Morgunblaðið - 23.08.1974, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. AGUST 1974
7
Tröllkerlingin
„Upphrópun
á mannlífið
tröllskapnum”
„Tröllkerlingin byggistá þessu
sama, sem við verðum að ríma við í
landinu, hinu óstjórnlega náttúruafli
og svo tröllatrúnni, sem við höfum á
svo mörgu," sagði Ásmundur
Sveinsson þegar við röbbuðum við
hann um Tröllkerlinguna á hlaðinu
hjá honum „Það er líka upp-
hrópunin," hélt hann áfram,
„höndin út í loftið og það, að við
viljum líka vera með og taka þátt i
tilverunni með öðrum. Mér fannst
það á margan hátt æskilegt þegar
þú fórst að tala um þetta við mig í
upphafi, að Tröllkerlingin færi upp I
Eyjum. Við verðum að rima við
náttúruöflin á íslandi, við verðum að
búa með þeim þótt þau sæki oft hart
að okkur. Mér finnst Tröllkerlingin
alltaf vera upphrópun á mannlífið,
að við verðum að standa okkur.
Kannski er Eyjalandslagið líka svo-
litið i henni með sín bergbörðu
björg og sjávarhella En ég hef þá
trú, að kveðskapurinn og okkar listir
verði að spinnast upp úr náttúru-
öflunum til þess að skapa sem
sannastan tón i okkar menningu
Þótt á dynji megum við ekkert gefa
eftir, ekkert láta undan og Vest-
mannaeyingar eru ekkert að hugsa
um að flytja frá Eyjunum, þeir halda
áfram Þegar maður er svona
abstrakt eins og ég er verður maður
að sækja hugmyndina í fantasiuna
og þegar ég gerði Tröllkerlinguna
var ég að fást við tröllskapinn I
landinu og tröllskapinn i mér, það
var skap i þessu og þeir hafa svo
sannarlega sannað dugnað sinn
Eyjamenn, svo það er gaman ef hún
fer upp hjá þeim."
Asmundur fylgist spenntur með.
„Mér finnst þetta svo flott gert
hjá þeim, að ég er mjög stoltur af
þeim og hef aldrei séð svona fint
gerð mót," sagði hann. Ljósmynd-
ir Mbl. á.j.
„Hefunnið fyrir flesta
íslenzka myndhöggvara
Baldur Ásgeirsson mótasmiður og
Hallsteinn Sigurðsson myndhöggv-
ari eru nú að taka afsteypu af
Tröllkerlingu Ásmundar Sveinsson-
ar, en afsteypan verður sú lang-
stærsta, sem gerð hefur verið hér á
landi, um 5 m há. Fyrirtæki í Eyjum
láta stækka listaverkið og setja það
upp ásamt öðru listaverki eftir Einar
Jónsson, Öldu aldanna. Er hér um
að ræða mjög lofsvert framtak, sem
ýmsir gætu tekið sér til fyrirmyndar.
Við röbbuðum við Baldur Ásgeirs-
son mótasmið þar sem hann var að
vinna að mótagerðinni á hlaðinu hjá
Ásmundi, en búið er að byggja sér-
stakt skýli yfir Jröllkerlinguna
„Ég lærði mótasmiði I Þýzka-
landi," sagði Baldur, „aðallega fyrir
postulinsiðnaðinn, en þetta er allt
saman skylt. Ég var þar f 1 ár við
þetta nám."
„Hefur þú unnið mörg verkefni
hér heima?"
„Ég hef tekið mikið af mótum hér
heima, fyrir eiginlega alla islenzka
myndhöggvara. Yfirleitt hef ég tekið
mótin i gifs og siðan steypt afsteyp-
ur, mest úr gifsi, en einnig ýmsum
Það þarf snör handtök við að setja
gifsið f sniðin á skikkjunni, en það
er styrkt með striga og bindivir.
öðrum efnum á síðari árum eins og
t d eboxy og polyester."
„Er ekki Tröllkerlingin i stærra
lagi?"
„Hún er lang stærsta styttan, sem
ég hef tekið mót af, og reyndar er
hún mjög stór á heimsmælikvarða "
Þeir Baldur og Hallsteinn taka
mótin þannig, að búin er til skikkja
úr gifsi, striga og steypustyrktarjárni
utan um Tröllkerlinguna og mögu-
leikinn til að steypa hana síðan upp
aftur er margbreytilegur eftir efni og
aðstæðum. Tröllkerlinguna á að
steypa upp I eboxy. Verður það efni
með hrafntinnu í alls um 1 sm á
þykkt en síðan styrkt að innan með
vír og glertrefjum, sem verða
bundnar eboxyinu Baldur er nú
mótasmiður hjá Glit, en slík vinna er
mjög finleg og kallar á mjög ná-
kvæm og fínleg vinnubrögð.
Við spurðum hann hvort væri
skemmtilegra að vinna við það stór-
gerða eða smágerða
„Það er nú gott i bland," svaraði
hann, „en stundum er það spenn-
andi, sérstaklega þegar verið er að
reyna eitthvað nýtt."
Baldur og Hallsteinn klæða Tröllkerlinguna F gifsskikkj una.
Verzlunarpláss ca 75 fm u.þ.b. 70 metra frá Hlemmtorgi er til leigu frá næstu mánaðarmótum. Upplýsingar i sima 11909 eftir næstu helgi. Keflavík Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Helzt vön. SÖLVABÚÐ, SÍMI 1 530.
Ung kona óskar eftir vel launuðu starfi i 5 mánuði frá 1. okt. — 1. marz. Góð mála- og vélritunarkunnátta. Tilboð merkt: „3002" sendist afgr. Mbl. fyrir mánaðarmót. Trésmíðameistarar úti á landi. Ungur maður, sem unnið hefur við húsa- og innréttingateikn., óskar eftir starfi við smíðar og teikn- ingar. Tilb. merkt: „4008" sendist afgr. Mbl. sem fyrst.
Grindavik Til sölu fokhelt raðhús múrhúðað að utan og með tvöföldu verksmiðju- gleri. Einnig fokhelt einbýlishús. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Simar 1263 og 1890. Til sölu Ford Ltd. station árg. '70. Fallegur bíll með viðarklæðningu á hliðum. Má greiðast með skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Uppl. í símum 20160 og 37203.
Tannlækningasofan er opin aftur eftir sumarleyfi. GARÐAR ÓLAFSSON, TANNLÆKNIR. Hárgreiðslustofa Stúlka óskar að komast sem nemi i hárgreiðslu. Get byrjað strax. Upplýsingar í sima 2631 7.
Spónlagningarpressa stærð 1,10x2,20, tveggja spindla til sölu. Simi 82295. vJVÞEIR HUKR umsKiPTin sEm k RUGLVSR í
*
Islandsmótið I. deild
í kvöld kl. 19.00 leika á laugardalsvellinum
Fram og KR
Knattspyrnudeild Fram
Það gamla kemur aftur
Fulninga - hurðir
Einnig: Spjalda - hurðir
Birki - hurðir
Opiö til kl. 10 í kvöld
Hurðir hf
Skeifan 1 3.