Morgunblaðið - 02.08.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. AGUST 1974
-
4
13
Sigurbjörn Kristjáns-
son sjómaður 75 ára
Snemma kynntist hann sjónum,
og marga erfiða ferð hefir hann
þar farið, þótti liðtækur og æðru-
laus. Oft hefir þurft að taka rösk-
lega til hendinni þvf að ekki er
gefið eftir af náttúruöflunum.
Minnisstæður verður honum jafn-
an 29. janúar 1924. Þann dag var
hann á m.b. Baldri frá Stykkis-
hólmi og lenti f mannskaðaveðri.
Þeir björguðust. Og það hefi ég
heyrt þá, sem komust af, segja, að
Sigurbjörn hefði átt sinn þátt og
vel það í, að björgun tókst. For-
maður á bátnum þá var Sigurgeir
Björnsson. A þessum degi fórst
Bliki með hinum dugmikla skip-
stjóra Sigvalda Valentínussyni
og skipshöfn hans.
Sigurbjörn er fæddur að Eiði í
Eyrarsveit. Foreldrar hans voru
Hildur Helgadóttir og Kristján
Ólafsson. Snemma fór Sigurbjörn
að vinna á sjónum og nú telst
honum til, að þau séu senn að
verða 60 árin, sem hann hefir
stundað sjómennsku. Hann var
heiðraður fyrir nokkrum árum á
sjómannadaginn fyrir farsæl
störf að sjómennsku.
Hann byrjaði á árabátum 13
ára. Síðar fór hann á skútur, fyrst
á útvegi Ólafs Jóhannessonar,
Patreksfirði, síðar var hann á
skipum frá Bfldudal og víðar. Til
Stykkishólms flyzt hann 1922 og
þar hefir heimili hans verið sfðan.
Hann kvæntist 1928 Soffíu Páls-
dóttur, Guðmundssonar frá
Höskuldsey og hafa þau átt 9
börn.
Enn er hann svo tengdur sjón-
um, að honum finnst, að þar hljóti
hann að eyða sínum seinustu
kröftum. Hann hefir litla Iöngun
til starfa f landi og þótt oft hafi
verið mjótt á munum lífs og
dauða, þá er það nú svo, að sjór-
inn hefir sitt aðdráttarafl og heilf-
ar margan vaskan drenginn.
Sigurbjörn er einn þeirra.
Hann á margar minningar frá
sjóferðum sínum. Þær eru honum
kærar. Hann þekkir lífið frá
mörgum hliðum og veit um gildi
þess.
í dag hugsa vinir hans hlýtt til
hans og óska honum allrar bless-
unar í framtíðinni. Ég sendi þeim
hjónum og skylduliði mfnar ein-
lægustu afmælisóskir.
Arni Helgason
Nýtt kaupfélags-
útibu við Ásbyrgi
Skinnastað, Axarfirði, 25. júlf
I dag opnar Kaupfélág Norður-
Þingeyinga nýtt útibú við Ásbyrgi
f Kelduhverfi. Verður þarna
verzlun og bensínsala og auk þess
veitingastofa. Fyrst og fremst
verður þarna verzlað með mat-
vöru og aðrar nauðsynjar fyrir
sveitirnar í kring, en þó er verzl-
unin mjög svo sniðin eftir þörfum
ferðabólks, en þvf fer fjölgandi að
sumarlagi. I veitingastofunni er
m.a. selt kaffi og smáréttir.
Samtfmis verður lagt niður hið
gamla útibú KNÞ í Keldunesi og
lætur verzlunarstjórinn þar, Sig-
tryggur Jónsson, af störfum fyrir
aldurs sakir eftir langt og vel
unnið starf. Hann var annálað
lipurmenni.
Smfði nýja hússins við Asbyrgi
hófst á sl. sumri og hafa margir
sérfræðingar og iðnaðarmenn
lagt hönd á plóginn við að koma
því upp. Arkitekt var Hákon
Hertervig, en innanhússarkitekt
Kjartan Kjartansson. Byggingar-
meistari var Stefán Óskarsson, en
yfirsmiður við innréttingar
Marinó Eggertsson. Allt er eftir
nýjustu tfzku, vel fyrir komið og
snyrtilegt.
Utibússtjóri verður Sigurgeir
Isaksson, bóndi f Ásbyrgi.
— Sigurvin
mRRGFRLORR
mÖGULEIKR VÐRR
Sjónarvotta
vantar
Rannsóknarlögreglan lýsir eftir
sjónarvottum að eftirfarandi um-
ferðaróhöppum:
24. júlí á milli kl. 8.30 og 17 var
ekið á appelsfnurauðan
Volkswagen, R-33939, sem stóð á
stæði við Smiðjustfg norðan
Hverfisgötu.
27. júlí milli kl. 15 og 17 var
ekið á appelsfnugulan sendibíl
með skúffu af Volkswagengerð,
R-39995, sem stóð á Snorrabraut
milli Grettisgötu og Laugarvegar.
28. júlí á tfmabilinu milli kl. 8
og 20.30 var ekið á bláa Cortinu,
R-25386, í Tjarnargötu á milli
húss Hjálpræðishersins og Happ-
drættis Háskóla Islands.
Einhvern tfma frá kvöldi 28.
júlf til morguns 29. var ekið á
Ford Taunus bíl, R-38937, sem
stóð á stæði við iðnaðarmanna-
húsið við Hallveigarstíg.
31. júlí milli kl. 12.30 og 13 var
ekið á rauða Toyotu Coronu, G-
1168, sem stóð gegnt Skúlagötu
76. Talið er, að stór amerísk bif-
reið hafi ekið þar á.
29. júlf varð árekstur á mótum
Laugavegar og Kringlumýrar-
brautar milli jeppa og leigubif-
reiðar.
Rannsóknarlögreglan biður alla
þá, sem borið geta vitni vegna
þessara atburða, að gefa sig fram.
ÞRÓLHM
OPIN DAGLEGA KL 14.00—22.00
í KVÖLD
B*7a-iSTTa
KL. 9.oo
BTa-'isrra
BJARTUR í SUMARHÚSUM
HEIMSÆKIÐ SÉRA GUÐMUND. LEIKÞÁTTUR ÚR SJÁLFSTÆÐU FÓLKI FLUTTUR AF RÓBERT
ARNFINNSSYNI OG VALI GÍSLASYNI
TÍZKUSÝNING
KL. 9.30 Á VEGUM ÁLAFOSS
DAGLEGA NÝJAR ÍSLENZKAR KVIKMYNDIR KL. 4.00 og 8.00
Reykjavíkurdeild: Kynnisferðir um Reykjavík hefjast dagleg kl. 2.45 frá Gimli v/Lækjargötu og Laugardals-
höll kl. 3.00. Sætapantanir í síma 28025.