Morgunblaðið - 24.09.1974, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.09.1974, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1974 Sá bezti heima — etra lið samt — Ég mun ekki geta tekið f tugþrautarlandskeppn- inrJ í Parfs, sagði Stefán Hall- sson, tslandsmethafinn f raut f viðtali við Morgun- blaðið um helgina. Stefán s.; 'i, að í tugþrautarkeppninni rðpumeistaramótinu í Róm * c >j strax komið í Ijós, að hann hefði ekki verið orðinn góC-!r af meiðslum, sem hann varð fyrir f sumar, — og það er gaman að fara meiddur út í keppni, bætti hann við, — auk óttast ég svo, að meiðslin kunni að versna ef ég reyni iega á mig, og þannig gæti ég misst úr meiri tfma við æf ingarnar en ella. •fán hefur nokkuð lengi fundið fyrir eymslum í fótvöðv- um Hann sagðist hafa hvílzt vci fyrir tugþrautarkeppnina hér heima og bikarkeppnina og verí þá orðinn sæmilegur. — Þaó var einungis í hástökkinu og langstökkinu sem ég fann til sársauka sagði hann. Þess vegna vonaði ég í lengstu lög að ég kæmist í gegnum þrautina í ói og næði þar bærilegum árangri. Það kom hins vegar í ljós strax í fyrstu greininni, þegar ég fór að reyna alvarlega á mig, að ég var engan veginn orðinn góður og síðan hélt þetta stöðugt áfram að versna, og í stökkgreinunum var það þannig, að ég fann til mikils sársauka. Var ég að hugsa um að hætta keppninni, en píndi mig áfram í 110 metra grinda- hlaupið, en þar fann ég að það þýddi ekki að vera lengur að: þessu og hætti. í Morgunblaðinu hafði komið fram að Stefán hefði dottið í grindahlaupinu og hætt þess vegna, en svo var ekki, sem að framan segir. Tugþrautarlandskeppnin í París verður síðasta stórverk- efni íslenzkra frjálsiþrótta- manna á þessu ári. Þótt Stefán verði þar ekki meðal keppenda geta íslendingar, eigi að síður, teflt fram í keppni þessari betra tugþrautarlandsliði en nokkru sinni fyrr. Elías Sveins- son, sem hlaut rösklega 7100 stig í tugþrautarkeppninni á dögunum, á mikla möguleika á að bæta sig verulega, og félagar hans: Karl West, Hafsteinn Jó- hannesson og Vilmundur Vil- hjálmsson eiga einnig allir góða möguleika á að stórbæta árangur sinn, en allir hafa þeir náð sínu bezta í tugþraut á þessu sumri. Allt á afturfótunum við undirbúning OL TVÆR stórar gryfjur er nú búið að grafa þar sem Olympfuleik- vangurinn og sundhöllinn eiga að vera á Olympfuleikunum f Montreal f Kanada að tveimur árum liðnum. Við hliðina á þess- um gryfjum er hjólreiðabraut leikanna, sem var lftið meira en hálfköruð er heimsmeistara- keppnin fór þar fram f haust. Framkvæmdirnar á Olympfu- svæðinu eru f algjörri mótsögn við næsta umhverfi þess; þar er fallegur skemmtigarður og fyrsta flokks golfvöllur. Kanadamenn eigs nú í miklum erfiðleikum við byggingu Olympíumannvirkjanna, og allt hefur reynzt þar margfalt kostn- aðarsamara en gert var ráð fyrir í upphafi, auk þess sem verkföll hafa sett mikið strik í reikning framkvæmdaaðilanna. Þegar boði Montreal um að halda sumarleikana 1976 var tek- ið fyrir f jörum árum, lýsti borgar- stjórinn, Jean Drapeau, því strax yfir, að leikarnir kæmu ekki til með að kosta einn einasta eyri fyrir íbúa borgarinnar. Afla átti fjár til framkvæmda með happ- drættum og sölu á minjapening- um og frímerkjum. Nú liggur hins vegar sú stað- reynd fyrir, að fjármagnið verður að verulegum hluta sótt í vasa íbúa Montreal og reyndar flestra Kanadabúa. Happdrættin eru reyndar í fullum gangi, og var ákveðið að hafa milljón dollara vinhing í hverjum drætti, en vinningsupphæðin var nýlega lækkuð niður í 100.000 dollara, þar sem áhugi á happdrættinu reyndist vera mjög takmarkaður. Samtímis verða svo fram- kvæmdaaðilar leikanna að glfma við þá gífurlegu verðbólgu, sem ríkir í Kanada, og óróa á vinnu- markaðinum. T.d. var búizt við því, að hjólreiðabrautin myndi kosta um 10 milljónir dollara. Hún kostar nú þegar 25 milljónir dollara, og er þó mikið ógert. Sú spurning hefur vaknað að undanförnu hjá mörgum hvort Olympíumannvirkin geti verið til- búin sumarið 1976. Allt er á eftir áætlun nú þegar, og stöðugt sígur á ógæfuhliðina. Forseti alþjóð- legu Olympíunefndarinnar, Vest- ur-Þjóðverjinn Willi Daume, fór nýlega til Montreal og sagði eftir þá ferð, að hann væri viss um, að Kanadamenn myndu sigrast á erfiðleikunum, en hins vegar blöskraði sér fjárhagshlið máls- ins, og hvað allt færi fram úr áætlun. Ætti Daume þó ekki að láta sér bregða við neina smá- muni á því sviði. Hann var aðal- maðurinn við byggingu Olymplu- mannvirkjanna í Mtinchen, sem voru fimm sinnum dýrari, en upp- haflega var ráð fyrir gert. Sá eini, sem virðist halda sæmi- lega ró sinni í máli þessu, er Drapeau borgarstjóri. Hann segir aðeins, að enginn hafi trúað því 'að Montreal gæti lokið nauðsyn- legum framkvæmdum fyrir heimssýninguna Expo 67, en mannvirkin þar eru nú hreinasta draugaborg. — Þótt allt hafi gengið heídur verr en við áttum von á, fiöfum við nægan tíma til þess að vinna það upp sem við erum á eftir, segir borgarstjórinn. — Eins og er virðast fáir trúa orðum hans, og menn telja, að það þurfi kraftaverk að koma til, svo að Montreal geti uppfyllt þau skil- yrði, sem gerð eru til Olympíu- leika, eftir aðeins tvö ár. Þannig er t.d. mjög erfitt að ímynda sér, að borgin, sem reisa á fyrir hina 10.000 keppendur, sem búizt er við að komi til leikanna, verði tilbúin á réttum tíma, þar sem nákvæmlega ekkert er farið að vinna að byggingu hennar. HAUKAR UNNU FH Haukar unnu nokkuð óvæntan sigur yfir 1. deildar liði FH í knattspyrnu, er liðin mættust f Hafnarfjarðarmótinu f knatt- spyrnu. Voru Haukarnir betri aðilinn allan leikinn og sigruðu 2:0. Það var Þráinn Ilauksson, sem skoraði bæði mörk Hauk- anna, en áður en hann gerði mörkin, hafði honum mistekist f vítaspyrnu — lét markvörð FH verja skot sitt. I fyrri leik liðanna f Hafnarfjarðarmótinu urðu úr- slitin þau, að FH sigraði, 2—0, þannig að liðin verða að leika úrslitaleik. iVfTeMBM* SKTU'R íiIÐ GLÆSILSGA HfilMSMST SÍTT - HVS LANGT A EFTIR HíiFSU "GÖMLU G0ÐIN" OHÐIO 1 P.NUHMI HLJÖP A 14:L8.8 Ahio 1928. NO HSíOI HANN OHOIi HRING A SFTIR KUTS 4 V.Kutí. IS.35.0r/45? M 138 M LFTI íi gÆ K.Kevxo ís.zv.2 — /wr fefSax, 1 69 M SFTIR .ig#; E. Por-rertANS 13.13.0 —1472 '7. Í1AKI 14,08.* -1434 ý/j6 M EFTIR NURMIHEFÐIATT HEILAN HRING EFTIR Hver man ekki eftir nöfnum eins og Zatopek og Nurmi, tveimur frægustu langhlaupurum, sem uppi hafa verið? Hvað myndu þessir kappar hafa gert í keppni við Belgfumanninn Emil Puttemans, núverandi heimsmcistara f 5000 metra hlaupi? A meðfylgjandi mynd er sett á svið hlaup á milli nokkurra fremstu langhlaupara sfðustu 50 ára og skýrir þessi skemmtilega mynd sig í rauninni sjálf. Nurmi er elztur þcssara hlaupara og hann hefði komið f mark á milli Keyno og Kutz, en það skal skýrt tekið fram að Nurmi hefði þá átt heilan hring eftir. r Islandsmót íblaki Islandsmótið í blaki veróur með svipuðu sniði og í fyrra. Undankeppni eða riðlakeppni mun hef jast um miðjan nóvem- ber og efstu liðin í hverjum riðli munu síðan leika saman til úrslita um íslandsmeistaratit- ilinn. Á ársþingi BLI nú í vor var samþykkt tillaga um að stofna 1. og 2. deild f blaki veturinn ’75—’76 og í 1. deild munu þá leika þau lið, sem komast f úr- slitakeppnina nú í vetur, og hin liðin munu leika í annarri deild. Þátttakehdum verður greint nánar frá þessu áður en mótið hefst. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjaldi kr. 3000,- þurfa að hafa borizt til BLl, pósthólf 864, Reykjavík, fyrir 15. nóvem- ber. Golfá Húsavík FVRSTA opna golfmótið á Húsavfk fór fram s.l. laugar- dag og sunnudag. Keppendur f mótinu voru 32 frá Akureyri, Ölafsfirði, Húsavfk og Hafnar- firði. Leiknar voru 36 holur, með og án forgjafar. Sigurvegari f keppni án for- gjafar varð Sigurður Héðins- son, Golfklúbbnum Keili, sem lék á 155 höggum. Annar varð Árni Jónsson frá Akureyri, sem lék á 165 höggum, og þriðji varð Halldór Rafnsson, einnig frá Akureyri, og lék hann á 166 höggum. 1 forgjafarkeppninni sigraði Jónas Geir Jónsson frá Húsa- vfk, lék á 134 höggum. Annar varð Einar Heiðarsson frá Akureyri á 136 höggum og þriðji varð Ingimar Hjálmars- son, Húsavfk, lék á 137 högg- um. Par vallarins er 163 högg. Golfvöllurinn á Húsavfk þykir mjög góður, og landslag- ið mjög f jölbreytt og fallegt. Veizlaí verðlaun S.l. laugardag fór fram hjá Golfklúbbi Ness á Seltjarnar- nesi hin svonefnda Veitinga- húsakeppni, en þar er um að ræða 18 holu keppni með for- gjöf, og eru verðlaunin veizla fyrir sígurvegarann og maka í einu veitingarhúsi borgar- innar, og var það Hótel Saga, sem gaf þessi verðlaun núna. Sigurvegari í keppninni varð Pétur Orri Þórðarson, en hann sigraði einnig í keppni, sem fram fór á Nesvellinum um fyrri helgi, en þar áttust við þeir félagar klúbbsins, sem hafa hæstu forgjöf, „24 keppn- in“ er mót þetta kallað. Lék Pétur á 94 höggum, en í öðru sæti urðu jafnir þeir Kristján ö. Kristjánsson og Jón Björns- son — léku á 106 höggum. Jón er með elztu kylfingum lands- ins, verður 75 ára á næstunni og hefur leikið golf s.l. sjö ár sér til ánægju og heilsubótar. Blak í Kópavogi Stofnfundur blakdeildar Handknattleiksfélags Kópa- vogs vcrður haldinn í Æsku- lýðsheimilinu að Álfhólsvegi 32 í Kópavogi kl. 20.30 f kvöld. Allt blakáhugafólk er velkomið á fundinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.