ekki fær um að fara með
hest. og því síður að eiga hest.
Hörmulegt slvs varð tii að vekja
ath.vgli á slæmum aðbúnaði i
fíutningum. Væri það eina dæm-
ið, væri engin þörf neinna um-
ræðna, þvf að þeir. er þar áttu
hlut að máli. munu vafalitið gæta
sín framvegis. En dæmin um
ónógan aðbúnað eru mörg. Og
enginn veit fvrirfram, bvenær
hann leiðir tii slysa. Það verður
þvf að krefjast þess af réttum
aðilum, hinu opinbera, að það taki
þessi mál til rækilegrar athugun-
ar. Það verður að skapa aðhald,
eftirlit og skilning á skvldum okk-
ar við dýrin. að aldrei endurtaki
sig atburður slíkur. sem orðið hef-
ur orsök þessara skrifa.
M. Skaftfells
Talsvert kal
er í túnum
— Sláttur
óvíða hafinn
NOKKUÐ margir bændur verða
fyrir áfalli vegna kals f túnum,
þótt ekki sé unnt að segja, að kal
sé f það miklum mæli, að það
kallist plága — sagði dr. Halldór
Pálsson, búnaðarmálast jóri, er
Mbl. spurði hann frétta af
sprettu.
Þótt vorið hafi verið hlýtt,
hefur tfðin undanfarnar vikur
verið of votviðrasöm til þess að
gras sprytti verulega vel. Sláttur
er mjög óvfða hafinn og slægjur
eru ekki miklar. Þegar jörð kom
undan snjó í vor virtist hún vera
græn, en sfðar hefur komið f ljós
að rotkal er vfða f túnum. Dregur
þetta talsvert úr sprettu, einkum
sunnanlands.
Undanfarna daga hefur verið
kalt á Norðurlandi.
AUGLÝSINGATEIKIMiSTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 simi 25810