Morgunblaðið - 24.10.1974, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÖBER 1974
Guðmundur Ólafs-
son - Minningarorð
Blönduhlið í Skagafirði. For-
eldrar hans voru Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir og Ölafur Jóhanns-
son.
Þegar Guðmundur var 11 ára
gamall fluttist hann meó
foreldrum sinum að Miklabæ í
Skagafirði.
Árið 1941 tekur hann við búi
föður síns, sem lézt það sama ár.
Nokkrum árum síðar — eða árið
1947 — flyzt Guðmundur svo að
Skiðastöðum í Lýtingsstaðahreppi
og býr hann þar til ársloka 1953,
en þá veikist hann af berklum og
leggst inn á Kristneshæli.
Við þennan landlæga vágest
átti Guðmundur að striða í um 6
ára skeið, og hafði hann þá dvalist
þessi ár bæði á Reykjalundi og
Kristneshæli.
Árið 1960 flyzt Guðmundur til
Reykjavíkur ásamt konu sinni
Önnu Helgadóttur og tveim
börnum þeirra, Ólafi og Sigur-
björgu og móður sinni.
Það sama ár ræðst hann til
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
FREYSTEINN ÞORBERGSSON,
Öldutúni 18. Hafnarfirði
andaðist á Landspitalanum aðfaranótt miðvikudagsins 23 þ.m.
Edda Þráinsdóttir
og dætur
t
Útför móður okkar,
ÓLAFÍU BJÖRNSDÓTTUR,
Nýlendugötu 1 2,
fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 25. október n.k. kl. 15.00.
Guðrún Vilmundardóttir, Björn Vilmundarson,
Vilhjálmur Vilmundarson, Björgvin Vilmundarson.
t
Maðurinn minn,
SIGURBJÖRN EYJÓLFSSON,
frá Keflavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 25.
október kl. 2 e.h. Fyrir hönd barna og annarra vandamanna
Guðlaug Jónsdóttir.
Fæddur: 15. júni 1916.
Dáinn: 17. október 1974.
GUÐMUNDUR Jóhann Ólafsson,
eins og hann hét fullu nafni, var
fæddur að Frostastöðum í
t
Konan mín,
REGÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 25. október kl. 1 4.
kl 14.
Bjarni Bjarnason.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegn'a andláts,
STEINUNNAR SCHRAM,
frá Siglufirði,
Björn Dúason,
Kristín Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts sonar
okkar, bróður og dóttursonar
KJARTANS HALLDÓRS BJÖRNSSONAR,
Sæviðarsundi 74,
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og hjúkrunarliði á I. deild A
og B Landakotsspítala fyrir frábæra hjúkrun og umönnun
Sigríður Kjartansdóttir, Björn Kristmundsson,
Halldóra Björnsdóttir, Kristín Björnsdóttir,
Halldóra Jónsdóttir.
starfa hjá Sláturfélagi Suður-
lands og vann hann þar til dauða-
dags.
Dauðinn — sá fasti farandkarl
— gerir sjaldnast boð á undan
komu sinni. Svo var og í þetta
sinn. Vart hafa ástvinir Guð-
mundar búist við því, er hann var
fluttur á spítalann siðdegis mið-
vikudaginn 16. þ.m. að hann yrði
ekki í tölu lifenda að morgni
næsta dags.
Hið unga líf var Guðmundi hug-
leikið, bæði 1 sjálfri náttúrunni
sem í mannlífinu. Þegar barna-
börnin komu í heimsókn var afi
hinn natni og athuguli leikbróðir.
Þá var fylgst vel með því sem
þessir uppvaxandi þegnar höfðust
að. Þeir sem hafa á einhvern hátt
tapað hluta af sinni líkamsorku
kunna vel að meta heilbrigði og
lífsorku.
Við hjónin þökkum hinum
látna góð kynni og við söknum
þessa dagfarsprúða sambýlis-
I manns. Mestur verður þó sökn-
| uður eftirlifandi konu og aldr-
! aðrar móður. Við sendum þeim
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og erum þess jafnframt
fullviss að á sorgar- og saknaðar-
stundum gefst okkur óvæntur
styrkur. Megi sá styrkur hlotnast
þeim, börnum þeirra, tengda-
börnum, barnabörnum og stjúp-
börnum.
Vilhjálmur Björnsson.
Margrét Einars-
dóttir — Kveðja
Fædd 17. júlí 1943.
Dáin 16. október 1974.
Að morgni miðvikudagsins
þann sextánda þessa mánaðar
barst mér sú sorgarfregn, að mág-
kona mín, Margrét Einarsdóttir,
hefði andast þá um morguninn.
Að vísu er varla hægt að segja,
að lát Margrétar hefði átt að koma
mjög á óvart, því hún hafði lengi
átt við mjög mikil og alvarleg
veikindi að stríða. En samt sem
áður kom þessi fregn eins og
reiðarslag. Það er mjög erfitt að
sætta sig við, að ung manneskja,
svo full af lífskrafti og sem átti
svo miklu ólokið, skuli nú vera
fyrir fullt og allt horfin sjónum
okkar.
E.t.v. leyndist alltaf með manni
sú von, að Margréti heitinni tæk-
ist að lokum að sigrast á veikind-
um sínum, slíkum lífsvilja og bar-
áttuþreki sem hún var gædd. En
slíkir eiginleikar virðast mega sín
lítils gagnvart dauðanum.
Margrét fæddist á Skagaströnd,
dóttir hjónanna Aðalbjargar
Bjarnadóttur og Einars Magnúsar
Kristjánssonar og var hún yngst
fimm systkina. Ung að aldri flutt-
ist hún með fjölskyldu sinni 1
Vogana, þar sem þau bjuggu um
nokkurra ára skeið. Þaðan fluttist
fjölskyldan búferlum til Reykja-
vfkur, og hefur Margrét átt þar
heima æ síðan.
Árið 1961 giftist Margrét eftir-
lifandi manni sfnum, Moritz Wil-
helm Sigurðssyni og eignuðust
þau þrjú indæl og mannvænleg
börn, þau Sigurð, önnu og Einar
Magnús.
Fá heimili veit ég um, sem eins
gott var að koma á og heimili
þeirra hjóna. Þar sat Iffsgleðin
jafnan í öndvegi og til manns staf-
aði birtu og hlýju. Sárt er fyrir
eiginmanninn og hin ungu börn
að sjá á bak eiginkonu og móður,
sem annaðist þau og umvafði af
svo miklu ástríki og alúð.
Að sfðustu vil ég votta ástvinum
hennar mína dýpstu samúð. Megi
guð veita þeim styrk í sorg þeirra.
Auður Sigurðardóttir.
Guðbjörg Bjarnadótt-
ir — Minningarorð
Þann 15. okt. s.l. andaðist í götu 68, Akranesi. Langar okkur
Sjúkrahúsi Akraness amma okkar að minnast hennar nokkrum
Guðbjörg Bjarnadóttir, Suður- orðum.
t
Fósturmóðir okkar,
MARGRÉT SALÓME JÓNSDÓTTIR
frá MiSdal t Bolungarvík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. október kl
10,30.
Rannveig Jónsdóttir,
Guðlaug Snorradóttir.
t
Þökkum af alhug okkar sýndu vináttu og samúð vegna andláts
eiginmanns, sonar og föður,
GUÐMUNDAR EINARSSONAR,
Blönduósi.
Hrafnhildur Reynisdóttir, Davla Guðmundsson,
Hrönn Guðmundsdóttir, Bryndis Bylgja Guðmundsdóttir,
Einar Guðmundsson. Þórdls Guðmundsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og alla sæmd, vegna
fráfalls, eiginmanns mins, föður og tengdaföður okkar
ÞORSTEINS SIGURÐSSONAR
bónda á Vatnsleysu
Ingigerður Þorsteinsdóttir,
Sigurður Þorsteinsson,
Einar Geir Þorsteinsson,
Kolbeinn Þorsteinsson,
Bragi Þorsteinsson,
Sigrlður Þorsteinsdóttir,
Viðar Þorsteinsson,
Steingerður Þorsteinsdóttir,
Ólöf Brynjólfsdóttir,
Ingveidur B. Stefánsdóttir,
Erla Sigurðardóttir,
Halla Bjarnadóttir,
Grétar Br. Kristjánsson.
Guðrún Gestsdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
GlSLA GlSLASONAR
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og hjúkrunarliði á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund fyrir góða hjúkrun og umönnun.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Kristín G. Glsladóttir, Vilhjálmur G. Skúlason,
Þorgerður M. Gísladóttir, Jón Ól. Bjarnason,
og barnabörn.
Hún fæddist að Kvíanesi í Súg-
andafirði 5. september 1892, dótt-
ir hjónanna Bjarna Ölafssonar og
Helgu Jónsdóttur. Ung giftist hún
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Oddi Hallbjörnssyni skipstjóra
frá Bakka í Tálknafirði. Bjuggu
þau fyrstu 15 árin á Súgandafirði,
en fluttust þaðan til Akraness og
hafa búið þar síðan.
Þeim varð 10 barna auðið, þar
af komust 8 til fullorðinsára. Þau
eru: Ölafur Veturliði, giftur Sól-
eyju Halldórsdóttur, Guðrún Val-
gerður, gift Bjarna Kristófers-
syni, Þorgerður Jóna, Aðalheiður
María, gift Ársæli Vaidimarssyni,
Hallbjörn Eðvarð, giftur Fjólu
Eirfksdóttur, Bjarni, giftur Agötu
Þorleifsdóttur, hann lést af slys-
förum árið 1958, Jón Friðrik,
giftur Svölu Knudsen, Guðbjörn
Valdimar, giftur Kristínu Guð-
laugsdóttur. Afkomendur þeirra
nálgast nú hundrað.
Umvafin minningum, allt frá
bernskudögum, þökkum við
ömmu alla þá ástúð og umhyggju
sem hún veitti okkur.
Jafnaðargeð og létt Iund voru
hennar aðalsmerki, og þrátt fyrir
annir þær og ærinn starfa sem
Framhald á bls. 20
t
Kveðjuathöfn,
SIGÞRÚÐAR
SIGUROARDÓTTUR,
fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 24. þ.m. kl. 1.30
e.h.
Jarðsett verður frá Víkurkirkju í
Mýrdal laugardaginn 26. okt kl.
1.00 e.h. Blóm og kransar af-
beðin
Aðstandendur.