Morgunblaðið - 24.09.1974, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1974
17
Halldór Matthíasson:
'erpool mættust á Stamford Bridge f deildakeppninni og er það Ray
efur betur í baráttu við John Phillips, markvörð Chelsea og skorar.
Stoke á laugardaginn.
Meiðsli knattspyrnumanna
QUEENS PARK RANGERS —
NEWCASTLE 1:2:
Til að byrja með sótti Q.P.R.
miklu meira í þessum leik og kom
vörn Newcastle oft í mikla erfið-
leika. Markið lét þó á sér standa —
kom ekki fyrr en á 48. mínútu, og þá
var það sannkallað heppnismark.
Eftir pressu að marki Newcastle
skoraði Glen Keeley sjálfsmark.
Eftir mark þetta sótti Newcastle
hins vegar í sig veðrið svo um mun-
aði og tókst fljótlega að skora tvö
mörk. Mick Zurns skoraði hið fyrra
með skalla, en John Tudos hið
seinna eftir góða sendingu frá
Macolm MacDonald. Áhorfendur
voru 18.594.
LEEDS — SHEFFIELD UTD 5:1:
Hinn góði sigur, sem Leeds
United vann yfir svissneska liðinu
Zúrich í Evrópubikarkeppninni í
ið keppa nú að sæti f 1. deild að ári,
rra sterkustu f 2. deild. Þar hefur
öruggri forystu og hefur ekki tapað
sfðustu viku, virðist hafa fært liðinu
það sjálfstraust, sem svo greinilega
hefur skort hjá þvf að undanförnu.
Að minnsta kosti lék Leeds betur á
laugardaginn en liðið hefur gert f
langan tíma, og þar var heldur ekki
að sökum að spyrja. Alan Clarke var
gjörsamlega óstöðvandi í þessum
leik. Hann skoraði sjálfur tvö mörk
og átti hlut að máli, er þeir Gordon
McQueen og Terry Yorath skoruðu.
Fimmta mark Leeds kom úr víta-
spyrnu, sem Peter Lorimer tók. En
þrátt fyrir ágætan leik Leeds átti
Sheffield United liðið einnig góða
spretti en leikmenn liðsins voru
ákaflega óheppnir með skot sín.
Tvívegis small knötturinn í stöng
Leedsmarksins og einu sinni mis-
notaði Sheffiled-liðið vítaspyrnu.
Það var Bill Dearden, sem loks tókst
að skora fyrir lið sitt.
WEST HAM — LEICESTER 6:2:
Þeir 21.377 áhorfendur, sem
komu til þessa leiks urðu vitni að
fremur fátíðum atburði í ensku 1.
deildar keppninni í knattspyrnu:
Að sjá átta mörk skoruð í sama
leiknum. Þetta þótti mjög svo
skemmtilegur leikur. Bæði liðin
léku mjög stífan sóknarleik og gáfu
eftir í vörninni, þannig að það var
ekki aðeins mörkin átta, sem áhorf-
endur sáu, heldur mörg dauðafæri,
sem fóru í vaskinn. Fyrsta markið
kom á 10. mínútu er Frank
Worthington skoraði úr vítaspyrnu
fyrir Leicester. í leikhléi stóð svo
3:1 og höfðu þeir Roy Jennings og
Bobby Gould skorað mörk West
Ham. 1 seinni hálfleik skoruðu
þessir kappar báðir aftur og Robson
bætti sjötta marki West Ham við. Á
síðasta andartaki leiksins tókst svo
Worthington að skora aftur fyrir lið
sitt.
2. DEILD
Manchester United heldur
öryggri forystu í 2. deildar keppn-
inni og hefur þar ekki tapað leik
enn sem komið er. Þeir United-
menn áttu í nokkrum erfiðleikum
með Bristol Rovers á laugardaginn,
en Bristoibúarnir voru ekki á skot-
skónum og misnotuðu herfilega góð
tækifæri, sem þeir fengu við mark
United.
SKOTLAND
1 Skotlandi er staða efstu liðanna
sú, að Hibernian hefur forystu og er
með 8 stig eftir 4 leiki. Rangers er
með 7 stig, Celtic með 6 stig og
Airdrie með 6 stig. Morton er svo í
fimmta sæti með 5 stig.
í annarri deild í Skotlandi hefur
Montrose tekið forystu — er með 11
stig eftir 7 leiki en fjögur næstu lið
hafa 9 stig. Eru það: St. Mirren,
Alloa, Hamilton og East Fife.
Á síðustu 10 árum hafa orðið
miklar breytingar á meðhöndlun
smá meiðsla í knattspyrnu. Fyrr á
árum var meðhöndlunin aðallega
fólgin í algjörri hvíld en nú eru
meira notaðar raunhæfar að-
gerðir. Þetta er sérlega mikilvægt
þegar um meiðsli íþróttamanna er
að ræða. 1 mörgum löndum eru
sérstakar stofnanir, sem annast
íþróttamenn, semhafaorðiðfyrir
meiðslum, og reynsla sem hefur
fengizt þaðan, hefur einnig verið
notuð við Ifk tilfelli hjá almenn-
ingi. Eftirfarandi athuganir voru
gerðar f Noregi. A tfmabilinu 1.8.
1967 — 1.8. 1972 voru meðhöndl-
aðir alls 760 knattspyrnumenn.
Efninu var skipt í tvo hluta þar
sem markmiðið var að sá fjöldi
meiðsla, hvers konar meiðsli og í
hvaða deildum leikmenn léku,
sem meiddust. Heilsársæfingar
eru ekkLstundaðar í neðri deild-
um knattspyrnunnar og er þjálf-
unarálag, fjöldi meiðsla og kapp-
leikja meiri í efri deildunum.
Af meiðslum voru 90% á fót-
leggjum, einkum læri, hné og
ökla.
Tafla, sem sýnir hvar meiðslin
eiga sér stað: 2 2
aJ 4>
■o 73
| t-í |
1
Höfuð og háls 6 0
Hendur 30 8
Bolur 27 11
Mjöðm og læri 108 64
Hné 107 80
Leggir 56 56
öklar 109 51
Fótur neðan ökla 31 16
Alls 474 286
Meiðsli í sinum, vöðvum og
liðum eru tíð, en fjöldi beinbrota
er lítill vegna þess, að þeir, sem
fyrir því verða, fara beint inn á
spítala og eru því ekki með f
þessum athugunum. Það komu þó
8 rifbrot og 5 fingurbrot, en aðrir
komu til eftirmeðhöndlunar.
Enda þótt knattspyrna valdi oft
árekstrum eiga flest meiðsli sér
stað án þess að menn rekist hver á
annan.
Meiðsli á vöðvum innan á læri
stafa nær eingöngu af sparki
innanfótar eða þegar kljáðst er
um knöttinn. Meiðsli á vöðva
framan á læri verða bæði við
árekstra við mótstöðumanninn í
keppni um knöttinn og þegar
sparkað er í knöttinn. Meiðsli,
sem verða án árekstra, eiga sér
oftast stað í byrjun leiks, áður en
leikmaður er orðinn nógu heitur
eða i lok leiks þegar leikmaður er
orðinn þreyttur. Meiðsli á vöðvum
aftan á læri eiga sér nær alltaf
stað vegna of snögg's viðbragðs og
álags, er barizt er um knöttinn. Á
leggjum eru meiðsli mest á vöðv-
um aftan á leggnum og acnillis-
sininni. Meiðsli þar eru oft þar
sem sinin og vöðvar mætast.
Meiðsli í adduktorvöðvunum
innan á læri eru m'jog algeng hjá
knattspyrnumönnum. Sjúkdóms-
einkenni eru aðallega sársauki
við snögga hreyfingu, en þegar
hlaupið er rólega finnst mjög litið
fyrir því. Meiðslin eru oftast þar
sem vöðvi og sin mætast. Álitið er,
að nokkrir vöðvaþræðir slitni,
þegar meiðslin verða. Þar sem
meiðslin koma í hreyfingum, sem
sérlega einkenna knattspyrnu, er
endurtekningarhætta mikil ef
knattspyrnumaðurinn byrjar
aftur af fullum krafti áður en
meiðslið hefur að fullu gróið.
Reynslan sýnir, að slfk tognun
krefst minnst 3 vikna kerfisbund-
innar meðhöndlunar með innlögð-
um teygjum og styrkjandi æf-
ingum. A þessu tímabili verður að
sjálfsögðu að viðhalda úthalds-
þjálfun og kraftþjálfun annarra
líkamshluta.
Við flest vöðvameiðsli verður
töluverð blæðing inni í vöðv-
anum, sem veldur þvi, að vöðvinn
getur ekki starfað að fullu, sér-
staklega fyrstu dagana eftir
meiðslið. Meiðsli, sem liggja djúpt
i vöðva, eru mun lengur að gróa.
Hvað snertir grunn vöðvameiðsli
á læri er ekki óvenjulegt, að blóð
sígi niður i átt að hnéliðnum
nokkrum dögum eftir að meiðslið
verður. Með notkun á teygjusokk
fyrstu vikuna eftir meiðslið má f
flestum tilvikum komast hjá
þessu.
Vöðvameiðsli aftan á læri eiga
sér oftast stað í beygivöðva. í
nokkrumtilvikum er meiðslið ein-
göngu í sininni, sem kemur frá
setbeininu (tuber ischii). Þessi
meiðsli eru oftast langvinnari en
önnur, vara minnst 14 daga og
endurtekning þeirra er tiltölu-
lega algeng. Það hefur sýnt sig, að
ef vöðvarnir á öðrum fætinum
eru meira en 10% kraftminni en
á þinum er meiri hætta á slíkum
meiðslum. Mikilvægt atriði í
endurþjálfuninni er þvi kerfis-
bundin kraftþjálfun. Leikmenn,
sem meiðzt höfðu oft í vöðvum
aftan á læri, höfðu oft litinn
teygjanleika í þeim og eftir að
byrjað var að teygja kerfisbundið
samfara kraftþjálfun endurtóku
meiðslin sig mun sjaldnar.
Við meiðsli á vöðvum aftan á
leggnum (trjceps sura) voru
blæðingar venjulega inni í vöðv-
anum, blóðið hafði tilhneigingu
til að sfga niður í öklann. Þrýsti-
umbúðir fyrstu vikuna eftir
meiðsli voru mikið notaðar í
þessum tilvikum.
Af miklu er að taka, er rætt er
um meiðsli í knattspyrnu og hér
að framan hefur aðeins verið
drepið lítillega á það helzta.
Mikilvægur þáttur í endur-
hæfingu eftir íþróttameiðsli er
samstarf læknis, sjúkraþjálfara,
þjálfara og íþróttamannsins.
Kerfisbundin fyrsta hjálp, sjúkra-
þjálfun, plástrun, ásamt ná-
kvæmri leiðsögn gerir að verkum,
að fþróttamaður getur hafið
fullar æfingar fyrr en ella. Fyrir
íþróttamanninn hefur það mikla
þýðingu, en ennþá mikilvægara
er, að svipuð meðhöndlun meiðsla
hjá- almenningi getur stytt veik-
indatímann.
Þjálfar sumt af bezta i|)róttafólki Dana
— Ég kann ágætlega við mig
hérna og það hefur verið
gaman að starfa með þessu
fólki, sagði Ólafur Unnsteins-
son íþróttakennari, er Mbl. hitti
hann að máli f Kaupmannahöfn
nýlega, en þar starfar nú Ólaf-
ur sem íþróttaþjálfari hjá AK
73 og hefur með að gera margt
af efnilegasta frjálsíþróttafólki
Dana. Auk þess var svo Ólafur
við nám í iþróttakennslu s.l.
vetur og hyggst hann halda því
áfram í vetur, auk þess sem
hann mun starfa sem kennari
og þjálfari. — Það er að mörgu
leyti betra að starfa hér sem
íþróttakennari en heima, sagði
Ólafur, — bæði er húsrýmið
Ólafur Unnsteinsson.
betra og stærra og eins eru
launin miklu betri og kennslu-
skyldan minni.
Og víst er, að forystumenn
AK 73 eru hinir ánægðustu
með að Ólafur ætlar sér að
dvelja áfram i vetur. — Við
erum mjög ánægðir með Ólaf
og erum vissir um, að hann á
mikinn þátt í þeim framförum,
sem íþróttafólk okkar hefur
sýnt í sumar, sagði formaður
félagsins, Niels-Chr. Bendixen.
Annars er það um félagið,
sem Ólafur starfar hjá, að
segja, að það var stofnað á s.l.
ári og gengu þá í það margir af
beztu frjálsíþróttamönnum
Dana. Þekktastur þeirra er þó
sennilega Gert Kærlin, en hann
á Danmerkurmet í 3000 metra
hlaupi (7:52,4 mín.,) og í 5000
metra hlaupi (13:40,0 mín.).
Ólafur sagði, að aðstaðan
væri mjög góð hjá félaginu, en
hann þjálfar tæknigreinarnar
og spretthlaup. — En hún mun
svo batna verulega næsta ár,
sagði hann, — er tartan verður
sett á Österbrostadion, sem er
heimavöllur AK 73. — Nú er
svo komið, að helztu fþrótta-
stjörnurnar hér í Danmörku
neita að keppa á mótum ef ekki
er tartan á völlunum. Má þar
nefna Evrópumeistarann í há-
stökki, Jesper Törring. Eins og
er þá eru ekki nema tveir
tartapvellir í Danmörku:
Aarhus Stadion og Lyngby
Stadion. Næstu vellir, sem fá
tartan, eru Österbrostadion í
Kaúpmannahöfn og Skovdalen
í Aalborg.
— Þetta hefur gengið mjög
vel hjá okkur, sagði Ólafur,
þegar hann var inntur eftir
árangri nemenda sinna. — Á
innanhússmeistaramótinu s.l.
vetur, sem haldið var í Ollerup,
hlaut AK 73 meistarastig í 4
greinum. Kay Pedersen jafnaði
danska metið í 60 metra hlaupi,
hljóp á 6,7 sek., og sigraði auk
þess í þrfstökki, stökk 14,13
metra. Margit Hansen setti tvö
Danmerkurmet í 60 metra
hlaupi og í 60 metra grinda-
hlaupi. Á meistaramóti Dan-
merkur utanhúss hlaut félagið
fjögur meistarastig og átta
önnur verðlaun. AK 73 átti svo
Kaupmannahafnarmeistara í
sjö greinum.
Ólafur sagði, að helztu stjörn-
ur félagsins fyrir utan Gert
Kærlin væru Margit Hansen,
sem nýlega hefði sett met í 100
metra grindahlaupi, hlaupið á
13,78 sek., og komizt í undanúr-
slit á Evrópumeistaramótinu í
Róm, Andreas Hasle, sem er 19
ára tugþrautarmaður og bætti
hann árangur sinn úr 6306
stigum í 7023 stig milli ára og
Kay Pedersen, sem nú er að
verða bezti spretthlaupari Dana
og hefur t.d. jafnað metið í 100
metra hlaupi með því að hlaupa
á 10,5 sek. — Það má segja,
sagði Ólafur — að eina félagið f
Danmörku, sem hefur á að
skipa frægari stjörnum en AK
73, sé Skovbakken í Árósum en
í því félagi eru þeir Jesper
Törring og Tom B. Hansen.