Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1974 Ævintýri á gönguför hjá LA Næstkomandi föstudag þann 25. okt. frumsýnir Leikfélag Akureyrar hinn góðkunna, gamansama söngvaieik J.C. Hostrups, „Ævintýri á göngu- för“ f þýðingu sfra Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili, með breytingum og nýþýðingum eftir Lárus Sigurbjörnsson og Tómas Guðmundsson. Sviðsetn- ing og leikmyndir eru eftir Ey- vind Erlendsson. Áskell Jóns- son hefur æft söngvana og leik- ur á flygilinn. Leikarar eru tfu: Þráinn Karlsson (Hans), Kjart- an Ölafsson (Kranz), Björg Baldvinsdóttir (Frú Kranz), Jakob Kristinsson (Pétur), Arnar Jónsson (Vermundur), Gestur E. Jónasson (Ejbæk), Aðalsteinn Bergdal (Herlöv), Saga Geirdal (Lára), Þórhildur Þorleifsdóttir (Jóhanna) og Eyvindur Erlendsson (Svale). „Ævintýrið“ er óþarft að kynna frekar, svo lengi hefur það átt vfsan griðastað f hjört- um þjóðarinnar, enda heldur ekki f fyrsta sinni sem leikarar L.A. reyna fþrótt sfna á þessu vinsæla verkefni. Leikfélagið mun f vetur, f fyrsta sinn, reyna að halda tveim föstum sýningardögum f viku hverri, það er föstudögum og sunnudögum. Aukasýningar verða aðra daga vikunnar þegar þurfa þykir. Aðgöngumiðasal- an verður einnig opin á föstum tfmum, frá kl. 16 til kl. 18 hvern sýningardag og daginn fyrir sýningu, einnig hálfa stundu fyrir opnun hverrar sýningar. Leikhúsgestir eiga þess kost nú sem áður að kaupa áskriftakort sem gilda á fleiri sýningar og veitist þá afsláttur * 1 allt að40% eftir þvf hvaðkeypt er á margar skýningar f einu. Einnig fást kort sem gilda á allar frumsýningar félagsins. Sfmin er 11073. 1 byrjun nóvember hefst leiklistarkennsla á vegum L.A. og skulu þeir sem áhuga hafa á þátttöku hafa samband við leik- hússtjórann, sem gefur allar nánari upplýsingar. Sfminn er 11073. Kennsla og þjálfun verð- ur bæði fyrir nýliða og lengra komna. Unnið hefur verið að ýmsum lagfæringum á leikhúsinu í haust. Komið er nýtt upphff- ingakerfi f loft leiksviðs- ins ásamt nýjum Ijósarám. Einnig hefur verið reynt að prýða nokkuð þann hluta hússins, þar sem gesta- móttaka fer fram. Hug- myndin er að koma þar fyrir ljósmyndum tengdum Ieikhús- inu, einkum úr fyrri sýningum L.A. og standa vonir til að nokkuð af þeim verði komið upp fyrir frumsýningu á „Ævintýrinu“ þann 25. þ.m. (Frá L.A.) Þyngdarmælinga- net um allt land A undanförnum árum hefur verið komið upp þyngdarmæl- inganeti um landið og eru aðal- mælingastöðvarnar nú 46 talsins víðsvegar um landið. Þetta kemur m.a. fram í grein eftir Guðmund Pálmason, Gunnar Þorbergsson og Tor H. Nilsen í tímaritinu Jökli. En með slfkum mælingum geta truflanir á þyngdarsviðinu bent jarðfræðingum á eitthvað óreglulegt í jarðlögunum undir. Það gefur t.d. til kynna brota i löm í jarðlögunum eða svæði með ólfka sögu. En slíkt kemur aftur að góðu gagni við jarðhitaleit o.fl. Til dæmis hafa á Torfajökuls- svæðinu komið ljós einhver frá- brygði, létt berg sem gætu bent til óvenjulegs hita eða annars. En Torfajökulssvæðið er einmitt tal- ið eitt mesta háhitasvæði landsins og Landsvirkjun hefur sýnt áhuga á raforkuvinnslu þar og Orkustofnun að byrja að kanna það. Þessar þyngdarmælingar hóf- ust árið 1968. Þá setti Gunnar Þorbergsson upp 39 slíkar grunn- mælingastöðvar, en aðalmælinga- stöðin er í Reykjavík og hefur nú verið flutt í hús Raunvísinda- deildar Háskólans. Nú eru 48 slík- ar þyngdarmælingastöðvar utan Reykjavíkur. 1 Jökli er ýtarleg grein um þessar mælingar þar sem gerð er grein fyrir hverri mælingastöð með mynd og helztu tölur um þessar þyngdarmælinga- stöðvar á grunnneti á Islandi. Einn þyngdarmælingapunkt- urinn, sem er á steinsúlu skammt frá Hallgrfmskirkju á Skólavörðuholti. Gjafir Rockefellers um 24 millj. dollara New York, 20. okt. Reuter. NELSON Rockefeller varafor- setaefni Bandaríkjanna, sagði frá því um helgina að gjafir hans síðustu 17 árin hefðu alls numið 24 milljónum dollara. Hæsta upp- hæðin var 6.6 milljónir dollara og rann hún til „The Museum of Primitive Art“ í New York og sú næsta var 2.6 millj. dollara, sem hann gaf til „The Museum of Modern Art“, einnig f New York. Þá hefur hann gefið gjafir til USA: 51% óttast heimskreppu Reuter RÚMLEGA helmingur banda- rísku þjóðarinnar telur að Banda- ríkin stefni óðfluga í átt til kreppu á borð við þá sem varð um og upp úr 1930, segir f niðurstöð- um Gallupskoðanakönnunar um það. Birtust þær í blaðinu Wash- ington Post og kemur fram að 51% er þeirrar skoðunar, sem að ofan greinir, 41% telja ástandið ekki svo slæmt og 8% höfðu enga skoðun. Þessi könnun var gerð f s.l. mánuði. I ágúst álitu 46% að heims- kreppa væri í nánd. í sömu könn- um kom fram að 81% taldi hátt verðlag á lífsnauðsynjum vera eitt alvarlegasta vandamálið sem við væri að etja nú í Bandaríkjun- um. skóla f New Hampshire, til banda- rísku þróunarstofnunarinnar, svo og til ýmissa samtaka og hópa sem berjast fyrir kynþáttajafnrétti. Rockefeller sendi frá sér bréf, þar sem hann skýrði frá þessu og sagði að í ljósi þess að framhalds- rannsóknir á fjármálum hans yrðu varla fyrr en f nóvember, þá leyfði hann sér að leggja fram lista yfir allar þær gjafir, sem hann hefur gefið á nefndum tíma. Hluti borgarinn- ar rafmagnslaus KLUKKAN rúmlega sex f fyrra- dag varð raf magnslaust á svæðinu frá Miðtúni að Kleppsholti f tvo tfma, og f sumum húsum lengur. Samkvæmt upplýsingum Raf- magnsveitunnar, mun strengur í Borgartúni hafa bilað, og í gær- kvöldi var búið að finna bilunina, en ekki grafa strenginn upp. Attu þá enn nokkur hús við Borgartún eftir að fá rafmagn. Þegar raf- magnið fór, varð dreifistöð 3, sem stendur við Borgartún, algjörlega óvirk. Söngferð Geysis til Ítalíu KARLAKÓRINN Geysir á Akur- eyri fór f söngferð til Norður- ttalfu f septembermánuði s.l. Þátttakendur f ferðinni voru milli 70 og 80 talsins, og var sung- ið á f jórum stöðum. Undirbúningur að ferðinni hófst s.l. haust, en þá tók Sigurð- ur Demets Franzson við stjórn kórsins. Hann hafði áhuga á því að fara með kórinn í söngferð á æskuslóðir sínar, en hann er frá bænum Ortisei f Gardenadal, sem er í Bolzano-héraði á Norður- Italíu. Mjðaðist lagaval og starf kórs- ins Sil. vetur við þessa fyrirhug- uðu sortgferð, og var lagt af stað í hana 10. september. Var haldið til Lignano og dvalizt þar á bað- CAB sam- þykkir 10% far- gjalda- hækkun Washington, BANDARISKA flugmálaráðið (CAB) samþykkti í dag far- gjaldahækkun á flugleiðinni yfir N-Atlantshaf, sem er um 10% að meðaltali. Taka hin nýju fargjöld gildi 1. nóvem- ber nk. Þá samþykkti ráðið hækkun á lágmarksfargjöld- um leiguflugfélaga til að koma f veg fyrir að þau geti undir- boðið verulega félögin, sem halda uppi reglubundnu áætl- unarflugi áþessari leið. strönd f viku áður en hin eigin- lega söngferð hófst. Karlakórinn Geysir hélt söng- skemmtanir í Ortjsei, Selva, Merano, en söng líka einu sinni á torgi í Lignano. Á öllum söngskemmtununum flutti söngstjórinn erindi um fs- land og sýndi litskuggamyndir héðan, m.a. frá eldgosum á und- anförnum árum, og vöktu þær sérstaka athygli. 24. september hélt kórinn heim- leiðis eftir minnisstæða söngför og dvöl á Italíu. Formaður Karlakórsins Geysis er Freyr Ófeigsson. Nýr formaður Hjúkrunarfélags Islands UM mánaðamótin september- október lét Marfa Pétursdóttir af störfum sem formaður Hjúkrunarfélags Islands. Hún hefur sem kunnugt er verið f stjórn félagsins í 25 ár og þar af formaður frá árinu 1964. Árið 1972 var stofnaður nýr hjúkrunarskóli í tengslum við Borgarspítalann, Nýi hjúkrunar- skólinn, og hefur María verið skólastjóri hans frá upphafi. Hinn nýi formaðir Hjúkrunar- félags Islands er Ingibjörg Helga- dóttir, hjúkrunarkona á Klepps- spítalanum. Hún lauk hjúkrunar- námi frá Hjúkrunarskóla Islands árið 1963 og hefur verið í stjórn félagsinsfrá árinu 1970. I stjórn með Ingibjörgu eru Nanna Jónasdóttir, Kleppsspítal- anum, Magdalena Búadóttir, Borgarspítalanum, Sigurveig Sigurðardóttir, Laugarvatni, Margrét Jóhannsdóttir, Landspft- alanum, Rögnvaldur Stefánsson, Hjúkrunarskóla Islands, og Krist- björg Þórðardóttur, Rauða krossi Islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.