Morgunblaðið - 23.08.1974, Síða 30
Hafsteinrt Jóhannesson úr UBK
unnu bikar þann, sem keppt var
um í tugþrautinni og er veittur
þvi tveggja manna liði, sem flest
stig fær. Þeir félagar hluti 13.282
stig, en IR- ingar urðu í öðru sæti
með 13.146 stig. Báðir bættu þeir
fyrri tugþrautarárangur sinn
verulega. Karl West hlaut 6739
stig og Hafsteinn 6543 stig. Hið
sama má segja um þá félaga og
Stefán og Elías: Þeir eiga framtíð-
ina fyrir sér og eru í mikilli fram-
för. Með því að bæta árangur sinn
í kastgreinunum ætti Karl t.d. að
fara auðveldlega yfir 7000 stig
hvenær sem er og Hafsteinn á
einnig möguleika á þeim árangri.
Greinilegt er, að þeir félagar eru í
hinni ágætustu æfingu og drífa
hvor annan upp.
Stefán Hallgrfmsson mundar stöngina. Eftir þá grein mátti Islands-
metið heita öruggt.
tugþrautarafrekið, sem náðist í
heiminum það ár.
Elías á einnig að eiga glæsilega
framtíð fyrir sér sem tug-
þrautarmaður. Hann er orðinn
geysilega kröftugur og keppnis-
skapið skortir hann ekki. Með því
að bæta árangur sinn t.d. i kúlu-
varpi, langstökki og 110 metra
grindahlaupi nokkuð stæði Elías
nokkuð jafnfætis Stefáni og ein-
hvern veginn er maður viss um,
að þetta eigi Elíasi að takast, —
sérstaklega í langstökki. Víst er
að krafturinn og hraðinn eru
miklu meiri en stökklengdin segir
til um.
UBK-menn unnu bikarinn
Þeir Karl West Fredriksen og
Geri varla
betur á EM
sagði Stefán
eftir metið
— Noi, ég átti ekki von á, að
mér tækist að slá metið núna,
sagði Stefán Hallgrimsson,
ánægður en örþreyttur eftir tug-
þrautarkeppnina i fyrrakvöld. —
Ég keppti i átta greinum i bikar-
keppni FRÍ, sem fram fór um
siðustu helgi. og átti von á, að
það sæti miklu meira i mér i
tugþrautarkeppninni en raun bar
vitni. Ég tók þessa keppni ekki
svo ýkja alvarlega — æfði meira
að segja á mánudaginn í stað
þess að hvíla mig. En þegar
keppnin hófst fór allt að ganga
mér i haginn og stundum var ég
meira að segja undrandi á þvi,
hvað mér gekk vel.
Stefán sagðist ekki gera sér
vonir um að bæta þennan
árangur i Evrópumeistaramótinu.
— Aðstæðumar þar verða ugg-
laust allt öðru visi en að þessu
sinni, sagði hann. Að visu getur
maður gengið út frá því sem
gefnu. að þarna verður mun
hlýrra i veðri og það eykur mögu-
leikana á þvl að geta bætt sig i
sumum greinanna, t.d. hástökki,
langstökki og stangarstökki. en
aftur á móti kemur. að erfiðara
verður að hlaupa. Þá á ég ekki
von á, að ég verði búinn að jafna
mig til fulls eftir þessa þraut —
venjulega tekur rúmlega hálfan
mánuð að komast aftur í bezta
Skemmtilegt stangarstökk
Einna skemmtilegasta grein
tugþrautarkeppninnar var
stangarstökkið, en tugþrautar-
mennirnir æfðu þá grein inni i
Laugardalshöllinni í vetur og
hafa allir stórlega bætt árangur
sinn í sumar. 1 fyrra átti Stefán
Hallgrímsson t.d. í erfiðleikum
með 3,30 metra og var góður með
3,40 — 3,60 metra. 1 stangar-
stökkinu nú gerðist það fyrst, að
Hafsteinn bætti fyrri árangur
sinn um hvorki meira né minna
en 30 sm úr 3,60 metrum í 3,90
metra. Síðan kom Elías og bætti
sig um 10 sm, úr 4,00 metrum f
4,10 metra. Karl bætti sig úr 4,10
metrum í 4,20 metra og loks
kórónaði Stefán svo allt saman
með því að stökkva 4,30 metra, 20
sm hærra en hann hefur bezt gert
áður. Náði hann þar með þriðja
bezta afreki Islendings í þessari
grein frá upphafi. Hefur afreka-
skrá beztu manna i stangarstökki
tekið gífurlegum breytingum, svo
sem sjá má af töflu annars staðar
á síðunni.
Elfas Sveinsson — fylgdi Stefáni vel eftir og stórbætti árangur sinn.
Þegar eftir fyrri daginn var
óhætt að gera því skóna, að Stefán
setti met ef ekkert óvænt kæmi
fyrir. Þá hafði hann hlotið 3835
stig — mun meira en hann hafði
áður náð eftir fyrri dag í tug-
þrautinni. Seinni daginn gekk svo
allt í haginn. Hann náði sfnum
bezta árangri í tveimur greinum
af fimm og ágætum árangri f
hinum þremur. Þegar ein grein
var eftir hafði Stefán hlotið 7005
stig, sem einhvern tíma hefði þótt
bærilegur tugþrautarárangur. Til
þess að slá Islandsmetið þurfti
Stefán að hlaupa 1500 metrana á
rúmum fimm mínútum. 1 því
hlaupi fór hann sér að engu óðs-
lega til að byrja með, en herti
stöðugt ferðina er á hlaupið leið
og kom í markið á 4:30,8 mín., en
það afrek gaf 584 stig.
Athygli vekur hve Stefán er að
verða jafngóður f greinum tug-
þrautarinnar. Nú eru ekki lengur
hjá honum verulega veikar
greinar eins og var t.d. í fyrra.
Hann notaði veturinn vel til
æfinga í þeim og uppsker nú ár-
angurinn. Og það sem gleðilegast
er þó: Stefán er enn ungur og á
sitt bezta eftir sem iþróttamaður
og hann stefnir ákveðið að betri
árangri. Með sama áframhaldi og
áhuga ætti Stefán að eiga góða
möguleika að að verða í fremstu
röð á Olympíuleikunum í
Montreal 1976. Til þess þarf hann
að ná rúmlega 8000 stigum, sem
er alls ekki útilokað fyrir hann.
Elfas einnig
yfir 7000 stig
Þótt aðalathyglin beindist að
Stefáni í þessari tugþrautar-
keppni, má ekki gleyma því, að
aðrir keppendur í þrautinni stóðu
sig með mikilli prýði og stórbættu
árangur sinn. Elías Sveinsson IR-
ingur fylgdi Stefáni eftir sem
skuggi alla keppnina og einnig
hann stórbætti sinn fyrri ár-
angur, hlaut 7155 stig, sem er
þriðji bezti tugþrautarárangur ís-
lendings frá upphafi, 51 stigi
meira en örn Clausen náði f hinu
fræga einvígisínuvið franska tug-
þrautarmanninn Heinrich á Mela-
vellinum 1951, en það afrek
Arnar var jafnframt þriðja bezta
Karl West Fredriksen svffandi yfir ránni.
form eftir svona erfiða keppni og
auk þess á ég svo að keppa i 400
metra grindahlaupi áður en ég fer
i tugþrautarkeppnina í Róm.
Til marks um það hve tug-
þrautarkeppnin er erfiS má geta
þess, að tugþrautarmenn léttast
yfirleitt um 4—5 kg keppnisdag-
ana, eða svipað og maraþon-
hlauparar léttast i maraþon-
hlaupi. Þá stendur tugþrautar-
keppni á stórmótum venjulegast
frá morgni til kvölds og sumar
keppnisgreinarnar geta tekið
margar klukkustundir, t.d. stang-
arstökkið.
Sveinamet í langstökki
Hinn bráðefnilegi Ármenningur Sigurður Sigurðsson
setti nýtt sveinamet í langstökki í fjölþrautarkeppni FRÍ.
Stökk Sigurður 6,57 metra. Eldra metið átti Friðrik Þór
Óskarsson, ÍR, og var það 6,45 metrar, sett árið 1968.
Sigurður hætti keppni eftir fyrri dag þrautarinnar og
var þá kominn með 3199 stig, þannig að hann hefði
sennilega átt möguleika á sveinameti í greininni hefði
hann haldið áfram keppni, en það er 5165 stig.
STEFAN Hallgrfmsson, KR, sefti
nýtt og glæsilegt lslandsmet f tug-
þraut f bikarkeppni FRl f fjöl-
þrautum, sem lauk á Laugardals-
vellinum f fyrrakvöld. Bætti hann
sjö ára met Valbjörns Þorláks-
sonar, KR, um hvorki meira né
minna en 235 stig. Hlaut hann
7589 stig f þrautinni — 484
stigum meira en hann átti bezt
áður. Þetta afrek Stefáns mun
vera meðal tuttugu beztu afreka,
sem Evrópubúar hafa náð f tug-
þraut f ár. oe með tilliti til bess að
Hafsteinn Jóhannesson bætti
árangur sinn f stangarstökki um
30 sm.
stór hópur þeirra, sem náð hafa
þeim árangri, eru Þjóðverjar og
Sovétmenn er óhætt að gera sér
vonir um, að Stefán verði framar-
lega f tugþrautarkeppni Evrópu-
meistaramótsins f Róm, en sem
kunnugt er má hver þjóð aðeins
senda tvo þátttakendur f hverja
grein.
Auk mets Stefáns voru sett
fjögur önnur Islandsmet í fjöl-
þrautakeppni þessari og auk þess
stórbættu flestir keppendur sfn
fyrri afrek. Það var eins og
fþróttafólkið magnaði hvert
annað upp — komin var fram
skemmtileg stemmning meðal
þess, starfsfólksins og þess áhorf-
endahóps, sem fylgdist með
keppninn! allt til loka — þó
nokkuð langdregin væri, eins og
f jölþrautakeppni er jafnan.
Tugþrautarmennirnir mögnuðu
hver annan upp og bættu
allir árangur sinn stórlega
Glæsilegt tugþrautarmet
hjá Stefáni