Morgunblaðið - 21.06.1974, Blaðsíða 36
JRior$wnblat>í& i
mnRCFHLDRR
mÖCULEIKR VÐflR
ÞRR ER EITTHVRfl
FVRIR RLLR
FÖSTUDAGUR 21. JUNÍ 1974
Þetta vildu ráðherrar Alþýðubandalagsins:
Afnám kauphækkana - frestun
vísitöluhækkana - gengislækkun
í umræðum þeim, sem fram fóru innan rfkis-
stjórnarinnar og stjórnarflokkanna í vor um ráð-
stafanir í efnahagsmálum, gerðu ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins ýmist tillögur um aðgerðir, sem fólu í
sér skerðingu á kjarasamningum verkalýðsfélaganna
og lífskjörum launþega eða hreyfðu ekki andmælum
við slíkum tillögum. Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Mbl. hefur aflað sér, áttu ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins, þeir Lúðvík Jósepsson og Magnús
Kjartansson, upptökin að eftirfarandi tillögum:
□ Ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins Iögðu til, að allar
kjarabætur, sem væru um-
fram 20%, yrðu afnemdar,
en sú ráðstöfun hefði m.a.
komið hart niður á ýmsu
láglaunafólki, t.d. fólki f
fiskvinnslu.
Q Ráðherrar Alþýðubanda-
iagsins lögðu til, að vfsitölu-
hækkun, sem áætlað var, að
kæmi til útborgunar 1. sept.
n.k. yrði frestað til 1. des.
n.k.
□ Ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins lögðu til, að vanda
útflutningsatvinnuveganna
vegna aukins tilkostnaðar og
lækkandi útflutningsverðs
yrði m.a. mætt með gengis-
lækkun.
□ Ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins hreyfðu ekki and-
mælum við tillögu, sem
Framhald á bls. 20
Vildu skatt á
ferðagjaldeyri
og farmiða
EIN af þeim tillögum, sem
ráðherrar Alþýðubandalagsins
lögðu fram f umræðum innan
stjórnarflokkanna f vor um
ráðstafanir f efnahagsmálum,
var, að sérstakur skattur yrði
lagður á ferðagjaldeyri og far-
gjöld til útlanda.
Eins og kunnugt er hafa or-
lofsferðir til suðlægra landa
aukizt mjög og m.a. hafa
verkalýðssamtökin skipulagt
slfkar orlofsferðir fyrir félags-
menn sfna. Hefði tillaga Al-
þýðubandalagsins náð fram að
ganga, má búast við, að mjög
hefði dregið úr slfkum ferð-
um.
Öndvegissúlur
Eins og fram kemur f frétt hér
á sfðunni létu Þjóðhátíðar-
nefnd Reykjavfkur og Hafrann-
sóknastofnunin varpa 110 önd-
vegissúlum f sjóinn á ellefu
stöðum út af suðurströnd lands-
ins í byrjun júnf. Mynd þessi er
tekin um borð f rannsóknar-
skipinu Bjarna Sæmundssyni,
þegar súlunum var varpað fyrir
borð suður af Ingólfshöfða.
Framsóknarmenn á framboðsfundum:
Ný vinstri stjórn - sam-
vinna við kommúnista
ÖLAFUR Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, og aðrir frambjóðendur
Framsóknarflokksins hafa á
framboðsfundum f kjördæmun-
um sfðustu daga gefið afdráttar-
lausar yfirlýsingar þess efnis, að
Framsóknarflokkurinn stefni að
myndun nýrrar vinstri stjórnar
14 (mdveglssúlur fundnar
EINS og fram kom í frétt Mbl. f
vikunni sem leið fundust við
Knarrarnes á Mýrum, þrjár af
þeim 110 öndvegissúlum sem
Þjóðhátfðarnefnd Reykjavfkur og
Hafrannsóknarstofnunin létu
varpa f sjóinn út af suðurströnd-
inni f byrjun júnf. Nú eru ellefu
til viðbótar komnar f leitirnar, og
fannst ein þeirra við Skrúð f Fá-
skrúðsfirði og hafði þvf rekið f
þveröfuga átt við það sem gert
hafði verið ráð fyrir. Þess ber þó
Framhald á bls. 20
að kosningum loknum f samstarfi
við Alþýðubandalagið.
Á framboðsfundi í Siglufirði,
sagði Ólafur Jóhannesson, að það
væri sjálfsagt mál að halda áfram
á sömu braut og verið hefði, ef
vinstri flokkarnir sigruðu í kosn-
ingunum. Og á framboðsfundi á
Sauðárkróki sagði forsætisráð-
herra, að kosningarnar væru fyrst
og fremst dómur um störf vinstri
stjórnarinnar og kjósendur
mundu segja til um það, hvort
þeir vildu halda áfram stefnu
vinstri stjórnarinnar eða breyta
til. Þessi ummæli Ólafs Jóhannes-
sonar eru afdráttarlaus og sýna,
að það er fastur ásetningur hans
að gera tilraun til myndunar
vinstri stjórnar að kosningum
loknum.
Páll Pétursson, sem skipar 2.
sæti á framboðslista Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
vestra hefur sagt á framboðsfund-
um, að línurnar væru óvenju
skýrar, valið stæði milli vinstri
stjórnar og viðreisnar. Á fundi,
Framhald á bls. 20
Bruni í Kjós
Gamli bærinn á Valdastöðum brann
ELDRA fbúðarhúsið á Valdastöð-
um f Kjós brann til grunna f gær,
og tókst aðeins að bjarga húsmun-
um af neðri hæð þess. 1 húsinu
bjó Ólafur Ágúst Ólafsson ásamt
fjölskyldu sinni og náði Morgun-
blaðið samband við hann um k
8.30 f gærkvöldi, er húsið var a
falla saman.
„Þetta atvikaðist þannig," sagi
Ólafur, „að það var tekið hér i
Riffilskot og slagsmál vegna
deilu um veiðiréttindi í Lárósi
HATRAMMAR deilur um veiði-
réttindi eiga sér nú stað milli
aðsetanda veiðifélagsins að Lár-
ósi við Grundarfjörð og eigenda
eins býlisins, sem land á að ósn-
um. Hefur þar jafnvel komið til
handalögmála úti á vatninu og f
fyrrakvöld var hleypt af skoti út á
vatnið og kom kúlan allnærri bát
býliseigandanna. Lögreglan var
kvödd á staðinn og gerði hún upp-
tækar tvær haglabyssur og einn
riffil f bíl Veiðimálastjórnar úr
Reykjavfk, en starfsmenn hennar
hafa unnið að þvf með aðstand-
endum veiðifélagsins að merkja
lax f ósnum. Maðurinn sem skot-
inu hleypti af, staðhæfir, að hann
hafi ekki ætlað að ógna býliseig-
endum á neinn hátt, en málið er í
rannsókn.
Eftir upplýsingum, sem Morg-
unblaðið hefur aflað sér, mun
deilan snúast um það, að aðstand-
endur veiðifélagsins telja sig hafa
ótvíræðan rétt yfir allri veiði í
vatninu. Eigendur býlisins Neðri-
Lág hafa á hinn bóginn aldrei
látið af hendi veióiréttindi sfn til
þessa veiðifélags og viðurkenna
raunar ekki tilverurétt þess. Hafa
býliseigendur, sem eru búsettir í
Reykjavík, lagt net sín í ósnum
undan landareign sinni, en það
mislíkar aftur veiðifélagsmönn-
um, sem stunda þarna mikla laxa-
rækt og telja að býliseigendur fái
nytjar af því starfi í net sín.
Þessar veiðideilur hafa verið að
magnast síðustu daga, og aðfara-
nótt 17. júní dró verulega til tíð-
inda. Þá kom nánast til handalög-
mála í bátum út á vatninu, er
Framhald á bls. 20
rafmagn í dag — á tímabilinu frá
kl. 13—17, eins og auglýst hafði
verið. Svo er ekkert með það, að
þegar straumi er hleypt á aftur
um kl. 5.30 kviknar ljós stutta
stund en slokknar svo. Ég sá
ekkert atbugavert við það í
fyrstu, hélt að öryggi hefði farið í
húsinu, en þá virðist svo sem raf-
magnstaflan hafi sprungið og eld-
ur borizt þaðan út í viðinn. Að
vfsu veit ég þetta ekki gjörla —
rafmagnstaflan er á rishæðinni,
þar sem eru einnig þrjú fbúðar-
herbergi, en okkur tókst aldrei að
komast þangað upp fyrir reyk.
Þarna uppi brann því allt sem
brunnið gat, og okkur tókst aðeins
að bjarga út innanstokksmunum
af neðri hæðinni. Slökkviliðið
kom skjótlega, en hefur átt erfitt
Framhald á bls. 20