Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1974 Þessi mynd var tekin skömmu eftir að kennsla hófst í haust, og þá var hægt að klæðast þunn- um skjólflíkum og strigaskóm. Síðan hefur hljóðið í Kára gamla heldur tekið að þyngjast, og sjálfsagt kominn tími til að stinga strigaskónum innst í skápinn og draga fram vatnsheldan skófatnað og þykkar úlpur. (Ljósm. Br. H.). Bröndóttur högni í óskilum LftiII bröndóttur högni með hvfta bringu og loppur er I óskilum að Garðsenda 4. Köttur- inn er með greinilegt far eftir hálsól, þannig að hér mun vera um heimiliiskött að ræða. Uppl. f sfma 33581. DAGBÖK I dag er fimmtudagurinn 24. október, 297. dagur ársins 1974. Veturnætur. Árdegisflóð f Reykjavfk er kl. 00.53, sfdegisflóð kl. 13.28. Sólarupprás er f Reykjavfk kl. 08.44, sólarlag kl. 17.39. Á Akureyri er sólarupprás kl. 08.36, sólarlag kl. 17.16. (Heimild: Islandsalmanakið). Þetta er að þakka hjartagróinni miskunn Guðs vors; fyrir hana mun Ijós af hæðum vitja vor, til að lýsa þeim, sem sitja f myrkri og skugga dauðans, til að beina fótum vorum á friðarveg. (Lúkas 1. 79). CENGISSKRANINC Nr. 191 - 23.október 1974. SkráB frá Einine Kl. 12,00 Kaup Sala 9/10 1974 1 Bandarikjadollar 117,70 118. 10 23/10 - 1 Sterlingspund 274, 45 275, 65 * 22/10 - 1 Kanadadollar 119,50 120, 00 23/10 - 100 Danskar krónur 1965, 40 1973, 80 * - - 100 Norskar krónur 2133,85 2142, 95 * . - 100 Sænskar krónur 2688,85 2700, 25 * _ - 100 Finnsk mörk 3107,50 3120, 70 * - - 100 Franskir frankar 2492,60 2503, 20 * - - 100 Belg. írankar 307,40 308, 70 * - - 100 Svissn. frankar 4108, 60 4126, 10 * - - 100 Gyllinl 4468,70 4487, 70 * - - 100 V. -Þyzk mörk 4567,60 4587,00 * _ _ 100 Lírur 17, 61 17, 69 * _ _ 100 Austurr. Sch. 639, 75 642, 45 * _ - 100 Escudos 462, 80 464, 80 * 15/10 - 100 Pesetar 205, 10 206, 00 22/10 - 100 Yen 39, 24 39,41 2/9 - 100 Reikningskrónur- 99,86 100, 14 Vöruskiptalönd 9/10 - 1 Reikningsdollar- 117,70 118, 10 Vöruskiptalönd * Breyting frá síCuatu skránlngu. V J Sólhvörf og merki seld Barnaverndarfélag Reykjavfk- ur hefur fjársöfnun á laugardag- inn kemur, sem er fyrsti vetrar- dagur, til ágóða fyrir heimili taugaveiklaðra barna og annað hjálparstarf á vegum félagsins. Barnabókin Sólhvörf og merki félagsins verða afgreidd í öllum barnaskólum f Reykjavík og Kópavogi kl. 9—15. Heimsóknartími sjúkrahúsanna Barnaspftali Hringsins: kl. 15—16, virka daga kl. 15—17 laugard. og kl. 10—11.30 sunnud. Borgarspftalinn: Mánud.— föstud. kl. 18.30—19.30. Laugard. og sunnud. kl. 13.30—14.30 og kl. 18.30—19. Flókadeild Kleppsspftala: Dag- lega kl. 15.30—17. Fæðingardeildin: Daglega kl. 15—16 og kl. 19—19.30. Fæðingarheimili Reykjavfkur- borgar: Daglega kl. 15.30—19.30. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15—16 og kl. 19—19.30 daglega. Hvftabandið: kl. 19—19.30 mánud.—föstud. Laugard. og sunnud. kl. 15—16 og 19—19.30. Endurhæfingardeild Borgar- spftalans: Deildirnar Grensási — virka daga kl. 18.30. Laugardaga og sunnudaga kl. 13—17. Deildin Heilsuverndarstöðinni — daglega kl. 15—16, og 18.30— 19.30. Kleppsspftalinn: Daglega kl. 15—16 og 18.30—19. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15—17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánu- dag—laugard. kl. 15—16 og kl. 19.30— 20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15—16.30. Vffilsstaðir: Daglega kl. 15.15—16.15 og kl. 19.30—20. Fótaaðgerðir Fótaaðgerðir aldraðra í Laugar- nessókn er hvern föstudag kl. 9—12 í kjallara kirkjunnar. Upp- lýsingar í sfma 34544 og í sfma 34516 á föstudögum kl. 9—12. Olíumálin í Frjálsri verzlun „Ég tel, að nú sé kominn grund- völlur fyrir að leita eftir samning- um til langs tíma við Norðmenn um jarðolíukaup og fela olíu- hreinsunarstöðvum í V-Evrópu að vinna úr henni nokkrar þeirra aðalolíutegunda, sem við þörfn umst og sjá til þess að öðru leyti að hlutfallsleg skipt- ing þessara vara sé í sam- ræmi við þarfir okkar. Aðstæður til þessa virðast nú vera fyrir hendi. Ég hefi aflað frumútreikninga og áætlana um slík olfukaup frá Noregi, sem gætu reynzt hagstæð okkar, en það er hlutverk fslenzkra stjórn- valda að ákveða hvort slfk við- skipti skuli gerð og að hvaða marki.“ Þetta segir Indriði Pálsson for- stjóri Skeljungs h.f. 1 viðtali við tfmaritið Frjálsa verzlun, sem er nýkomið út. 1 samtalinu við Indriða er rætt um oliusamning- ana við Sovétmenn ástæður fyrir verðhækkunum á olíu að undan- förnu, hag olíufélaganna íslenzku og þá gagnrýni, sem fram hefur komið á starfsemi þeirra. Meginefni þessa 8. tölublaðs Frjálsrar verzlunar er frá Norður- landskjördæmi eystra, viðtöl við stjórnendur fyrirtækja og full- trúa sveitarstjórna í kjördæminu. 1 fréttaþætti af innlendum vett- vangi er greint frá áætlun sam- vinnunefndar um skipulagsmál Reykjavíkur og nágrennis um íbúaþörf fram til ársins 1983. Þá er ennfremur stutt grein um Byggðasjóð og lánveitingar úr honum sl. tvöár. I fréttaþætti af erlendum vett- vangi er sagt frá aðstoð Norð- manna við íbúa þróunarlandanna, sem hafa m.a. sótt sérstök nám- Áttræður er f dag, 24. október, Eirfkur Jónsson frá Helgastöðum f Biskupstungum, nú til heimilis að Laufskógum 9, Hveragerði. Hann er að heiman. 1. september gaf séra Sigurður H. Guðjónsson saman f hjónaband í safnaðarheimili Langholtssókn- ar Helenu Sigrfði Jóhannesdóttur og Smára Þór Svansson. Heimili þeirra er að Hellishólum í Fljóts- hlfð. 1 KROSSGÁTA 1 ÁRIMAO HEILiA Lárétt: 1. skotvopn 6. á hlið 8. sérhljóðar 10. ósamstæðir 11. afstýrt 12. á fæti 13. ósamstæðir 14. op. 16. trjágróðurinn. Lóðrétt: 2. þys 3. húðin 4. leit 5. átt 7. kaðalinn 9. keyra 10. eldur 14. samhljóðar 15. tónn. Lausn á sfðustu krossgátu: Lárétt: 1. öskra 6. KAA 8. skemm- an 11. kar 12. agn 13 il 15. II 16. tau 18. nefndin. Lóðrétt: 2. sker 3. kám 4. ráma 5. askinn 7. óunninn 9. kál 10. agi 14. man 16. TF 17. UD. FRÉTTIR_____________________ Kvenfélagið Seltjörn heldur vetrarfagnað laugardaginn 26. október kl. 9 í félagsheimilinu á Seltjarnarpesi. Kvenfélagið Aldan verður með opið hús að Bárugöru 11 kl. 8—11 í kvöld, og eru konur úr basar- nefn sérstaklega hvattar til að koma. Vestfirðingafélagið heldur aðalfund sinn að Hótel Borg (gyllta salnum) sunnudaginn 27. októberkl. 4e.h. Hið fslenzka náttúrufræðifélag heldur fyrstu fræðslusamkomu vetraríns í stofu 101 í Lögbergi mánudaginn 28. okt. kl. 20.30. Þar talar Sveinbjörn Björnsson dipl. phys. „Um stóra skjálfta og srnáa". | BRIPGE ~| Hér fer á eftir spil frá úrslita- leik milli Italfu og Bandarfkj- anna f Olympfumóti fyrir nokkr- um árum. Norður. S. A-G-l 0-9-2 H. 6-4 T. D-G-9-8-6 L. 5 Vestur. S. D H. A-K-7-3-2 T. A-2 L. 9-8-7-4-2 Suður. S. K-5-3 H. D-G-10 T. 10-7-4 L. K-D-10-6 Við annað borðið sátu ftölsku spilararnir A-V og þar opnaði vestur á 2 hjörtum, norður sagði 2 spaða, austur sagði 4 hjörtu og suður doblaði. Sagnhafi fékk 8 slagi og bandariska syeitin græddi 300 á spilinu. Við hitt borðið sátu bandarísku spilararnir A-V og þar gengu sagnir þannig: S V N A P 1 h 1 s 2 h 2 s 31 P 4 h Norðurlét út laufa 5, gefið var I borði og suður drap með tíunni. Nú geta N-S sett spilið 2 niður, með þvf að suður láti út lauf, norður trompar, lætur út spaða, suður drepur með kóngi, lætur enn lauf, norður trompar og síðan fær norður slag á spaða ás. Þetta fór nú ekki á þennan veg, því suður lét næst út hjarta gosa og þannig varð spilið aðeins einn niður. Bandaríska sveitin græddi 6 stig á spilinu. skeið f norska útgerðarskólanum. Einnig er skýrt frá vaxandi fjár- festingu erlendra fyrirtækja í Bandaríkjunum. Dr. Guðmundur Magnússon prófessor skrifar að þessu sinni grein um hagsmunasamtökin í þjóðfélaginu og áhrif þeirra á af- greiðslu ýmissa aðkallandi vanda- mála. I viðtali við Guðmund Einarsson verkfræðing er fjallað um aðstöðu verktakafyrirtækja í verðbólugbálinu og nauðsyn þess að rfki og bæjarfélög stefni að jafnari framkvæmdahraða en nú gerist. Þá skrifar Leó Jónsson tæknifræðingur grein sem hann nefnir „Eymdarvelferð" og fjall- ar hún m.a. um hið svonefnda „atvinnulýðræði" eins og það er í framkvæmd á Norðurlöndum. Af öðru efni má svo nefna myndskreytta grein um starfsemi í miðstöð heildverzlunarinnar í Sundaborg. Getið er um fyrir- tæki, sem þar hafa aðsetur, og þá tegund verzlunar, er þau stunda. Þetta nýjast tölublað Frjálsrar verzlunar er 100 síður með lit- prentaðri kápu. (Fréttati lkynning) Austur. S. 8-7-64 H. 9-85 T. K-5-3 L. A-G-3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.