Morgunblaðið - 26.07.1974, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JULl 1974
29
BRÚÐURIN SEIVi
HVARF
Eftir Mariu Lang
Þýðandi: Jóhanna Kristjónsdóttir
11
Allur þessi vandi hótelstjórans
og gestanna stafaði meðfram af
því að brúðguminn Jóakim Kruse
fékk ekki þeim vilja sínum fram-
gengt að aflýsa formlega veizlu og
vígslu. Að vísu hafði Gretel Ström
ekki verið flutt f sjúkrabfl á
spftalann, en hún brast í æðis-
legan grát, þegar Jóakim reyndi
að segja henni, að Anneli myndi
sennilega ekki koma í tæka tíð til
athafnarinnar og því væri skyn-
samlegast að aflýsa öllu. Egon
Ström og hann náði loks sam-
komulagi. Ef brúðurinn hafði
ekki gefið frá sér lffsmark
klukkan tvö ætluðu þeir að setjast
sinn við hvom símann og láta þá
vita, sem hlut áttu að máli.
— Ég býst við því, sagði Egon
Ström þreytulega — að þetta
verði erfiðara fyrir þig en mig.
Heldurðu þú hafir kjark f að tala
við þetta fólk?
Jóakim var fýlulegur á svip.
— Það er ekki hægt að nota
neina aðra aðferð. Og ég býst við,
að fólk sýni mér kannski fvið
meiri nærgætni og fari ekki að
spyrja hinn yfirgefna unnusta
spjörunum úr í símanum? Eg er
viss um, að þú verður frekar fyrir
barðinu á þeim spurulu.
Það var enn eitt, sem Gretel
Ström reis algerlega öndverð
gegn — þegar stungið var upp á
því, að lögreglan yrði kvödd á
vettvang eða lýst yrði eftir Anneli
í útvarpinu.
— Ég get ekki sætt mið við þá
tilhugsun, að hún Anneli min
verði eftirlýst eins og hver annar
afbrotamaður, sagði hún
grátandi. — Jú, ég veit að það er
oft iýst eftir fóki, en ég get ekki
afborið þá tilhugsun að einhver
hress og kátur þulur lesi fyrir
milljónir hlustenda, að „hún hafi
verið klædd hvftum baðmullar-
kjól o.s.frv.... og að hún hafi
verið þunglynd og niðurdregin
þegar hún hvarf.“
Egon Ström strauk henni blfð-
lega um vangann, sem var votur
af tárum, og lofaði að hann myndi
alls ekki leita til lögreglunnar.
Þegar Gretel var ekki lengur inn-
an seilingar hringdi hann engu að
síður til lögreglustöðvarinnar og
trúði vini sfnum Leo Berggren
fyrir því, hvernig komið væri...
Þegar samtalinu var lokið, lagði
Leo Berggren sfmann á, þurrkaði
sér um ennið með stórum vasa-
klút og sagði Christer Wijk, sem
sat hinum megin við skrifborðið
hans, hvað hann hafði sagt.
— Sem sagt, sagði hann — við
getum enn ekki blandað okkur f
málið. Ekki formlega.
Sfðustu tvö orðin sagði hann
með sérstakri áherzlu. Christer
leit á búlduleitt og vingjarnlegt
andlit yfirlögregluþjónsins og
brosti.
Leo Berggren hafði kannski
aldrei unnið nein sérstök afrek á
löngum ferli sfnum sem lögreglu-
maður í bænum, en hann var all-
ur af vilja gerður og hann skildi
einnig, að meira gat legið að baki
þessu hvarfi en það eitt, að stúlk-
an Anneli hefði gengið burtu í
þunglyndiskasti ... Hann sagði
því hæglátlega: — Og á hvaða
enda eigum við að byrja?
— Hjá Fanny Falkman, sagði
Christer án þess að hika. — Hún
lokar verzluninni klukkan þrjú og
þá hafði ég hugsað mér að við
skryppum til hennar. En þangað
til geturðu gefið mér upplýsingar
um hitt og annað, sem mér leikur
forvitni á að vita. Hvað veiztu til
dæmis um samkomulagið á milli
Anneli og hins virðulega unnusta
hennar?
— Svo sem ekki mikið, rumdi f
Leo. — Hann skaut hér upp koll-
inum f fyrrahaust og allar mæður,
sem áttu ótrúlofaðar dætur, ruku
upp til handa og fóta og buðu
honum heim í löngum bunum. Ég
sagði einmitt við konuna mína um
daginn, að það hefði svei mér
verið gott, að hún dóttir okkar,
Marta, var gift...
Christer kveikti í pípu sinni.
— Hver var það, sem náði hon-
um í netið? Gretel Ström? Eða
Anneli?
— Já, þetta ér nú samvizku-
spurning. Ég býst við, að það hafi
í fyrstu umferð verið Egon frekar
en Gretel. Hann og Jóakim Kruse
fóru að tefla skák reglulega og
þeim féll greinilega mjög vel
hvorum við annan. Nú, svo gekk
hitt einhvern veginn fyrir sig inn-
an veggja á Sjávarbakka og við
fylgdumst ekki svo ýkja mikið
með því fyrr en allt var komið í
kring. Marta, sem er góð kunn-
ingjakona Anneli, segist halda, að
hún sé mjög hrifin af honum og
að hún hafi verið mjög hamingju-
söm.
— Og aðrir, sem koma við sögu?
Ungur verkfræðingur Larsson að
nafni, til dæmis... ?
— Lars Ove? Jú, hann er prýð-
isdrengur. Hann er kannski í það
bráðlyndasta ef maður espar
hann upp. Hann hefur verið vinur
þeirra Dinu og Anneli frá því þau
voru börn og oft höfum við velt
því fyrir okkur, hvorri þeirra
hann myndi á endanum giftast.
Af einhverri ástæðu vildi lög-
regluforinginn ekki ræða nánar
um Dinu Richardsson. Hann sagði
aftur á móti: — Það er verið að
pfskra um það úti í bæ, að Anneli
hafi sézt koma út af skrifstofu
Sebastians Petrén útgrátin ...
— Nú já? Mér skilst að hún hafi
hætt sem ritari þar fyrir þó
nokkrum dögum, en auðvitað
kemur vel til greina, að henni
hafi dottið í hug að bregða sér
þangað í heimsókn. Þó er skiln-
ingi mínum ofvaxið, hvað það
feita fól hefur getað sagt, sem
hefði átt að koma henni til að
gráta.
— En segðu mér þá, hvaða álit
þú hefur á Fanny Falkman?
Leo Breggren sló Iauslega með
fingrunum á borðplötuna.
— Eins og þú vezt hefur hún
ákaflega mikið talþol og ekki er
hægt að segja, að hún sé þrifin
með sjálfa sig eða eggjandi í út-
liti. En hún er ekki eins slæm og
hún lítur út fyrir að vera. Hún
hefur unniðverzluninaupp eftir
að maðurinn hennar dó svo að til
fyrirmyndar er og ég býst við, að
hún megi teljast í góðum efnum.
Hún á bæði litla íbúð í sama húsi
og verzlunin og svo hús úti við
gróðurhúsin eða í útjaðri bæjar-
ins.
— Skammt frá Sjávarbökkum,
eða hvað? sagði Christer fhugull.
— Jú. sagði Berggren og drð
seiminn. — Það er ekki langt frá.
Þó fæ ég ekki séð, að það sé til
neinnar hjálpar. Anneli hvarf í
verzluninni f Lillgötu og þaðan er
drjúgur spölur út í gróðurhúsin.
Christer reis upp og sagði eins
og í hálfkæringi: —Jæja — af
stað. Ég iða í skinninu að sjá
blómaverzlunina.
Þeir gengu saman út og alls
staðar var fólk saman í hópum og
starði á eftir lögreglumönnunum
tveimur. Stundarfjórðungi síðar
vissi hvert mannsbarn í bænum,
að mennirnir tveir höfðu farið til
verzlunar Fanny Falkmans. Og þá
færðist enn meira líf í vangavelt-
urnar og heilabrotin.
Inni í búðinni var hálfrökkur
þrátt fyrir gluggana tvo, sem
sneru út að götunni. Grænar
pottaplöntur upp um alla veggi,
VELVAKANDI
Velvakandi svarar i síma 1.0-100
kl. 1 0.30 — 11.30. frá mánudegi
til föstudags.
• ÓANÆGÐ með
SKRIF
UM GRINDAVlK
Fjóla Jóelsdóttir f Grindavfk
skrifar okkur bréf að gefnu til-
efni. Finnst henni ómaklega veg-
ið að Grindvíkingum. Fer bréf
Fjólu hér á eftir:
„Heiðraði Velvakandi:
Igreinsinni „Á Garðbekknum",
er birtist f Morgunblaðinu 18/7
s.l., gerir Hafliði Jónsson heim-
sókn til Grindavíkur að umtals-
efni.
Þar sem mér finnst gæta mis-
skilnings og ósanngirni f þessari
grein, langar mig að gera athuga-
semdir við nokkur atriði hennar.
Orðrétt segir Hafliði um
Grindavík: „Falleg og dýr hús
standa þar f foksandi og hvergi
örlar á snyrtilegu umhveri". Hús-
in f Grindavík standa ekki f fok-
sandi, foksandur er einfaldlega
ekki til hér, aðeins venjulegt
göturyk, þegar vindar blása f
þurrki, þvf ennþá er aðeins ein
gata hér olfumalarborin, þá segir
Hafliði, að hvergi örli á snyrtilegu
umhverfi.
# TEKUR SINN
TÍMA
Ég leyfi mér að segja, að þetta
er ósanngirni, það er rétt að hér
eru byggð falleg og dýr hús, og öll
þessi hús eru byggð á hrauni. Það
er mikið átak ofan á annan kostn-
að við húsbyggingu að breyta
þessu hrauni í fallegar lóðir og
tekur sinn tima, en ef Hafliði
Jónsson hefði gengið um götur
Grindavfkur þá hefði hann séð
margar snyrtilegar lóðir, sem bú-
ið er að leggja f mikla vinnu og fé.
Mér er kunnugt um, að hjá mörg-
um húseigendum er vaxandi
áhugi á fegrun í kringum híbýli,
þótt það eins og annað verði oft að
fara eftir efnum og ástæðum. Hér
eru mörg hús í byggingu, jafnvel
heil hverfi, og vita allir, hvernig
umhorfs er við slfkar fram-
kvæmdir. Máltækið segir „Glöggt
er gestsaugað".
# ÓTELJANDI
HLUTIR, SEM
ÞARF AÐ GERA
Mér er þó nær að halda, að
gestsaugað hans Hafliða Jónsson-
ar sé ekki nógu glöggt. Enn þá á
að vera hægt að finna hér nokkra
þyrna ef vel er að gáð, þó að reynt
hafi verið að útrýma þeim. Þrátt
fyrir sögufrægan uppruna þeirra,
eftir því sem munnmæli herma,
hefur okkur Grindvíkingum þótt
þeir fremur hvimleiðir heima við
hús, og mjög óblíðir viðkomu.
Hér einsog sjálfsagt víða ann-
arsstaðar eru óteljandi hlutir, er
þarf að gera viðkomandi fegrun
bæjarins. Hér er til dæmis enginn
almenningsgarður, og þar af leið-
andi engir „garðbekkir", en von-
andi stendur það til bóta, svo að
næst þegar Hafliði Jónsson heiðr-
ar okkur með heimsókn sinni, geti
hann sezt á „garðbekkinn".
Grindavík 22/7 1974
Fjóla Jóelsdóttir."
• SJÓNVARPSINS
SAKNAÐ
Sjónvarpið þarf ekki að kvarta
undan þvi, að ekki sé mikið um
það rætt. Deilt er um efni þess og
þegar það hættir útsendingum —
I sumarfríi starfsfólksins — er
deilt um, hvort gott eða slæmt sé
að losna við sjónvarpið. — Og þá
kemur hér bréf frá sjónvarpsunn-
anda:
„Kæri Velvakandi,
Mig langar til að svara konunni,
sem hringdi i Velvakanda (11.
júlí) og bað um að koma því á
framfæri við Sjónvarpið, að það
framlengdi sumarfríið ... „og
saknar þess nokkur?" spyr konan.
Já, það sakna margir sjónvarps-
ins.
Ef þessi góða kona hefur ekki
áhuga á að horfa á sjónvarpið,
vildi ég mega, f fullri vinsemd,
benda henni á það einfalda ráð að
slökkva á tæki sfnu, eða láta inn-
sigla það, eða jafnvel selja tækið
sitt, en leyfa okkur hinum að
horfa á það í friði.
Fyrir mitt leyti sakna ég sjón-
varpsins mjög mikið, ég tel dag-
ana þangað til það byrjar aftur,
og ég veit, að svo er um fleiri.
Sjónvarpsunnandi."
• FYRIRFRAM-
GREIÐSLA
EKKI TEKIN!
Maður, sem gerðist starfsmaður
hjá ríkisstofnun um sfðustu ára-
mót og hefur fengið greidd laun
hjá rfkinu sfðan, hringdi til Vel-
vakanda og kvartaði um það, að
ekkert hefði verið tekið af honum
fyrirfram upp í skatta. Hann seg-
ist margsinnishafafariðfram á
það hjá Iaunadefld fjármálaráðu-
neytisins, að ákveðin upphæð yrði
tekin af launum hans upp i
skatta, en árangurslaust.
Hann kvaðst hafa spurzt fyrir
um það hjá Gjaldheimtunni,
hverju það sætti, að ekki hefði
verið tekið af honum upp f skatta,
en svo virðist sem engin tilkynn-
ing hafi borizt til hennar um
greiðsluskylduna.
Maðurinn sagðist að vfsu hafa
haft rýmri fjárráð en ella sfðustu
mánuðina, en nú færi að syrta f
álinn.
LJOS &
ORKA
Við
bjóðum
yður
LOFTLAMPA
VEGGLAMPA
BORÐLAMPA
GÓLFLAMPA
STOFULAMPA
BORÐSTOFULAMPA
BAÐLAMPA
GANGALAMPA
ÚTILAMPA
VINNULAMPA
PÍANÓLAMPA
RÚMLAMPA
LJÓSKASTARA
KRISTALLAMPA
GLERLAMPA
MARMARALAMPA
MÁLMLAMPA
VIÐARLAMPA
PLASTLAMPA
POSTULÍNSLAMPA
KERAMIKLAMPA
TAULAMPA
LAMPASKERMA
HEIMILISTÆKI
LANDSINS MESTA
LAMPAÚRVAL
Sendum í póstkröfu.
LJÓS &
ORKA
Snóurlandsbraut 12
sími 84488
MARGFALDAR
r»iwi
BMillííll
Plovöunblatíit*