Morgunblaðið - 24.09.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ^ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1R74
21
Fréttabréffrá
Mf/kjunesi:
Fé vænt,
vegir leiðir
Mykjunesi 1 4. sept.
Enda þótt nú sé farið að hausta,
stendur ýmis gróður með sumar-
blóma ennþá T.d. er kartöflugras
ófallið og óborin tún í góðri rækt.
Hitt leiðir svo af sjálfu sér, að nætur
eru orðnar dimmar og kominn snjór
í hæstu fjöll, enda hefur verið úr-
komusamt nú um sinn. Féð hefur
leitað af fjalli og margt hefur verið
sótt á Landmannaafrétt er komið var
niður að girðingunni. Fjallferð hefst
hér ekki fyrr en um 30. þ.m og
Landréttir eru 27. sept og er það
eins seint og orðið getur, því fjall-
ferð hér er frá fornu fari bundin
ákveðnum vikudegi og hefur ekki
verið breytt. Talið er að fé það sem
heim er komið sé mjög vænt. Rétt-
irnar eru alltaf stórviðburður bæði I
borg og bæ og margir eru þeir er
eiga ánægjulegar minningar bundn-
ar þeirri stund, er féð kom af fjalli.
Slátrun hefst hér í sýslu nú næstu
daga og má búast við að slátrun
verði með mesta móti og má gera
ráð'fyrir, að henni Ijúki ekki fyrr en í
októberlok, þá hefst hrossaslátrun,
þannig að sláturtíðin stendur trúlega
fram I miðjan nóvember.
Innan tíðar hefur barnaskólinn að
Laugalandi starfið, ekki munu verða
miklar breyýngar á kennaraliði skól-
ans. en gert er ráð fyrir að auka
húsrými skólans um eina skólastofu,
því þótt skólinn væri talinn nokkuð
við vöxt er hann var reistur á ár-
unum fyrir 1960 er hann nú búinn
að slíta af sér öll bönd.
Vegir eru hér holóttir og leiðir
yfirferðar. Þess má þá geta, að á
stuttan kafla í Flóanum er búið að
leggja slitlag úr olíumöl, en nú
standa yfir framkvæmdir við varan-
lega uppbyggingu hluta Flóavegar-
ins. Má segja, að muni um hvern
þurrtlunginn er við bætist af góðum
vegi Því ekki er alveg laust við að
einstaka maður hafi orð á þvi að nú
sé orðið dýrt að aka bil. Mikið er nú
gert að þvi að sá grasfræi í vegkanta
og flög meðfram vegum; er þetta
mjög þörf framkvæmd. Búfénaður
sækir að sjálfsögðu mjög i þennan
gróður og getur að þvi leyti skapað
nokkra hættu fyrir fénaðinn. Trúlega
verður að því stefnt í framtíðinni að
girðingar komi með þjóðvegum í
byggð; því fyrr sem það verður því
meira öryggi verður fyrir fénaðinn
og umferðina.
M.G.
Viðlagasjóður skýri frá hverjir
hafafengið féúrsjóðnum
HtJSEIGENDAFÉLAG Vest-
mannacyja hélt fund I Eyjum 14.
sl€pt 3.1. þar sem kom fram hörð
gagnrýni á aðferðir Viðlagasjóðs
við bótagreiðslur til Vestmanna-
eyinga.
Færeyski dýrtíðardraugurinn
ekki eins magnaður og okkar
A fundinum var samþykkt að
skora á stjórn Viðlagasjóðs að
fellt verði niður lækkun tjóns-
mats á húseignum í Vestmanna-
eyjum vegna fýrningar. Þá verði
tjónsmatið miðað við verðlag á
þeim tíma, sem matsgerð er lokið,
og bætur greiddar af Viðlagasjóði
um leið og matsgerð lýkur. Þá
verði tjónþolum látið í té afrit af
matsgerðum.
Ennfremur skorar Húseigenda-
félagið á stjórn Viðlagasjóðs að
láta fara fram mat dómkvaddra
manna samkvæmt heimild 40. gr.
2. mgr. reglugerðar um Viðlaga-
sjóð, á ræktun, girðingum, stétt-
um og öðrum mannvirkjum til-
heyrandi húseignum, sem fóru
undir hraun f eldgosinu og bætt
eru sem ónýt, og eigendum
greiddar bætur fyrir umfram
brunabótamat.
Þá mótmælir Húseigendafé-
lagið aðferð stjórnar Viðlagasjóðs
að greiða tjónabætur fyrir at-
vinnuhúsnæði með 15 ára skulda-
bréfum og skorar á stjórn Við-
lagasjóðs að greiða nú bætur í
peningum, svo að jöfnuður náist
við bótagreiðslur fyrir íbúðarhús-
næði.
Seyðisfirði 21. sept.
I GÆRMORGUN kom skuttog-
arinn Gullver inn með 75 tonn af
fiski eftir viku veiðiferð. Skipið
er nýkomið úr mikilli viðgerð, og
er þetta fyrsta veiðiferðin eftir
klössunina. Enda þótt Gullver sé
aðeins 6 ára gamalt skip, þurfti að
skipta um aðalvél. Nýja vélin,
sem er 1375 hestafla af Wichman-
gerð, var sett f skipið f Skála f
Færeyjum. Jafnframt var skipið
tekið í gegn hátt og lágt og það
málað, m.a. skipt um lit á þvf.
Skipasmíðastöðin í Skála virðist
leysa sín verk vel af hendi, þrátt
fyrir að hún eigi við sömu erfið-
leika að glfma og íslenzkar
stöðvar. Afhending aðalvélar
tafðist, og var því ekki hægt að
setja hana niður fyrjr sumarfrí.
Sennilega verður þetta nokkuð
dýr viðgerð, enda dýrtfðardraug-
urinn í fullum gangi í Færeyjum
eins og víðar enda þótt hann sé
ekki eins magnaður og okkar.
Síðan Gullver kom til landsins,
hefur það reynzt hið mesta happa-
skip, enda skipshöfnin dugleg og
samhent. Þessi fyrsta veiðiferð
bendir til, að sótt verði f fiskinn
af kappi og áhöfnin er ánægð með
viðgerðina.
Fiskirí hefur verið sæmilegt í
sumar og vinna verið ótrúlega góð
hagsmuna
yðar
og
velferð
bflsins
Hafið þér athugað hvað selta og raki vetrarins getur
gert bílnum.
TECTYL
fyrir undirvagninn strax.
Er erfitt að koma bílnum í gang?
TECTYL
er líka rakavörn fyrir kveikjukerfi.
Dragið ekki lengur að panta tíma.
Þér sparið að minnsta kosti 30% af verði bílsins, sem
annars myndi falla vegna ryðs.
Ry ðvarnarþjón ustan,
Súðarvogi 34,
sími 85090.
í frystihúsunum þrátt fyrir þetta
mTkla.óhapp með vélina f Gullver.
Það sem hefur breytzt .mest er
línufiskiríið. I mörg ár hefur
ekkert þýtt að róa með línu að
sumri til, en í sumar hafa þeir
fengið svolítið kroþp á lfnuna og
yfirleitt hefur fiskirí verið sæmi-
flegjt. Enda hefur ótrúlega mikill
fiskur komið á land af þessum fáu
bátum, sem héðan eru gerðir út.
Frystiklefar eru alveg að fyllast,
og hafa afskipanir verið óvenju
fáar í sumar.
— Svéinn.
ÞURRKAÐUR
HARÐVIÐUR:
TEAK — EIK
OREGONPIIME
Ath. Söluskattur hækkar 1. októbern.k.
W TIMBURVER2LUNIN VÚLUNDUR hf.
Klapparstíg 1, Skeifan 1 9
Símar: 18430—85244.
DRnSSHðll
siuniDSsonnn
Barnaflokkar —- unglingaflokkar. Flokkar fyrir fullorðna einstaklinga.
Flokkar fyrir hjón. Byrjendur og framhald.
Innritun daglega frá kl. 1 0—1 2 og 1 —7.
REYKJAVÍK.
Brautarholt 4 símar 20345 og 25224.
Árbær simi 84829
Breiðholt. Kennt verður i nýju húsnæði að Drafnarfelli
2—4 simi 27524.
KÓPAVOGUR.
Félagsheimilið simi 38126.
HAFNARFJÖRÐUR.
Góðtemplarahúsið sími 84829.
SELTJARNARNES.
Félagsheimilið sími 84829
KEFLAVÍK.
Tjarnarlundur simi 1690 kl. 5—7.
UNGUNGAR.
Allir nýjustu táningadansarnir svo sem:
Suzie Q, Junes Funky, Bongo Rock, Macky Messer, Football, Spider
Pelican, Street Walk og fl.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS