Morgunblaðið - 18.07.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JULl 1974
21
Þessi mynd var tekin nýlega af ms. Hvítá, nýjasta skipi Hafskips hf.
Minning:
Sigurlaug Gísla-
dóttir, Hvassafelli
F. 6.1.1891
D. 5.6.1974
Hinn 13. júní sl. var jarðsett að
Hvammi f Norðurárdal húsfrú
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu fyrr en
áður var. Þannig verður grein,
sem birtast á f miðvikudags-
blaði, að berast f sfðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag, og
hliðstætt með greinar aðra
daga. — Greinarnar verða að
vera vélritaðar með gððu Ifnu-
bili.
Anarkistar
sprengja
bifreiðir
Lourdes, 16. júlf — NTB.
SPÁNSKIR anarkistar sprengdu
á þriðjudag f loft upp 13 lang-
ferðabifreiðir f franska bænum
Lourdes. Bifreiðarnar voru notað-
ar af starfsmönnum og þátttak-
endum f hjólreiðakeppninni Tour
de France.
Jafnframt var kveikt f 14 öðr-
um bifreiðum. I grennd við hinar
ónýtu bifreiðar fundust flugrit,
þar sem sagði, að Samtök um
alþjóðlegar byltingaraðgerðir
bæru ábyrgð á sprengingunum.
Ekkert manntjón varð.
Sigurlaug Gísladóttir, Hvassa-
felli. Hún var fædd að Hvammi,
dóttir hjónanna séra Gísla Einars-
sonar og frú Vigdísar Pálsdóttur.
Þar ólst hún upp á menningar-
heimili, f glöðum og góðum syst-
kinahóp og fluttist að Stafholti,
þegar séra Gísli varð prestur þar.
Sigurlaug stundaði nám í
Kvennaskóla Reykjavíkur f 2 vet-
ur, en vann að búi foreldra sinna
að sumrinu og einnig að námi
loknu helgaði hún foreldrum sín-
um og æskuheimili starf sitt.
Haustið 1917 kom ég öllum
ókunnugur í Borgarfjörð og
dvaldi 2 næstu vetur f Hvftár-
bakkaskóla. Fljótt mynduðust
náin kynni mín við frændfólkið í
Stafholti, varð ég þar sem heima-
gangur. Var mjög góð vinátta
milli okkar frændsystkinanna
alla tfð.
Heimilið í Stafholti, undir
stjórn hinna merku prófastshjóna
var í fremstu röð myndarheimila í
Borgarfirði á þeim árum. Þar
voru allir samhentir. En það fór
ekki fram hjá neinum hlutur
Sigurlaugar í allri umgengni þar.
Það var sama hvort heldur hún
rúði lambærnar á vorin eða gekk
að heyvinnu á sumrin, hvort hún
fór í f jósið og mjólkaði kýrnar eða
var við matseld og framreiðslu
eða sat inni í stofu við sauma og
hannyrðir, allt leysti hún af hendi
með sama myndarbrag. —
Geðprýði þessarar konu var frá-
bær. Hún var sannur ljúflingur
fjölskyldunnar. Hún var mjög
söngvin og það var léttur blær og
ljúfur yfir lífinu í stofunni f Staf-
holti, þegar Björn Gfslason sat við
orgelið og þau sungu saman syst-
kinin. Þau voru einnig mjög góð-
ur styrkur í starfi ungmenna-
félaganna í Borgarfirði á þeim
árum.
Árið 1928 giftist Sigurlaug eft-
irlifandi manni sínum, Þorsteini
Snorrasyni frá Laxfossi, miklum
dugnaðar og mannkostamanni.
Þau hófu búskap á Hvassafelli,
keyptu þá jörð og bjuggu þar all-
an sinn búskap. Þau voru sam-
hent í því að stofna og viðhalda
traustu myndarheimili og brást
húsfreyjan hvergi í öruggu sam-
starfi við sinn lífsförunaut. Þeim
varð tveggja sona auðið, eru það:
Snorri, yfirkennari við Sam-
vinnuskólann í Bifröst, giftur
Eygló Guðmundsdóttur, og Gísli
bóndi á Hvassafelli, giftur Elínu
Jóhannesdóttur. Reka þeir bræð-
ur báðir búið á Hvassafelli.
Nú er Sigurlaug farin yfir
landamærin. Ég geymi í huga mér
hlýja þökk til hennar, sem ég
skoðaði ætíð sem systur mína og
bið henni blessunar Guðs.
Kæri Þorsteinn! Þessi fáu
minningarorð eru seinna á ferð
en ég vildi og bið ég þig velvirð-
ingar á því.
En að lokum þakka ég ykkur
báðum fyrir langa og trygga vin-
áttu. Um leið og ég votta ykkur
öllum mfna innilegustu samúð,
veit ég að minningin, sem þú átt
um frændsystur mfna, verður þér
styrkur og leiðarljós, þangað til
þið hittist aftur og hún tekur á
móti þér f landi lífsins.
Bjarni Halldórsson,
Uppsölum.
— Hæstaréttar-
dómur
Framhald af bls. 19
mörkum. I verksviðslýsingunni er
m.a. lögð sú spurning til úrlausn-
ar fyrir gerðardómsmenn, í hvaða
gjaldmiðli skyldi greiða bætur.
Gerðardómsmenn úrskurðuðu, að
vita- og hafnarmálastjórn skyldi
greiða gagnáfrýjendum íslenzkar
krónur 149.455.000.00 en tóku
fram, að fjárhæð þessari bæri „að
breyta samkvæmt hverskyns
gengislækkun, sem verða kynni,
áður en hún er greidd“, eða eins
og segir í hinum enska texta gerð-
arinnar „This sum should be
readjusted by any devaluation
which might occur prior to its
payment", Með hliðsjón af
ákvæðum verksamningsins og
verksviðslýsingarinnar var gerð-
ardómsmönnum rétt að taka af-
stöðu til þess, í hvaða gjaldmiðli
bætur skyldu greiddar og hvort
þær, ef til kæmi, skyldu háðar
gengisbreytingum. Orðalag gerð-
arinnar að þessu leyti er að vfsu
eigi skýrt, en telja verður dóm-
stólum heimilt að skýra það.
Þykja gallar á gerðinni að þessu
leyti eigi það veigamiklir, að varð-
að geti ójrldingu hennar. Þá verð-
ur eigi talið; eins og atvikum er
háttað, að ákvæði 1. gr. laga nr.
71/1966 standi þvf í vegi, að
dæmdar bætur séu háðar gengis-
breytingum.
Dómsorð eru á þessa leið:
— Aðaláfrýjandi, vita- og hafn-
armálastjóri, samgöngumálaráð-
herra f.h. rfkissjóðs, greiði gagn-
áfrýjendum, Hochtief A/G og
Véltækni h/f, 149.455.000.00 með
7% ársvöxtum frá 8. júlf 1971 til
greiðsludags. Fjárhæð þessi skal
breytast f samræmi við þær breyt-
ingar á gengi fslenzkrar krónu,
sem verða vegna breytinga á
stofngengi hennar og hliðstæðra
ráðstafana fslenzkra stjórnvalda
á tfmabiiinu frá 8. júlf 1971 til
greiðsludags. Dómskuldin þannig
reiknuð skal þó eigi nema hærri
f járhæð en svarar til þeirra breyt-
inga, sem orðið hafa á gengi fs-
lenzkrar krónu gagnvart vestur-
þýzku marki á tfmabilinu frá 8.
júlf 1971 til greiðsludags, miðað
við söiugengi f Reykjavfk.
Málskostnaður f héraði og fyrir
Hæstarétti fellur niður.
Tveir af fimm hæstaréttardóm-
urum, sem kváðu upp dóminn,
skiluðu sératkvæði og fer dóms-
niðurstaða þeirra hér á eftir:
Aðaláfrýjandi, vita- og hafnar
málastjóri, samgönguráðherra og
fjármálaráðherra f.h. rfkissjóðs á
að vera sýkn af kröfum gagnáfrýj-
enda, Hochtief A/G og Véltækni
h/f í máli þessu.
Málskostnaður f héraði og fyrir
Hæstarétti fellur niður.
* ,
PorsMnliIaöiíi
margfaldnr
markad vðar
HATIÐAR UMSLOG
Þjóðhátiðarnefndar 1974
ÞINGVELLIR
874-1974
25
\ V28juHl974/ /
ÞJÓÐHÁTlÐ ÍSLENDINGA 28 VII-1974
Þjóðhátíðamefnd 1974
Þjóðhátfðarnefnd 1974.gefur út
umslög til stimplunar á Þingvöllum
28. júlí n.k. Þar verður í notkun sér-
stakur hátíðarstimpill. Umslögin verða
í tveimur stærðum, venjulegri stærð
og stærri. Stærri umslögin rúma
öll þjóðhátíðarfrímerkin, ellefu talsins.
Umslögin verða númeruð.
Til þess að forðast óþægindi og
bið við póstafgreiðsluna á Þingvöll-
um, gefst mönnum kostur á að leggja
umslögin inn álimd hjá póstafgreiðsl-
um, til stimplunar, til og með föstu-
deginum 26. júlí. Umslögin fá menn
síðan afhent, stimpluð, á sömu póst-
afgreiðslum að hátið lokinni.
Forsala umslaganna hófst 18. júlí
á pósthúsinu í Reykjavík, ýmsum póst-
húsum úti á landi, í Frímerkjamiðstöð-
inni og Frímerkjahúsinu.
Á Þingvöllum verða umslögin til
sölu í póstafgreiðslunni á hátíðar-
svæðinu.
Sala annarra umslaga á hátíðar-
svæðinu er bönnuð.