Morgunblaðið - 24.10.1974, Síða 36
JW<>T0unt<Ia?>i&
nucivsmcflR
^^•22480
26.0KT.
laugardagur
Merkjasala
til styrktar
geösjúkum
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1974
Ung íslenzk stúlka
í fangelsi í London
Þór strandar
á Seyðisfirði
Geir Hallgrímsson
forsætisráðherra:
Seyðisfirði
— 23. október.
VARÐSKIPIÐ Þór strand-
aði við Seyðisfjörð um þrjú-
leytið f nótt. Skipið var á
leið út fjörðinn, en tók þá
niðri rétt innan við Vatns-
dalseyri, um 600 metrum
innar en m.s. Selfoss strand-
aði í fyrrahaust.
Varðskipið strandaði beint
undan kletti einum á eyr-
inni svo að ganga mátti
þaðan um borð i skipið. A
flóðinu í morgun reyndu
skipverjar að ná Þór aftur á
flot fyrir eigin vélarafli, en
tókst það ekki. Var þá v.b.
Gullver fenginn til að toga í
varðskipið og dró báturinn
það á flot um kl. 9.
— Sveinn
Hjá Landhelgisgæzlunni
fékk Morgunblaðið þær upp-
lýsingar að búið væri að
kafa undir varðskipið og
væru ekki sjáanlegar neinar
skemmdir að ráði á botni
þess. Sjópróf fara fram á
Seyðisfirði, væntanlega í
dag.
verða rædd á
Varnarmálin
Alþingi
skylt að bera þetta mál undir at-
kvæði Alþingis, og er því ástæðu-
laust að fresta undirritun sam-
komulagsins.
Framhald á bls. 20
Sendiherrann
fékk hana látna
lausa gegn því
að taka hana inn
á heimili sitt
UNG fslenzk stúlka hefur setið f
fangelsi f London f nokkra
mánuði eftir að hafa verið viðrið-
in eiturlyfjamál þar f borg.
Lögregluyfirvöld f London hafa
ekki viljað láta stúlkuna lausa
gegn tryggingu, þar sem þau segj-
ast óttast um Iff hennar, en sendi-
herra lslands f London, Níels P.
Sigurðsson, hefur nú gripið inn f
málið og æskt þess að stúlkan
verði látin laus gegn tryggingu ef
hann og kona hans tækju hana
inn á heimili sitt og ábyrgðust
öryggi hennar þar. Dómari hefur
fallizt á þessa málaleitan sendi-
herrans og sagðist Níels — f sam-
tali við Morgunblaðið — vonast
til þess að stúlkan fengi að fara
úr fangelsinu f dag eða á morgun.
Stúlkan var handtekin í júlí-
mánuði sl. og sökuð um að hafa
haft kókain undir höndum og
ætla að selja kínverskt heróín.
Hefur hún setið í fangeisinu allt
síðan og sagðist Níels ekki hafa
frétt af högum hennar fyrr en
seint og síðar meir og þá eftir
öðrum leiðum, því að hvorki
stúlkan né hinn ríkisskipaði verj-
andi hennar hefðu áttað sig á að
hafa samband við sendiráðið.
„Þegar starfsmenn sendiráðsins
náðu loks tali af henni í fangels-
inu, komust þeir að raun um að
stúlkan var að niðurlotum komin,
algerlega farin á taugum, svo að
ég taldi það hreint mannúðarmál
að fá hana látna lausa,“ sagði
Nfels ennfremur. „Dómarinn í
málinu féllst á tilmæli mín eftir
að ég haf ði boðizt til að taka stúlk-
una inn á heimili mitt. Sjálf held-
ur hún fast fram sakleysi sínu af
þessum ákærum, en vera má að
lögreglan telji það eitt næga
ástæðu fyrir því að halda stúlk-
unni í fangelsi að hún hefur haft
samband við grunsamlega aðila,
en ekki hirt að segja til þeirra.“
Níels taldi hins vegar þá
skýringu lögreglunnar að stúlkan
hafi ekki verið látin laus vegna
þess að óttast væri um líf hennar
heldur vafasama og kvaðst ætla
að hér væri fremur um fyrirbáru
að ræða. Þá gat Níels upplýst, að
stúlka þessi hefði farið aðeins 16
ára frá íslandi og síðustu 9 árin
hefði hún víða farið, ekki verið í
London nema hluta þessa tíma.
Framhald á bls. 20
Ellefu fisksalar kallað-
ir fyrir verðlagsdóm
EINS og frá hefur verið skýrt
undirritaði utanrfkisráðherra sl.
þriðjudag samkomulagið um
breytingar á framkvæmd varnar-
samningsins við Bandarfkin.
1 framhaldi af þessari undirritun
og ágreiningi, sem varð á fundi
utanrfkisnefndar sl. þriðjudag
sagði Geir Hallgrfmsson forsætis-
ráðherra í samtali við Morgun-
biaðið í gær: „Ég hef alltaf geng-
ið út frá því sem vfsu, að umræð-
ur yrðu um varnarmálin á Al-
þingi, og ég mun m.a. taka þau til
meðferðar í stefnuræðu forsætis-
ráðherra, sem flutt verður u.þ.b.
viku eftir að Alþingi verður sett.
Auk þess geri ég ráð fyrir, að
greint verði frá málinu f skýrslu
utanrfkisráðherra, þegar hún
verður lögð fram. En rétt er að
leggja áherslu á, að niðurfelling
endurskoðunar varnarsamnings-
98 kr. fyrír
kíló af ýsu
SKUTTOGARINN Dagný frá
Siglufirði seldi 1288 kit eða 81.4
lestir af fiski í Grimsby f gær,
fyrir samtals 25.468 sterlings-
pund. Ennfremur var skipið með
80 lestir af heilfrystum fiski, sem
átti eftir að selja, þannig, að skip-
ið fær örugglega mjög gott verð
fyrir þennan farm. 1 fslenzkum
kr. talið fékk Dagný fyrir þessi
1288 kit röskar 7 millj. kr„ en
meðalverðið var kr. 85.80, sem er
eítt það hæsta, sem fengist hefur
til þessa.
Fyrir hvert kg af þorski fékk
skipið að meðaltali kr. 81 og fyrir
hvert kg. af ýsu kr. 98. Þá var
togarinn einnig með um 30 lestir
af kola, en ekki er vitað hvaða
verð fékkst fyrir hann.
ins og breytingar á varnarfyrir-
komulagi, sem samkomulagið
gerir ráð fyrir, rúmast innan
varnarsamningsins sjálfs og
þarfnast þvf ekki sérstakrar
ákvörðunar Alþingis."
Á fundi utanríkisnefndar sl.
þriðjudag krafðist Lúðvik Jóseps-
son þess, að samkomulagið við
Bandaríkjamenn yrði lagt fyrir
Alþingi áður en það yrði staðfest.
Þessi tillaga var felld með at-
kvæðum fulltrúa stjórnarflokk-
anna, en fulltrúi Alþýðuflokksins
sat hjá.
Morgunblaðið leitaði í gær til
Ragnhildar Helgadóttur og bað
hana að skýra frá afgreiðslu máls-
ins í utanríkisnefnd. Svar hennar
er svohljóðandi:
„Tillaga Lúðvíks var um, að
undirritun samkomulagsins yrði
frestað, þar til Alþingi hefði fjall-
að um málið. Þetta samkomulag
felur hvorki í sér breytingar á
varnarsamningnum sjálfum né
þeirri stefnumörkun, sem í hon-
um felst. Ríkisstjórninni er ekki
hefðu átt sér stað 1. marz s.l. og þá
hefðu þeir ekki sótt um neina
hækkun, eins og margir aðrir í
þjónustugreinunum. Síðan hefði
fiskverð hækkað á ný 1. septem-
ber s.l. og þá hefðu þeir rætt við
verðlagsstjóra og fengið hækkun.
Verð það, sem fisksalar seldu fisk-
inn á í sumar hefur nú verið kært
til verðlagsdóms.
— Það er af og frá að fisksalar
hafi sent inn erindisbréf um
hækkun, og það er áreiðanlegt að
ef þeir hefðu gert það, þá hefðu
þeir fengið hækkun eins og t.d.
eftir 1. marz. Sú afgreiðsla sem
fór fram á dögunum fór fram
vegna frumkvæðis verðlagsstjóra.
Verðlagsyfirvöld leggja áherzlu á
það, að fisksalar fari eftir aug-
lýstu hámarksverði og brjóti ekki
ákvæðin, sagði Björgvin.
Þorleifur Sigurðsson formaður
Fisksalafélagsins sagði, að fyrir
röskum tveimur árum hefðu verið
37 fisksalar í Reykjavík, en nú
væru þeir ekki nema 20. 17 hefðu
hætt þar sem enginn rekstrar-
grundvöllur hefði verið fyrir fisk-
búðirnar. Hann sagði, að verðlags-
stjóra hefðu verið skrifuð 5 bréf
varðandi fiskverðið, en svar hef ði
ekki fengist við þeim. Það hefði
svo verið um mánaðamótin apríl-
Framhald á bls. 20
ELLEFU fisksalar f Reykjavfk
voru f gær kallaðir fyrir verðlags-
dóm vegna brota þeirra á
verðlagsákvæðum. Mál þetta er
til komið af þvf, að fisksalar í
Reykjavfk hækkuðu fiskverð án
þess að sækja um það að sögn
Verðlagsráðs um mánaðamótin
aprfl-maf. Hafa þeir sfðan selt
hvert kg af ýsuflökum á kr. 150,
en áður kostaði kflóið 118 kr.
Þann 18. október s.l. auglýsti svo
verðlagsstjóri nýtt hámarksverð á
fiski og þá var fyrst veitt heimild
til að selja kflóið af flökunum á
kr. 150.
Björgvin Guðmundsson, for-
maður Verðlagsráðs, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið f gær, að
verðlagsnefnd hefði ákveðið há-
marksverð á fiski í janúar sl., en
síðan hefðu fisksalar ekki sótt um
neina hækkun með erindisbréf-
um. Nokkrar kauphækkanir
Geysileg úrkoma var f fyrrinótt og f gær og vfða hafa orðið miklir vatnavextir f ám. Hafa þær flætt yfir
vegi og valdið spjöllum á þeim á nokkrum stöðum. Þessi mynd var tekin af brúnni við Gufudal hjá
Hveragerði og má sjá hvernig hún hefur laskast. (Sjá nánar fréttbls. 2). (Ljósm. Mbl. Georg Michelsen).
Þakplöt-
ur fjúka
t GÆRKVÖLDI voru nokkur
brögð að þvf f bæjum á suð-
vesturhorni landsins, að þak-
plötur og mótauppsláttur fyki
undan miklu hvassviðri sem
geisaði á þessum slóðum. I
Reykjavfk bar einkum á þessu
f Breiðholti, þar sem fjúkandi
þakplötur munu hafa valdið
einhverjum skemmdum á bif-
reiðum, og vitað var að ein
bifreið f Reykjavfk lenti f
árekstri við fjúkandi tunnu,
„sem var að sjálfsögðu mann-
laus og númerslaus," eins og
lögregluvarðstjórinn orðaði
það. Þá fuku niður vinnupall-
ar við húsið að Laufásvegi nr.
8 en óðara var þar kominn
frfður flokkur trésmiða, er af-
stýrði frekara hruni. Húsið er
nefnilega f eigu Trésmiðafé-
lags Reykjavfkur. Lögreglu-
menn f Keflavfk og f Vest-
mannaeyjum kvörtuðu einnig
undan fjúkandi þakplötum.