Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1974
Leo Sigurðsson
— Afmœliskveðja
Varla er hægt að fletta svo
hinni sérstaklega nrerkilegu upp-
sláttarbók „Vestur-íslenzkrar
æviskrár“ séra Benjamíns Krist-
jánssonar, fræöimanns á Lauga-
landi, að maður reki sig ekki á
einn eða annan af Deildartungu-
ætt í Borgarfirði, sem markað
hafa merk spor í kanadískri sögu.
Einn þeirra manna er rafmagns-
verkfræðingurinn Leó Sigurðsson
í White Rock. Fyrr á þessu ári
varð hann sjötugur, er það leitt að
hans hefir eigi verið getið I ís-
lenzku dagblaði vegna þeirra
tímamóta. Hér er því síðbúin af-
mæliskveðja á ferðinni.
Leó er fæddur 20. apríl 1904 í
Swan River (Álftárdal) Mani-
toba. Foreldrar hans voru þau
hjónina Eggertína Sigríður
Eggertsdóttir Jónassonar
stúdents að Leirá, móðir hennar
Sigríður Jónsdóttir f Deildar-
tungu, og Sigurður f. að Ásólfs-
stöðum í Árnessýslu Jónssonar.
Móðir Sigurðar var Jórunn Ólafs-
dóttir fædd og uppalin I Eystra-
hreppi Árnessýslu. Faðir Leós var
Þingeyingur, sonarsonur Krist-
jáns umboðsmanns og dbr. á 111-
ugastööum I Fnjóskadal Jóns-
sonar.
Inn í þetta rammíslenzka and-
rúmsloft fæddist Leó, og er næst-
elztur sex systkina. Tveggja ára
gamall fluttist hann með for-
eldrum til Winnipeg. Aðalástæð-
an fyrir flutningnum mun hafa
verið sú, að foreldrunum hafi
fundist þar vera fleiri vegir opnir
til menntunar og frama en I Swan
River. Strax í barnæsku bar á
námshæfileikum Leós. Hann lauk
prófi í rafmagnsverkfræði. Yfir
fjörutíu ára skeið starfaði hann
hjá systurfélagi Northern Elec-
tric, Dominion Sound Equiment,
og var forstjóri þeirrar deildar I
British Columbia, þar til hann lét
af störfum aldurs vegna.
Leó er kvæntur frú Nönnu
Helgu hjúkrunarkonu, dóttur
séra Alberts Kristjánssonar í
Biaine. Hjónaband þeirra hefir
verið hið ástúðlegasta. Börn
þeirra eru tvö:
1. Albert f. 1927, lögfræðingur
og læknir, en starfar nú sem
blaðamaður.
2. Lorraine Grace, gift William
C. Cook námuverkfræðingi, þau
eru búsett í Calgary.
Heimili þeirra Nönnu og Leós
ber vott um menningu, velmegun
og heilbrigt líf. Það hefir jafnan
staðið opið fyrir Islendingum,
sem ýmist eru á ferð eða eiga
heima f nágrenninu. Leó er einn
skemmtilegasti stflisti er ég
þekki, skrifar skemmtileg og
glögg bréf. Hann er glaðsinna,
elskaður af eiginkonu, börnum,
barnabörnum og fjölmennum
frændgarði. Vinátta þeirra hjóna
er sterkari en stál. Þau hafa verið
sólarmegin í lífinu, en nú hefur
skuggi fallið á veg Leós vegna
heyrnarleysis.
20 bækur
aðinn frá
— Að þessu sinni koma út
helmingi færri bækur hjá Leiftri
en f fyrra, en þá komu út 40
bækur, sagði Gunnar Einarsson
prentsmiðjustjóri, er Mbl. ræddi
við hann um bókaútgáfu Leifturs
f haust
Það sem veldur þessu eru ekki
aðeins erfiðleikar í efnisöflun,
heldur aðallega vinnuaflsskortur
I prentsmiðju. Afköstin hafa
minnkað meir en búizt hafi verið
við í upphafi. Hið langa verkfall
prentara fyrr á þessu ári virðist
hafa dregið lengri dilk á eftir sér
en reiknað var með í upphafi,
ennfremur höfðu sumarleyfi
prentara sem eru 27 virkir dagar,
nokkuð að segja og þar við bætist,
að samkvæmt síðustu kjarasamn-
Lynx
komin aftur.
Kr. 18.665.—
r
SEGULBAND
MEÐ
ÚTVARPI
0 Innb. hljóðnemi,
11 5v
^ 220v + rafhlöður
0 Auto stop
Sendum í póstkröfu.
RAFB0R6 SF.
RAtJDARARSTÍG 1 SÍMl 11141
M£ MS MS
SM sn sn
MS MY Adals AUGL TEiKr NDAM ræti 6 simi MS ÝSINGA- JISTOFA ÓTA 25810
Um leið og ég óska frænda
mfnum til hamingju á þessum
tfmamótum, þakka ég vináttuna
og góðvildina f minn garð.
Helgi Vigfússon
kennari.
á mark-
Leiftri
íngum eiga prentsmiðjur að
greiða starfsfólki 14 veikindadaga
á ári. Þótt flestum veitist erfitt að
skilja það, þá varð niðurstaða
samninganna sú, að fyrirtækin
eiga að greiða starfsfólkinu þessa
14 daga hvort sem það er veikt
eða ekki, sagði Gunnar.
Hann sagði ennfremur að
kostnaðarhækkanir hefðu aukizt
gífurlega og drægi það úr áræðni
manna og getu. En bækurnar sem
Leiftur gefur út verða engu að
síður 18—20, og þegar eru
komnar út 9 barna- og unglinga-
bækur, sem eru aðallega f
flokkum sem hafa komið út á
hverju ári. Þar má nefna Bob
Moran, Frank og Jói 2 bækur,
Nancy 2 bækur, Kim og Pétur
Most. Ennfremur kemur út ein
bók f flokknum um Steina og
Danna eftir Kristján Jóhannsson,
og ný útgáfa að Nýjum ævin-
týrum sem er eiginlega viðbót við
Grimmsævintýri.
Gunnar sagði á næstu dögum
kæmu líklega út jafnmargar
bækur fyrir fullorðið fólk. Af
þeim mætti nefna fyrst Islenda
eftir Benedikt Gíslason frá Hof-
teigi, en sú bók fjallar um forn
íslenzk fræði. Þessi bók kom fyrst
út fyrir nokkrum árum, en í litlu
upplagi og hefur nú verið ófáan-
leg um nokkurra ára skeið.
Ævisaga Hafsteins Sigurbjarn-
arsonar frá Reykholti í Höfða-
hverfi er 444 bls. bók, sem er að
koma út hjá Leiftri. Kvöldrúnir
nefnist svo bók, sem Þorsteinn
Matthíasson hefur skráð eftir
föður sínum. Þá kemur út bókin
Bjart er við Breiðafjörð eftir
Sigurð Sveinbjarnarson frá
Bjarneyjum. Sigurrós Júlfus-
dóttir nefnist höfundur sem nú
gefur út sína aðra bók og nefnist
hún Glætur. Haldið verður áfram
að gefa út ritsafn Grétars Fells
„Það er svo margt“ og kemur 5.
bindið út að þessu sinni. Þá má
loks nefna Utskæfur eftir Berg-
svein Skúlason en sú bók fjallar
um lífið á Breiðafjarðareyjum.
Ein þýdd bók kemur út hjá
Leiftri. Er það sfðasta sigfing
heim eftir Dorothy Quentin, en
eftir sama höfund kom f fyrra
Lantana. Þessi bók er spennandi
leynilögreglu- og ástarsaga.
Miðaldra maður
lézt í sprengingu
á N-Irlandi
Belfast 22. okt. Reuter.
MIÐALDRA maður lézt f Belfast f
dag, er sprengja sprakk í höndufn
hans. Var maðurinn að bera
sprengjuna út úr búð, sem hann
vann í, en þar hafði henni verið
komið fyrir. Sex manns slösuðust
og þar á meðal var ungur drengur
og varð að taka af honum annan
fótinn á sjúkrahúsi skömmu
sfðar.
íbúð til leigu
4ra herb. íbúð á Hlíðasvæði, til leigu nú þegar.
Tilboð, er greini fjölskyldustærð sendist
Morgunblaðinu merkt: „Skilvís greiðsla —
8535" fyrir 28. þ.m.
Verk h.f.
Verkamenn óskast til starfa í húshlutaverk-
smiðju fyrirtækisins í Kópavogi. Fæði á
staðnum.
Upplýsinaar á skrifstofu Verk h.f., Lauqaveqi
1 20, sími 25600.
Vestmannaeyingar
Kvenfélagið Heimaey heldur árshátíð sína að
Hótel Sögu föstudaginn 1. nóv. og hefst með
borðhaldi kl. 7.00 e.h.
Sala aðgöngumiða hefst fimmtudaginn 24.
október á Hótel Sögu kl. 4—7 e.h. Óseldir
miðar seldir frá kl. 6.00 föstudaginn 1. nóvem-
ber.
Norska sendiráðið
óskar eftir
húsnæði eða íbúð með a.m.k. 3 svefnherb. á
rólegum stað, gjarnan utan Reykjavíkur. Einnig
1—2ja herb. íbúð í Reykjavík. Upplýsinqar í
síma 13065.
Framvinnslufyrirtæki
á Suðurlandi
óskar eftir báti (minnst 100 tonn) í viðskipti.
Getur séð fyrir netaveiðafærum. Uppl. gefur
Þorsteinn Júlíusson hr. Skólavörðustíg 12, sími
14045.
Vönduð íbúð —
Fasteignaviðskipti
Til sölu er mjög vönduð íbúð við Skaftahlíð
(fjölbýlishús samkvæmt teikningu Sigurðar
Thordarson) 4 — 5 herbergi. Sérgeymsla.
Sérhiti. Hef jafnframt góðan kaupanda að
4ra—5 herb. íbúð í vesturbæ eða Seltjarnar-
nesi. Skipti á ofangreindum eignum æskileg.
Upplýsingar á skrifstofu minni í Búnaðarbanka-
húsinu við Hlemm og eftir skrifstofutima í síma
41 104. Kristinn Einarsson hæstaréttarlögmaður.
— Þuríður
Framhald af bls. 16
vænlegra og óuppbyggilegra les-
efni til augna. Á hinn bóginn hef
ég grautað talsvert í Nýja testa-
mentinu, einkum guðspjöllunum,
og tel að sá hluti biblíunnar sé
mér álíka töm „tilvitnunarhand-
bók“ og ykkur kennimönnum er
postulasagan og Pálsbréfin, sem
virðast gjörsamlega hafa borið
sigurorð af boðskap sjálfs meist-
arans í kirkju nútfmans. Því er
ekki að undra, að þið, sem hafið
gert postulann Pál að staðgengli
sjálfs Krists, séuð ekki hreyfan-
legri f andanum og umburðar-
lyndari í garð kvenna en raun ber
vitni. Kristur gaf postulunum
ekki vald til þess að úthúða kon-
um, sem var ein eftirlætisiðja
Páls, heldur til þess að reka út illa
anda og gera kraftaverk. Og mér
finnst satt að segja kominn tími
til þess að við gerum það upp við
okkur, hvort við játum hina
kristnu trú guðspjallanna eða
Pálíanisma.
Svo sem fyrr er getið, hefur þú
að minu viti ekki haldið þig við
kjarna málsins f svarbréfi þínu,
og reifað það nánar með sjálf-
hugsuðum rökum, hvers vegna
kona má ekki taka vígslu án þess
að hálf prestastéttin verði heilsu-
laus fyrir vikið, eða velja sér það
ævistarf, sem henni finnst bezt
fyrir sér liggja. Því neyðist ég til
þess að fylgja þér eftir út á þfnar
„hálu brautir“ og gera aukaatrið-
in að aðalatriðum.
Þú hneykslast að vonum á því,
að ég skuli kalla ýmsar dömur af
gamla skólanum „útvatnaðar
eiginkonur," og það er ein af
meginuppistöðunum í svari þínu.
Veiztu það, að ekki er laust við að
ég hneykslist á því sjálf, enda hef
ég hugsað mér að biðjast velvirð-
ingar (biðja þær — ekki þig) á
því glæfralega orðavali. Eftir á að
hyggja sé ég, að þær konur áttu
varla annarra kosta völ, og því
fagnar þú að sjálfsögðu í hjarta
þínu álíka mikið og hruni kven-
prestaveldis Krítar. En því getur
þú enga stoð fundið í mínum
skrifum, að ég geri lítið úr
æxlunarhlutverki kvenna eða
móðurhlutverki þeirra. (Auk þess
er þrælbundin eiginkona ekki =
móðir) Það er aðeins óskhyggja.
Og hefur nokkur ráð á því? Hver
ætti að bera börnin? Ekki gerir
æðsta skepnan það. Eg benti að-
eins á það, að konur gætu líka
gert annað en f jölga mannkyninu.
Hitt tel ég bæði ósmekklegt og svo
langt fyrir handan þau aukaat-
riði semokkurhefurkomiðsaman
um að gera að aðalatriðum, að
ræða um það, hvers vegna sumar
konur eru mæður og aðrar ekki.
Hvort því veldur meydómsdýrkun
(varla getur kirkjan leyft sér að
harma skírlífi okkar), leti, „list-
sköpunar“-æði eða eitthvað ann-
að. En ef ég get með nokkru móti
dregið úr vítaverðu dáðleysi mfnu
í þeim efnum, þá geri ég það bezt
með því að minna þig á það, að við
eigum bæði jafn lítinn heiður af
fjölgun mannkynsins. Ef nokkuð
má marka orð þín, þá segirðu að
skaparinn leyfi ekki slíkt án til-
verknaðar karlmanns. En frá
mínum sjónarhóli séð, er það e.tv.
ekki það versta, sem yfir eina
konu getur dunið að eiga ekki
afkvæmi, sízt þá, sem veit hvaða
örlög mundu bíða þess undir
handleiðslu hinna andlegu yfir-
valda.
Skrifað stendur: „Þeir tímar
munu koma, að menn munu segja
— sælar eru óbyrjur....“
Þá held ég að ekki sé ástæða til
þess að þakka þér fyrir fleira í
svarbréfi þínu. En hitt vil ég
árétta að lokum: Ef guð getur
yfirleitt ekki komizt af án okkar
manna (sem er vafamál), þá held
ég að honum sé meiri akkur í þvf
að á hann sé trúað, en hann sé
kallaður Herra, Herra í helgidóm-
inum á hverjum sunnudegi í
sömuprédikun. Ogmiggrunaraó
sá eigi betri heimvon, sem leitast
við að uppfylla hans stærsta og
mesta lögmál — að elska Drottin
guð sinn og náungann að auki —
heldur en þeir, sem gera sér guð
almáttugan eingöngu að lifi-
brauði.
Þar með er þessu guðsblessaða
pennaskaki lokið af minni hálfu.
Þín í andanum
Þurfður Kvaran.