Morgunblaðið - 18.07.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JULl 1974
13
Bræðumir
Bruvers
Daniel Bruvers fæddist
árið 1945 i Ríga, höfuð-
borg Lettlands. Fyrir
nokkrum árum kvæntist
hann lettneskri stúlku,
sem er fædd í Vestur-
Þýzkalandi og alin upp
þar.
Daniel langaði til þess
að flytja með eiginkonu
sinni til Vestur-Þýzka-
lands, en sovézk yfirvöld
meinuðu honum það.
Hann fór í meira en mán-
aðar hungurverkfall, en
yfirvöldin gáfu sig ekki,
fyrr en skrifað hafði
verið um málið á Vestur-
löndum. Nú býr Daniel
ásamt eiginkonu sinni í
Vestur-Þýzkalandi.
Ég fékk bréf frá
honum fyrir nokkrum
dögum, þar sem hann bað
mig að skýra umheim-
inum frá þrengingum
bræðra sinna.
Ólafur verður 27 ára í
ágúst. Hann starfar sem
leigubílstjóri í Ríga.
Yngsti bróðirinn, Pavils,
er 25 ára gamall og les
læknisfræði f Ríga.
Vegna húsnæðisskorts
búa þeir báðir heima hjá
foreldrum.
Pavils og ólafur voru
handteknir fyrir hálfum
öðrum mánuði; „afbrot“
þeirra var, að þeir gerðu
skoðanakönnun á meðal
starfsbræðra sinna,
leigubifreiðastjóranna
og læknanemanna í Ríga.
Bruvers bræðurnir
spurðu um allt mögulegt:
Hvað vilduð þið helzt sjá
í kvikmyndahúsum eða
sjónvarpi, eða hlýða á í
útvarpi? Af hvaða
erlendum dagblöðum eða
tímaritum vilduð þið
gerast áskrifendur?
Hvaða lönd hefðuð þið
hug á að heimsækja sem
ferðamenn? Hver er
skoðun ykkar á yfirvinnu
sjálfboðaliða á laugar-
dögum? Hvað finnst ykk-
ur um það, að fólk sé
skyldað til að taka þátt í
opinberum hátíðahöldum
1. maí, á afmælisdegi
októberbyltingarinnar
o.s.frv.
Við fyrstu sýn virðast
þessar spurningar ósköp
sakleysislegar. En þar
sem sovézkir ríkisborg-
arar fá yfirleitt aldrei
tækifæri til þess að heim-
sækja Vesturlönd né
heldur til þess að gerast
áskrifendur að vest-
rænum blöðum eða tíma-
ritum, áleit öryggislög-
reglan skoðanakönnun-
ina undirróðursstarf-
semi. Hún óttaðist, að
svörin yrðu alltof hrein-
skilin vegna þess að þau
mátti senda, án þess að
nafns væri getið.
Um miðjan maí gerðu
átta K.G.B.-menn hús-
rannsókn á heimili
Bruversfjölskyldunnar.
Þeir fundu ekkert sak-
næmt. Hið eina, sem þeir
tóku með sér, voru
nokkrar biblíur, en
Bruversfjölskyldan er
eftir
Andreas Kiing
virk í babtistasöfnuð-
inum, þrátt fyrir að ríkis-
valdið beiti sér gegn
þeim trúflokki.
Pavlis og Ólafur voru
kallaðir til yfirheyrslu
hjá K.G.B. Síðan hafa
foreldrarnir ekkert heyrt
frá þeim. Daniel hefur
talað við föður sinn í
síma. Þegar hann talaði
síðast við hann, vissi
faðir hans það eitt, að
bræðurnir sætu báðir í
einangrunarklefa. Þeir
eru í haldi í aðalstöðvum
K.G.B. í Ríga.
Bréfinu frá Daniel
lýkur með þessum orð-
um: „Ég bið þig að gera
allt, sem í þínu valdi
stendur, til þess að skýra
umheiminum frá þessu
óréttlæti, þannig að það
megi stöðva, áður en
bræður mínir verða
dregnir fyrir rétt og
dæmdir „í laganna
nafni“ til útlegðar í
Sfberíu".
Þessi grein er tilraun
til þess að hafa áhrif á
sovézk yfirvöld. Les-
endur Morgunblaðsins
geta einnig orðið að liði
með því að skrifa sovézka
sendiráðinu í Reykjavík
og fara þess á leit að
Bruvers bræðurnir verði
látnir lausir.
Andres Kiing.
Ófrúlega ldgt verö
gϚi
ff
Einstök4-
BAfíUM
BfíEGST EKK/ simi 1158
EINKAUMBOÐ: TEKKNESKA BIFREIOAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
SÖLUSTAOIR:
Hjólbarðaverkstæðið Nýbarði# Garðahreppi/ sími 50606.
Skodabúðin/ Kópavogi/ sími 42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri h.f. sími 12520.
Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar/ Egilsstöðum,
Umboð fyrír amerfskar, enskar og
japanskar bífreiðir. Allt á sama stai
er hjá Agli
Frá Bretlandi: SUNBEAM
Bflar frá Chrysler U.K. Verð frá kr.475 þús
Laugavegi 118- Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJALMSSON HE