Morgunblaðið - 24.10.1974, Side 3

Morgunblaðið - 24.10.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTOBER 1974 3 Olympíuleikarnir 1980 verða haldnir í Moskvu ALÞJÖÐLEGA Olympfunefndin situr á fundi í Vínarborg þessa dagana, og hefur þar borið margt á góma bæði varðandi fyrirkomu- lag Olympfuleika, áhugamanna- reglur, og fleira. Það mál, sem mesta athygli hefur þó vakið og beðið var eftir með mestri eftir- væntingu, var ákvörðun nefndar- innar um keppnisstað leikanna 1980. Sovétmenn hafa sótt það mjög fast að fá að halda leikana allt frá árinu 1960, og voru þeir fyrstir til að leggja inn umsókn um leikana 1980. Bandarfkja- menn sóttu einnig um að fá að halda leikana f Los Angeles, en þar hafa leikarnir einu sinni verið haldnir, árið 1932, en sfðan hafa Olympfuleikar ekki verið haldnir f Bandarfkjunum. Fulltrúar beggja landanna fluttu mál sitt á fundum nefndar- innar, og röktu ítarlega mögu- leikana á því að halda leikana. Að tjaldabaki fór svo fram mikið samningamakk. Að mati margra kom varla annað til greina en að Moskva yrði valin sem keppnisstaður leikanna. Olympíuleikar hafa aldrei verið haldnir f Austur- Evrópu, og auk þess kom umsókn Moskvuborgar fram langfyrst allra umsókna. Hins vegar kom það fram þegar er fundurinn f Vín hófst, að ýmsar blikur voru á lofti, og þá helzt þær, að heims- mót stúdenta, sem fram fór í Moskvu 1973 og átti að vera nokkurs konar prófsteinn á hvort Sovétmenn gætu haldið leikana þótti ekki heppnast sem skyldi, og var t.d. framkvæmd leikanna hart gagnrýnd af fréttamönnum á sín- um tíma, svo og keppendum — þá mest fyrir að ferðafrelsið virtist takmarkað innan landsins og einnig miklum erfiðleikum og skriffinnsku háð að komast inn og út úr landi. Af þessum sökum þótti sýnt að fylgi Sovétmanna myndi ekki vera eins traust á fundinum í Vín, og í fyrstu var talið. Frá afhendingunni f gær — talið frá vlnstri: Einar Olgeirsson, Sigurjón Olafsson, Adda Bára Sigfúsdóttir og Gylfi Þ. Gfslason. Alþingi færð brjóstmynd af Einari Olgeirssyni í gær Atkvæðagreiðsla um staðina tvo: Moskvu og Los Angeles fór svo fram árdegis í gær, og varð niðurstaðan sú, að meirihluti Olympíunefndarmanna greiddi Moskvu atkvæði. Tölur úr atkvæðagreiðslunni fengust hins vegar ekki gefnar upp. Vitað er, að íþróttaaðstaða í Moskvuborg er hin fullkomnasta. Á síðustu árum hafa 40 ný hótel verið byggð í borginni, þar eru 60 fullkomnir íþróttavellir, 30 sund- laugar og 230 íþróttahús, þar af eitt sem rúmar um 50 þúsund áhorfendur. Þá var á þinginu í Vfn ákveðinn keppnisstaður Vetrar-Olympíu- leikanna 1980. Verða þeir haldnir í Lake Placid í Bandankjunum. Magnús Sigurðsson fyrr- verandi skólastjóri látinn LATINN er f Reykjavík, Magnús Hjálparsjóð æskufólks 1964, og Sigurðsson, fyrrverandi skóla- stjóri og stofnandi Hjálparsjóðs æskufólks. Hann var 68 ára að aldri. Magnús Sigurðsson fæddist 4. júní 1906, á Geirseyri í Patreks- firði. Foreldrar hans voru Sigurð- ur Magnússon læknir þar og kona hans Esther Jensen. Magnús varð gagnfræðingur frá Flensborg 1922 og búfræðingur frá Hvann- eyri 1928. Magnús lauk kennara- prófi 1936. Hann var kennari í Barðastrandarhreppi 1929—’34, við Laugarnesskólann í Reykjavík 1936—’55 og skólastjóri við Hlíðarskóla frá stofnun 1955 þar til hann lét af störfum fyrir nokkrum árum. Magnús starfaði mikið að félags- og barnaverndarmálum. Hann var m.a. í barnaverndar- nefnd og barnaverndarráði, í skólanefnd Vinnuskóla Reykja- víkur og í stjórn Landsmála- félagsins Varðar. Hann stofnaði John Miles Set kemur til Islands Á LAUGARDAG kemur hingað til lands brezka hljómsveitin John Miles Set, sem er Islend- ingum að góðu kunn frá þvf hún lék hér f fyrravetur. Heldur hljómsveitin hér m.a. hljómleika I Austurbæjarbfói á þriðjudags- kvöldið, og koma þar einnig fram hljómsveitin Júdas og Ingvi Steinn Sigtryggsson. Þess má geta, að nú er að koma á fslenzkan hljómplötumarkað ný tveggja laga plata með John Miles og félögum, þar sem þeir flytja m.a. lag Magnúsar Kjartanssonar „To be Grateful". ALÞINGI var f gær afhent brjóst- mynd af Einari Olgeirssyni sem Alþýðubandalagið fékk Sigurjón Ölafsson myndhöggvara til að gera og færði þinginu að gjöf. Er aðdragandi þessarar gjafar sá, að er Einar Olgeirsson varð sjötugur ákvað Alþýðubandalagið að heiðra fyrrverandi leiðtoga sinn með þvf að láta gera af honum brjóstmynd og niðurstaðan varð sú að myndin skyldi færð Alþingi að gjöf ef forsetar þess þægju hana. Samþykktu forsetar þings- ins að taka við gjöfinni og var hún formlega afhent f gær, sem fyrr segir, en geta má þess að þá voru liðin nákvæmlega 30 ár frá því að stofnað var til nýsköpunar- stjórnarinnar sem Einar átti sinn þátt f að mynda. Adda Bára Sigfúsdóttir afhenti brjóstmyndina fyrir hönd gef- enda, en forseti Sameinaðs Al- þingis, Gylfi Þ. Gfslason, veitti henni viðtöku og þakkaði fyrir hönd Alþingis. I stuttu ávarpi minntist hann þess, að Einar 01- geirsson hefði setið á Alþingi í 30 ár, setið á 40 þingum og verið forseti neðri deildar Alþingis um skeið. Einar Olgeirsson hefði tví- mælalaust verið með mestu þing- skörungum síðustu hálfa öldina dáður af fylgismönnum en virtur af andstæðingum og sagði að í brjóstmyndinni myndi þessi merki þingsköiungur áfram dvelja innan veggja Alþingis. Viðstaddir athöfnina voru auk Einars Olgeirssonar og barna hans helztu forystumenn Alþýðu- bandalagsins, forsetar þingsins 'og skrifstofustjóri Alþingis. Brjóst- myndinni hefur verið valinn stað- ur í bókasafni Alþingis, sem flutt hefur verið af efstu hæð Þórs- hamars yfir í Vonarstræti, þar sem verið er að innrétta það í nýjum húsakynnum. Alþjóðlegt kvennaár SÞ 1975 vann hann mikið starf í sambandi við þann sjóð. Magnús Sigurðsson var kvæntur Sigríði Bjarney Einars- dóttur. EINS og fram hefur komið af fréttum hafa nokkur félagasam- tök bundizt samtökum um starf á hinu alþjóðlega kvennaári Sam- einuðu þjóðanna, sem hefst um næstu áramót. Formenn samtakanna, en þau eru fimm talsins, héldu fund með fréttamönnum nýlega, og hafa óskað eftir birtingu eftirfarandi fréttatilkynningar á degi Samein- uðu þjóðanna, sem er f dag, 24. október. Nánari grein verður gerð fyrir einstökum atriðum varðandi þátt samtakanna í hinu alþjóðlega kvennaári sfðar. „í tilefni þess, að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lýsti því yfir 18. desember 1972, að árið 1975 skyldi sérstaklega helgað málefn- um kvenna, búa mörg kvenna- samtök sig undir það að taka þátt f hinu alþjóðlega kvennaári. Strax í vor hófst samstarf milli nefnda frá Kvenfélagasambandi íslands, Kvenréttindafélagi islands, Kvenstúdentafélagi islands, Fé- lagi háskölakvenna, Rauðsokka- hreyfingunni og fulltrúa Félags Sameinuðu þjóðanna. Þessar nefndir hafa skilað til- lögum til stjórna samtaka sinna og er þar bæði fjallað um sameig- Brynjólfur Jóhannesson — 50 ár á sviði Iðnó — BRYNJÓLFUR Jóhannesson leikari á 50 ára leikaraafmæii hjá Leikfélagi Reykjavfkur í dag. Brynjólfur liggur f sjúkra- húsi um þessar mundir, en samstarfsfólk hans f Iðnó bfða þess að hann komi aftur til starfa og hyggjast þá minnast afmælisins. Brynjólfur kom fyrst fram á sviðinu í Iðnó 24. október 1924 og fór þá með hlutverk í Storm- um eftir Stein Sigurðsson. Hann var þá nýkominn frá isa- firði, þar sem hann hafði getið sér orð sem ágætur leikari. Hins vegar virðist leikhúsfólki hér á mölinni ekki hafa þótt mikið til Brynjólfs koma í þessu fyrsta hlutverki ef marka má orð hans sjálfs í æviminn- ingum hans „Karlar eins og ég“, þar sem hann segir frá þessari fyrstu reynslu sinni á fjölum Iðnó: „Leikdómurum fannst líka ósköp lítið til mín koma. Einar Kvaran var góðviljaður maður og umburðarlyndur; hann sagði eitthvað á þá leið að ekki væri gott að meta af einu einasta hlutverki hvað þessi ungi Brynjólfur sem sfra Sigvaldi f Manni og konu maður kynni fyrir sér. Aðrir voru vissari í sinni sök og þeim mun harðari í horn að taka. Og eftir þessa frammistöðu var ég ekki hafður i miklum metum hjá Leikfélagi Reykjavíkur.” Nú er öldin aftur á móti önnur, því að i leikskrá fyrir Volpone, sem Leikfélagið frum- sýndi um jólin í fyrra og þar sem Brynjólfur brá sér aftur i gerfi Corbaccios, útnefnir Vig- dfs Finnbogadóttur leikhús- stjóri hann mann ársins. Hún vitnar til orða Brynjólfs, að hann hafi ekki verið í miklum metum hjá félaginu eftir frammistöðuna í fyrsta leikrit- inu og segir: „Hver skyldi nú trúa því! Okkur yngri samtíðarmönnum Brynjólfs Jóhannessonar finnst það næsta ótrúlegt, að hann skyldi ekki stökkva fullmót- aður leikari inn á leiksviðið i upphafi ferils síns. Við höfum átt svo margar eftirminnilegar stundir í leikhúsinu i návist hans sem leikara. Enda munu þessi ummæli ekki hafa staðizt nema rétt út árið. Síðan hefur Brynjólfur verið í röð fremstu leikara Leikfélags Reykjavíkur og félaginu verið sómi að hverju því hlutverki sem hann hefur tekið að sér. Þau munu nú vera orðin 166 talsins hér i Iðnó.“ inleg verkefni og verkefni, sem hverjum aðila fyrir sig skultfalið að annast. Sameiginleg verkefni eru þessi: 1) Að efna til fundar í Háskóla- bfói 19. júní og fá þangað ein- hverja heimsþekkta konu sem að- alfyrirlesara. 2) Að halda ráðstefnu dagana 20. og 21. júní, er fjalli um þá þætti, sem fram eru teknir í yfir- lýsingu Sameinuðu þjóðanna, þ.e.: 1. Aukið jafnrétti karla og kvenna. 2. Að tryggja fulla Þátttök'ú kvenna í heildarátaki til frampio unar, einkum með þvi að leggja áherslu á ábyrgð kvenna og mikil- vægi þeirra í sambandi við fjár- hagslega, félagslega og menning- arlega þróun innan einstakra landa, heímshluta og á alþjóða- sviði. 3. Að viðurkennt verði mikil- vægi aukins framlags kvenna til bættrar sambúðar og samvinnu milli ríkja og til eflingar heims- friði. 3) Að standa að fundum_ með fyrirlestrum á öðrum tímum árs- ins. Samstarfsnefndirnar hafa skor- að á póst- og símamálastjórn að minnast kvennaársins með útgáfu sérstaks frímerkis. Skorað hefur verið á útvarpsráð að hafa hið sérstaka verkefni árs- Framhald á bls. 20 15 ára inn- brotsþjófur I FYRRINÓTT var brotizt inn i Tónabíó. Þar voru rúður brotnar og brotnar upp hurðir. Stolið var nokkru magni af sælgæti og heyrnartæki af sýningarvél. Seinna um nóttina handsamaði lögreglan 15 ára pilt, sem var með grunsamlega mikið af sælgæti í fórum sfnum. Játaði hann að hafa brotizt inn. Hann hefur áður verið tekinn fyrir svipuð afbrot.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.