Morgunblaðið - 22.08.1974, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.08.1974, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 1974 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Bjórn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 1 00. Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 35,00 kr. eintakið. Aukaþinj'ið, setn kall- að var saman um miðjan júlí, hefur verið óstarfhæft fram til þessa, þar sem ekki hefur verið myndaður meirihluti á Alþingi, er staðið gæti að baki nýrri ríkisstjórn. Á mánudag náðist þó sam- komulag milli Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknar- flokksins um að fram- lengja gildistíma bráða- birgðalaganna, sem sett voru sl. vor um tímabundn- ar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu. I fram- haldi af þessu samkomu- lagi hófust fundir á Alþingi sl. þriðjudag. Með bráðabirgðalög- unum frá því í maí var kauphækkunum sam- kvæmt vísitölu frestað um sinn. Framlenging á gildis- tíma laganna til loka september felur í sér, að kauphækkanir samkvæmt vísitölu 1. september koma ekki til framkvæmda. Bráðabirgðalögunum var upphaflega ætlað að gilda til skamms tíma í því skyni, að nýrri ríkisstjórn gæfist tóm til að undirbúa varan- legri ráðstafanir. Nú hefur dregizt all nokkuð, að sam- komulag tækist um myndun ríkisstjórnar. Af þeim sökum er nauðsyn- legt að framlengja gildis- tíma bráðabirgðalaganna. í umræðum í neðri deild Alþingis sl. þriðjudag kom raunar fram, að allir þing- flokkar eru um þetta sam- mála. Samhliða þessu sam- komulagi, sem gert var á Alþingi, ákvað vinstri stjórnin að halda áfram niðurgreiðslum þeim á landbúnaðarvörum, sem ákveðnar voru sl. vor. Jafn- framt var ákveðið að halda áfram niðurgreiðslum á olíuverði til fiskiskipa. Ríkisstjórnin ákvað enn- fremur með þremur at- kvæðum ráðherra Fram- sóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum ráð- herra Alþýðubandalagsins að bændur fengju 9,5% hækkun á verðgrundvelli búvöru vegna aukins •reksturskostnaðar. 1 ríkis- stjórninni vildi Fram- sóknarflokkurinn ekki fall- ast á þá tillögu komm- únista, að þessari hækkun yrði mætt með auknum niðurgreiðslum. Þegar tillögurnar um framlengingu á gildistíma bráðabirgðalaganna komu til kasta Alþingis, lögðu kommúnistar til, að fellt yrði inn f lögin sjálf ákvæði um auknar niðurgreiðsl- ur vegna búvöruverðs- hækkunarinnar. Þessi til- laga var felld með atkvæðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Eins og Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, greindi frá á Alþingi, átti Sjálf- stæðisflokkurinn engan þátt í þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að leyfa hækkun á búvöruverðinu. Sjálfstæðisflokkurinn tók hins vegar þá afstöðu, þegar málið kom til kasta Alþingis, að koma í veg fyrir að enn yrði bætt við hinar gífurlegu niður- greiðslur og auknar álögur yrðu samþykktar á ríkis- sjóð, þar sem í honum er nú minna en ekki neitt. Geir Hallgrímsson, for- maður Sjálfstæðisflokks- ins, segir í viðtali við Morgunblaðið í gær, að af- staða til þessa máls hafi ekki verið tekin í við- ræðum Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokks- ins um stjórnarmyndun. Þetta væri og hefði verið úrlausnarefni þeirrar ríkisstjórnar, sem enn sæti við völd. 1 raun réttri væri þetta enn eitt dæmið af mý- mörgum, þar sem vinstri stjórnin hefði haldið óhjá- kvæmilegum hækkunum leyndum fyrir öllum al- menningi. Þá lagði for- maður Sjálfstæðisflokksins áherzlu á, að bændur ættu lögum samkvæmt rétt á hækkun á búvöruverði í samrærni við aukinn rekstrarkostnað. Ríkis- stjórnin hefði á hinn bóg- inn skotið sér undan því allt fram til þessa að af- greiða þetta mál. En ef þessi hækkun hefði ekki komið til framkvæmda, hefði það jafngilt kaup- lækkun hjá bændum. Af þessum yfirlýsingum má merkja, að Sjálfstæðis- Tryggja verður hag láglaunafólks flokkurinn hefur tekið ábyrga afstöðu til þessa máls. Þó að hann hafi ekki verið með í ráðum um sam- þykkt ríkisstjórnarinnar, var eðlilegt og rétt að standa á móti auknum niðurgreiðslum einmitt meðan verið er að undir- búa heildarráðstafanir í efnahagsmálum. Ljóst er, að niðurgreiðslur eru óhóf- lega miklar og því hefði verið óráð að auka þær enn til muna á sama tíma og verið er að leggja á ráðin um aðgerðir til þess að rétta efnahagslífið og fjár- mál ríkisins við á nýjan leik eftir þriggja ára ráð- deildarleysi vinstri stjórn- ar. Á hinn bóginn verður það að koma skýrt fram, að þær heildarráðstafanir, sem ný ríkisstjórn verður að framkvæma, mega ekki verða á kostnað þeirra, sem minnst bera úr býtum og lakast eru settir í þjóð- félaginu. Þvert á móti verður að leggja þunga áherzlu á, að sérstakar ráð- stafanir verði gerðar til þess að tryggja, að þær að- gerðir, sem framkvæma þarf til að rétta við halla- resturþjóðarbúsins, verði sem léttbærastur þeim, sem lökust hafa kjörin, þó að þjóðarbúið í heild þurfi að draga saman seglin. En meðan verið er að kanna möguleika á og undirbúa slikar ráðstafanir, er óviturlegt að samþykkja tillögur um stórauknar niðurgreiðslur. Rússar spá í byltingar ERFTIR VICTOR ZORZA VALDHAFARNIR í Kreml segja kommúnistum heims um þessar mundir, að „harðnandi kreppa kapitalismans" veiti þeim „einstæð tækifæri". Þeir minna þá á „síversnandi stöðu heimsvaldasinna og vaxandi óstöðugleika stjórnmála þeirra og efnahagsmála.“ Þeir tína til öll einkennin — verðbólgu, fjármálakreppu, orkukrepp- una, atvinnuleysi, „mótsetning- ar“ Bandaríkjanna, Evrópu og Japans. Pravda minnir á þetta í rit- stjórnargrein, og gera má ráð fyrir að hún lýsi býsna nákvæmlega því, sem Kreml- herrarnir segja leiðtogum ann- arra kommúnistaflokka. Grein- in í Pravda var ætluð til þess að hvetja til heimsráðstefnu kommúnista, en nokkrir áhrifa- miklir flokkar leggjast gegn því. Þeir óttast, að vera megi, að herrarnir í Kreml noti slíka ráðstefnu til þess að endurlífga forystuhlutverk sitt i heims- hreyfingu kommúnista og skerða sjálfstæði þeirra. Til þess að sigrast á mótþróa þeirra eru Kremlverjar nýlega farnir að leggja áherzlu á vax- andi byltingarmöguleika í heiminum um þesar mundir. Kommúnistar, segja þeir, gætu hagnýtt sér þetta í eigin þágu, en því aðeins að þeir haldi með sér ráðstefnu til þess að semja og samþykkja könnun og sund- urgreiningu á ástandinu og Ieggja á ráðin um sameiginleg- ar aðgerðir. Rökræður Kremlverja og annarra flokka fara að miklu leyti fram á laun, en öðru hverju koma þær upp á yfir- borðið í flokksblöðum eins og til dæmis í spænska kommún- istablaðinu Nuestra Bamdera. Spánverjarnir sögðu, að sú ein- dregna krafa mannanna i Möskvu, að lögð verði drög að sameiginlegri stefnu kommún- ista, að stefna þeirra verði sam- ræmd og að milli þeirra ríki félagslega skipulögð „eining“, jafngilti afturhvafi til hug- myndarinnar um alþjóðlega „miðstöð" kommúnista. Kremlverjar vísa ásökuninni á bug, en á sama tíma senda þeir út af örkinni háttsettan embættismann, sem stjórnar samskiptum við erlenda komm únistaflokka, Boris Ponomarev, — til Parísar og Rómar — til þess að fá aðra flokksleiðtoga ofan af skoðunum sínum. Það, sem hann sagði þeim var eins og berlega kemur fram í grein, er hann sendi frá sér nýlega að ný ráðstefna væri nauðsynleg til þess að ákveða með „sam- stilltu“ átaki „stefnu sameigin- Iegra aðgerða konimúnista við hinar nýju aðstæður.“ Allar þær mörgu kreppur, sem hrjá hinn vestræna heim, sagði Ponomarev, eru nú 1 Brezhnev: hefur enn áhuga á ráðstefnu kommúnista. fyrsta skipti „svo nátengdar hver annarri og samtvinnaðar í einum hnút og víxlverkandi þrýstingur þeirra er svo kraft- mikill,“ að þær valda algerlega nýju ástandi. Ekki sé lengur til að dreifa „harðnandi“ kreppu, heldur sé hér á ferðum „ótví- ræÁ.eðlisbreyting á þróun hinn- ar almennu kreppu kapitalism- ans.“ Með þessu er vísað til þeirrar formúlu marxismans, sem segir, að á vissu stigi leiði stigmögnun til eðlisbreytingar, sem síðan leiði til aðstæðna sem nauðsynlegt sé, að ríki, til þess að orðið geti „byltingarstökk". Stigmögnunin er nákvæm- lega tíunduð í Moskvu, líkt og þegar hitinn er mældur í deyj- andi sjúklingi. Flokksritið Kommunist hermir, að á síð- ustu fimm árum hafi 225 milljónir manna tekið þátt 1 verkföllum í þróuðum kapi- talistalöndum miðað við 164 milljónir á næstu fimm árum á undan. Fjórar milljónir tóku þátt f allsherjarverkfallinu i Frakklandi 1972, 34 milljónir i allsherjarverkföllunum á Italíu 1973, 6 milljónir í verkfallinu í Japan á þessu ári. Kaupkröfur, segir blaðið, eru ein mikilvæg- asta undirstaða „byltingar- möguleika hinna vinnandi stétta.“ Baráttan fyrir hags- munum þeirra kennir verka- mönnum að skilja „þörfina á sósíalistískri byltingu." Pravda sér vaxandi mögu- leika í kosningunum i Frakk- landi, þar sem vinstri flokkarn- ir fengu nánast helming greiddra atkvæða, í þjóðarat- kvæðagreiðslunni á Ítalíu um hjónaskilnaði, og í „fyrstu skrefum" byltingarinnar i Portúgal. I umræðu sinni um kreppu kapitalismans kemst Ponomarev að þeirri niður- stöðu, að það hafi verið „verka- mannahreyfingin í Bretlandi, sem hafi fellt stjórn ihalds- rnanna." Grikkland án ofurst- anna, Spánn án Franco séu að- eins tvö dæmi um meira umrót sem sé í vændum. Þau séu miklu fleiri. En lýsing Rússa á „kreppu kapitalismans“ er lftt frábrugð- in krufningu íhaldssamra fram- ámanna á Vesturlöndum á áhrifum verðbólgunnar, nema kannski að því leyti að þeir nota ekki orðasafn marxista. Sumir sovézkir forystumenn virðast þannig fanga þeim tækifærum, sem óstöðugleikinn á Vestur- löndum gæti boðið upp á, en aðrir eru ekki eins vissir í sinni sök. „Við gerum okkur ljósa grein fyrir því,“ segir Georgi Arbatov, forstöðumaður Stofn- unarinnar í bandarískum fræð- um, „að kreppa hins borgara- lega samfélags getur hæglega haft ýmsar pólitískar afleiðing- ar, eins og kreppan á fjórða áratugnum leiddi til Roosevelts og nýskiptingarinnar í Banda- ríkjunum og Hitlers, fasisma og styrjaldar I Þýzkalandi.“ Pravda bendir á, að „bylting- arólgan" eigi sér hliðstæður, endurvakningu „afturhaldsafl- anna“ í Chile og einnig í mörg- um öðrum löndum. Kommún- istaflokkar, segir blaðið, standa enn þá einu sinni frammi fyrir „þvi verkefni að loka veginum fyrir gruggugri bylgju fasism- ans.“ Mennirnir í Moskvu hvetja þá til þess að fallast á heimsráðstefnu kommúnista eða í það minnsta Evrópuráð- stefnu í fyrsta áfanga til þess _að samræma baráttuáætlanir þeirra jafnt til sóknar og varn- ar. En samþykki við samræm- ingu felur í sér, að sjálfstæði þeirra verður afsalað að minnsta kosti að nokkru marki — og suma kommúnista grun- ar, að mennirnir 1 Moskvu hafi meiri áhuga á því, en horfunum á byltingu eða hættunni á fas- isma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.