Morgunblaðið - 02.08.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 2. AGUST 1974
19
„Stórkostleg-
ur atburður”
Framhald af bls. 11
þegar ýmis önnur þjóðlönd virð-
ast vera að glata þeirri stjórn-
málalegu festu, er þau hafa búið
við um árabil, er engu lfkara en
Finnland sé að öðlast hana. Auð-
vitað eigum við enn við margvís-
leg vandamál að glíma, sérstak-
lega ásviði efnahagsmála. Veru-
legur viðskiptahalli er við útlönd
á síðasta ári og mikill verðbólgu
vöxtur, sem mér skilst, að sé nú
heldur ekki alveg óþekktur hér á
landi. En fyrirsjáanlegt er, að við
munum aftur verða að glfma við
þessa vandamál með haustinu.“
Tarjanne sagði, að það væri
ekki sízt olíukreppan, sem komið
hefði illa niður á efnahag Finn-
lands. „Sú staðreynd, að við eig-
um engar olfulindir eða kolanám-
ur og erum yfirleitt fátæk af öll-
um hráefnum gerir okkur auðvit-
að ekki lífið auðveldara á tímum
olfukreppu. Ég er þó bjartsýnis-
maður að eðlisfari og hef trú á, að
málin þróist okkur f hag.“
Tarjanne er kjarneðlisfræðing-
ur að mennt, var prófessor í þeirri
grein við háskólann í Helsinki um
tíma og þess vegna ekki óeðlilegt
að spyrja hann um möguleika
Finna á því að leysa orkuvanda-
mál sln að einhverju leyti með
kjarnorkuverum. „Jú vissulega,“
svarði hann. „Raunar hefur verið
rætt um að reisa tvö kjarnorkuver
í Finnlandi og nú í allri olíu-
kreppunni harmar maður eigin-
lega, að það mál skyldi ekki vera
lengra á veg komið. En hver gat
séð það fyrir? Auk þess eru mörg
óleyst vandamál varðandi nýtingu
kjarnorkunnar á þessu sviði, þá
einkum umhverfisleg. Þetta eru
þó ekki óleysanleg vandamál og
ég fyrir mitt leyti er bjartsýnn á,
að fundinn verði aðferð til að
nýta kjarnorkuna sem orkugjafa,
sem ekki er eins hættuleg. Mann-
eskjan deyr ekki út vegna orku-
skorts."
Tarjanne var spurður að því,
hvort ríkisstjórn hans gæti
hugsanlega sprungið á þeim efna-
hagsvanda, er nú steðjaði að.
Hann svaraði því játandi. „Það er
alltaf mögulegt, að upp geti komið
slfkur ágreiningur um lausn
vandans, að hann leiði til þess.
Hins vegar er ég persónulega
þeirrar skoðunar, að það leysi
ekkert að kalla yfir sig stjórnar-
kreppu og efna til nýrra kosn-
inga.
Nú, annað höfuðmál Finnlands
um þessar mundir er á sviði utan-
rfkismálanna. Þar á ég við
öryggismálaráðstefnu Evrópu,
sem við berum mjög fyrir brjósti
eins og allir vita. Við höfum
vænzt þess, að lokaþáttur hennar
yrði núna í júlf, en svo einfalt er
það nú ekki, þegar öryggismál
þjóða eru annars vegar. Núna ger-
um við okkur vonir um, að þessi
lokaþáttur ráðstefnunnar geti
hafizt með haustinu og þá verði
ekki alltof Iangt að bfða að ein-
hverjar niðurstöður fáist,“ sagði
Tarjanne.
Hugheilar þakkir til
allra, sem heiðruðu
mig áttræðan, með
heimsóknum, gjöfum
og vinarkveðjum.
Ykkur öllum bið ég
blessunar Guðs, og
farsældar starfi.
Magnús Eiríksson,
Skúfslæk.
MflBGFflLIlflR
Við lokum
vegna sumarleyfa
til 12. ágúst.
HE/LDVERZLUN ANDRÉSAR GUÐNASONAR
Klettagörðum J1 — 13 — sími 86388.
Öskum að ráða
prentara — pressumann og nemanda í prent-
un. Einnig stúlku til aðstoðar.
Offsetprent h.f.,
Smiðjustíg 11,
sími 15145.
Hrólfur Benediktsson.
Silungs — laxveiði
Njótið útiverunnar og fallegs umhverfis. í
Meðalfellsvatni, Kjós, sem er örstutt frá Reykja-
vík er ágæt silungs og laxveiði. Veiðileyfi eru
seld á bænum Meðalfelli.
ATHUGIÐ
Sökum þess gífurlega filmumagns er oss hefur
borist til framköllunar að undanförnu, og vegna
ýmissa byrjuna örðugleika getum við ekki staðið
við þær tímaáætlanir sem auglýstar voru. Biðjum
við viðskiptavini velvirðinga á þessu og vonumst
til að þjónusta okkar verði komin í eðlilegt horf í lok
mánaðarins.
Myndiðjan Ástþór hf.,
Suðurlandsbraut 20
sími 82733, Reykjavík.
HHMpIK 74
Nýkomið! Nýkomið!
Velourjakkar ★ Velour bolir ★ Blússur
★ Peysur ★ Gallabuxur ★ Kjólar
Op/Ö til kl. 10 í kvöld
Sendum gegn póstkröfu um allt land