Morgunblaðið - 02.08.1974, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.08.1974, Blaðsíða 32
MATSTOFA AUSTURBÆJAR býður yður velkomin Y |Hovi)unXiTaííií) % IHorgtinblaMfc fs»mRRGFRIDRR f mRRKRD VORR FÖSTUDAGUR 2. ÁGtJST 1974 Lagt af stað með kynd- ilinn frá Ingólfshöfða REYKVÍKINGAR minnast 1100 ára byggðar á Islandi um næstu helgi. Einn liðurinn í þeim hátfða- höldum er boðhlaup um 300 fé- laga úr mörgum íþrótta- og ung- mennafélögum austan frá Ingólfs- höfða til Reykjavíkur. Hlaupið hófst í Ingólfshöfða um klukkan 8.30 í gærmorgun. Fyrsta sprettinn hljóp Ari Magnússon 65 milljóna tap á bensínsölu s.l. 3 mánuði I FRÉTT Mbl. I gær um bens fnhækkun kom fram, að verð á bensfni hefur verið of lágt s.l. mánuði miðað við inn- kaupsverð frá Sovétrfkjunum. 1 samtali, sem Mbl. átti við önund Asgeirsson forstjóra BP f gær, kom fram, að tap á bensfnsölunni hefur numið 65 milljónum s.l. 3 mánuði, eða sfðan sfðasta hækkun var ákveðin, úr 31 krónu f 33 krón- ur lítrinn. Tap þetta er greitt úr innflutningsjöfnunarsjóði, en f þeim sjóði eru nú 265 milljónir. „Með þessari hækkun núna sleppum við aðeins sléttir, en engar ráðstafanir hafa verið gerðar til að vinna upp þetta mikla tap á bensfnsölunni s.l. rnánuði," sagði önundur. frá Hofi f Öræfum síðan tók hver við af öðrum og skiptu hlaupar- arnir eftir að hafa hlaupið um einn km hver. 1 gærkvöldi var hvílzt í Vík í Mýrdal og í kvöld verður áð f Hveragerði. Reykvík- ingar taka við kyndlinum á Kambabrún og hlaupa síðustu kílómetrana. Við upphaf þjóðhá- tíðar í Reykjavík á laugardaginn verður tendraður langeldur á Arnarhóli. Hver það gerir, er enn ekki ákveðið, né heldur hver hleypur síðasta sprettinn. Það var mikið um að vera í Ingólfshöfða í gærmorgun. Þar voru mættir borgarstjórinn í Reykjavfk, Birgir Isleifur Gunn arsson, framkvæmdarstjóri þjóð- hátíðarnefndar, Indriði G. Þor- steinsson, forystumenn i þjóðhá- tíðarnefnd Reykjavíkur, frétta- menn og fleiri. Flogið var með Flugfélagi Islands til Fagurhóls- mýrar árla morguns, en sfðan ferjaði þyrla Landhelgisgæzlunn- Framhald á bls. 18 Ari Magnússon hleypur niður úr Ingólfshöfða Alþýðuflokkur: Óvopnaðar flugvélar í stað orustuþota Lítið gengur 1 vinstri viðræðum Lftið hefur gengið til þessa í viðræðum þeim sem standa yfir Færeyjaskútan kemur í dag FÆREYSKA skútan Westward Ho kemur til Reykjavíkur í dag kl. 17.30. Mun hún leggjast að Miðbakkanum fyrir framan Toll- stöðina og Hafnarhúsið og verður þar móttökuathöfn, en skútan kemur með þjóðargjöf Færeyinga til íslendinga í tilefni 1100 ára afmælisins og mun Guðmundur Benediktsson ráðuneytisstjóri f forsætisráðuneytinu taka við átta manna farinu f.h. fofsætisráð- herra. Skólalúðrasveit Kópavogs mun leika á hafnarbakkanum frá kl. 5 undir stjórn Björns Guðjóns- sonar, en Westward Ho mun fylgja átta manna farinu að bryggju. Verður því róið til hafn- ar undir færeyskum fána. Sigurð- ur Joensen, formaður Félagsins Færeyjar Island f Færeyjum, mun afhenda þjóðargjöfina, en Félagið Island Færeyjar á Islandi hefur ásamt forsætisráðuneytinu undirbúið móttökurnar. Á laugar- dag munu Færeyingarnir sitja há- degisverðarboð forsætisráðherra i Ráðherrabústaðnum. Um helgina verður borgarbúum gefinn kostur á að skoða skútuna gömlu, West- ward Ho, en hópur Færeyinga bú- settra á Islandi mun taka á móti skipinu og verða þeir í færeysk- um þjóðbúningum. Það óhapp henti um borð f West ward Ho á leiðinni til Islands, að stórsiglan féll f stormi niður á þvf. 12 manna áhöfn er á skútunni, sem er frá sfðustu öld. Þegar hún tagði upp í siglinguna til Islands hafði hún ekki siglt síðan 1968. milli fjögurra vinstri flokka um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, rfk- ir verulegur ágreiningur milli þeirra flokka, sem að viðræðun- um standa, um tvö mál, varnar- mál fyrst og fremst, en einnig um næsta skrefið f landhelgismálinu. I varnarmálum hefur Alþýðu- bandalagið krafizt þess, að f nýj- um málefnasamningi vinstri stjórnar yrði ákveðin dagsetnig um brottför varnarliðsins, en Al- þýðuflokkurinn hefur lagt fram tillögur í varnarmálum í átta lið- um. I landhelgismálinu hefur Al- þýðubandalagið sett fram þá kröfu, að fiskveiðilögsagan verði færð út I 200 sjómilur 1. septem- ber 1975, en Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur vilja ekki ákveða dagsetningu útfærslu, heldur bíða úrslita hafréttarráð- stefnunnar í Caracas. Samkvæmt þeim fregnum, sem Morgunblaðið hefur haft um til- lögur Alþýðuflokksins í varnar- málum, eru þær þessar: 1) Islendingar taki að sér rekst- ur björgunarsveitar, sem nú er rekin á vegum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og eiga Is- lendingar að njóta aðstoðar og hjálpar frá Atlantshafsbandalag- inu f sambandi við þjálfun áhafna. Enn fremur mun vera til þess ætlazt, að Atlantshafsbanda- lagið sjái Islendingum fyrir þyrl- um og öðrum tækjabúnaði til rekstrar þessarar björgunarsveit- ar. 2) Alþýðuflokkurinn mun leggja til, að þegar í stað verði skilið á milli hernaðrflugs og venjulegs farþegaflugs á Kefla- vfkurflugvelli, sem þýðir í raun, að hafizt verði handa þegar í stað um byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavfkurflugvelli. Teikningar af henni munu liggja fyrir, en kostnaður við byggingu hennar er gífurlegur. 3) Alþýðuflokkurinn mun leggja til, að allir varnarliðsmenn, skyldulið þeirra og erlendir starfsmenn á vegum varnarliðs- ins, flytjist búferlum inn á flug- vallarsvæðið, en til þess þarf að byggja töluvert af íbúðum á flug- vellinum. 4) Þá gerir Alþýðuflokkurinn tillögur um, að Islendingar taki við öllum þeim störfum á Kefla- víkurflugvelli, sem fært þykir, og að öll þau störf, sem með nokkru móti verður komizt af án verði lögð niður. 5) Alþýðuflokkurinn leggur til, að íslenzk löggæzla á Keflavíkur- flugvelli verði stóraukin. 6) Athugað verði mjög gaum- gæfilega, hvort óvopnaðar flug- vélar geti leyst orustuþoturnar, sem nú eru á Keflavfkurflugvelli, af hðlmi, en hlutverk þessara orustuþota er að fljúga á móti og fylgjast með sovézkum sprengi- flugvélum, sem koma inn á fslenzkt flugstjórnarsvæði. Enn fremur, að Islendingar taki við rekstri radarstöðvanna. 7) Samkvæmt tillögum Alþýðu- flokksins á að stefna að því, að íslenzkur lögreglustjóri verði æðsti yfirmaður á Keflavíkurflug- velii og starfsemi varnarmála- nefndar endurskoðuð á þann veg, að hún hafi meiri völd um rekstur og allt fyrirkomulag á Keflavíkur- flugvelli og varnarliðið verði undir hana sett. Framhald á bls. 18 Gæzlumenn gera ráðuneytinu tilboð: Vilja veita 20 daga frest gegn ákveðnum skilyrðum Iðnaðarmenn við gæzlu s.l. nótt Westward Ho fyrir fullum segl- um undan Suðurlandi f fyrra- kvöld. Ljósm. Mbl. Sigurgeir f Eyjum. GÆZLUMENN á Kleppsspftala hættu vinnu klukkan 12 f fyrri- nótt. t gærmorgun gengu þeir á fund heiibrigðisráðherra, sem bauðst til að beita sér fyrir lausn á málinu, ef gæzlumennirnir vildu halda áfram störfum. Klukkan 3.30 f gær héldu gæzlu- mennirnir með sér fund f Klepps- spftalanum, og á þeim fundi ákváðu þeir að gera fjármála- ráðuneytinu tilboð, og átti það að koma til meðferðar f ráðuneytinu f morgun, föstudag. Mbl. náði f gær tali af Jakobi Jónassyni, yfir- lækni Kleppsspftalans, og Sigur- jóni Helgasyni, talsmanni gæzlu- mannanna, en þeir vildu ekkert segja um efni tilboðs gæziumann- anna. Mbl. hefur hins vegar fregnað eftir öðrum leiðum, að f tilboðinu bjóðist gæzlumennirnir til að veita 20 daga frest gegn ákveðnum skilyrðum, m.a. um algera lausn á launamálum þeirra og að ekki yrðu aðrir ráðn- ir f stöður þeirra á meðan. Ef semst milii gæzlumannanna og ráðuneytisins, hefja þeir vinnu klukkan 3.30 f dag. „Ef lausn fæst á þessu máli, köllum við strax inn alla útskrif- aða sjúklinga og setjum allt f gang aftur," sagði Jakob Jónasson yfir- læknir í samtali við Mbl. i gær. Hann sagði, að stjórnendur Kleppsspftalans hefðu orðið að grfpa til þess ráðs, að útskrifa 30 sjúklinga á opnum deildum vegna þess að gæzlumennirnir, sem eru 25 að tölu, gengu úr starfi. Sagði Jakob, að hálfgert neyðarástand hefði skapazt á spftalanum. Þeim starfsmönnum á opnu deildunum, sem ekki hættu vinnu, hefur verið skipt níður á lokuðu deild- irnar og s.l. nótt voru við gæzlu iðnaðarmenn sem starfa við spitalann, læknar og læknastúd- entar. „Meðan þetta ástand ríkir, verðum við að reyna að fá tíma- kaupsfólk til að hlaupa í skarðið, en það hefur hingað til gengið erfiðlega", sagði Jakob. Að sögn Jakobs var það fólk látið fara heim, sem læknar töldu, að gæti það að skaðlausu. „En þetta er algert neyðarúrræði og getur komið sér ákaflega illa. öll meðferð á þessum sjúklingum rofnar og þetta getur orðið mikið áfall fyrir þá. Margir eiga við erfiðar heimilisaðstæður að búa, Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.