Morgunblaðið - 23.08.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.08.1974, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 155 tbl. 61. árg. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST 1974 Prentsmiðja M»r«unblaðsins. EINANGRAÐIR Þessir sænsku hermenn í sveit Sameinuðu þjðð- anna í Famagusta eru meðal þeirra, sem tyrkneski herinn einangraði f dag, og hindraði f hjálparstarfi fyrir þúsundir grískra Kýpurbúa. Hér sjást þeir á götu í gríska hluta borgarinnar, sem yfir- gefinn var, er Tyrkir her- tóku borgina. (APsíma- mynd). Harðar deilur Yfirlýsing Sovétstjórnarinnar, sem Tass-fréttastofan birti, er sú fimmta í röðinni, sem hún sendir frá sér um Kýpurmálið. Þessi var hins vegar í mun mildari tón en hinar fyrri, þar sem oft hefur verið farið hörðum orðum um Grikki og NATO. 1 yfirlýsingunni hvetja Sovétríkin til þess, að allar erlendar hersveitir fari frá Kýp- ur, og að tryggt verði sjálfstæði eyjarinnar. Þetta er fyrsta frum- kvæði Sovétmanna til að finna lausn á vandamálum eyjarinnar. í útvarpssendingu á Kýpur í dag, kallaði Rauf Denktash norðurhluta eyjarinnar, sem er á valdi Tyrkja, „tyrknesku sjálf- stjórnina í lýðveldinu Kýpur", og var hann sjálfur kynntur sem for- seti framkvæmdaráðs stjórn- arinnar. Bulent Ecevit, forsætis- ráðherra Tyrklands sagði í dag, að hann útilokaði ekki, að Tyrkir yrðu reiðubúnir til viðræðna um hversu stór hluti tyrkneskumæl- andi Kýpurbúa ætti að vera í framtiðarskipan eyjarinnar. Hefur stjórn hans nú skipað sér- staka nefnd til að annast efna- hagsleg og skipulagsleg mál þess svæðis, sem nú er á valdi Tyrkja. Yfirmaður flóttamannahjálpar S.Þ., prins Sadruddin Aga Khan, kom til Nikósfu í dag til viðræðna við leiðtoga beggja þjóðarbrota. Sprengingar í Argentínu Buenos Aires 22. ágúst — Reuter GlFURLEGAR sprengingar urðu f Argentínu f dag, og vinstrisinn- uð skæruliðasamtök réðust á lög- reglustöð á tveggja ára afmæli svokallaðra „Trelew-f jölda- Framhald á bls. 18 Tyrkir hindra hjálparstarf- ið — Friðarumleitanir hertar JAWORSKI fær frest Kannar hugsanlega málshöfðun á hendur Nixon Washington 22. ágúst — AP — Reuter — NTB. # JOHN Sirica dómari tók þá ákvörðun f dag, að fresta réttarhöldunum vegna Wat- ergate-málsins um þrjár vik- ur, en þau áttu að hefjast 9. september. S.I. mánudag neitaði Sirica að verða við bón um frest- un, en breytti ákvörðun sinni vegna áskorana áfrýjunardóms- stólsins f Washington. Hefjast réttarhöldin 30. september, og kvaðst Sirica vonast til, að þeim yrði lokið fyrir jól. Þessi frestun á rætur sfnar að rekja til þess, að lögfræðingar sakh&rninga í málinu halda því fram að frestun sé nauðsvr.íeg vegna mikils mold- viðris í fjölmiðlum um málið, ekki sfzt eftir afsögn Nixons, og einnig ti) óska Lcon Jaworski, W'atcrgate-saksóknara, um tóm til að rannsaka þau gögn, sem Nixon lét af hendi skömmu áður en hann sagði af sér. Er talið, að um lcið muni Jaworski kanna hvort Richard Nixon, nú venjulegur borgari, eigi að bætast á listann yfir sakborningana. 0 Dómsmálanefnd fulltrúa- deildar Bandarfkjaþings sendi f dag frá sér endanlega skýrslu sfna um rannsóknina á Wat- ergate-málinu. Staðfestir hún fyrri ákærur nefndarinnar á hendur forsctanum fyrrver- andi, og lýsir forsctann sek- an um að hafa brotið refsi- föggjöfina, forsetaeið sinn og stjórnarskrána. Kemst nefndin að þeirri niðurstöðu f skýrslunni, að Nixon hafi fyrir- skipað yfirhylmingu hneykslis- ins, misnotað völd sfn til að lcyfa ólöglegar sfmhleranir, haft af- skipti af starfscmi ýmissa rfkis- stofnana og rcynt að hindra rannsókn málsins með þvf að neita að láta af hendi gögn. Þessi skýrsla átti að vera megin- innleggið i þær umræður, sem fara áttu fram f fulltrúadeildinni áður en atkvæðagreiðsla yrði um það, hvort mál Nixons yrði tekið fyrir í öldungadeildinni. I skýrslunni, sem er rúmlega 500 blaðsíður að lengd, eru engar af fyrri ákærum á hendur Nixon felldar niður. Segir nefndin m.a. í henni, að síendurtekin misnotkun valds æðsta embættis þjóðarinnar kref jist þess, að gerðar verði ráð- stafanir til að fyrirbyggja, að slíkt endurtaki sig. Þeir sakborningar, sem ákærðir eru fyrir aðild að yfirhylmingu Watergate-málsins, eru John Mitchell, fyrrum dómsmálaráð- herra, John Ehrliehman, H.R. Haldeman, Gordon Strachan, Robert Mardian og Kenneth Parkinson. neskar hersveitir hefðu einangr- að sænskar sveitir samtakanna á austurhluta eyjarinnar og komið f veg fyrir, að þær gætu komið vistum og gegnt almennu hjálpar- starfi fyrir þúsundir manna, sem illa hafa orðið úti vegna strfðsins á eyjunni. Hefði ekki verið unnt að koma mat og vatni til sjúkra, aldraðra og hungraðra grfskra Kýpurbúa á þessu svæði, þvf að Klerides — reiðubúinn til friðarviðræðna. S.Þ.-sveitirnar kæmust ekki til ýmissa staða vegna vegatálmana Tyrkja. Talsmaður S.Þ. í Nikósíu sagði ennfremur, að Tyrkir hefðu einnig beitt svipuðum aðferðum gegn dönskum hermönnum i norðvesturhlutanum. Hefðu Sam- einuðu þjóðirnar nú kvartað yfir þessu við yfirstjórn tyrkneska hersins. Fyrir tveimur dögum kröfðust Tyrkir þess, að sveitir S.Þ. yrðu fluttar frá hafnarborg- inni Famagusta í austur- hlutanum, en þær hafa hins vegar ekki flutt sig um set. Nú verða þær þó að tilkynna Tyrkjum fyrir- fram um ferðir sínar. fyrir erlendar fréttir, en sfðar versnuðu móttökuskilyrði frá Reuter og tók Associated Press við þvf hlutverki. Nú hefur Reuter bætzt f hópinn á ný. Jaworski — kannar gögnin gegn Nixon. Nikósíu, Famagusta, Moskvu, Washington, Ankara AP — Reuter • TILRAUNIR til að finna póli- tfska lausn á Kýpurdcilunni voru mjög hertar f dag. Sovézka rfkis- stjórnin hvatti f kvöld til alþjóð- legrar ráðstefnu um vandamálið, með þátttöku þeirra landa, sem sæti eiga í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, auk málsaðilanna Grikklands, Tyrklands og Kýpur- búa. Bretar skoruðu enn á Grikki að koma á ný til viðræðna f Genf, og Glafkos Klerides, forseti Kýp- ur, heldur til Aþenu á morgun til fundar við grfsku rfkisstjórnina. Er þess vænzt, að hann muni hvetja hana til að hefja samn- ingaviðræður á ný. Einnig var frá þvf skýrt f New York, að Kurt Waldheim, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, héldi til Kýpur til viðræðna við Klerides og Rauf Denktash, leiðtoga tyrk- neskumælandi Kýpurbúa um helgina. • En Tyrkir héldu enn áfram að styrkja stöðu sfna á þeim þriðj- ungi eyjarinnar, sem þeir hafa á valdi sfnu, þótt ekki hafi komið til vopnaðra átaka á Kýpur í dag. Þannig skýrði talsmaður Sam- einuðu þjóðanna frá þvf, að tyrk- um ofhölgimiiia Búkarest 22. ágúst — Reuter FULLTRtJI Páfagarðs á fólks- fjölgunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna f Búkarest sakaði f dag „eigingirni hinna auðugu fremur en frjósemi hinna snauðu“ um að vera orsök offjölgunarvandamáls- ins f heiminum. Edouard Gagnon, biskup og aðalfulltrúi Páfagarðs á ráðstcfnunni, sagði þetta við fréttamenn eftir að sendinefnd hans hafði tekið þátt f auknum Reuter 1 DAG fá lesendur Morgun- blaðsins f fyrsta sinn í allmörg ár fréttir frá brezku fréttastof- unni Reuter, einni virtustu fréttastofu heims. Fær Morgunblaðið þvf erlendar fréttir nú frá þremur frétta- stofum, — Reuter, Associated Press og norsku fréttastofunni NTB. Reuter-fréttirnar fær Morgunhlaðið eftir sérstökum sfmstreng frá Englandi. Þess má geta, að Reuter var um árabil aðalfréttastofa blaðsins deilum á ráðstefnunni um hvern- ig leysa bæri vandann. Nefndin lagði fyrir ráðstefnuna nýja stefnuskrá kaþólsku kirkjunnar, þar sem bann hennar við getn- aðarvörnum og fóstureyðingum er varið. Sagði Gagnon biskup, að þau skjöl, sem lögð hefðu verið fram, „tali Iftið um merkingu mannlegs lffs, um virðingu fyrir lffinu.“ Gerðu fulltrúar Páfagarðs ráð- stefnunni það Ijóst, að þeir myndu snúast gegn tillögum bráðabirgðaáætlunar ráðstefn- unnar um aðgerðir til lausnar þessu vandamáli, þar sem hvatt er til getnaðarvarnaþjónustu og fræðslu fyrir alla, sem hana vilja, fyrir árið 1985. Þessi bráðabirgðaáætlun er verkefni ráðstefnunnar, sem alls taka þátt í 130 þjóðir. Þegar hafa Argentína og fleiri riki ráðizt á drög þessarar áætlunar, og lagt áherzlu á, að frekar beri að leysa vandann með frekari efnahags- þróun „þriðja heimsins“, en með því að hefta fólksfjölgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.