Morgunblaðið - 02.08.1974, Page 4

Morgunblaðið - 02.08.1974, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. AGUST 1974 ' Íjl ////.iv 'AiAjm 22*0*22- RAUÐARÁRSTÍG 31 LOFTLEIÐIR ILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 LOFTLEIÐIR /p* BÍLALEIGAN ^EYSIR CAR RENTAL 24460 í HVERJUM BÍL PIOIXIŒGJR ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI c Tilboð AKIÐ NÝJA HRINGVEGINN Á SÉRSTÖKU AFSLÁTTARVERÐI SHODR ICI6AH I CAR RENTAL ■■ | AUÐBREKKU 44, KÓPAV. | 4® 4-2600 Bílaleiga GAB HENTAL Sendum 41660-42902 Til sölu vegna flutninga sófasett, sófaborð, sjónvarp, ís- skápur, eldhúsborð og stólar, pottar og fleiri eldhúsáhöld, ket- ill, hárþurrka, krullujárn, strau- járn, strauborð, tvær kommóður, barnarúm og fleira. Faxabraut 1. niðri, Keflavik. Enn í sjálfheldu Eftir alþingiskosningarnar var ijóst, að Alþýðuflokkurinn væri f sjálfheldu, er erfitt yrði að losna úr. Og ekki virðist vandi fiokksins hafa minnkað nú mánuði eftir kosningar. Þátttaka Alþýðuflokksins f við- ræðum fjögurra flokka um endurreisn vinstri stjðrnar- innar virðist enn ætla að auka á vanda fiokksins. 1 fyrsta lagi er ijðst, að Al- þýðuflokkurinn er að reyna að endurlffga rfkisstjðrn, sem hefur þveröfuga stefnu við hann f varnar- og öryggis- máium landsins. Og f öðru lagi virðist Alþýðuflokkurinn leggja rfka áherziu á samstarf við launþegasamtökin eins og nú standa sakir. En það var einmitt Olafur Jöhannesson, sem vék forseta Alþýðusam- bandsins úr vinstri stjðrninni sl. vor, þeirri stjðrn, er Alþýðu- flokkurinn vill nú endurreisa. t forystugrein Alþýðu- blaðsins sl. þriðjudag segir um þetta efni: „Undir sliK um kringumstæðum hljðta flokkar eins og Alþýðuflokkur- inn, sem teljast málsvarar launafólksins f landinu, að leggja megináherzlu á það, samstaða fáist um aðgerðir f efnahagsmálum, sem f fyrsta lagi bægja frá þeirri hættu, er við launþegunum blasir, f öðru lagi tryggja fulla atvinnu og atvinnuöryggi, f þriðja lagi verða gerðar f nánu samstarfi við launþegasamtökin og f fjðrða lagi tryggja hag þeirra, sem minnst mega sfn f þjðð- félaginu." Athyglisvert er, að Alþýðu- flokkurinn ætlar sér að ná þessum markmiðum með sam- starfi við þá flokka, er stððu að fráfarandi rfkisstjðrn. Enginn hefur þð jafn afdráttarlaust hafnað samstarfi við verkalýðs- hreyfinguna og iaunþegasam- tökin og forsætisráðherra þeirrar rfkisstjðrnar, sem Al- þýðuflokkurinn vill nú endur- reisa. 1 raun réttri rak Ólafur Jðhannesson forseta Alþýðu- sambandsins úr rfkisstjðrninni si. vor, þegar hann setti fram kröfu um aukið samstarf við launþegasamtökin f sambandi við Iausn efnahagsöngþveitis- ins. Fram sókn arhy gg j a í varnarmálum Varnarmálin hafa verið ásteytingarsteinn f þeim umræðum, sem að undanförnu hafa farið fram um stjðrnar- myndun undir forsæti Olafs Jð- hannessonar. Hann hefur lýst yfir þvf, að ðljðst sé með öllu, hvort takast megi að jafna þann ágreining, sem rfkir á milli Alþýðuflokksins og AI- þýðubandalagsíns f þeim efn- um. Tfminn freistar þess f for- ystugrein f gær að sætta hin gagnstæðu sjðnarmið með þvf að ieggja í fyrsta lagi áherzlu á, að hér eigi ekki að vera varnar- lið á friðartfmum og f öðru lagi, að samkomulag stjðrn- arflokkanna frá þvf f marz sé einvörðungu drög að um- ræðugrundvelli, en ekki úrslitakostir. Þannig er sagt við Alþýðubandalagið, að varnarliðið fari vissulega og landið verði án undanbragða eert varnarlaust. Við Alþýðu- flokkinn er á hinn bðginn sagt að hér sé ekki um neins konar úrslitakosti að ræða, ekki einu sinni ákveðinn umræðugrund- völl heldur saklaus drög að um- ræðugrundvelli, er alls ekki tákni, að varnir verði af- numdar. Og skýrt er gefið til kynna, að þar megi margs kyns breytingar á gera. Framsðknarflokkurinn virð- ist þvf vera reiðubúinn til þess að halda áfram sama sjðn- leiknum f varnar- og öryggis- málum og undanfarin þrjú ár. Einn daginn fer varnarliðið, annan daginn fer það ekki og loks er það bæði látið fara og vera um kyrrt. Alþýðubanda- lagið hefur samþykkt þessar sjðnhverfingar f þeirri trú, að þeir næðu sfnu fram um sfðir. Nú er spurningin sú, hvort Al- þýðuflokkurinn bftur á agnið. Frá Ferðafélagi íslands: Ferðir um verzlunarmannahelgina Senn fer að líða aó frfdegi verzlunarmanna, en talið er, að um þá helgi séu fleiri Islend- ingar á ferð um landið en nokkurn annan tíma á árinu. Aukin bílaeign síðustu árin hefur orðið þess valdandi, að æ fleiri geta ráðið ferðum sínum sjálfir. En samt er þó fjöldi manns, sem enn kýs að ferðast í vel skipulögðum hópferðum, enda losna þeir þá við ýmsar þær áhyggjur og umstang, sem fylgir ferðalögum á misjafnlega velútbúnum farartækjum. Eins og undanfarin ár skipu- leggur Ferðafélag íslands nú ferðir til ýmissa fagurra og vin- sælla staða um verzlunar- mannahelgina. Á suma þessara staða hefur verið farið árum saman um þessa helgi, jafnan með stóra hópa ferðamanna. Alls verða farnar 9 ferðir á vegum félagsins nú og verða þær kynntar frekar hér á eftir: Fyrst skal néfna Þórsmörk, en sá staður er óefað langvin sælasti ferðamannastaðurinn á öræfum landsins um þessar mundir. Þangað verða farnar tvær ferðir. Fyrri ferðin verður farin kl. 20 föstudagskvöldið 2. ágúst. Þeir, sem fara með þeirri ferð koma heim frá Þórsmörk um hádegi á mánudag. Síðari ferðin verður farin kl. 14. laugardaginn 3. ágúst, og verð- ur komið heim á mánudags- kvöld. Gisting í skála og öll að- staða önnur, sem félagið veitir í Þórsmörk er innifalin í gjaldi. Leiðsögumenn verða með hópn- um, og munu þeir, eins og venja er til, skipuleggja göngu- og skoðunarferðir um Mörkina, meðan á dvölinni þar stendur. Föstudagskvöldið 2. ágúst kl. 20. verður farið i Landmanna- laugar og Eldgjá. Gist verður í skála félagsins í Laugum, en ekið þaðan í Eldgjá. Land- mannalaugar er óþarft að kynna frekar, náttúrufegurðin þar og sérkennilegt landslag er öllum kunnugt, og förin í Eld- gjá verður öllum ógleymanleg, er þangað fara. Laugagestirnir mega ekki gleyma sundfötun- um sfnum, því það eykur á ánægju ferðarinnar að fá sér sundsprett í Laugalæknum. Komið til baka á mánudag. Sama kvöld kl. 20. heldur fjórði hópurinn af stað til Skaftafells. Þar verður tjöldum slegið upp og gist í þeim, meðan staðið verður þar við. Ætlunin er að ferðast eingöngu um þjóð- garðinn og um Morsárdalinn, enda leyfir tíminn ekki meira. Um verzlunarmannahelgina í fyrra var farið austur á Skeiðarársand. Nú er Skeiðará ekki lengur til fyrirstöðu og öllum greið leið í Skaftafell, sem kunnugt er. Komið til baka á mánudag. Fimmta ferðin verður einnig hafin þetta sama kvöld kl. 20. Liggur leiðin til Veiðivatna og gist þar í skála Ferðafélagsins. Þaðan verður ekið til Jökul- heima og gengið að Heljargjá, þar norður af. Einnig verðúr ekið og gengið um Veiðivatna- hraunið og vatnasvæðið, sem er æði fagurt og fjölbreytt. Ur þessum fornu eldstöðvum kom Þjórsárhraunið mikla, stærsta hraun Islands, og rann þaðan alla leið til sjávar, þar sem nú er ströndin milli Þjórsár og ölfusár. Komið til baka á mánu- dag. Klukkan 8 laugardags- morguninn 3. ágúst, verður haldið af stað til Snæfellsness og f Breiðafjarðareyjar. Þann dag verður ekið út fyrir Snæ- fellsjökul eða til Stykkishólms. Þar verður gist inni, en morguninn eftir verður haldið af stað með flóabátnum Baldri til Flateyjar og verður sunnu- deginum eytt á siglingu um Breiðafjörð. Gist verður aftur f Stykkishólmi næstu nótt og haldið heim á mánudag. Sama morgun kl. 8, verður lagt af stað f Hvftárness, Kerlingarfjalla og Hveravalla, eða á Kjöl sem oft er sagt, þeg- ar átt er við fyrrnefnda staði. Skálar eru á öllum þessum stöð- um og verður gist í þeim. Þeir, sem lítið hafa ferðazt um óbyggðir Islands, fá glögga vitneskju um helztu sérkenni landsins, ef þeir fara á Kjöl. Þar getur að lfta úfin hraun, bullandi leirhveri, gjósandi vatnshveri, skriðjökla og sí- breytileg litabrigði Kerlingar- fjalla. Að margra dómi er fegursta stað Islands á öræfum að finna í Hvítárnesi við Hvítárvatn. Þótt margir ferðist um þessa helgi, munu samt fleiri sitja heima vegna ýmissa orsaka. Tvær gönguferðir eru á dag- skrá fyrir þetta fólk. Sú fyrri verður farin á sunnudaginn 4. ágúst. Hefst hún kl. 13. frá BSl. Verður gengið á Borgarhöla en þeir eru á Mosfellsheiðinni austur af Grimmansfelli, rétt við gamla Þingvallaveginn. Mosfellsheiði er ævaforn gos- dyngja og mun hraunið hafa runnið frá Borgarhólum. Þeir eru í 410 m hæð. Hin gönguferðin verður farin á mánudag 5. ágúst og verður haldið frá BSl. kl. 13. þann dag. Gengið verður um Bláfjöll Framhald á bls. 18 spurt og svarad I Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS Hnngið i síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Les- endaþjónustu Morgunblaðs- □ Félagið ísland- Færeyjar: Helgi Pálmarsson, Bólstaða- hlíð 48, spyr: „A sfðastliðnu ári var stofnað hér félagið Island-Færeyjar. Síðan hefur ekkert heyrzt frá þessu félagi og enginn aðal- fundur verið haldinn. Er búið að leggja félagið niður? Arni Johnsen formaður félagsins Island-Færeyjar svarar: „Félggið Island-Færeyjar hefur á einu ári frá stofnun þess tekið á móti mörgum hóp- um frá Færeyjum, skipulagt og greitt fyrir ferðum þeirra og verkefnum, ennfremur unnið að færeyskum sýningum og kynningu á færeysku efni auk þess að kynna íslenzkt efni í Færeyjúm. Má þar nefna, að félagið sendi Kjarvalssýningu á menntunarvikuna í Þórshöfn og hafði forgöngu um, að íslenzkur balletthópur fór á þá hátfð, en þessi tvö íslenzku atriði vöktu hvað mesta athygli Faereyinga af öllum norrænu dagskráratriðunum. Þá hefur félagið m.a. unnið að stofnun gagnkvæms félags í Færeyjum og er það nú nýstofnað og heitir félagið Færeyjar-Island. Fyrir forgöngu þess gefa Færeyingar Islendingum nú áttæring í til- efni 1100 ára búsetuafmælis. Nýjasta verkefni félagsins Island-Færeyjar var að greiða fyrir færeyskum stúdentum, sem hingað koma til íslenzku- náms í ágústmánuði, og ýmis- legt er á döfinni hjá félaginu, Iistsýningar og önnur samskipti á menningarlegum grundvelli. Stjórn félagsins hefur ekki blásið starfsemi sína mikið upp, því að eðlilegast er, að í þessu sambandi fái að þróast sam- starf á milli félaganna í Færeyjum og á Islandi. Nú er það samstarf hafið og góðs að vænta. Ráðgert hafði verið að fara í hópferð til Færeyja 1 sumar, en fallið frá því vegna þess að ekki var búið að stofna félagið í Færeyjum. Er byrjað að undirbúa hópferð næsta vor til Færeyja. Aðalfundur félagsins verður haldinn í haust. Áætlað hafði verið að halda hann í vor, en af eðlilegum ástæðum verður hann haldinn í haust og þá greint frá þeim ástæðum. Ég vil svo nota tækifærið til að hvetja þá, sem eiga eftir að greiða ársgjöld, að gera það sem fyrst, því að það kostar ekki bara vinnu að gera flesta hluti nú til dags, það kostar einnig peninga. Við í stjórn félagsins Island- Færeyjar höfum lagt mikið upp úr því að tala ekki aðeins mikið, heldur láta framkvæmdir fylgja máli með raunhæfum árangri."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.