Morgunblaðið - 11.10.1974, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. OKTðBER 1974
Guðrún Jónsdóttir
Hallsbœ — sjötug
í dag, föstudaginn 11. október,
verður frú Guðrún Jónasdóttir í
Hallsbæ á Hellissandi sjötug.
Mig langar til að minnast þess-
ara tímamóta f lffi hennar með
örfáum orðum. Koma mér þá f
hug fyrstu kynni mín af heimili
hennar og eiginmanns hennar,
Sigurðar Magnússonar, verk-
stjóra við frystihúsið á Hellis-
sandi. Ég var tilvonandi tengda-
sonur hennar og í fyrsta skipti á
leið frá Sauðárkróki vestur á
Sand. Þangað kom ég milli
klukkan tvö og þrjú um nótt,
hafði orðið að sæta sjávarföllum
því að ekki var kominn vegur
fyrir Ólafsvíkurenni og því ekki
fært milli Ólafsvíkur og Sands
nema á fjöru. Guðrún taldi ekki
eftir sér að vaka eftir okkur og
veita af þeim myndarskap sem
henni er svo lagið. Eflaust hefðu
fleiri mæður tekið á svipaðan hátt
á móti mannsefni einkadóttur. En
þarna var þetta meira en formið
eitt. Ég fann nefnilega greinilega
þegar ég heilsaði henni að þarna
var góð kona sem vildi veita hlýju
og láta gott af sér leiða; enda hef
ég sannreynt sfðan að öllum líður
vel í návist hennar.
Það er ótalmargt sem ég vildi
þakka fyrir mína hönd og fjöl-
skyldunnar. Heimili þeirra hjóna
hefur ætíð staðið okkur opið.
Börnin hafa fengið að dveljast að
vild um lengri eða skemmri tima
fyrir vestan. Er ég viss um að dvöl
þeirra þar og sú umhyggja, sem
afi og amma sýna þeim ætíð,
verður þeim gott veganesti.
Vart er hægt að stinga svo niður
penna til að minnast þessara
tímamóta í lffi Guðrúnar að ekki
sé getið heimilis hennar sérstak-
lega. En það ber vott um smekk-
vísi og er auðséð að þar fer hlý
hönd um hvern hlut. Á heimili
þeirra hefur alltaf verið mjög
gestkvæmt, enda ekkert til sparað
til að taka vel á móti þeim sem
Bifreiðavarahlutir
á niðursettu verði
Bifreiðaverkstæði og
bifreiðaeigendur
Seljum í dag ýmsa varahluti í Opel og Chevrolet
bifreiðar árgerðir 1953 — '60 á
niðursettu verði
í dag kl. 17 — 20 og á morgun, laugardag, kl.
10 — 18.
Varahlutaverzlun
Véladeildar Sambandsins,
Höfðabakka 9.
0 % \
Electrolux
25
Minningarorð:
Dóra Þórarinsdóttir
ber að garði. Þá eru ótaldar
stundirnar sem þau hjónin eyða í
blómagarðinum við húsið sitt. Þar
er farið af nærfærni og umhyggju
um jurtirnar og blómin, enda ber
garðurinn þess glöggt vitni.
Guðrún hefur átt við mikið
heilsuleysi að strfða um langan
aldur og oft þurft að leggjast á
sjúkrahús og gangast undir erfið-
ar aðgerðir. En kjarkur hennar og
trúin á Guð hafa ætíð komið
henni til heilsu á ný.
Þessara tímamóta f ævi Guð-
rúnar hafa börn hennar ákveðið
að minnast með hófi í Félags-
heimilinu að Síðumúla 11 í
Reykjavík eftir klukkan 8 í kvöld
(föstudag) og eru vinir hennar
velkomnir þangað til að árna
henni heilla.
Ég óska tengdamóður minni til
hamingju með afmælisdaginn og
óska þess að efri árin verði henni
hamingjurík.
Guðgeymi hana.
Hörður Pálsson.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvf, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á f
miðvikudagsblaði, að berast f
sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera f sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu lfnubili.
Frú Dóra Þórarinsdóttir, Báru-
götu 33 hér í bæ, andaðist í
Heilsuverndarstöðinni 4. þ.m.,
eftir langa vanheilsu.
Dóra var fædd í Reykjavík 11.
sept. 1904, af góðum, gömlum
prestaættum. Voru foreldrar
hennar merkishjónin Þórarinn
listmálari Þorláksson, prests á
Undirfelli í Vatnsdal, er kvæntur
var Sigurbjörgu, dóttur séra Jóns
Péturssonar á Höskuldsstöðum og
Elísabetar Björnsdóttur, prests í
Bólstaðarhlíð, og frú Sigriður
Snæbjarnardóttir kaupmanns á
Akranesi Þorvaldssonar prests
Böðvarðssonar í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd, sem var sonar-
sonur séra Þorvalds sálmaskálds f
Holti, Böðvarssonar.
Dóra ólst upp við ástrfki á góðu
heímili foreldra sinna ásamt syst-
kinum sínum, Guðrúnu og Birni.
Vakti hún gleði og fjör f-kringum
sig, hvort heldur var á heimilinu
eða i hópi leiksystkina sinna.
Nám stundaði hún i Kvenna-
skólanum í Reykjavík, en var síð-
an starfandi við verzlun föður
síns í Bankastræti 11.
Um tvítugsaldur dvaldi hún ár-
langt f Edinborg i Skotandi sér til
menntunar.
3. apríl 1926 giftist hún Gesti
Pálssyni stúdent, frá Hrisey, síðar
lögfræðingi og leikara, sem and-
aðist fyrir f ullum 5 árum.
Þau Gestur og Dóra unnust vel.
Á götum úti varð mörgum star-
sýnt á þessi glæsilegu og ham-
ingjusömu hjón.
Þeim varð fjögurra barna auðið
og nutu mikils barnaláns. Féll
það mest í hlut Dóru að ala upp
börnin, þar eð Gestur, sakir tvi-
þætts starfs síns, sem skrifstofu-
maður og leikari, hlaut að vera
mikið að heiman. Verður að telja
að uppeldisstarfið hafi farið Dóru
ágætlega úr hendi. Hún var í senn
mild og ströng móðir. En börnin
eru: Sigriður, gift Guðgeiri
Þórarinssyni iðnrekanda, Svan-
hildur, gift Þórarni Elmar Jensen
framkvæmdastjóra, Páll, stýri-
maður, kvæntur Gunnþóru Jóns-
dóttur, Eva, gift Fjölni Björns-
syni stýrimanni.
Dóra var góð og stjórnsöm hús-
móðir, smekklegoglistelsk, sem
fagurt heimili þeirra Gests bar
órækan vott um. — Þau voru sam-
valin að gestrisni, og minnast
margir ánægjulegra og glaðra
stunda á heimili þeirra, við
hjartanlegar móttökur og ástúð
beggja. Bæði voru þau félagslynd
Framhald á bls. 16
Vid getum auávitaá ekki ábyrgzt þér
lO í vélritun
á vorprófinu.
En llkur þess aukast notir þú
skólaritvél
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
-r ^ Hverfisgotu 33
’ X vsy' Simi 20560 - Pósthólf 377