Morgunblaðið - 11.10.1974, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1974
Umsjón: Jón Magnússon og
Sigurður Sigurjónsson
Heimdallur
öflugasta
félag ungra
sjálfstæðismanna
Að hvaða verkefnum starfar
Heimdallur?
HEIMDALLUR er kjördæma-
samtök ungra sjálfstæðismanna
í Reykjavík. Heimdallur er
fyrst og fremst stjórnmálafélag
ungs fólks, sem starfar í anda
sjálfstæðisstefnunnar. I fyrstu
stefnuskrá félagsins frá 1931
var sú grundvallarhugsun orð-
uð þannig, að markmið félags-
ins sé að berjast fyrir þjóðlegri
og víðsýnni framfararstefnu til
hagsbóta öllum þegnum þjóð-
félagsins. Þetta markmið hefur
félagið haft að leiðarljósi og
þrátt fyrir breytta þjóðfélags-
hætti stendur það óhaggað. Við
i Heimdalli teljum, að stjórn-
málin ráði meira um framtið
æskunnar en flest annað. Þess
vegna viljum við glæða áhuga
ungs fólks á stjórnmálaþátt-
töku og efla fræðslu og þekk-
ingu á þjóðmálum. Því byggist
starf Heimdallar á fræðslu-
fundum, starfshópum, ráð-
stefnum, blaðútgáfu og al-
mennri félagsstarfsemi. Á síð-
astliðnu ári voru haldnir fundir
um ýmis félagsmál, skattamál,
um „heimsmynd Henry Kiss-
ingers", sjálfstæði Reykjavíkur
og annarra sveitarfélaga, hús-
næðismál og í framhaldi hans
var stofnað byggingafélag ungs
fólks, — Byggung —. Tveir
fulltrúaráðsfundir voru haldnir
á starfsárinu, og gengist var
fyrir ráðstefnu um stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins. Leshring-
ir voru haldnir um utanrfkis-
mál og borgarmál. Málfunda-
námskeið var eftir áramótin.
Auk árshátíðar voru haldin-
nokkur skemmtikvöld til að
hressa upp á sálina og tvær
gönguferðir það var önnur á
Esju en hin á Hengil.
Fyrir borgarstjórnarkosning-
ar gaf félagið út sérstakt blað,
„Ungt fólk“, sem dreift var á
hvert heimili I borginni. Heim-
dallur hélt tvö skemmti- og
kynningarkvöld með ungum
frambjóðendum. Um þrjú þús-
und ungmenni tóku þátt í kynn-
ingarkvöldunum. Félagið ann-
aðist um útgáfu á fjórblöð-
ungi í Morgunblaðinu undir
fyrirsögninni „Með ungu
fólki". Klúbbfundur var hald-
inn í vor, sem fjallaði um hvað
framundan væri hjá Sjálf-
stæðisflokknum. Þá var hald-
inn útifundur við sovézka
sendiráðið í tilefni brottvísunar
Nóbelshöfundarins Solzhenit-
syn frá föðurlandi sínu og af-
hent þar ályktun um málið frá
stjórn Heimdallar. Þá voru gel-
in út 4 viðskiptablöð í fjár-
öflunarskyni. t Heimdalli eru
nú rúmlega 3000 félagar, þar af
gengu í félagið um 430 á árinu.
Hver er staða Heimdallar
innan Sjálfstæðisflokksins?
Samkvæmt skipulagslögum
Sjálfstæðisflokksins á formað-
ur félagsins sæti I stjórn full-
trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík. Þá á Heimdallur
rétt á að tilnefna í flokksráð og
skipa landsfundarfulltrúa.
IIMHORF
Már Gunnarsson, formaður
Heimdallar
Rætt við Má
Gunnarsson,
formann
Heimdallar
Þannig er ungu sjálfstæðis-
fólki gefinn kostur á að hafa
áhrif á stefnumörkun Sjálfstæð
isflokksins. I stuttu máli má
segja, að Heimdallur sé hluti af
Sjálfstæðisflokknum og njóti
sömu réttina og aðrar flokks-
deildir. Styrkur Heimdallar
innan flokksins fer eftir þvf,
hve öflug samtökin eru á hverj-
um tíma og það er ótvírætt, að á
öllum tfmum hefur Heimdallur
í samvinnu við önnur félög
ungra sjálfstæðismanna haft
veruleg áhrif á stefnu flokks-
ins.
Nýtur félagið fjárframlaga
frá Sjálfstæðisflokknum?
Nei. Ekki að öðru leyti en því,
að við höfum skrifstofuaðstöðu
í Galtafelli.
Hvað fær þá félagið fé til
starfseminnar?
Með félagsgjöldum, auglýs-
ingablöðum og fjáröflunardans-
leikjum. Með sjálfboðaliðs-
starfi er leitazt við að halda
kostnaði við félagsstarfið í lág-
marki, en þess má geta að
fjárskortur hefur háð starf-
seminni töluvert, svo lengi sem
ég man.
Hvernig er aðstaða til félags-
starfsemi?
Hún er ekki góð, þar sem alla
meiri háttar fundi verður að
halda í samkomuhúsum borgar-
innar, sem taka leigu fyrir.
Starfshópar og fámennari
fundi höldum við aftur á móti f
Miðbæ eða Galtafelli.
Eru Ifkur á að breytingar
verði á þessu á næstunni?
Já, við bindum miklar vonir
við nýja Sjálfstæðishúsið við
Bolholt.
Breytist starf félagsins, þeg-
ar Sjálfstæðisflokkurinn er f
stjórnarandstöðu?
Starf félagsins verður sjálf-
sagt með svipuðum hætti, en
við ættum að eiga greiðari að-
gang með að koma skoðunum
okkar á framfæri og hafa áhrif
á gang mála.
Að hvaða málum ætlar félag-
ið að vinna f vetur?
Starfið í vetur mun sjálfsagt
byggjast upp með svipuðum
hætti og á síðastliðnu starfsári.
Jafnframt verður fylgt eftir
málum, sem þá var hrundið af
stað, en ekki eru í höfn enn þá,
t.d. stefnuskrármál, húsnæðis-
mál og byggingarfélag ungs
fólks.
Höfuðverkefni félagsins er
vitanlega að fá ungt fólk til að
styðja Sjálfstæðisflokkinn og
taka virkan þátt í störfum hans
og stefnumótun.
Philip Jenkins
Philip
Jenkins
leikurhjá
Tónlistar-
félaginu
A laugardaginn 12. október kl.
14.30 verða haldnir f Austur-
bæjarbfói þriðju tónleikar vetrar-
ins fyrir styrktarfélaga Tónlistar-
félagsins.
Listamaðurinn, sem nú kemur
fram, er Philip Jenkins, píanó-
leikari, en Philip kemur frá
London, þar sem hann er bú-
settur. Hann starfar nú við
kennslu við Royal Academy of
Music. Á undanförnum árum
hefur Jenkins búið á Akureyri og
meðan hann bjó þar vann hann
frábært og árangursríkt starf sem
píanóleikari og kennari við Tón-
listarskólann. t frétt frá
Tónlistarfélaginu segir, að vakið
hafi athygli hve Jenkins hafi látið
sér annt um framgang íslenzks
tónlistarlífs.
A efnisskránni á tónleikunum á
laugardaginn eru verk eftir Bach,
Mozart, William Alwyn, Gabriel
Fauré, Chopin og Prokoieff.
PP
wmr
NÝTÍZKULEG SAMSTÆÐÁ: FRÁBÆR HÖNNUN; ÞÆGILEG OG
FALLEG; GEFUR STOFUNNIvNYJAN SVIP.
/T\ HÚSGAGNAVERZlfXT
ÍÁZr* kristiAns siggeirssonar hf.
+ r p .— —' —, .--------------
Laugavegi 13 Reykjavik simi 25870
Ætlar sér að ná í
háhyrning þótt það
kosti milljónir kr.
EINS OG frá hefur verið skýrt I
blaðinu er nú á Hornafirði stadd-
ur maður frá Marland dýragarð-
inum við Nice f Frakklandi, og
hefur hann boðið mönnum 1,2
millj. kr. fyrir lifandi háhyrning.
Hann hefur sagt, að hægur vandi
sé að ná lifandi háhyrningi við
Island, en til þess þurfi hann sér-
staka deyfilyf jasprautu, sem
væntanleg er til landsins á næst-
unni.
Síðu- og rif-
beinsbrotnaði
í umferðarslysi
Bæ 9. október
UNDANFARIÐ hefi^r mikið ver-
ið um bifreiðaóhöpp hér og f ein-
staka tilvikum hefur orðið slys á
fólki.
í fyrradag valt vörubíll hér í
sveitinni, en bílstjórinn meidd-
ist lítið. Þá var aftanákeyrsla í
fyrrakvöld. Lentu þá saman tveir
fólksbílar og köstuðust út af veg-
inum. í öðrum bílnum voru tveir
menn, og kastaðist annar þeirra
Sagði hann tfðindamanni blaðs-
ins á Höfn, að hann væri ákveð-
inn f að ná hér lifandi háhyrn-
ingi, og ef það tækist ekki núna,
kæmi hann með sérstakan bát til
þess næsta sumar. En starf þessa
manns er að veiða hvali fyrir
dýragarða. 1 Marland dýragarð-
ingum við Nice er nú einn há-
hyrningur og er hann ákaflega
vel taminn. Hann leikur sér t.d.
að þvf að láta fólk sitja á bakinu á
sér og synda með þannig.
út og varð undir bílnum. Hann
síðu- og rifbeinsbrotnaði. Félagi
hans skarst eitthvað, en ekki
alvarlega.
1 morgun var svo tilkynnt um
bruna á bænum Sólgörðum í
Fljótum. Slökkviliðið á Hofsósi
hélt þegar áleiðis, en áður en það
var komið alla leið, var búið að
slökkva eldinn.
Björn.