Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKT0BER 1974 5 Út af athugasemd frú Ragnheiðar Einarsdóttur, formanns Hrings- »ins, í Morgunblaðinu í dag, vil ég biðja yður, hr. ritstjóri, að koma eftirfarandi orðum á framfæri. Mér þykir mjög miður ef Hringskonum hefir þótt sveigt að -sér með ummælum mínum um barnadeild Landspltalans i grein i Morgunblaðinu 14. sept. s.l. Það var ekki ætlan mín og kann ég vel að meta elju þeirra við fjáröflun til likqarmála. Kristbjörn prófessor Tryggva- son starfaði sem barnalæknir við Landakotsspitala frá því hann kom heim að námi loknu 1940 og þar til hann tók við forstöðu barnadeildar Landspítalans 1956, og hefir hann verið yfirlæknir hennar þar til hú, að hann lætur af störfum. Hefir deildin alla tíð verið rekin af ríkinu eins og aðrar deildir Landspitala og er mér ekki kunnugt um,i að breyting yrði á því 1965, þegar Hrings- konur reiddu af hendi 10 millj- ónir króna, sem þær höfðu safnað til þess að byggja barnaspítala. Finnst mér þá ekkert ofsagt í grein minni, en hitt er rétt að það kemur ekki fram í henni, að þær hafa haldið áfram að safna fé og gefa þessari deild Landspítalans, sem ber nafn þeirra og er kölluð barnaspitali Hringsins, enda hafa landsmenn fylgst með því starfi. Reykjavík, 22. okt. 1974 Bjarni Jónsson. Willi Stoph í Helsinki Helsinki 22. okt. Reuter. WILLI Stoph, flokksleiðtogi aust- ur-þýzkra kommúnista, kom t dag f opinbera heimsókn til Finn- lands fyrstur austur-þýzkra þjóð- höfðingja. Hann ræddi f dag við Urho Kekkonen Finnlandsforseta og fjölluðu þeir um almenn sam- skipti Finnlands og Austur-Þýzka lands. Viðstaddir þann fund voru einnig Karjalainen, utanrfkisráð- herra Finnlands, og Nier, utan- rfkisráðherra A-Þýzkalands. Þeir munu ræðast aftur við á föstudag- inn. Búizt er við, að meginumræðu- efnið á fundum Stoph, svo og embættismanna í föruneyti hans, og finnskra ráðamanna verði um viðskiptamái, en löndin hafa haft í undirbúningi viðskiptasam- komulag, sem vænta má að verði undirritað nú. Willi Stoph hvatti til þess í stuttu ávarpi við komuna til Hels- inki í dag, að kölluð yrði saman öryggismálaráðstefna Evrópu í Helsinki hið allra fyrsta, þar sem háttsettir ráðamenn kæmu saman til fundar. Trúlegt er einnig að rætt verði um kröfur Finna til bóta vegna tjóns sem unnið var á Lapplandi og síðar í Finnlandi á stríðsárun- um. Austur-þýzka stjórnin hefur jafnan neitað að taka á sig nokkra ábyrgð fyrir ódæðisverk nasista i hvaða landi sem er. EBE eykur sykurframleiðslu Luxemborg, 22. okt. Reuter. LANDBÚNAÐARRAÐHERRAR aðildarrfkja Efnahagsbandalags Evrópu hafa orðið ásáttir um að miða að þriggja milljón tonna framleiðsluaukningu á sykri á næsta ári. Sömuleiðis samþykktu ráðherrarnir að greiða niður verð á um 200.000 lestum af sykri, keyptum á frjálsum markaði til að fullnægja sykurþörf Breta f vetur og næsta vor. Frystiskápar og kistur í úrvali frá ^ Bauknecht « Fljót og örugg frysting. fc * Öruggar og ódýrar i rekstri. * Sérstakt hraðfrystihólf. ðU * Einangraðar að innan með ali. * Eru með inniljósi og læsingu. * 3 öryggisljós sem sýna ástand tækisins ■ og margir fleiri kostir. Greiðsluskilmálar eða staðgreiðsluafsláttur. auknecHt veit hvers konan þarfnast SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA ARMULA 3 REYKJAVIK, SIMI 38900 Dðs Nú eruJtil sölu í bönkum, bankaútj^-- um búum ög sparisjódum um allt land^ kk- happdfðettíéskuldabréf í E flokkl^ smi samtal^fS^ trpphæð 60 milljóniC: kk- króna.Tyerður láninu varið til aj fullgera-Éyúpveg og opna þannjg hringv§‘tfmfeVestfirði. \/Q *•+ ^***>‘— Happdrættisskuldabréf ”eru endurgreidd að 10 ái z með verðbótum í.hlutfall ~un framfærsluvísrjtölu. ,;J - um þróun framfærsluvís - uðu 1000 kr. bréf£sem g< :: 20. september í ffrra. urrúkr. 414,00 ::á einu ári. Aukcþess ‘ - bréf sem miði phappdt^P, sem Verð hvers þréfs er 2.000,00 kr. • aldrei þarf að .^durnýjr *M0 ár ------.....■ —með 373 árlegum vinrítq^um að Dregiðylrðíúr í fyrsta sinn 27. déé? njpphæð kr. 8.00OD00,0Ö7~£ ember33;k. $ S DJUPVEGUR^ VERÐTRY6GT HgPPDRÆTTISUgi RÍKISSJÓÐS 1974 (§fSE3:ABANKI ÍSLANDS 'SlAMV* •—--

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.