Morgunblaðið - 24.09.1974, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1974
Tyrkneskur stjórnmálamaður:
r
□ Asælumst ekki
Kýpur
□ Viljum tryggja
Tyrkjum jafnrétti
við Grikki
TYRKNESKI stj'örnmálamað-
urinn Ahmed Ihsan Kirimli
hefur verið á ferð á Islandi og
gekk m.a. á fund Geirs Hall-
grímssonar, forsætisráðherra, I
þeim tilgangi að skýra viðhorf
Tyrkja til Kýpurmálsins. Kir-
imli er varaformaður Réttlætis-
flokksins og í framkvæmda-
stjórn hans. Hann hefur átt
sæti á þingi í 14 ár og var
samgönguráðherra um skeið.
Hann er læknir að mennt og
sérfræðingur f barnalækning-
um.
— Sumir undrast það, hvað
ég, barnalæknirinn, er að vilja
á þing, sagði hann kíminn í
upphafi samtals við fréttamann
Mbl. En þá segi ég alltaf: Á
öllum þingum heims hegða
þingmennirnir sér eins og börn
og því er eðlilegt, að kjósendur
velji barnalækni á þing. Sé
maður nógu góður fyrir börnin
— og öll börn kalla mig frænda
— þá hlýtur maður að vera rétti
maðurinn á þing!
Þá snerist talið að alvarlegri
viðfangsefnum, Kýpurdeilunni
og viðhorfi Tyrkja til hennar.
— Við erum ekki að sækjast
eftir því að leggja undir okkur
nýtt land, útskýrði Kirimli. Við
viljum aðeins tryggja Tyrkjum
á eynni öryggi og jafnrétti við
Grikki. En af íbúunum á Kýpur
eru 35% af tyrknesku bergi
brotnir. Þetta eru aðallega
bændur og hafa því yfirráð yfir
meira en helmingi ræktaðs
lands. Astæðan til þess, að við
fórum með her til Kýpur, var
sú, að við höfðum rétt til þess
samkvæmt samningunum, sem
gerðir voru í Zurich 1955. Sam-
kvæmt þeim höfðu Tyrkir,
Grikkir eða Bretar rétt til að
taka f taumana, ef aðstæður
breyttust. Og þegar búið var að
víkja Makaríosi frá, og átti að
sameina eyna Grikklandi, þá
gripum við í taumana. Okkar
markmið er sem sagt, að Kýpur
sé sjálfstætt land og tyrkneska
þjóðarbrotið hafi þar frelsi og
jafnrétti.
En af hverju treysta Tyrkir
ekki Grikkjum til að veita tyrk-
neska þjóðarbrotinu á Kýpur
jafnrétti á við griska menn? Dr.
Kirimli nefndi þrjú dæmi, sem
hann kvað sýna ótvírætt, að
Tyrkir þrifust ekki í landi, sem
stjórnað væri af Grikkjum.
— Eftir að Tyrkland fékk
frelsi 1922, voru til dæmis 90%
af íbúum Vestur-Þrakíu, sem
Grikkir stjórna, Tyrkir. En nú
eru þeir aðeins 30% íbúanna,
vegna þess að þeim er þar ekki
vært. Annað dæmi má nefna;
Eftir fyrri heimstyrjöldina
voru Tyrkir álíka margir á Kýp-
ur eins og Grikkir. Nú er tyrk-
neska þjóðabrotið aðeins 35%.
Tyrkir geta ekki lifað á Kýpur,
af því að þeir hafa þar ekki
jafnan rétt sem aðrir íbúar
eyjarinnar. Þriðja dæmið er frá
Istambúl. Þar búa nú 60
þúsund Grikkir, fleiri en þar
voru fyrir 30 árum. Þetta eru
duglegir kaupmenn og þeir
þrífast þar vel undir tyrkneskri
stjórn. Þeim líður sýnilega vel í
Istambúl og kæra sig ekkert um
að flytja þaðan. Þessi þrjú
dæmi sýna ótvírætt, að við get-
um ekki treyst þvf, að Grikkir
veiti Tyrkjum jafnrétti, þar
sem þeir ráða. Þeir vilja sam-
eina Kýpur Grikklandi. Og þeir
vilja meira. Þeir vilja gera
Anatolíu í okkar landi gríska og
ná yfirráðum yfir Istambúl.
Það sjáum við á því, að þeir
kenna börnum í skólum sínum,
að bæði Istambúl og Anatolía
eigi að vera grísk. Eftir að
Kemal AtatOrk, okkar fyrsti
forseti, sigraði þá, sömdu
þessar þjóðir frið. Atatúrk vildi
frið í Tyrklandi og í öllum
heiminum, og við erum enn
sama sinnis.
Og hvað vilja Tyrkir nú, úr
því sem komið er? — Við vilj-
um fara til friðarviðræðna í
Sviss og semja, svarar dr.
Dr. Ahmed Ihsan Kirimli.
Kirimli. Við viljum nýja
samninga, sem tryggi
tyrkneska þjóðarbrotinu á Kýp-
ur jafnan rétt á við aðra.
Hann segir, að Tyrkir geti vel
sætt sig við svipað fyrirkomu-
lag og áður var, en ekki undir
stjórn Makaríosar. — Hann
braut ákvæði stjórnarskrárinn-
ar fyrir sex árum og nú hefur
það komið honum í koll, segir
dr. Kirimli. Og hann fullyrðir,
að Tyrkir muni draga her sinn
til baka frá Kýpur, þegar
trygging sé fengin fyrir því, að
Tyrkjum verði ekki misboðið
þar. Tyrkneski herinn hafi far-
ið að vissri línu, en sfðan stöðv-
ast, segir hann, og það sanni, að
Tyrkir kæri sig ekki um að taka
eyna og halda henni. Þegar
búið sé að ganga tryggilega frá
málum, muni Tyrkir láta
Grikki hafa fuli réttindi, rétt
eins og þeir geri þegar í Istan-
búl.
Dr. Ahmed Ihsan Kirimli
kom við á íslandi á leið frá
Ottawa, þar sem hann sat fund
Atlantshafsbandalagsins, og
notaði tækifærið til að skýra
mál Tyrkja fyrir íslenzkum
stjórnvöldum. En aðrir þing-
menn hafa heimsótt aðrar rfkis-
stjórnir í sama skyni. Héðan
heldur hann heim til Istanbúl.
Rithöfundaþing
í Hásselbyhöll
Rabbað við Jennu Jensdóttur
DAGANA 9. — 14. september var
haldin svokölluð Norðuratlants-
hafsráðstefna rithöfunda f
Hásselbyhöll f Svfþjóð. Fulltrúar
komu frá norðurhéruðum Svf-
þjóðar, Finnlands og Noregs, enn-
fremur frá Grænlandi, Færeyjum
og Islandi. Sátu um 25 manns
ráðstefnuna.
Islenzku fulltrúarnir voru
Jenna Jensdóttir, Hannes Sigfús-
son og' Birgir Sigurðsson.
Guðbergur Bergsson var og
boðaður, en gat ekki komið til
fundarins.
Mbl. sneri sér til 'Jennu Jens-
dóttur og spurðist fyrir um hvaða
mál hefðu verið efst á baugi og
hverjar hefðu orðið helztu niður-
stöður.
— Á fyrri hluta ráðstefnunnar
fóru m.a. fram hringborðsumræð-
ur sagði Jenna. — Svo og fór fram
kynning höfunda. Umræður voru
um sameiginleg vandamál og rætt
um fámennari hópa í- Skandi-
navíu og möguleika þá sem þeir
hefðu til bókaútgáfu. Einnig var
fjallað um samvinnu milli útgef-
enda og höfunda og aðgerðir til að
auka skoðanaskipti milli rithöf-
unda. Rætt var um vinnuskilyrði,
kjör og samskipti við þéttbýlis-
svæðin.
Þá sagði Jenna, að niðurstöður
ráðstefnunnar hefðu verið unnar
af nefnd fulltrúa frá öllum þátt-
tökusvæðunum. Var sú ályktun
send ríkisstjórnum viðkomandi
landa. Þar er vakin athygli á
mikilvægum menningarlegum
vandamálum afskekktari héraða
og minnt á hin sérstöku
menningarverðmæti, sem þar
eru. Fram kom krafa um að
tryggður yrði sjálfsagður réttur
höfunda gagnvart rfkisvaldinu og
lögð áherzla á að höfundar fengju
greitt fyrir afnot rfkisins af verk-
um þeirra, m.a. við kennslu og
með útlánum úr bókasöfnum
Jenna sagði að í ályktuninni
væri vikið að því að rithöfundar í
norðlægum eða afskekktum
héruðum þessara landa lifðu oft
einangraðir og hefðu inikla þörf
fyrir samskipti við starfsbræður
sína, innanlands og utan. Vegna
mikilla fjarlægða og ferða-
kostnaðar væri sanngirnismál, að
rithöfundar fengju ferðastyrk frá
ríkinu.
Mikill áhugi kom fram á ráð-
stefnunni um að þýðingar á bók-
menntun Norðurlanda yrðu stór-
auknar innbyrðis. Talið var æski-
legt að Grænland fengi fastan
fulltrúa í Norræna rithöfundaráð-
inu og að grænlenzkir höfundar
nytu sömu réttinda og félagar í
Jenna Jensdóttir.
Danska rithöfundasambandinu,
en mjög skortir á að svo sé nú.
Þá var rætt um hugmyndir sem
fulltrúar Sama lögðu fram, þess
efnis að komið yrði á fót Norr-
ænni samiskri menningarstofnun.
Var samþykkt einróma að styðja
þá huginynd.
Jenna sagði að hringborðsum-
ræður hefðu verið milli fulltrúa
frá ráðstefnunni og fulltrúa frá
fjölmiðlum. Þá hlýddu þátttak-
endur á íslenzka kammertónleika.
Einnig var samkoma í Klaraleik-
húsinu og þar lásu rithöfundarnir
úr verkum sínum og íslenzku
þátttakendurnir lásu úr Ijóðum
sínum á norsku og islenzku. Síð-
asta daginn heimsóttu svo Islend-
ingarnir bókaforlög i Stokkhólmi.
Morfíni stolið
1 GÆRDAG var maður nokkur
færður í fangageymslu lögregl-
unnar í Reykjavík, enda töluvert
við skál. Við leit fundust á honum
nokkrir skammtar af morfíni.
Kom i ljós við yfirheyrslur, að
maðurinn hafði stolið morfíninu
úr bátnum Jóni á Hofi ÁR 42, þar
sem báturinn lá við bryggju i Þor-
lákshöfn. Gerðist þetta á sunnu-
daginn. Maðurinn hafði sprautað
í sig einum skammti, en afgang-
inn var hann með í vösum sínum,
þegar lögregan tók hann.
Hraunbúðir í Eyjum:
Glæsilegasta dvalarheimili landsins
Dvalarheimilið Hraunbúðir var
vfgt f Vestmannaeyjum s.l.
sunnudag við hátfðlega athöfn. Er
heimilið mjög vandað að allri
gerð og á að vera fullkomnasta
heimili af þessu tagi á landinu.
Fjöldi stórra gjafa barst heim-
ilinu frá ýmsum félögum og ein-
staklingum.
Vígsluathöfnin hófst með því,
að Björn Tryggvason, formaður
Rauða kross Islands, flutti ávarp
og rakti hin miklu og happa-
drjúgu störf Rauða krossins í gos-
málinu, en Rauði kross Islands og
Hjálparstofnun kirkjunnar hafa
látið reisa Hraunbúðir fyrir gjafa-
fé frá sex löndum, Bandarikj-
unum, Danmörku, Finnlandi,
Noregi, Sviss og Svíþjóð, og
Bæjarsjóður Vestmannaeyja lét
gera grunn hússins og lagnir
allar. Alls kostar húsið um 90
millj. kr. og er þar aðstaða fyrir
41 vistmann auk alls starfsliðs,
en húsið er um 1900 fermetrar að
stærð, þannig að um 45 fm eru á
hvern vistmann. Að loknu ávarpi
Björns tók til máls Gunnar Rog-
stad fulltrúi Hándslag til Island
og afhenti hann Vestmannaeyja-
bæ húsið, en við tók Magnús
Magnússon bæjarstjóri. Þá bless-
aði biskupinn yfir Islandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, húsið og
starfsemina, sem þar verður. Geir
Hallgrímsson forsætisráðherra
var viðstaddur vígslu Hraunbúða
og í ávarpi sínu flutti hann m.a.
heillaóskir ríkisstjórnarinnar og
lýsti þvi yfir, að innan tfðar yrði
kannað ýtarlega, hvernig staða
Viðlagasjóðs væri annars vegar
og Vestmannaeyjabæjar hins
vegar, og að stutt yrði við bakið á
Vestmannaeyingum í viðreisn
Vestmannaeyja, því það ættu
Vestmannaeyingar inni hjá þjóð-
inni. Kaffisamsæti var í kaffi-
stofu Hraunbúða að lokinni
vfgsluathöfn. Forstöðukona
Hraunbúða er Unnur Pálsdóttir
frá Vinaminni, en hún var for-
stöðukona Elliheimilisins Skál-
holts, sem hvarf undir hiaun í
eldgosinu.
Við vígslu dvalarheimilisins
Hraunbúða í Vestmannaeyjum á
sunnudag voru tilkynntar margar
gjafir til heimilisins.
Kvenfélagið Heimaey, Skáta-
flokkurinn Utlagar og Sólarfilma
s.f. gáfu sængur og sængurfatnað
í 43 rúm, 2 hjólastóla, málverk
eftir Sverri Haraldsson og blóm.
Sjómannadagsráðið f Vest-
mannaeyjum gaf 700 þúsund
krónur til lóðaframkvæmda og
gaf fyrirheit um frekari fjár-
stuðning við þær framkvæmdir.
Önefndur danskur maður gaf
300 þúsund krónur. Gjöfina af-
hendir Lionsklúbbur Hafnar-
fjarðar.
Kvenfélagið Líkn gaf rafmagns-
orgel, sjónvarp og tvær stofu-
klukkur.
Rotaryklúbbur Vestmannaeyja
gaf málverkið Alfakirkju eftir
Guðna Hermansen.
Kiwanisklúbburinn Helgafell f
Vestmannaeyjum gaf fyrirheit
um aðstoð við kaup á tækjum og
mun næstu daga afhenda þvotta-
vél og þurrkara. Ennfremur ætlar
klúbburinn að veita aðstoð í
félags- og tómstundastarfi.
Hagverk s.f. gaf málverk frá
Þingvöllum eftir Pétur Friðrik.
Fyrirtækið Heiðmundui
Framhald á bls. 31
Vistheimilíð Hraunbúðir f Vestmannaeyjum. Hafizt verður handa við lóðina innan tfðar.