Morgunblaðið - 02.08.1974, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. ÁGUST 1974
23
Minning:
Ingvar Júlíus Ingvars-
son frá Desjamýri
fær síðan kvöldroða
á koddann sinn inn,
kveður þar heiminn í sólskini
og blundar.
Hvíl þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu heila þökk fyrir allt.
Eva Valgeirsdóttir.
Arsæll V. Sveinbjörnsson lézt á
hjartadeild Landspítalans 26. júlf
s.l. Ársæll var fæddur 16.9 1910
að Eiði í Garði.
Að því leyti var Arsæll ólfkur
flestum öðrum mönnum, að I
lifanda Iffi hlaut hann gott umtal
samferðamanna sinna, en ekki
aðeins á kveðjustund.
Ársæll Sveinbjörnsson er mér
ekki bara tengdafaðir, hann er
góður drengur og allra bezti mað-
ur, sem ég hef kynnzt í lffinu. I 20
ár hefur hann staðið við hlið mér
og fjölskyldu minnar.
Mjög ungur að árum fór Ársæll
að vinna fyrir sér. Vinna var snar
þáttur f lffi hans, skyldurækni og
heiðarleiki voru honum f blóð
borin. Arsæll stundaði alla al-
menna vinnu til sjós og lands.
Hann var á ýmsum bátum, er reru
frá Sandgerði. Hann vann þó
lengst af við múrverk og þótti þar
frábær fagmaður. Seinustu árin
vann hann við vélgæzlustörf á
Keflavíkurflugvelli.
Við sem þekktum Ársæl hljót-
um að drúpa höfði, þegar hugur-
inn reikar aftur í tfmann. Hann
vissi hvert stefndi. Margt sem
hann sagði og gerði seinustu
vikurnar sannar það. Líf hans var
að fjara út. Ársæll var dulur og
flíkaði ekki tilfinningum sfnum.
Börn sóttu mikið til hans, bæði
barnabörn hans og önnur. Þau
geyma minninguna um hann.
Ef lífsskoðun og hugsanagang-
ur Ársæls fengi að rfkja á heimili
mfnu og öðrum heimilum tengd-
um honum, þá eru þau heimili
hólpin. Ég trúi að tengdamóðir
mín fái æðri styrk til þess að
sætta sig við orðinn hlut. Henni
og öllum öðrum ættingjum votta
ég mfna dýpstu samúð.
Arsæll ræktaði Guð f sjálfum
sér. Góður drengur er kvaddur.
Fátækleg orð á kveðjustund.
Þessi orð Steingríms eiga bezt við,
er þessi sómamaður er kvaddur:
Trúðu á tvennt f heimi,
Tign sem æðsta ber,
Guð f alheimsgeymi,
Guðí sjálfum þér.
Magnús Th. Magnússon.
F. 11. 6. 1920.
S. 3. 7.1974.
„Frændi þinn er dáinn!“
Þessi orð voru eins og reiðar-
slag. Atti ég að trúa þvf, að Ingi
frændi minn, sem skrapp á Egils-
staði rétt fyrir hádegið, kæmi
ekki aftur til okkar? Að vísu yrði
hann hjá okkur áfram, en ekki á
sama hátt og áður. Nú myndi
hann ekki framar stinga brjóst-
sykursmola að litlu barni, sem
hafði orðið ósátt við tilveruna, eða
skemmta fólki með sinni frábæru
frásganargáfu, sem gat fengið
alla til að gleyma stund og stað.
Nú þurfti hann ekki framar að
hafa áhyggjur af sveitarmálum,
sem hann bar alltaf fyrir brjósti.
Þetta og margt fleira flaug mér í
hug, þegar ég frétti þessi tiðindi,
sem ekki voru aðeins óbærilega
sorgleg fyrir nánustu vini og ætt-
ingja, heldur einnig fyrir alla þá,
er þekktu þennan mikilhæfa
mann.
Ingvar föðurbróðir minn var
fæddur 11. júní 1920, sonur prest-
hjónanna á Desjarmýri, sr. Vig-
fúsar Ingvars Sigurðssonar, Jóns-
sonar frá Kolsholti f Flóa, og Ing-
unnar Ingvarsdóttur, Nikulás-
sonar prests að Gaulverjabæ í
Flóa og síðar að Skeggjastöðum í
Bakkafirði. Hann var elztur
þriggja systkina, sem upp komust,
en hin eru: Guðrún, búsett f
Hafnarfirði, gift Viktori Þor-
valdssyni frá Svalvogum í Dýra-
firði, og Sigmar bóndi á Desjar-
mýri, kvæntur Sesselju Jóns-
dóttur frá Gunnhildargerði í
Hróarstungu. Einnig ólst upp með
þeim systkinunum Sófus Bender,
sem nú er bifreiðarstjóri i
Reykjavík og ávallt hefir verið
sem elskulegur bróðir þeirra.
Snemma hefur Ingvar öðlazt
sterka ábyrgðartilfinningu, þvf
hann mun ekki hafa verið nema á
16. ári, þegar hann tók við fjár-
geymslu. Búskapurinn hvfldi að
verulegu leyti á herðum hans,
enda hefur búskapur, og þá sér-
staklega sauðfjárrækt, verið
honum mjög hugstæð. Aðeins að
undanteknum þeim tveimur
árum, sem hann stundaði nám við
Eiðaskóla, hefur hann verið sam-
fleytt við búskap, fyrst f félagi við
föður sinn og sfðar einngig bróður
sinn.
Arið 1944 kvæntist Ingvar
Helgu Björnsdóttur frá Hnefils-
dal, hinni mestu ágætiskonu, er
reyndist honum traustur lífsföru-
nautur. Þau áttu 7 gáfuð og mjög
mannvænleg börn, sem eru nú
uppkomin, nema eitt sem er
innan fermingaraldurs. Þegar afi
og amma fluttust burtu 1961,
bjuggu bræðurnir saman í tvíbýli.
Þannig var það fyrst, þegar ég
man eftir mér, og alltaf sfðan.
öll þessi ár, sem bræðurnir
hafa starfað saman, hefur aldrei
borið skugga á, enda voru þeir svo
samrýmdir og samhentir um alla
hluti, að eftirtektarvert var.
Frændi minn var skapmikill, en
hafði fullkomna stjórn á skapi
sinu. Hann vildi öllum vel og
reyndi að gera gott úr öllu, en lét
ekki á sig ganga, þegar hann vildi
halda máli sfnu eða skoðunum
fram og þá ekki síður, ef það var
eitthvað, sem snerti sveitarmál.
Ef eitthvað bjátaði á eða erfið-
leikar steðjuðu að, var hann alltaf
rólegur og æðrulaus og tók með
fullkominni stillingu og skyn-
semi.
Ég minnist frænda míns sér-
staklega fyrir það, hve góður
hann var mér, þegar ég var barn
og var leið út af einhverju. Þá
kom hann undantekningarlaust
upp stigann, tók mig f fangið og
bar mig niður. Svo gaf hann mér
brjóstsykursmola og sagði: „Nú
er allt gott, er það ekki?“ Þannig
kom hann fram við öll börn. Ef
Ingi gat ekki huggað, þá gat það
einginn. Ingi var oddviti frá árinu
1958 og sýslunefndarmaður sfðan
1962, auk þess sem hann gegndi
fjölmörgum öðrum trúnaðar-
stöfum. Hvenær munum við Borg-
firðingar meta starf hans til fulls,
allar þær stundir sem hann hefur
fórnað frá búskapnum í þágu
sveitarinnar?
Mögum sinnum á dag var hann
kallaður inn i sfma þegar hann
var við vinnu sína úti, en aldrei sá
ég hann taka því öðruvisi en með
jafnaðargeði.
Frændi minn var ljóðelskur og
kunni fjöldann allan af ljóðum og
löngum kvæðum, sem hann fór
oft með fyrir okkur krakkana.
Hann elskaði alla fegurð og ég sá
hann oft standa úti og virða
fjöllin fyrir sér, enda er leit að
fegurra útsýni en héðan blasir
við.
Það er ekki ofsögum sagt, að
hann hafi verið góður eigin-
maður, faðir, sonur og bróðir, og
ég bið Guð að gera eiginkonu
hans, börnum, aldraðri móður og
öðrum aðstandendum sorgina og
söknuðinn léttbæran.
Framhald á bls. 18
Höfum tekið að okkur söluumboð fyrir hin
viðurkenndu vestur-þýzku eldhústæki frá
GAGGENAU. Öll tækin eru ætluð til inn-
byggingar i eldhúsinnréttingar. Ofnar, hellur,
djúpsteikingarpottar og kolagrill.
Allir ofnar eru sjálfshreinsandi.
Litiö i gluggann um helgina
1 Vörumarkaðurinn hf.
A ÁRMÚLA 1A, SÍMI 86112, REYKJAVÍK,
I
HÖGGDEYFAÚRVAL
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSPRESSUR
SPINDILKÚLUR
STÝRISENDAR
VIFTUREIMAR
KVEIKJUHLUTIR
FLESTÍ RAFKERFIÐ
HELLA aðalluktir, lukta-
gler luktaspeglar og margs
konar rafmagnsvörur
BOSCH luktiro.fi.
S.E.V. MARCHALL luktir
CIBIE luktir
BÍLAPERUR allar gerðir
RAFMAGNSVÍR
FLAUTUR 6 — 24 volt
ÞURRKUMÓTOR
6 —24 volt
ÞURKUBLÖÐ
ÞURRKUARMAR
BREMSUBORÐAR
BREMSUKLOSSAR
ÚTVARPSSTENGUR
HÁTALARAR
SPEGLAR I úrvali
MOTTUR
HJÓLKOPPAR
FELGUHRINGIR
AURHLÍFAR
DEKKJAHRINGIR
MÆLAR alls konar
ÞÉTTIGÚMMI OG LÍM
HOSUR
HOSUKLEMMUR
EIRRÖR 1/8" — 1/2"
RÚÐUSPRAUTUR
FELGULYKLAR
LOFTPUMPUR
KAPPAR í DEKK
SÆTAÁKLÆÐI
STÝRISHLÍFAR
KRÓMILISTAR
BENSÍNLOK
FARANGURSGRINDUR
SEGULBÖND
ÞVOTTAKÚSTAR
BARNAÖRYGGISSTÓLAR
BARNABÍLBELTI
BÍLBELTI
HNAKKAPÚÐAR
ÖSKUBAKKAR
HLEÐSLUTÆKI
MÆLITÆKI f. rafgeyma
SWEBA ssnskir úrvals raf
geymar.
ISOPON og P-38 beztu
viðgerða- og fylliefnin
PLASTI-KOTE spray
lökkin til blettunar o.fl.
TALÍUR f. gegnum gang-
andi vír 1.5 og 3 t.
Athugið
allt úrvalið
(^^(naust h.t
Bolholti 4. Sími: 85185
Skeifunni 5 Sími: 34995
— 86150.