Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1974 Geysileg úrkoma í gær og fyrrinótt: Miklir vatnavextir og vegaskemmdir GEYSILEG úrkoma var um sunnan- og vestanvert landiö I gær og fyrrinótt og olli miklum vatnavöxtum f ám. Flæddu þær vfða yfir vegi og rufu f þá göt, en einnig urðu á nokkrum stöðum vegaspjöll af völdum skriðufalla samfara vatnsaganum. Sunnanáttin var í gær- kvöldi að snúast meira til vesturs og fylgdi þvf hvassviðri. I Reykjavfk komu öðru hvoru miklar hviður og mældist ein þeirra 63 hnútar. Fyrir Suðurlandi var vindhraðinn 10—12 vindstig og mikil ókyrrð f höfnum þar. Samkvæmt upplýsingum Páls Bergþórssonar veðurfræðings bárust veðurstofunni þær fréttir frá Vík í Mýrdal að þar hefði geysileg úrkoma verið i fyrrinótt eða 96 millimetrar en tölur lágu ekki fyrir um úrkomuna í gær. I Loftsölum mældist úrkoman 45 mm um nóttina og 22 mm yfir daginn og á Mýrum í Álftaveri 65 mm yfir nóttina og 25 mm yfir daginn. Úrkomusvæðið varð meira austar á Suðurlandi eftir því sem leið á gærdaginn. Á Fagurhólsmýri mældust t.d. 15 mm yfir nóttina, en 47 mm um daginn. Þótt ótrúlega kunni að hljóma, þá mældust aðeins 3 mm í Reykjavík í gærdag. Páll sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, að gera mætti ráð fyrir því að í dag kóinaði verulega. Þá var kominn norðaustan stormur út af Vestfjörðum og taldi hann allar líkur á að sú áttin sigraði þegar á liði, en með norðanáttinni mundi væntanlega kólna um allt land. Hjá vegaeftirlitinu fékk Morgunblaðið þær upplýsingar að úrkoman hefði víða leikið vegina grátt sunnan- og vestanlands. Aðalfundur Sjálfstæð- ismanna í Langholti Matthfas Bjarnason. 1 KVÖLD, fimmtudag, heldur félag sjálfstæðismanna f Lang- holti aðalfund sinn f Glæsibæ og hefst hann kl. 20.30. Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf. Þá mun Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, ræða stjórnmálaviðhorfið. Eru allir sjálfstæðismenn á þessu félagssvæði, sem nær yfir Laugarás, Heima- og Voga- hverfi, hvattir til að mæta á fundinum. Skriða féll á Suðurlandsveg, sem þó var rudd fljótlega og á Skeiða- flöt gróf frá ræsi, svo að ófært varð þar um tíma. I Árnessýslu hafði víða runnið yfir vegi en ekki urðu þar teljandi vega- skemmdir. í Borgarfirðinum voru hins veg- ar miklir vatnavextir. Þannig gróf frá brú á Borgarfjarðarbraut í Svínadal við Geitaberg og varð þar ófært. Vatn rann víða yfir vegi í Borgarfirði, en hvergi urðu vegaskemmdir nema við Bjarna- dalsárbrú í Norðurárdal, þar sem 10 metra skarð rofnaði í veginn. Er þar alveg ófært og ekki hægt að hefja viðgerð fyrr en vatn sjatnar að nýju. Umferðin f gær lá um Norður- árdalsveg sem er sunnanvert I Norðurárdalnum. Hann var illfær seint í gærmorgun vegna skriðu- falla og grjóthruns og var um tíma jafnvel óttast að hann yrði ófær vegna mikils vaxtar ; Norð- urá. I gærkvöldi virtist vöxturinn kominn í hámark þar, svo að von- ir stóðu til að úr rættist. Töluverð- ar skemmdir urðu einnig á vegin- um i Bröttubrekku svo að hún var ekki nema jeppafær. Seint í gær- kvöldi var farið að hækka mikið I Hvítá við Ferjukot og gat jafnvel farið svo að þar flæddi yfir I nótt. Hins vegar bentu vegaeftirlits- menn á að spáð væri kólnandi veðri í nótt og mætti því búast við að aftur tæki að sjatna f ám. Sigþór Sigurðsson, fréttaritari Mbl. í Litla Hvammi við Vik í Mýrdal, símaði, að þar hefði verið mikil rigning yfir nóttina og stað- ið allt til morguns. Taldi hann úrkomumagnið eitt hið mesta sem þar hefði dunið yfir í mörg ár. Á nokkrum stöðum urðu skemmdir er skriður féllu úr fjallshlíðum og komu skörð í vegi. Mestar urðu skemmdirnar við Skammadal í Mýrdal og þar í kring. Margar skriður féllu yfir gömul tún, rifu með sér girðingar og báru stór- grýti yfir túnin. Ein skriðan féll alveg upp að fjósinu og um tíma Viðræður áfram í Bonn NÚ STANDA yfir í Bonn við- ræður milli íslenzkra og v-þýzkra embættismanna um hugsanlega lausn á ágreiningi landanna út af veiðum v-þýzkra togara innan 50 mílna fiskveiðilögsögunnar. Hans G. Andersen, formaður fslenzku sendinefndarinnar, sagði í símtali við Morgunblaðið í gær, að ekkert væri h»gt að segja um viðræðurn- ar á þessu stigi, nema að þeim yrði haldið áfram f dag. Nefndin kemur heim á föstudag og mun þá skila skýrslu um gang viðræðn- anna til ríkustjórnarinnar. Verðandi sigraði KOSIÐ var til 1. desember nefnd- ar stúdenta sl. þriðjudag. Atkvæði greiddu 1101 og skiptust þau þannig, að A-listi Vöku fékk 471 atkvæði eða 43,1% en B-listi Verðandi hlaut 620 atkvæði eða 56,9%. Auðir seðlar og ógildir voru 10, en á kjörskrá voru alls 2402. I fréttatilkynningu frá kjör- stjórn 1. des. nefndar stúdenta segir, að 1. desember verði þvf haldinn hátfðlegur undir kjörorð- inu: „Island — þjóðsagan og veru- Ieikinn“. I tilefni 11 alda byggðar í landinu verði tekin til umræðu og athugunar sú borgaralega söguskoðun, sem nefnd hafi verið „þjóðsagan um ísland", sett fram vísindaleg söguskoðun, og nútím- inn skilgreindur í ljósi hennar. Dagskráin verður að mestu samin og flutt af stúdentum sjálfum, en auk þess flytur ræðu Þorsteinn Jónsson frá Hamri, rithöfundur, segir í tilkynningunni. var íbúðarhúsið í Skammadal um- flotið vatni. Einnig féll allmikil skriða yfir tún á bænum Giljum. Fóru sumar yfir þjóðveginn svo að ófært varð fyrir fólksbíla um tfma. Skarð kom í veginn við Steinflöt og lokaði þar öllu en í gær var þar unnið að viðgerð. Fréttaritari Mbl. f Hveragerði flutti einnig þær fréttir, að geysi- leg rigning hefði verið þar í fyrri- nótt og mikiil vöxtur hlaupið í Varmá, svo að vatnsmagnið hefði verið með því mesta er menn myndu eftir. Við gróðrarstöðina Fagrahvamm hafði Varmá hækk- að um 2 metra að því er talið var, og var hús og sundlaug niður við ána umflotið vanti. Þá er brú yfir ána þar í hættu, því að vetnið beljar á henni. Einnig hafði brúin við Gufudal laskast í flóðinu og samgöngur við bændur þar voru erfirðar. í Varmá við Hveragerði hækkaði yfirborðið um tvo metra og flæddi kringum hús og sundlaug er standa á árbakkanum hjá Fagra- hvammi. Mikil ókyrrð var víða í höfnum með suðurströnd- inni vegna hvassrar suð- vestanáttar og í Sandgerði sökk ein trillan í höfninni. (Ljósm. Mbl. Heimir Stígs- son). ÞRIR MENN STAÐNIR AÐ SMYGLI ÚR M/S SELFOSSI ÞRÍR menn voru staðnir að því í fyrrakvöld að flytja smyglvarning úr m.s. Sel- fossi, þar sem skipið lá í höfninni í Keflavík. Komu 250 flöskur af áfengi í leit- irnar og 56.800 vindlingar eða 284 karton. Einn þess- ara manna hefur nú verið úrskurðaður í gæzluvarð- hald, en hinir tveir voru í yfirheyrslu hjá bæjar- fógetanum í Keflavík i gærkvöldi, og að vænta að þeir hafi einnig verið úr- skurðaðir í gæzluvarð- hald. Tollgæzluyfirvöld og fógetaembættið i Keflavík telja sig hafa rökstuddan grun um að þessir menn hafi stundað meira smygl en sýndi sig í þessari ferð Selfoss. Það var ekki sízt fyrir árvekni lögreglumanna í Keflavík að upp komst um smyglið í Selfossi. Vegaframkvæmd- ir 1 Hrútafirði Staðarbakka, 22. okt. NÚ NVVERIÐ var tekinn f notk un nýr vegarkafli á Norður- landsvegi I Hrútafirði, er þar um að ræða mikla samgöngubót, þar sem um mjög snjóþungan veg var að fara. Er þá á þrem árum búið að byggja upp nýjan veg frá Stað langleiðina að Reykjum. Verkstjóri við þetta verk hefur verið Óli R. Jóhannsson frá Klettstfu f Norðurárdal. m.g. Stöðvuðu þeir bifreið í Keflavík í fyrrakvöld og komust þá á snoðir um að liklega væn um smygi aö ræða í Selfossi. Um svipað leyti var tollvörðurinn í Keflavfk tek- inn að kanna málið og fann ásamt lögreglunni 250 flöskur í tveimur bílum á hafnarbakkanum. Haft var samband við tollgæzluna f Reykjavík sem sendi tollgæzlu- menn á vettvang og við ítarlega leit í skipinu komu einnig í leit- irnar 56.800 vindlingar, sem þá var búið að færa úr upphaflegum felustað. Bæði áfengið og vindlingarnir höfðu upphaflega verið faldir f kæligöngum og lest skipsins. Tveir mannanna þriggja voru hásetar á Selfossi en hinn þriðji var i landi, skráður á skipinu, en hafði fengið leyfi í þessari ferð. Sem fyrr segir fannst vfsbending um að mennirnir hefðu stundað Framhald á bls. 20 Tjarnarból lýst gjaldþrota og tekið til skiptaréttar BYGGINGAFYRIRTÆKIÐ Tjarnarból hf. hefur lýst sig gjaldþrota en það hefur gengist fyrir smíði f jölbýlishúss við Tjarnarból á Seltjarnarnesi. Að kröfu hreppsfélagsins átti að fara fram nauðungaruppboð á einu stigahúsanna, en því var frestað. Þar sem félagið verður nú tekið til skiptameðferðar Ienda áhvíl- andi veðskuldir á húsinu á kaup- endum fbúðanna. Már Pétursson hjá bæjarfógeta- embættinu I Kjósarsýslu tjáði Morgunblaðinu I gær, að gjald- þrotamál þetta væri nú til með- ferðar hjá rannsóknardeild skiptaréttar. Búið væri að skrifa upp eignir, skýrslur hefðu verið teknar af stjórnarmönnum fyrir- tækisins og bókhaldi þess hefði verið veitt viðtaka. Væri nú verið að vinna úr bókhaldsgögnunum. Þá sagði Már, að engar rökstudd- ar kærur hefðu borizt frá lög- mönnum eða öðrum aðilum kröfu- hafa vegna máls þessa. Ný bók - 87 sm á hæð KOMIN er á markaðinn nýstárh barnabók, Risinn og skógardýr eftir Ann de Gale. Bókin er : hæsta sem komið hefur út íslenzku, eða 87 sentimetrar. Bó in er í litum, myndskreytt Antonio Lupatelli. Lofti Guðmundsson fslenzkaði. Bók er gefin út af Erni og örlygi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.