Morgunblaðið - 10.11.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.11.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1974 Fiskur undir steini? í LEIT AÐ i wmíí í Halldór Sigurðsson MENNINGU EÐA MENNINGARLEYSI Kvikmyndin „Fiskur undir steini“, sem sýnd var í sjónvarp- inu s.I. sunnudagskvöld, hefur vakið gífurlegan úlfaþyt og senni- lega hefur enginn innlendur sjónvarpsþáttur vakið meiri at- hygli og meira umtal. Höfundar myndarinnar — þeir Ólafur Haukur Símonarson og Þorsteinn Jónsson — segja í formála hennar, að myndin eigi að segja frá menningarneyzlu I fslenzku sjávarþorpi. Myndin var tekin í Grindavík og eru Grindvíkingar Rúnar Gunnarsson margir mjög sárir yfir þessari mynd, og segja, að staðurinn sé ólfkt merkari en myndin gefur til kynna. Hafa þeir meðal annars vitnað í orð Gunnlaugs Schevings, listmálara, þegar hann var spurður að því, hvers vegna hann hefði aldrei sótt listaskóla í Parfs, eins og flestir hans samtfðar- menn íslenzkir í málaralistinni. Gunnlaugur svaraði: „Parfs, ég á mína París, það er Grindavfk." Morgunblaðið leitaði til nokk- urra manna, sem allir eru á ein- hvern hátt tengdir efni mynd- arinnar. Þeir, sem við leituðum til, eru: lektor við þjóðfélags fræðideild Háskólans, kvik myndagerðarmaður, bæjarstjór inn f Grindavfk, kennari f Grinda vík, hjón f Grindavfk og verk stjóri annars frystihússins þar. Spurningin, sem lögð var fyrir fólkið, var á þá leið hvernig því *efði fundizt myndin takast og 't hún gæfi rétta mynd af aingarlífi f sjávarþorpi davfk). Haraldur Ölafsson, lektor, svar- aði spurningu okkar á þessa leið: r Alfalegt hnuss Að sögn höfunda myndarinnar Fiskur undir steini er verki þeirra ætlað að segja frá menn- ingarneyzlu í íslenzku sjávar- þorpi. Hún á að lýsa ástandi. Hefði myndinni ekki fylgt þessi ábending höfunda hefði vafizt fyrir mér að átta mig á hvaða ástandi væri verið að lýsa. Jafnvel með skýringum er myndin torskil- in. Hún segir þó frá manni, sem reikar inn á listasafn, rýnir í myndir, virðist fá þá hugmynd að bera saman list og veruleika, og kveðst vilja kynnast menningar- lífi i þorpi. Síðan lónar hann fram og aftur um þorpið (Grindavik), sér sjálfan sig í spegli, snýr sér að loðnu og kvennafari áður en hann yfirgefur staðinn. Svona menn hafa gengið út og inn i bókmenntum Islendinga á undanförnum áratugum. Þeir voru fjölmennir á krepputím- unum. Þá komu þeir með strand- ferðaskipi í þorp, töfðu þar nokkra daga, eilítið dularfullir og framandi, ljóðelskir og hittu gjarnan stelpukorn, sem þeir „fundu ilminn af“. Þeir voru eins og maðurinn í Grindavík fyrst og síðast að leita að sjálfum sér, og héldu leitinni áfram í næsta firði eða „fyrir sunnan“. Um menningarneyzlu og lífsvið- horf fólks í Grindavik (hvað þá íslenzkum sjávarþorpum yfir- Ieitt) segir myndin ekki neitt. Enginn er tekinn tali um þau efni, hvergi gægzt inn í hús fólks né álits spurt á nokkrum hlut. Dæmi og rök eru látin lönd og leið, engar skilgreiningar færðar né tölur taldar. Þessi mynd dugar ekki til að beina umræðum um menningarástand inn á nýjar brautir. Tíl þess að svo mætti verða hefði hún orðið að vera hreinni og beinni, byggð á þekk- ingu, ekki formúlum, samkennd, ekki álfalegu hnussi. Merkilegt er hve höfundar myndarinnar eru gagnrýnislausir á sjálfa sig, hvernig þeir skjóta sér undan að spyrja sjálfa sig um eigin viðhorf og menningarforða. Þeir velta ekki fyrir sér hvernig þeirra eigin viðhorf umbreyta viðfangsefninu. Þeir spyrja ekki um það hvort vinnan geti verið tákn menning- ar, og hvort starf að uppbyggingu húsnæðis og atvinnulífs geti haft menningarlegt gildi, og hvort visst gildi sé fólgið í betri að- búnaði og aukinni hagkvæmni og þægindum. Gaman hent að kennslunni Gunnlaugur Scheving málaði margar myndir í Grindavík og lýsti sjómönnum að starfi. Verk hans eru ávöxtur mikillar þekk- ingar, ekki bara á tæknilegum aðferðum listamannsins heldur ekki síður á lifi o-g starfi fólks í landinu. Sjósókn byggist á flóknum og vandmeðförnum tækjabúnaði. Sjómennskan út- heimtir þekkingu og trausta menntun. Vinnsla sjávarafla krefst verkkunnáttu, vandvirkni og alúðar. Um þetta f jalla höfund- arnir ekki. Þeir spyrja ekki einu sinni hvort þekking og hæfni hafi menningarlegt gildi. Þeir velta ekki fyrir sér hvort menn að starfi hugsi kannski eitthvað, að þeim detti eitthvað i hug, skapi jafnvel eitthvað i önn daganna. Og hvernig er því tekið sem gert er? Aðkomumaðurinn í myndinni horfir fyrirlitningaraugum á teiknikennslu og getur ekki stillt sig um að henda gaman að þvi, að verið er að æfa börn í að fara með texta og laglínu. Ég rekst stundum á fólk, sem er svo hámenntað, að það getur leyft sér að dást að greindu og „ómenntuðu alþýóufólki" eins og það er kallað. Þvi þykir ákaflega gaman að segja frá bændum, sem kunna þjóðskáldin utan að og velta fyrir sér tilveru Guðs á vió meðal stúdent. Aðdáun þessa fólks á alþýðunni leiðir stundum Grindvikingar eru almennt sammála um, að „Fiskur undir steini“ hafi verið vond mynd. Byggist það ekki sizt á því, að þeir (Þorsteinn og Ólafur Haukur) hafa sett sér ákveðnar forsendur um staðinn áður en þeir fóru af stað, og myndin er síðan látin falla að þessum fyrirfram ákveðnu forsendum. Flest atriði myndarinnar eru hálfgildings fölsun á staðreyndum. Það fyrsta, sem maður sér í myndinni, er texti, sem segir, að myndin eigi að lýsa menningarlifi í sjávarþorpi á Islandi. Siðan bregða þeir upp skilti, þar sem stendur Grindavík ásamt einhverjum enskum orðum, sem segja, að þarna sé herstöð. Slíkt skilti fyrirfinnst hvergi í sjávarþorpi á landinu, nema hér í Grindavík. Þar með byrja þeir Ólafur Haukur og Þor- steinn á fölsununum. Og þar með er það, sem á að vera megininntak myndarinnar, fallið um sjálft sig. Annað dæmi um slíkar falsanir á staðreyndum er þegar þeir fé- lagar fjalla um félagsheimilið. Þeir tala um að það eitt, að það sé of dýrt og fínt yfir þetta litla menningarlíf, sem hér fer fram. Síðan láta þeir gestinn koma inn í húsið og þá láta þeir kvikmynda- vélina beinast að skóm í anddyr- inu. Gesturinn fer siðan úr sínum skóm og tiplar inn á sokkaleistun- um. Hér er aftur gefið i skyn og undirstrikað. að féíagsheimilið sé of fínt til að nota það. Þetta er líka fölsun, því að sjálfsögðu er það ekki almenn regla, að menn fari hér úr skóm, og það hafa þeir séð sjálfir eftir að hafa verið hér í marga daga. Þessi skófatnaður var af mönnum, sem vinna við hafnarframkvæmdirnar, og voru í mat á þeirri stundu, sem myndin var tekin. Þeir eru kannski á það háu menningarstigi, að þeir fari Leitað álits fólks á hinum umrædda þætti Haraldur Ólafsson til þess, að það uppgötvar hreina og beina listamenn í hennar hópi. Fátt þykir mér óyndislegra en þessi aðdáun á „alþýðunni", enda er hún ekkert annað en hroki þeirra sem telja sig sjálfkjörna dómara um allt, sem menning og list nefnist. Ekki get ég að því gert, að myndin um Grindavík minnti mig á það fólk, sem ég var að lýsa. Nú fáum við að kynnast þessum höf- undum nánar, þar eð þeir vinna nú að nokkrum myndum fyrir sjónvarpið. Þeirra vegna óska ég, að þeir fjalli þá aðeins um hluti, sem þeir þekkja af eigin raun, segi frá því, sem þeir hafa heyrt með eigin eyrum og sýni það, sem þeir hafa séð, og segi við sjálfa sig: hefi ég spurt í einlægni? Atriðin fölsuð Eirfkur Alexandersson, bæjar- stjóri f Grindavík, svaraði spurn- ingunni þannig: úr óhreinum vinnuskófatnaði áður en þeir fara í matsalinn. Þá má nefna snyrtiherbergið, sem þeir spegluðu sig i. Þeir sögðu, að það væri aðeins fyrir starfsfólk félagsheimilisins. Það er heldur ekki rétt. Snyrtiher- bergið tilheyrir einnig skrifstofu- húsnæði bæjarins og 100 manna fundarsal, sem er í húsinu. Efninu hagrætt Þorsteinn og Ólafur Haukur koma við í bókabúðinni, og á meðan á viðdvöl þeirra stendur í bókabúðinni, er kanaútvarpið látið glymja allan tímann. Ég hafði aldrei heyrt i útvarpi á þessum stað áður. Því grennsl- aðist ég fyrir um það hvort útvarp hafi verið i gangi í búðinni, þegar umrætt atriði var tekið. Svo var auðvitað ekki. Þannig mætti rekja næstum hvert einasta atriði myndarinnar og sýna fram á, að þeir Ólafur Haukur og Þorsteinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.