Morgunblaðið - 24.10.1974, Side 34
Islendingar töpuðu ul-leiknum:
Höfðu betrí
einstaklinga
en slakara
Uð enlramir
Frá Colin McAlpin,
fréttamanni Mbl. á
unglingaiandsleiknum í
Belfast:
Norður-írska unglingalandslið-
ið sigraði íslenzka unglingalands-
liðið í seinni leik Iiðanna í UEFA-
bikarkeppninni í knattspyrnu
með þremur mörkum gegn einu,
og kemst því í lokakeppnina, sem
fram fer f Sviss næsta vor. Þætti
íslendinga í þessari keppni er
hins vegar lokið að þessu sinni.
Leikurinn í Belfast í fyrrakvöld
var hinn skemmtilegasti og
unglingarnir buðu oft upp á
knattspyrnu, sem er á borð við
það bezta hjá þeim, sem eldri eru.
Norður-Irarnir voru, þegar á
heildina er litið, betri aðilinn í
leiknum og sigur þeirra því sann-
gjarn. Hins vegar átti íslenzka lið-
ið skilið að gera fleiri mörk í
leiknum, og hvað eftir annað náði
það skínandi góðum samleiksköfl-
um.
íslenzka liðiö hóf leikinn af
miklum krafti og réð lögum og
lofum á vellinum fyrstu 20 mínút-
urnar. Kom þessi kraftur íslenzka
liðsins Irunum greinilega í opna
skjöldu og áttu þeir í vök að verj-
ast. Þannig mátti t.d. mjög litlu
muna, að Islendingarnir skoruðu
þegar á 5. mínútu er Árni Val-
geirsson átti góða sendingu fyrir
markið og einn íslenzku sóknar-
leikmannanna náði að skjóta.
Markvörður írska liðsins var úr
jafnvægi, en tókst að bjarga á
línunni. Á 17. mínútu björguðu
svo írar aftur á línu, er Atli
Eðvaldsson hafði brotizt í gegnum
vörn þeirra og átt skot að mark-
inu.
En á 19. mínútu skipuðust veð-
ur óvænt í lofti. Islenzka liðið
hafði verið í sókn — of mikilli þar
, sem hún varð á kostnað varnar-
innar. Irarnir náðu síðan skyndi-
sókn og upp úr henni skoraði
Bobby Campbell mark. Þetta var
fyrsti leikur Campbells með n-
írska unglingalandsliðinu, en
hann er atvinnumaður með 2.
deildar liðinu Aston Villa i
Englandi, og hefur verið fastur
maður í því liði undanfarna
mánuði. Geysilega efnilegur
framlínuleikmaður, fljótur og
fylginn sér.
Á 35. mínútu átti Campbell
góða möguleika á því að bæta
öðru marki við, en fyrst björguðu
íslendingar á línu og síðan varði
Jón Þorbjörnsson markvörður.
Skömmu síðar átti svo Guðmund-
ur Þorbjörnsson glæsilegt skot að
marki íranna, en markvörðurinn
varði það frábærlega vel.
Á 44. mínútu bættu Irar öðru
marki Við. Það gerði Campbell
einnig eftir mikla baráttu inni í
vítateigi Islendinganna.
Campbell var svo enn á ferðinni
á 49. mínútu, og skoraði sitt þriðja
mark í leiknum — kom það eftir
mikla pressu Iranna að marki
Islendinganna.
Eftir þetta mark var sem Is-
lendingar vöknuðu aftur til lífs-
ins og tóku upp þá baráttu, sem
þeir höfðu sýnt fyrst í leiknum.
Hún bar þó ekki árangur fyrr
en á 67. mínútu er Hálfdan
Örlygsson skoraði laglegt mark
fyrir liðið og fleiri urðu svo ekki
mörkin. Hljóp mikil harka í leik-
inn undir lokin, og hafði dómari
leiksins ekki nægilega góð tök á
honum.
Þessi unglingalandsleikur var
fyrsti landsleikurinn, sem fram
hefur farið á Norður-Irlandi í
fjögur ár. Það ótrygga ástand,
sem hér hefur verið ríkjandi,
hefur orðið þess valdandi, að öll
landslið hafa neitað að koma
hingað, og hefur UEFA og FIFA
samþykkt þau mótmæli. Þeir
landsleikir, sem Norður-Irar hafa
leikið, hafa því allir farið fram á
útivelli.
Eftir leikinn í fyrrakvöld sagði
Ellert B. Schram, formaður KSl,
að íslendingarnir hefðu alltaf
verið ákveðnir að leika í írlandi.
— Ég vissi þó, sagði Ellert, — að
foreldrar drengjanna voru ugg-
andi yfir þessu ferðalagi, og vera
má, að sumum strákanna hafi
ekki alveg staðið á sama. En ég
vona, að þessi heimsókn okkar
verði til þess að brjóta ísinn og að
írarnir fái að leika heimaleiki
framvegis. '
I landsleiknum virkaði íslenzka
liðið nokkuð ójafnt, og samæfing
leikmanna virtist ekki vera sem
-skyldi. Það leyndi sér ekki, að í
liðinu voru frábærir einstakling-
ar — beztu leikmenn vallarins
voru íslenzkir. Þeir, sem af báru,
voru þeir Magnús Teitsson og
Guðmundur Þorbjörnsson. Þessir
leikmenn, sérstaklega þó Magnús,
hafa mikla knattspyrnu í sér.
Magnús var bezti maður vallarins,
og sýndi bæði meiri tækni með
knöttinn, meira auga fyrir því,
sem var að gerast á vellinum, og
meiri baráttu en atvinnumennirn-
ir í írska liðinu. Þarna er á ferð-
inni piltur, sem á örugglega fram-
tíð fyrir sér sem knattspyrnumað-
ur, og gaman væri fyrir hann að
fá tækifæri með atvinnuliðum.
Hinir miðvallarspilarar ís-
lenzka liðsins voru einnig mjög
góðir, svo og þeir Atii Eðvaldsson
og Hálfdan Örlygsson, en sá síðar-
nefndi skilar knettinum mjög vel
Hálfdan örlygsson — skoraði
mark Islendinganna.
frá sér og er laginn. Virtist það,
sem helzt skorti hjá honum, vera
meiri líkamsstyrkur.
Með meiri samæfingu ætti þetta
íslenzka lið að geta verið mjög
gott.
Irska liðið var mjög svipað því
sem maður átti von á. Það er
skipað leikreyndum piltum, sem
margir hverjir eru komnir á at-
vinnumannasamning í Englandi,
og við trúum því, að þetta lið eigi
eftir að ná langt í úrslitakeppni
UEFA-keppninnar. Jafnlangt og
írska unglingalandsliðið náði síð-
ast er það tók þátt í þessari
keppni, en þá lék það úrslitaleik
hennar við Englendinga.
KR
VETRARSTARF borðtennis-
deildar KR er nú hafið. Æfingar
verða fyrir unglinga á sunnudög-
um kl. 18.00 — 20.40, á þriðjudög-
um kl. 21.20 — 23.50 og á föstu-
dögum kl. 22.10 — 23,50 í KRhús-
inu og fyrir fullorðna á mánudög-
um kl. 18.00 — 20.40 í KR-húsinu
og á miðvikudögum kl. 20.30 —
22.10 í Laugardagshöllinni. Þjálf-
arar verða Hjálmar Aðalsteinsson
og Finnur Snorrason.
Minnibolti
REYKJAVlKURMÓT í minni-
bolta verður haldið í desember.
Þátttökutilkynningar ásamt
300,00 kr. þátttökugjaldi fyrir
hvert lið skulu berast til IBR,
pósthólf 864, merkt KKRR, fyrir
10. nóvember 1974.
KN ATTSP YRNUÚRSLIT
UNGVERJALAND 1. DEILD: Egyetertes— Ujpest Dozsa 4-4
Ferencvaros— Diosgyoer 2-1
MTK — Vasas 2-0
Honved — Pecs 5-1
Csepel — Rata Eto 1-0
Zalaegersoeg — Salgotarjan 4-1
Videoton — Haladas 1-0
Bekescsaba — Tatabanya 2-1
Ujpest Dozsa hefur forystu f 1. deildar
keppninni, er með 18 stig. Honved er f öðru
sæti með 16stig.
AUSTURRtKI 1. DEILD:
Austria Klagenfurt — SC Einsenstadt 3-1
Swarovski Innsbruck — Rapid 2-0
Voest Linz—Lask 2-0
Admira Wacker—Austria WAC 3-2
Sturm Graz — Austria Salzburg 2-0
Rapid hefur forystu f deildinni með 16
stig, en Voest Linz og Austría Salzburg eru f
öðru sæti með 13 stig.
SOVÉTRlKIN 1. DEILD:
Dynamo Kiev — Soviet Army 2-0
MoscowDynamo — Zenit Leningrad 3-1
Dneproptrovsk — Spartak Moscow 1-4
Voroshilovgrad — Ararat Yerevan 1-0
A-ÞVZKALAND 1. DEILD:
Sachsenring Zwickau —
HFCChemie Halle 1-1
Karl Marx-Stadt — Wismut Aue 0-0
Carl Zeiss Jena — Stahl Riesa 2-1 ;
Dyanmo Berlin — FC Lok. Leipzig 3-1
Hansa Rostock — Rot-Weiss Erfurt 2-0
Vorwártes Frankfurt — Dynamo Dresden 2-3
Madgeburg — Vorwárts Stralsund 3-1
BULGARÍA 1. DEILD:
Akademik—Spartak 1-0
Trakia — Levski Spartak 1-0
Etur — Chemo More 4-2
Pirin — Lokomotiv Plovidiv 1-1
Slavia—Dounav 1-3
Yantra — Lokomotiv Sofia 0-0
Sliven — Otev 2-2
Dounav hefur forystu f deildinni með 13
stig en f næstu sætum eru Lokomotiv
Plovidiv með 12 stig og Spartak með 11 stig.
SPANN 1. DEILD:
Real Etis — Granada 1-1
Celta — Elche 1-2
Espanol — Real Murcia 2-1
Atletico Madrid — Real Zaragoza 4-0
Salamanca — Athletic Bilhao 0-0
Valencia — Malaga 2-0
Real Sociedad — Sporting 1-1
Las Palmas— Real Madrid 1-2
Hercules—Barcelona 0-0
PORTtlGAL 1. DEILI):
Tomar—Sporting 1-2
Guimaraes—Academico 3-1
Leixoes — CUF 2-0
Setuhal — Olhanense 2-3
Atletico — B<*lenenses 0-1
Benfica — Porto 0-1
Boavista — Espinho 0-0
Farense — Oriental 1-0
TEKKÓSLAVAKlA 1. DEILD:
Dukla Prag — VSS Kosice 2-1
Inter Bratislava — Slavia Prag 2-0
ZVLZilina — Spartak Trnava 1-1
Liaz Jabionec — Zbrojovka Bruno 2-0
AC Nitra — Slovan Bratislava 1-4
TZ Trinec — SKLO Union Teplice 2-0
Skoda Pilzen — Banik Ostava 0-2
SpartaPrag — Bohemians Prag 1-1
SVISS 1. DEILD:
Basel — Vevey 3-0
Grasshoppers — FC Ziirich 1-3
Lausanne — Luceme 2-0
Lugano—St.Gallen 0-2
Nauchatel — Geneva Servette 2-0
Winterthur — Sion 1-0
JÚGÓSLAVlA 1. DEILD:
Radnicki Kragujevac — BOR 1-1
Zeleznicar—Rijeka 2-0
Velez—Olympija 4-0
Partizan — Vardar 3-0
Radnicki—Rauða stjaraan 2-0
OFK Belgrad — Sarajevo 5-0
Celik — Sloboda 10
Hajduk — Proleter 1-1
PÓLLAND 1. DEILD:
Gornik — Mielec 1-2
Legia — LKS 2-0
Lech — Wisla 4-1
Pogon — Polonia 0-1
Row — Arka 2-0
Szom lerki — Gwardia 3-0
Slask — Zaglebie 2-1
HOLLAND 1. DEILD:
NAC Breda — PSV Eindhoven 0-4
Exelsior—Wageningen 1-0
Sparta Rotterdam — Telstar 4-1
Maastrícht — FCTwente 2-4
FC Hague — FC Amsterdam 2-1
Ajax — Roda Kerkrade 6-1
Graafschap » Feyenoord 1-6
Alkmaar — Go AJiead 1-0
Haarlem — FCUtrecht 1-0
Eftir 17 umferðir hefur PSV Eindhoven
forystu í deildinni og er með 14 stig. Ajax er
f öðru sæti einnig með 14 stig, en sfðan koma
Fyenoord með 12 stig og FC Twente með 10
stig.
BELGtA 1. DEILD:
Olympic Montignies — FC Antwerp 1-1
Racing White — Bt*erschot 0-0
Winterslag — FCMalines 0-0
ASOstend — CSBriigge 4-2
FC Briigge — SC C’harleroi 2-2
Lierse — Waregem 3-1
Beringen — Anderlecht 1-1
Standard Liege — Lokeren 3-1
Beveren — FC Liegeois 2-0
Berchem — Diest 1-1
ITALÍA 1. DEILD:
Ascoli — InterMilan 0-0
Bologna—Roma 1-0
Lazio—Sampdoria 3-0
AC Mi lan — Fiorentina 1-1
Napoli — Vicenza 2-0
Ternana — Cagliari 0-2
Torino — Cesena 2-0
Varese — Juventus 0-0
DANMÖRK 1. DEILD:
Næstved — B 1903 2-0
Köge—Randers Freja 0-1
KB — Holbæk 1-1
Slagelse — Vejle 0-3
AaB — B 1901 3-1
Frem—Hvidovre 4-0
Eftir 20 umferðir hefur KB hlotið 31 stig,
Vejle er í öðru sæti með 23 stig og B 1903 f
þriðja sæti með 22 stig. A botninum er
Hvidovre með 13 stig.
Leiknir
AÐALFUNDUR handknattleiks-
deildar Leiknis verður haldinn í
kvöld, fimmtudaginn 24. október,
í Fellahelli. Hefst fundurinn kl.
20.30. , , ,___
UBK
AÐALFUNDUR frjálsíþrótta-
deildar Breiðabliks í Kópavogi
verður haldinn 27. október n.k. í
Æskulýðsheimilinu við Álfhóls-
veg og hefst fundurinn kl. 14.00.
HRHfRBfí Í
M-RHFRfl/JP
MRKfRfiM
i r?m 1
^RKfRB|n>
Yngsta fþróttafélag Keykjavfkurborgar teflir nú f fyrsta sinn fram liði í meistaraflokki f
handknattleik. Meðfylgjandi mynd var tekin af Leiknismönnum er þeir mættu til sfns fyrsta leiks f
Reykjavfkurmótinu — gegn Val f 1. flokki, en þeim leik lauk með sigri Leiknismanna 15:12. Má
ætla að Hermann Gunnarsson, sem er þjáifari og fyrirliði liðsins, og félagar hans eigi góða
möguleika til sigurs f þessu móti.