Morgunblaðið - 11.10.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.10.1974, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKT0BER 1974 Óháði söfnuðurinn: Kirkju- dagur á sunnudag Hinn árlegi kirkjudagur Óháða safnaðarins er næsta sunnudag, 13. október, og hefst dagskráin með guðsþjónustu klukkan 2. Eftir messu og fram að kvöld- verðartíma hafa konur úr kvenfé- lagi kirkjunnar veizlukaffi á boð- stólum í Kirkjubæ, og eru allir kærkomnir þangað eins og á undanförnum árum. Klukkan 5 þennan dag verður jafnframt kaffiveitingunum barnaskemmt- un inni í kirkjusalnum með lit- myndasýningu, og er öllum heim- ill aðgangur. Snemma á næsta ári á kirkju- söfnuður vor, Óháði söfnuðurinn, 25 ára starfsafmæli, og 15 ár eru liðin síðan safnaðarkirkjan var vígð, á sumardaginn fyrsta 1959. Þegar á öðru starfsári safnaðar- ins, 1951, héldum vér hátíð, nefndum hana Kirkjudag og helg- uðum daginn innri sem ytri starf- seini í þágu kirkjuhugsjónar vorr- ar. Kirkjudagurinn varð því snemma starfshvatardagur. Þá notuðum vér tækifærið og eggjuð- um hvert annað til samheldni og samstarfs. Á fyrstu árunum áttum vér eigi þak yfir höfuðið en reistum stundum tjaldbúð á fyrir- huguðum kirkjustað og messuð- um þar á kirkjudögum. Og kirkjan reis þarna fyrr en varði, spratt beinlínis upp af þessu starfi tiltölulega fámenns hóps með tvær hendur tómar. Hún var byggð í nýjum stfl með þá starf- semi í huga, sem þarna átti að fara fram, án alls prjáls. Þannig varð hún skilgetið afkvæmi sinnar aldar í byggingarstíl. En margir, sem fóru um veginn, hristu höfuð sín og viku jafnvel að oss glósum varðandi þetta byggingarlag, eins og gengur ef brugðið er út af vana. En ekki ber allt upp á sama dag. Lada Topas árg. 1973. Til sölu Lada Topas árg. '73. Bíll í sérflokki. Góðir greiðsluskilmálar. Biireiðar & Landbúnaðarvélar hi AriariMMkrMM U - ReyUavft - SM 3S8M Electrolux Vörumarkaðurinn hf. ÁRMÚLA 1A, SÍMI 8 6112, REYKJAVÍK. ■xri JMi Nú hefur arkitektanefnd, sem starfaði á vegum Fegrunarfélags Reykjavíkur, tilnefnt þessa litlu kirkju sem eitt af ellefu „fal- legustu mannvirkjum“ Reykja- víkurborgar á 1100 ára afmæli byggðar í landinu. Þessa viður- kenningu metum vér ekki sízt vegna þess, að arkitektarnir sjálfir fjölluðu hér um. Þeir ættu að vita bezt hvað vert er að viður- kenna á þessu sviði. Hér á við að minnast þess, að kirkju vora teiknaði Gunnar Hansson. Með þessum orðum erum vér sízt að stæra oss af neinu, heldur láta í ljós gleði vora og þakklæti yfir því, að kirkjubyggingu vorri, sem er fyrir löngu orðin hluti af oss, hefur af arkitektum sjálfum verið skipað á bekk með þeim mannvirkjum, sem þykja vera til prýði í höfuðborg vorri og heima- borg. öllum þykir vænt um þegar fórnfúst starf þeirra er nokkurs metið, en fjöldi safnaðarfólks hef- ur fram á þennan dag unnið sleitulaust með ýmsum hætti að því að byggja kirkjuna, endur- bæta ýmislegt með árunum og fegra innanhúss og utan. Fjölmennum til kirkju og f Kirkjubæ á kirkjudaginn næst- komandi sunnudag og sam- fögnum hvert öðru með árangur- inn af vel unnu starfi. Samfögn- um einnig Vestmannaeyingum, sem starfað hafa með oss í kirkju vorri á undanförnum misserum en hafa nú flestir getað snúið aftur til heimkynna sinna. Þeir kvöddu oss í kirkjunni síðsumars og fylgja þeim blessunaróskir vor- ar. Með þökk fyrir birtinguna Emil Björnsson. Kjördæmisþing Kjördæmisþing Heimdallar S.U.S. verður haldið i miðbæ v/Háaleitisbraut 58—60, laugardaginn 1 2. október n.k. kl. 3. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar. 3. Umræður um skýrslu og reikninga. 4. Lagabreytingar. 5. Umræður og afgreiðsla stjórnmálaályktunar. 6. Kosning stjórnar og tveggja endurskoðenda 7. Kosning fulltrúaráðs. 8. Önnur mál. Félagar eru kvattir til að fjölmenna. Héraðsmót Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn heldur síðustu héraðsmótin j sumrinu um næstu helgi á eftirtöldum stöðum: Stapa á Suðurnesjum Föstudaginn 1 1. október kl. 21,00 i Stapa i Njarðvikum. Ávörp flytja Matthias Á. Mathiesen, fjármálaráðherra og Oddur Ólafsson, alþingismaður. Stiórnin. Vestmannaeyjum Laugardaginn 1 2. október kl. 2 1,00 i Vestmannaeyjum (Sjálfstæðishúsinu). Ávðrp flytþr Ólafur G. Einarsson, alþingismaður og Jóhann Friðfinnsson bæjarfulltrúi. Fjölbreytt skemmtiatriði á héraðsmótunum annast Ólafur Gaukur og hljómsveit hans auk Svölu Nielsen, Svanhildar og Jörundar Guðmundssonar. Að loknum héraðsmótunum verður haldinn dansleikur þar sem hljómsveit Ólafs Gauks og Svanhildur leika og syngja. Við byggjum Sjálfstaðishús. UPP SKAL ÞAÐ Sjálfstæðismenn sýnum hug okkar i verki. Sjálfboðaliðar hafa þegar unnið geysimikið starf við nýja Sjálfstæðishúsið. Við treystum á áframhaldandi samstarf. Sjálfboðaliða vantar til ýmissa verkefna laugardaga kl. 13—18,30 Byggingarnefndin. Húsnæðis— og byggingamál. Fundur verður haldinn í starfshópi S.U.S. um húsnæðis- og bygginga- mál mánudaginn 14. október. Fundurinn hefst kl. 6.15 í Galtafelli v/ Laufásveg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.