Morgunblaðið - 24.09.1974, Blaðsíða 32
Jflorjyuut>lat>i&
RUCIVSinGRR
<±,<,-«»22480
GNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1974
Símað frá Halamiðum:
„Bretarnir dansa
um friðuðu hólfin,,
ISLENZKIR skipstjórar á Vest-
fjarðamiðum höfðu samband við
Morgunblaðið s.l. sunnudag til
þess að kvarta yfir því, að brezkir
togarar voru þá óáreittir á veiðum
innan lokaða hólfsins á Stranda-
grunni. Jóhann Sigurgeirsson
skipstjóri á skuttogaranum
Skafta talaði við okkur beint frá
Halamiðum: „Ég hringi til ykkar
fyrir skipstjórana hérna vegna
lokaða hólfsins á Strandagrúnni,
en hér á Halamiðunum og austan
við Halann eru 12 íslenzk skip.
Málið er það, að við höfum kært
til landhelgisgæzlunnar 6 brezka
togara, sem voru að veiðum í
þessu friðaða hólfi í morgun, og 7
togarar eru nú á leiðinni þangað.
Einn ísienzki skipstjórinn hérna
hafði samband við íslenzkt land-
helgisgæzluskip, og þeir kváðust
ætla að hafa samband við yfir-
stjórn landhelgisgæzlunnar í
landi. Okkur þykir skrýtið, að
varðskipið skuli ekki geta farið á
vettvang í slíku máli án þess að
hafa samband við land. Þá höfum
við einnig kvartað undan þremur
þýzkum togurum, sem verið hafa
á Halamiðum innan landhelginn-
ar, en þar eru þeir alltaf annað
kastið. Einnig má geta þess, að við
höfum látið gæzluna vita af brezk-
um togara, sem var að veiðum
5—6 sjómílur innan 12 mílna
markanna í Reykjafjarðarál, en
hann var farinn, þegar gæzluflug-
vélin kom á vettvang. Hún fór þá
hins vegar i það að stugga við
einum 30 Bretum, sem voru þarna
í hólfinu um mánaðamótin júli-
ágúst. Þetta hólf er svo til allt
Strandagrunnið og Hornbankinn,
en suð-austurhornið er 22 mílur
frá Geirólfsgnúp og suðvestur-
hornið er um 19,5 mílur frá Horn-
inu. Það hefur verið lokað frá 15.
júlí, en við erum allsárir út af
þessu. Bæði er það, að með þessu
er tekið af okkur mikið haust-
veiðisvæði með góðum fiski, mest
þorski og einnig ýsu, og svo hitt,
að Bretarnir ganga í þetta trekk í
trekk. Upphaflega var það gefið
út, að þessu hólfi væri lokað
vegna smáfiskadráps, en við vit-
um, að enginn smáfiskur fannst í
íslenzku bátunum, hvað svo sem
fannst í brezku togurunum, sem
einnig voru kannaðir, en það höf-
Framhald á bls. 31
Hér eru þeir Johan Vitus-Zachariasen skipstjóri á Kongshavn og Agúst
Jónsson skipstjóri á Múlafossi saman í káetu Ágústar eftir komuna til
Helsingjaborgar. Sfmamynd K.V.P.
Mikil hálka
Akureyri
a
Akureyri
23. september
FYRSTA snjó haustsins festi á
láglendi 1 nótt, en undanfarna
daga hefur snjóað f fjöll. Snjór-
inn hefur spillt færð á ýmsum
fjallvegum og gert gangnamönn-
um erfitt fyrir.
Mikil hálka var á götum Akur-
eyrar í morgun, ýmsir bíleigend-
ur vöruðust þetta ekki, heldur
héldu til vinnu sinnar á sumar-
hjólbörðum. Margir gáfust upp á
miðri leið, en aðrir héldu áfram,
upp á von og óvon. Þetta varð til
þess, að bílar runnu stjórnlaust í
brekkum, þar sem götur eru mal-
bikaðar, en þar var hálka mest.
Bílarnir áttu þá til að rekast á.
Lentu jafnvel margir í eina kös
sums staðar, t.d.á mótumÞórunn-
arstrætis og Glerárgötu, en þó
urðu engin meiðsli á mönnum og
furðulitlar skemmdir á bílunum,
mest smádældir og rispur, enda
bílarnir ferðlitlir og runnu rólega
undan brekkunum af eigin
þunga.
Þegar nær dró hádegi, tók að
gæta sólbráðar og þá dró fljótlega
úr mestu hálkunni.
— Sv. P.
Áhöfnin á Kongshavn, nema skipstjórinn, Talið frá vinstri Sigmar
Jacobsen, Moens Höjgaard, Hanne Höjgaard og Reynold Rasmusen.
Sfmamynd K.V.P.
Uppsagnir
samninga
farnar að
berast
VERKAMANNAFÉLAGIÐ Dags-
brún samþvkkti á fundi á sunnu-
dag að félagið segði upp samning-
um sfnum, sem undirritaðir voru
hinn 26. marz f vor, er heildar-
kjarasamningar voru gerðir.
Aður hafði Trésmiðafélag
Reykjavíkur ákveðið að segja upp
samningum og f gærkvöldi var
fundur f Félagi járniðnaðar-
manna, þar sem taka átti ákvörð-
un um uppsögn samninga.
Bjöm Jónsson, forseti Alþýðu-
sambands Islands, sagði í viðtali
við Mbl. f gær, að sambandið
hefði ekki neitt yfirlit yfir þau
Framhald á bls. 31
Beinagrind
finnst á
Tröllahálsi
Gangnamenn úr Þingvallasveit,
sem voru í göngum á sunnudag,
gengu fram á beinagrind af
manni á svonefndum Tröllhálsi,
sem er nokkuð fyrir norðan
Ármannsfell, skammt frá vega-
mótum Kaldadalar og Uxa-
hryggjar.
Ekki er vitað af hvaða manni
beinagrindin er, en fyrir nokkr-
um árum týndist maður á þessum
slóðum, og fannst ekki þrátt fyrir
ítarlega leit. Blaðinu tókst ekki að
fá ítarlegar fréttir af fundinum i
gærkvöldi.
Múlafoss bjargar 5 Færeyingum:
„Vorum 2 sjómílur frá Kongs-
havn er við sáum flugeldana”
— segir Agúst Jónsson skipstjóri á Múlafossi
„BJÖRGUN mannanna gekk
mjög vel og sem betur fer hafði
enginn þeirra meitt sig, nema
hvað skipstjórinn hafði hruflað
sig á fæti, þegar þeir voru að setja
björgunarflekann á flot,“ sagði
Ágúst Jónsson, skipstjóri á Múla-
fossi, en Ágúst og skipverjar hans
björguðu f gærmorgun 5 færeysk-
um sjómönnum f Kattegat, þegar
skip þeirra, Kongshavn, var orðið
alelda. Múlafoss hélt með Færey-
ingana til Helsingjaborgar f Svf-
þjóð, en þar fóru Færeyingarnir f
land. Fyrstu fréttir af atburðin-
um voru þær, að Múlafoss og
Kongshavn hefðu lent f árekstri
og eldur komið upp við það f
Kongshavn. Er betur var að gáð,
reyndist þetta rangt, en dönsku
f jölmiðlarnir sögðu flestir þannig
frá atburðinum f gærmorgun.
Þegar við höfðum samband við
Ágúst um borð í Múlafossi í gær,
var skipið farið frá Helsingjaborg
á leið til Kristiansand f Noregi, en
skipið er væntanlegt til Reykja-
víkur eftir vikutíma eða svo.
„Við vorum á leið til Helsingja-
borgar frá Odda í Noregi,“ sagði
Agúst, þegar við ræddum vi.ð
hann. „Um kl. 20.10 í fyrrakvöld,
þegar við á Múlafossi vorum
staddir undan Fredrekshavn, urð-
um við varir við, að fjórum
neyðarflugeldum var skotið upp
u.þ.b. 2 mílur suður af okkur. Við
settum strax á fulla ferð og er við
komum á staðinn, fundum við
strax björgunarfleka með fimm
mönnum á, en skip þeirra var þá
orðið að mestu alelda. Við snerum
skipinu og létum það síðan reka
að björgunarflekanum, og náðum
við mönnum um borð fljótt og vel.
Veður var sæmilegt, 5—6 vind-
stig, bjart og frekar sjólítið.
Eini maðurinn, sem var eitt-
hvað slasaður, var skipstjórinn
Johan Vitus-Zachariasen, en hann
hafði orðið á milli með annan
fótinn, þegar verið var að losa
björgunarflekann. Skipbrots-
mönnunum var strax veitt góð
aðhlynning, en við fylgdumst síð-
Framhald á bls. 31
Islenzkar flugfreyjur:
Urðu vitni að morðum
FYRIR nokkrum dögum yrðu
þrjár fslenzkar flugfreyjur Loft-
leiða vitni að skotárás í Chicago,
og þegar yfir lauk, lágu tveir
menn í valnum. Atburður þessi
varð í aðalgötunni, State Street í
miðborg Chicago, en flugfreyj-
urnar voru þar á gangi.
Við töluðum við eina flugfreyj-
una, og er eftirfarandi frásögn
hennar: „Við heyrðum skyndilega
þrjá skothvelli, sem komu beint
handan götunnar, sem við vorum
á. í sömu andrá komú tveir svert-
ingjar hlaupandi út úr skartgripa-
verzlun, sem þar er, og veifuðu
þeir byssum. Dokuðu þeir þó við
Framhald á bls. 31
Þessi rós, sem stendur f skrúðgarðinum á Akureyri, hefur sjálfsagt ekki átt von á, að veturinn gengi
svona snemma í garð, þvf þegar snjórinn kom, var hún að mestu í fullum skrúða. Ljósm. Mbl.: Sv. P.