Morgunblaðið - 10.11.1974, Blaðsíða 48
LE5IÐ
eru oiultmngj.
DHGLECR
flUGLVSinGHR
#V«22480
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1974
Hitaveita Suðurnesja:
SAMNINGAR VIÐ
RÍKH) Á LOKASTIGI
SKAMMT mun þess nú að bíða,
að stofnað verði fyrirtækið Hita-
veita Suðurnesja, en á fjárlögum
er 25 milljón króna f járveiting til
þessa fyrirtækis. Undirbúnings-
stofnfundur hefur þegar verið
haldinn og standa nú yfir samn-
ingar milli rfkis og sveitarfélag-
anna 7 á Suðurnesjum um virkj-
un gufuafls f Svartsengi við
Grindavfk og er stefnt að þvf, að
félagsstofnuninni verði lokið
fyrir áramót.
Morgunblaðið ræddi i gær við
Eirík Alexandersson, bæjarstjóra
í Grindavík, sem sagði, að
samningar stæðu nú yfir við ríkis-
valdið. Samningarnir voru komn-
ir á talsverðan rekspöl við síðustu
ríkisstjórn en þegar til kosninga
kom og hún fór frá slitnaði þráð-
urinn, sem nú hefur verið tekinn
upp að nýju.
Hönnun mannvirkja í Svarts-
engi hefur staðið yfir í sumar og
haust og er þar gert ráð fyrir 100
megawatta virkjun, þar sem
ferskvatn verður hitað upp með
jarðgufu, en af henni virðist vera
nær ótakmarkað magn. Eiríkur
sagði, að með virkjun þe'ssari væri
gert ráð fyrir því, að fullnýtt yrði
allt ferskvatn á skaganum, en við
hitaveituna myndi á móti sparast
mikið af ferskvatnsnotkun.
Endanlega liggur ekki fyrir
skipting milli sveitarfélaganna
eftir notkunarþörf, en Eiríkur
Alexanderson sagðist búast við
því, að þörf Keflavíkurflugvallar
myndi vera um það bil 70% á
móti 30% hjá hinum sveitarfélög-
unum sex. Kostnaðaráætlun, sem
gerð var í júlí, nam 1.700 milljón-
um króna fyrir sveitarfélögin 6 og
eru þá bæði flugvöllurinn og
Hafnirnar undanskildar. Gert er
Lokaákvörð-
un bráðlega
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Akra
nesi gengust fyrir skömmu fyrir
fundi um fyrirhugaða málm
blendiverksmiðju á Grundartanga
í Skilamannahreppi. Dr. Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra var
frummælandi. Sagði ráðherrann
að allt benti til að lokaákvörðun
yrði tekin mjög bráðlega. Ef
samningar tækjust fyrir áramót
gætj framkvæmdir hafist á næst
unni, en um 2'h ár myndi taka að
reisa verksmiðjuna.
Ráðherrann gat þess, að um
mjög litla mengunarhættu væri
að ræða frá verksmiðjunni. Áætl-
að væri að 250 manns myndu
vinna við að reisa hana, en þegar
hún tæki til starfa yrðu starfs
menn um 115. Ekki hefði verið
ákveðið hve stór eignarhluti is-
lendinga yrði, en búist væri við,
að hann yrði á bilinu frá 51 til
65%. Ráðherrann gat þess
einnig, að forráðamenn Union
Carbide hefðu lýst áhuga á að
reisa byggingarnar þannig að þær
féllu vel að umhverfinu.
Auk ráðherra tóku til máls:
Björn Pétursson, Herdis Ólafs-
dóttir, Sæmundur Helgason,
Rúnar Pétursson, Hróðmar
Hjartarson, Ásgeir Pétursson,
Sverrir Haraldsson, Ingólfur
Jónsson, Hallgrímur Hallgrims-
son og alþingismennirnir Jón
Árnason og Friðjón Þórðarson.
Fundarstjóri var Hörður Pálsson
og fundarritari Baldur Eiriksson.
Fjölmenni var á fundinum.
ráö fyrir því að ríkið sjái um
framkvæmdirnar á Keflavíkur-
flugvelli. Eiríkur sagði, að þess
væri vænzt, að málið myndi ekki
dragast úr þessu. Þær tafir, sem
orðið hefðu á málinu, tefðu fram-
kvæmdir um eitt ár eða um það
bil, en nú þyrfti fjármögnun að
fylgja strax á eftir til þess að unnt
yrði að ná eðlilegum fram-
kvæmdahraða.
Matthías Á. Mathiesen, fjár-
málaráðherra, sagði í viðtali við
Morgunblaðið, að eins og fram
hefði komið, væri að ljúka stofn-
un félags um hitaveitu á Suður-
nesjum. Heimild i fjárlagafrum-
varpi til greiðslu á 25 milljónum í
þessu skyni væri hugsuð sem
greiðsla ríkisins þar til endanleg
ákvörðun um framlag ríkissjóðs
hefði verið tekin, en ætlunin er,
að það verði ákveðið í því frum-
varpi, sem hugsað er að flytja á
yfirstandandi þingi. Er hér um
brýnt hagsmunamál íbúa Suður-
nesja að ræða.
„ OprifírhwHnninn (IíJt-(h) (I^ '
Driinur haustiö urn ci/diqrant
Ljosm. Ol. K. M.
4 seldu fyrir
7,9 millj. kr.
Fjögur síldveiðiskip
seldu í Hirtshals og Skagen
í gærmorgun og fengu öll
sæmilegt verð fyrir síldina.
Skipin, sem seldu, voru
þessi:
Helga 2. RE fyrir 2,3
millj. kr., Albert GK fyrir 1
millj. kr., Helga
Guðmundsdóttir BA fyrir
2,4 millj. kr. og Sæberg SU
fyrir 2.2 millj. kr.
Hótaði konu
sinni lífláti
LÖGREGLAN var í fyrrinótt
kvödd að húsi einu i Mosfells-
sveit, en þar hafði maður hótað
konu sinni lífláti og ógnaði henni
með hnífi. Lögreglan fór og hand-
tók manninn, sem ekki hafði gert
konunni neitt mein. Maðurinn
var í gær í vörzlu lögreglunnar í
Hafnarfirði.
Japanir krefjast skaða-
bóta vegna gallaðrar loðnu
JAPÖNSK fyrirtæki, sem keyptu
frysta loðnu af Íslendingum á sl.
loðnuvertíð, munu nú hafa farið
fram á miklar skaðabætur vegna
mikillar óvandvirkni við flokkun
loðnunnar hér heima. Ekki er
blaðinu kunnugt um hve háa fjár-
hæð hér er að ræða, en hún mun
skipta milljónum kr. Frá þessu er
greint f þættinum „! verinu“ eftir
Einar Sigurðsson á bls. 3 f blað-
inu f dag.
Einar segir m.a., að kvartanir
þær og skaðabótakröfur, sem
fram hafi komið, byggist mest á
óvandvirkni við flokkunina og að
nokkur hluti af loðnunni hafi
verið gotinn.
Þá segir Einar, að verksmiðju-
stjórar við verksmiðjur þær, sem
vinna loðnuna í Japan, hafi látið í
té þær upplýsingar, að Norðmenn
hefðu tekið alvarlega umkvart-
anir frá í fyrra, þar sem flokkun-
in var röng og gölluð, vegna þess
að hluti hennar var lika úldinn, af
því að hún var flutt of langt norð-
an frá miðunum við Noreg.
Þetta varð svo mikil reynsla
fyrir Norðmenn, að þeir gjör-
breyttu eftirlitinu og vandvirkn-
inni, svo að framleiðsla þeirra féll
úr 14.000 lestum i fyrra niður í
7.000 lestir i ár. Nú likaði norska
loðnan bezt á markaðnum.
Einar segir ennfremur, að enn
alvarlegri skaðabætur hafi komið
á hendur Rússum. Ekki sé vitað
hve mikill hluti það var, en að
þeir hefðu orðið að sætta sig við
að fá ekkert fyrir sumt af loðn-
unni.
Á einum stað segir orðrétt og er
átt við íslenzku loðnuna:
— Nú kom í ljós, að sum 100%
loðnan reyndist ekki nema 80%
kvenloðna. Það var ekki skemmti-
legt fyrir okkur að horfa upp á
stúlkurnar greina hrygnuna og
hænginn nákvæmlega í sundur,
marga pakka og komast að þessari
niðurstöðu. Þetta var mjög alvar-
legt eins og gefur að skilja. Raun-
verulega þýddi þetta, að framleið-
andinn átti að endurborga 20% af
kg af nýju loðnunni og fyrir vinn-
una við 20%, flutningsgjaldið á
þeim og geymsluna í Japan og
flokkun. Sjálfsagt fjórfaldast
þetta í meðförum.
Kom fljúgandi að austan til að
komast á skyggnilýsingarfundinn
„ÉG TEL, að meirihluti
útvarpsráðs sé ákaflega
illa á vegi staddur úr því
að hann telur, að
skyggnilýsingarfundur
Hafsteins Björnssonar sé
ekki áhugavert efni,“
sagði Þórarinn Pálsson
frá Egilsstöðum þegar
við ræddum við hann í
gær, en hann hafði þá
komið með flugvél til
Reykjavíkur frá Egils-
stöðum til að komast
á skyggnilýsingarfund
Hafsteins, sem var hald-
inn í gær í Háskólabíói.
Þórarinn sagði að fleiri hefðu
komið að austan ef unnt hefði
verió, en þvf miður ættu ekki
allir heimangengt. Áhugi á
skyggnilýsingum væri mikill
úti um landsbyggðina og þar
sem Hafsteinn héldu fundi
væri fullt hús og þyrfti fólk oft
frá að hverfa. Meirihluti út-
varpsráðs virtist aðeins halda,
að fólk væri á Reykjavíkur-
svæðinu og gæti því farið á
fundinn í Háskólabíói ef það
hefði áhuga.
Sagði Þórarinn, sem nú er
formaður Sálarrannsóknarfé-
lags Austurlands að yfir 400
félagar væru nú f félaginu og
sífellt bættust fleiri við.
Lézt eftir ryskingar
við Þórscafé
TVlTUGUR maður lézt í nótt í
slysadeild Borgarspítalans, rétt
um það leyti er komið var með
hann þangað. Lögreglan fann
manninn meðvitundarlausan
fyrir framan veitingahúsið
Þórscafé í fyrrinótt og vitað er, að
hann lenti f ryskingum þar fyrir
utan að loknum dansleik.
Lögreglan rannsakar málið og í
gær höfðu þrír verið handteknir
vegna málsins. Vitneskja um til-
drög og eðli ryskinganna við
Þórscafé er enn mjög takmörkuð
og óskar rannsóknarlögreglan
eftir vitnum af atburðum við
Þórscafé á tímabilinu milli
klukkan 01,30 og 02 í fyrrinótt.
Lögreglan varð mannsins vör f
nótt og sat hann uppi við húsvegg
örskammt vestan við aðalinngang
í Þórscafé. Er lögreglan hugaði að
manninum, sást, að hann var með-
vitundarlaus. Þegar var hringt f
sjúkrabíl og maðurinn fluttur í
slysadeild Borgarspftalans, en
hann lézt er þangað kom. Litlir,
sem engír áverkar eru sjáanlegir
á líki mannsins, en að sögn
lögreglunnar er örugg vitneskja
fyrir þvf, að hann lenti í átökum
framan við dansstaðinn að lokn-
um dansleik. Krufning hefur ekki
farið fram og því er dánarorsök
enn ekki kunn.
Fjölmenni var á dansleik í
Þórscafé f fyrrakvöld og var tals-
verð ölvun meðal gesta. Mikils-
vert er, að lögreglan fái sem
gleggsta vitneskju frá vitnum, en
talið er víst, að fjöldi fólks hafi
orðið vitni að atburðinum.
Hinn látni er utanbæjarmaður
og er ekki unnt að skýra frá nafni
hans að sinni.
Alhvítt á
Siglufirði
Siglufirði 9. nóvember
AFLI báta var góður í gær eða
8—9,5 lestir. Rjúpnaveiði er
frekar treg, en menn fara þó
mikið á rjúpnaveiðar. Oftast
koma menn með 10—15 rjúpur
eftir daginn. Alhvítt er nú niður í
fjöru. Matthías