Morgunblaðið - 02.08.1974, Side 11

Morgunblaðið - 02.08.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. AGUST 1974 11 „Stórkostleg- ur atburður” — segir Pekka Tarjanne um þjóð- hátíðina á Þingvöllum, þar sem hann flutti ávarp sitt á íslenzku Það vakti töluverða athygli þjððhátíðargesta á Þingvöllum, þegar Pekka Tarjanne sté þar í ræðustólinn og ávarpaði við- stadda á nær lýtalausri fslenzku. Þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins spjallaði stuttlega við Tarjanne degi sfðar var ekki nema eðliiegt, að fyrsta spurning- in væri á þá leið, hvar hann hefði tileinkað sér þennan ágæta fs- lenzka framburð og hvers vegna hann hefði flutt ávarp sitt á fs- lenzku. „Eg hef jafnan haft gaman af tungumálum," svaraði Tarjanne, sem er sendiherrasonur, „fæddur í Stokkhólmi, gekk í skóla í Osló og stundaði framhaldsnám í Kaupmannahöfn og stend því nokkuð vel að vígi hvað þau tungumál áhrærir. Málefni Norðurlanda og samvinna þeirra hefur alltaf verið mér hugleikin og innan stjórnarinnar fer ég ein- mitt með þau málefni. Mér fannst þess vegna skylda mfn að geta tileinkað mér einhvern þátt ís- lenzkunnar. Finnskan og íslenzk- an eiga ýmislegt sameiginlegt. Við Finnar erum stoltir af tungu okkar og mér skilst, að þið séuð líka stoltir af ykkar tungu og meg- ið vera það. Finnska og íslenzka eru annars ekki svo ósvipaðar að hljómbrigðum og ég held að auð- veldara hljóti að vera fyrir Finna og Islendinga að læra mál hvorir annarra en fyrir fólk af ýmsum öðrum þjóðernum." Tarjanne sagði einnig, að megin ástæðan fyrir því að hann kaus að flytja ávarp sitt á íslenzku hefði verið, að hann stóð frammi fyrir þeirri staðreynd, að allir aðrir er- lendir gestir á þjóðhátíðinni, er ávörp fluttu, gátu flutt ávörpin á eigin tungumáli og gert sig skiljanlega. „Enginn hefði hins vegar skilið mig ef ég hefði farið eins að,“ sagði Tarjanne. „Ég varð þvf að velja milli — átti ég að flytja ávarpiðáeinhverju hinna Norðurlandamálanna eða reyna að flytja það sjálfur á íslenzku. Mér fannst sfðari kosturinn meira við hæfi við þessar kringumstæð- ur. Þess vegna varð ég mér úti um aðstoð heima til að geta nú gert þetta sómasamlega." Tarjanne kvaðst lengi hafa haft áhuga á íslandi og hefur nokkr- um sinnum áður komið hingað til lands í sambandi við norræna samvinnu. „En gærdagurinn kenndi okkur útlendu gestunum að dá og virða þetta land og þessa þjóð jafnvel meir en áður. Mér fannst Þingvallahátíðin stórkost- legur atburður, já, ekki aðeins hátíðin heldur hvernig þið minnizt afmælisins. Ég nefni, sem dæmi um það Þróunarsýninguna, sem ég sá í morgun, þar varð ég margs vísari um land og þjóð.“ Tarjanne er nú á fertugsaldri og hefur átt að fagna óvenju skjótum frama innan finnskra stjórnmála eins og rakið var hér í blaðinu á dögunum. „Ég varð ráð- herra árið 1972 og sú stjórn er nú að verða tveggja ára innan fá- einna vikna. Hún er mynduð með samstarfi jafnaðarmanna, Mið- flokksins Sænska þjóðarflokksins og Frjálslynda þjóðarflokksins, sem ég er úr. Eftir eru þá utan stjórnar íhaldmenn og kommún- istar, en skoðanagjáin milli þeirra hefur reynzt of mikil til að þeir megi að skapa öfluga andstöðu gegn stjórninni. Ég hef frá upp- hafi verið samgönguráðherra í þessari stjórn, enda hafði ég áður verið formaður samgöngunefndar norræna ráðsins." Tarjanne var spurður að því, hvort ekki væri fremur óvenju- legt, að ríkisstjórn sæti þar svo traust 1 sessi svo langan tíma sem raun ber vitni. „Það er ekki nema von þú spyrjir. Finnsk stjórnmál eru löngum kunn fyrir skammlff- ar ríkisstjórnir og fyrstu 57 árin eftir sjálfstæði landsins sátu 56 rfkisstjórnir svo að meðalaldur þeirra var um eitt ár. En nú, Framhald á bls. 19 Pekka Tarjanne samgönguráðherra Finnlands. LAUGAVEG 37 W \ ' / * V \\\\ \ \ N \\ \\ \ ' . \ N \\\ \ y \ W \ X V \ v > .J FYRIR VERZLUNARMANNAHELGINA BJÓÐUM VIÐ NÚ GLÆSILEGT ÚRVAL AF FALLEGUM VÖRUM FYRIR DÖMUR OG HERRA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.