Morgunblaðið - 24.10.1974, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKT0BER 1974
i
Birta og ylur í skammdeginu.
Vetur er sú árstíð, sem bezt hentar
til að mála innanhúss.
Færið birtu og yl í húsið, með samstemmdum
litum og litatónum.
VITEITEX
Munið nafnið VITRETEX, það er mikilvægt, því:
Endingin vex með VITRETEX.
Framleiðandi á íslandi:
S/ippfé/agið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi - Símar 33433 og 33414
Þuríður Kvaran:
Til varnar kristnum dómi
Virðulega mannvitsbrekka!
Ég get ekki látið undir höfuð
leggjast að þakka þér fyrir bréf
þitt, þar sem þú leitast við að
útfæra nokkuð nánar villukenn-
ingu þína, sem birtist í megin-
dráttum í Mbl. 29. sept. Þó fæ ég
ekki betur séð, en þú skirrist við
að ræða kjarna þeirrar kenningar
til nokkurrar hlítar. Jafnframt
ber mér að þakka þér heiðarlega
en vonlausa tilraun til þess að
hvftskúra það, sem enn er óþvegið
af mínu kristilega heilabúi. En
áður en lengra er haldið, langar
mig að taka það fram þér til hróss,
að það er mun virðingarverðara
að halda fram háskalegri lifsskoð-
un, en breyta mjög á móti sam-
vizku sinni.
Ég sé það á svari þínu, að þú ert
þínum fræðum trúr, því höfuðein-
kenni og höfuðviðfangsefni guð-
fræðinnar hafa ævinlega verið
aukaatriði. Það virðist vera mun
meira sáluhjálparatriði að vita,
hvort guð er einn eða þrieinn,
Kristur fæddur, getinn eða
skapaður, heilagur andi útgeng-
inn af föðurnum, syninum éða
báðum, heldur en það, hvort sjálf
trúin á almættið er manninum
innlff og er virkur áorkunarþátt-
ur í lífi hans en ekki aðeins „dauð
heilafylli". Það er kannski ekki
von að prestum sé mikið kapps-
mál að kanna það, þar sem þeir
líta svo á — a.m.k. sumir hverjir
— að enginn geti verið í náðinni
hjá æðri máttarvöldum nema þeir
einir. (Þau eintök ættu að fara í
karakterskóla f Kalvíns). Einok-
un á sjálfum guðdómnum helzt
kyrfilega f hendur víð áður um-
rædda embættiseinokun. — Það
kemur svo oft og greinilega fram f
orðum margra presta, að hinn
óvfgði, almenni maður sé á sí-
felldum þönum eftir sannleikan-
NEYZLUGRANNIR
Bílarnir frá CHRYSLER-verksmiðjunum sem tóku þátt í sparaksturskeppni
íslenzka bifreiða- og vélhjólaklúbbsins, sunnudaginn 20. okt. s. L, sigruðu í i
sínum flokkum, eins og meðf. taf/a úr Morgunb/aðinu sýnir svart á hvítu. §!
2. fl. 1001 — 1300 rúmsm.:
1. SimcallOOGLS ók 109,9 km 4,5 1/100 km:
2. Skoda 110 L ók 107,9 km 4,61/100 km
3. Simca 1100 Special ók 105,0 krn 4,8 1/100 km
6. fl. 2201 rúmsm og stærri:
jl. Dodge Dart ók60,8km 8,2 1/100 kra (
t2. Bronco 6 strokka ók 60,7 km 8,2 1/100 km^
|3. Mustang Ghia ók 59,9 km 8,4 1/100 km 1
(6 strokka)
Þetta sannar enn einu sinni að SIMCA 1100 GLS og Special, Dodge Dart
Swinger og allir aðrir bílar frá CHRYSLER eru bæði hagkvæmir og ódýrir í
rekstri.
Kynnið yður verð og kjör á þessum glæsilegu fólksbílum strax í dag — meðan
úrvalið er fyrir hendi.
Sparið dýrmætt eldsneyti —Akið á bíl frá Chrysler
ya
CHRYSLER
INTERNATIONAL
tfökull hf.
ÁRMÚLA 36 Simar 84366—84491
um, en finni aldrei neitt. (sic)
Hvað vitið þið, hinir vígðu.hlekkir
himins og jarðar, hvað aðrir hafa
fundið af sannleika? Þið ættuð að
varast aðfullyrða nokkuð um það,
því það er engan veginn sjálfsagð-
ur hlutur, að við villuráfandi
jarðarbörn finnum samastað hjá
fyrsta presti eða treystum honum
fyrir öllum innstu hræringum sál-
ar okkar. Og er það að vonum.
Hvort Jesús Kristur var barn
síns tíma eða segjum barn allra
tíma er líka aukaatriði. Ég er viss
um, að hann tekur það ekki líkt
því eins nærri sér og þú. — Vafa-
laust ber að líta á holdtekju al-
mættisins frá báðum þeim sjónar-
hólum. Sú guðleg opinberun, sem
er svo yfir sig háleit, að hin svo-
kallaða vitsmunavera botnar ekk-
ert í henni, getur ekki átt neitt
erindi inn í mannheima, þar eð
hún hlýtur að vera maninum yfir-
skilvitleg og óskiljanleg. I þessum
skilningi hljóta allir trúarbragða-
höfundar að vera einhvers konar
börn síns tíma. Og mín „guð-
fræði“ má vera rétt eða röng mín
vegna, meðan ekki verður á hana
sannað, að hún sé ljót eða vond.
Annars vildi ég mega benda þér
og steingervingi þeim, sem lagt
hefur til andlegu spekitina í dbl.
Vfsi að undanförnu á það, að ekk-
ert er til, sem heitir „rétt“ guð-
fræði. Sú fræði býr yfir tima-
bundnum myndugleika og er
alltaf misröng og misskynsamleg
eins og önnur mannaverk. Og það
er sízta leiðin til að sannfæra
„menntagyðju" eins og mig, að
vitna endalaust til einhverra
ónafngreindra „heimsfrægra vís-
indamanna", sem með viður-
kenndum aðferðum eiga að hafa
rennt óhagganlegum stoðum und-
ir hinn eilífa sannleika. Ég er
búin að fá offylli mfna af slíkum
vinnubrögðum í minni sókn. Til
eru lika heimsfrægir vísinda-
menn, sem hafa lagt á þau von-
lausu klif að rannsaka sannfræði
fornritanna, en munurinn er sá,
að þeir eru ekki nafnlausir eins
og þeir vísindamenn, sem eiga að
vera burðarásar kirkjunnar og þá
um leið e.k. áþreifanleg réttlæt-
ingá íhaldssemi hennar.
Ef þú og þið tvíburaljósin trúið
ekki mér, þá er ekki úr vegi að
benda ykkur á ritgerðir í Skírni
eftir kynbræður ykkar, viður-
kennda vitmenn og eins konar
„kardfnála" hinnar evangelísk-
lútersku kirkju síns tfma, þá próf.
Haraid Níelsson og Jón biskup
Helgason. Það er heilnæm og
tímabær hugvekja fyrir forn-
aldarsálir eins og ykkur. Þar að
auki sýna greinar þessar það, að
ýmislegt annað má af fortiðinni
læra en þröngsýni.
í Skírni 1908, bls. 44 skrifar
próf. H.N. svofelld orð: „Gamla
skoðunin: að ritningin sé ein
heild, öll spjaldanna á milli
óskeikult „guðs orð“, hún styðst
við vanþekkinguna eina og forna
trú á þetta ritsafn. En vér eigum
ekki að trúa á ritninguna. Vér
eigum að trúa á guð og treysta
honum. En ritninguna eigum vér
að rannsaka og þekkja. (leturbr.
mín).
Heldurðu ekki, séra Hannes, að
slíkar prédikanir séu líklegri til
þess að leiða fólk aftur f faðm
þess guðs, sem flestir týna, hafna
eða frá þeim er tekinn á alvizku-
árunum (13—20) heldur en sá
hugsjónaóskapnaður, sem þú ert
fulltrúi fyrir og grundvallast á
afneitun allra vaxtarlögmála, sem
þú í svari þfnu forðast að ræða.
Kannski veiztu það ekki, kæri vin-
ur, að kirkjan hefur oft verið
kristindómnum hlekkur um háls,
og það svo mikill, að spakir menn
telja það ganga kraftaverki næst,
að hann skuli ekki vera liðinn
undir lok fyrir löngu. „Það liggur
við, að mér finnist það stundum
ein öruggasta sönnun fyrir sann-
leikskjarna kristindómsins, að
kirkjunni skuli ekki enn hafa tek-
izt að útrýma honum.“ (Sig. Nor-
dal, Líf og dauði, Eftirmáli). Til
þess að renna enn styrkari stoð-
um undir þessi sannindi, skal
vitnað í Skirnisgrein Jóns biskups
Helgasonar, þv. lektors, sem segir
svo bls. 195,1909:
„Sannleikurinn er sá, að hvergi
hefir íhaldssemi mannsandans
fremur látið til sín taka en ein-
mitt innan vébanda kirkjunnar og
trúarbragðanna, og skilningurinn
á öllum frelsiskröfum einstakl-
ingnum til handa átt jafnerfitt
uppdráttar og þar. Svo hefir þetta
verið á öllum tímum og er enn í
dag í mörgu tilliti — einnig innan
hinnar evangelisku kirkju, sem
eftir allri hugsjón sinni hefði ein-
mitt átt að verða heimkynni and-
legs frelsis í öllum greinum...“
Það er tæpast hægt að sýna
þessum gengnu heiðursmönnum
meiri virðingu en veita orðum
þeirra verðskuldaða athygli, eink-
um fyrir þá sök, að þeir hafa allir
verið postular heilbrigðrar skyn-
semi.
Eins og allir, sem ekki hafa
þrek til þess að lifa í samtíðinni,
finnur þú þínu hrikalega
fagnaðarerindi stuðning með því
að vitna til sögulegra staðreynda
fortíðarinnar, og það mun eiga að
taka af öll tvímæli um ágæti þinn-
ar kenningar. Og þú lætur þig
ekki muna um það að parkera
aftur í sjálfri Paradís (eða austur
f Eden), þar sem latur og heimsk-
ur Adam bíður eftir því, að vond
og siðspillt Eva gefi honum for-
boðinn ávöxt að éta. Ef Eva þessi
var yfir höfuð meiri „söguleg
staðreynd" en stígvélaði köttur-
inn, þá mun það rétt vera, að hún
hafi verið kona. En hinu geta
kvenffelsisf jendur ekki neitað, að
höggormurinn var karlkyns, og
það hvort heldur hann er kallaður
naðra eða slanga til þess að reyna
að bjarga ykkur guðsmyndunum
undan allri sök á syndinni. Allir
meginguðdómar lausnartrúar-
bragða eru karlkyns og það jafnt
höfuðpaurinn (pabbi höggorms-
ins) sem himnadrottinn. Kven-
goðmögn lausnartrúarbragðanna
eru öll eins konar uppbótarþing-
menn og eyðufyllingar. Og á því
er einföld skýring: drottnarar
heimsins hafa alltaf haft tilhneig-
ingu til að halda að almættið væri
einhverskonar eftirlíking af þeim
sjálfum. (Annars sjá nánari upp-
lýsingar í bók Walters Schubarts,
Religion og erotik, ennfremur í
frábærri ritgerð Halldórs Laxness
í Vettvangi dagsins).
Þá vitnar þú einnig í eftirmála í
kvenprestaveldi Krítar og kannt
þér ekki læti yfir hruni þess, og
telur það óræka sönnun fyr-
ir eðlislægum aumingjadómi
kvenna, að eldur gjósi úr iðrum
jarðar. Það var og. Eða hverju
reiddist Hekla, þá er hún gaus við
túnfót yðar árið 1970?
Halda mætti að þú hafir aldrei
heyrt þess getið, séra Hannes, að
öll menningarríki og menningar-
skeið líða undir lok, þegar þeirra
tími er kominn. Að kvenpresta-
veldi hafi verið á Krít staðfestir
það eitt, að konum er ekkert eðli-
legra en körlum að búa yfir yfir-
drottnun hins kynsins. Og von-
andi hafa þær getað fært sér
heilaskúringaformúluna í nyt
ekki síður en þið sem ekki þolið að
sjá vissa einstaklinga vaxa sam-
kvæmt innri eðlislögmálum. Ótti
þinn er skiljanlegur, þvf sú hætta
er alltaf fyrir hendi, að aðrir vaxi
manni yfir höfuð, ef heilaþvottur-
inn gengur illa. Og út frá því
sjónarhorni séð er líka auðskilið,
að þú getir ekki seilzt dýpra eftir
rökum hinna óskráðu laga en svo,
að þau nýtist til þess eins að verja
þig og stétt þína fyrir ásókn kven-
varga nútímans.
Þú lætur að því liggja, að ég sé
ekki allt of vel að mér í ritning-
unni. Má vera. En rétti þeir
kennimenn upp hönd, sem lesið
hafa biblíuna spjalda á milli. Þér
að segja, í trúnaði, var Gamla
testamentið mér álíka mikil hroll-
vekja og fyrrnefnt fagnaðarerindi
þitt, og ég hika ekki við að segja,
að ég hafi tæplega lagt mér ógn-
Framhald á bls. 24-