Morgunblaðið - 10.11.1974, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.11.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. NÖVEMBÉR 1974 29 SAGAN BAK VIÐ HNEFALEIKAKEPPNIALDARINNAR mikið efni í þennan stóra ramma. Ali mun vinna vegna þess að guð bjó hann til til þess. Muhammad Ali: Það eru dag- blöðin, dagblöðin. Þau hafa breytt út allar þessar sögur um mig, að fætur mínir séu veikburða, að ég sé gamall, að ég sé búinn að vera, að ég geti ejcki veitt þung högg og þau voru fljótaðfá George Fore- man til þess að trúa því; en þegar hann heyrir dómarann kalla: sjötta lota, sjöunda lota, áttunda lota,“ þá verður hann hissa. Þegar hann var krakki þá langaði hann til að stunda henfaleika, en það fannst ekki munnstykki nógu stórt fyrir hann. Hann er svo ljót ur. Þessi keppnni verður mesta áfall sögunnar. Það var sagt að ég gæti ekki sigrað Liston. Ég var hataður þegar ég gerðist Múhammeðstrúarmaður. Ég lenti í útistöðum við herinn. En hvað um það, ég er hér enn. Ég er ekki hræddur við Foreman, hann slær ekki fast. Hann mun verða hræddur við mig vegna þess að hann heldur að ég sé vitlaus af því að ég veit aö hann slær ekki fast. Ég hef til að bera hraða, afl og þrautseigju og hver sá, sem keppir við mig ætti að fá sér auka líftryggingu. „ÉG ER FALLEGASTUR" Hvítt fólk var hrætt við Sonny Liston vegna þess að þvf fannst hann svo ljótur. Og þér finnst George Foreman ljótur og þú ert hræddur við hann. En eg er ekki hræddur vegna þess að ég er svartur og mér finnst hann ekki eins ljótur og þér finnst. Frazier og Norton geta ekki veitt högg vegna þess að þeir vita ekki hvernig á að fara að því. Þeir geta ekki dansað vegna þess að þeir kunna ekki að dansa; þeir geta ekki boxað vegna þess aó þeir kunna ekki að boxa; þeir geta ekki fundið leið út úr vandræðum vegna þess að þeir geta ekki hugs- aó, og þeir geta ekki einu sinni skrifað ljóð. Ég er fallegastur^ lfttu á mig, og ég hef stundað hnefaleika í 20 ár. Mér er alvara, það er erfitt að vera auðmjúkur þegar maður er eins mikill og ég er. Hugsaðu um alla þá peninga, sem ég hef unnið inn fyrir þessa kalla. Enginn mundi fara að horfa á þá ef ég væri ekki að keppa við þá. Eg keppi við þá og þeir raka saman fé. Góður hnefaleikamaður er sá, sem getur gert erfiða stöðu auð- velda. Foreman er erfið staða. Ég er hetja fólksins. Þú getur gengið að mér og sagt „halló" án þess að þurfa að borga. Reyndu að komast nálægt Frank Sinatra eóa Elvis. Það eru engir lífverðir i þessum herbúðum. Ef ég tapa þessari keppni, þá sezt ég vafalaust i helgan stein. Það verður mikið áfall fyrir hnefaleika. Þar með er öllu lokið. En það væri hart að þurfa að hætta þegar nýbúið er að bjóða mér 5,000,000 dollara fyrir aðra keppni við Frazier. Það er góður peningur. En ég er svo ellilegur núna, littu á þessar myndir. Ég er ekki hræddur við neinn. Það er Meistarinn aftur kominn í hásætið . . þess vegna, sem þeir halda að ég sé brjálaður. Og það gerir þá hrædda. A SJÖ BÍLA Lízt þér vel á Lincolninn? Þakka þér fyrir. Ég á sjö bíla núna, tveir eru Rolls Royce, svo á ég jeppa og Volkswagenrútu. Þeir hafa allir sinn tilgang. Ég á ekki sjö bara til að eiga sjö. Þessi er hentugur til þess aó taka á móti fólki á flugvöllum í. Fred Stoner þjálfaöi mig frá 13 ára til 17 ára aldurs. Eg fór til Joe Martins frá kl. 8 til kl. 10 og siðan til Freds Stoner frá 10.30 til miðnættis. Joe var góður í auglýsingaskyni. Ég slóst í fyrsta skipti í sjónvarps- þætti hans þegar ég var 12 ára gamall. Þá fyrst vissi ég að ég myndi verða heimsmeistari. Ég sigraði náunga að nafni Ronnie OoKeefe. Fred Stoner lagði meiri áherzlu á hina fræðilegu hlið hnefaleik- anna og hann hafði betra æfinga- kerfi. Hann lagði áherzlu á vinstri handar högg, og hraða. Agi? Við öguöurn okkur mjög strangt þar. sagði Stoner að bróðir minn hefði getað orðið betri en ég? Það getur verið, en Elvis á bræður og þeir geta ekkert sungið. Það voru líka fleiri strákar þarna um sömu mundir og þeir komust ekkert. Mér leið alltaf vel eftir að hafa slegist með berum höndum. Ég þarf að léttast. Mig langar til þess að verða um það bil 215 pund. En ég var ekki þreyttur. Einnar mínútu hvíld á milli lota er nóg. Kannski þarf ég ekki að slást allar fimmtán loturnar, maður veit það aldrei fyrirfram. Ég hef aldrei verið stöðvaður, en maður getur einfaldlega ekki dansað i hringnum alla keppnina. Þá þreytist maður um of. Maður verður að sækja, þvinga þá i vörn. Maður verður að varast kaðlana, en þó veit maður aldrei. Lífið er happdrætti, maður getur meiðzt, en fólk lætur lífið í flugslysum, missir hendur og fætur 'í um- ferðarslysum. Fólk deyr á hverj- um degi. Hið sama gildir um hnefaleikamenn. Sumir deyja, sumir slasast, sumir halda áfram keppni. Maður trúir þvi einfald- lega ekki að þetta komi fyrir mann sjálfan. Maður venst þvi að vera laminn og þjálfar sig. Það meiðir mig yfirleitt ekki. Það er ókostur að vilja ekki meiða andstæðinginn, eins og þegar ég meiddi Cooper. En ég mun stytta þetta fyrir Foreman. Þessa keppni mun ég vinna. Dauðinn er gjald sálarinnar fyrir aó hafa nafn og form. Lífið er heiðarleg verzlun vegna þess að allt sem maður tekur frá því verð- ur að endurgreiða fyrr eða síðar. Sumt getur maður greitt fyrir fram, annað við afhendingu. Suma reikninga greiðir maður þegar þeir koma. HATAR ENGAN Fred Stoner kenndi mér allt sem ég kann. Angelo náði mér þegar ég gat farið að græða pen- inga. Chris er góður umboðsmað- ur. Angelo er gott að hafa við keppnir, en ég hef minn eigin stíl. Enginn hefur haft áhrif á mig siðan Fred Stoner. Hnefaleikar voru ekki kenndir í Louisville þegar ég var krakki. Ég byrjaðí í henfaleikum af þvi ég hafði gam- an af þeim. Auglýsingunni, hváaðanum og ferðalögunum. Ég var byrjaður að slást f sjónvarps- þáttum Joe Martins þegar George Foreman var enn strákpeð. Ég hata ekki Foreman. Raunar hata ég engan, ekki einu sinni hvitu mennina. Slikt hatur átti sér stað í sögunni, en er nú að syngja sitt síðasta. Elijah Múhammeð kennir að hatur leiði af sér vonleysi. Við Múhammeðstrúarmenn hötum órétt og mannvonzku, en við höf- um ekki tíma til að hata fólk. Hvitu mennirnir væru ekki hér, ef Guð vildi ekki að þeir væru til. Komi skröltormur inn í herbergi mitt reyni ég aó halda mig frá honum, en það þýðir ekki að ég hati snáka. Fólk kemur daglega til búðanna til þess að sjá mig og eftir klukkan hálf fjögur sinni ég því í eina til tvær klukkustundir. Eg hef gaman af að hitta fólk. Nú er ég að kaupa 16 herbergja hús i Chicago. Hálfa blokk af Elijah Muhammeð, sem er mestur allra svertingja, sem uppi hafa verið. Hann er leiðtogi okkar. Ég var alinn upp í kristinni trú og sótti kristnar kirkjur þar til ég var 16 ára gamall. Eina fólkið sem sækir kristnar kirkjur eru börn og gamalmenni. Svertingjar vita, að það sem prestarnir boða er ekki satt. Dag einn var ég staddur f Florida og þá bauð fólk, sem ég hitti á götunni mér að vera við- staddur fund Múhammeðstrúar- manna í 29. hofi í Miamí. Ég trúði hverju orði sem sagt var og gekk i söfnuðinn sama kvöldið. Sfðan þá hef ég verið boðinn velkominn f öllum löndum Múhammeðstrúar- manna, þar sem hvítir menn eru óvelkomnir. I Ameríku lítum við á hvíta menn sem þrælahaldara og valdaræningja. Þeim getur alls ekki liðið vel í nærveru okkar. Við trúum því, sem stendur i biblíunni, en þó ekki í þýðingu Jakobs konungs Hann var kynvill- ingur. í söfnuðum svartra Múhammeðstrúarmanna eru eng- ir kynvillingar, en bandariskir lífshættir þvinga fólk til þess að lifa búfjárlffi, neyta eiturlyfja og stúlkur til þess að selja sig. Við reynum að snúa þeim á rétta braut, en það hefur enn ekki tek- izt. Þeir, sem eru fæddir Múhammeðstrúarmenn gera ekk- ert af þessu. Elijah Muhammeó er svo vitur, enginn getur reynt sig við okkur. „GADDAFI VINUR MINN“ Geturðu nefnt annan hnefa- leikamann, sem hefur byggt sinar eigin búðir. Það hef ég gert og eins og þú sérð eru þær hreinar, enginn reykir, maturinn er góður og hér er enginn ódaunn. Fólkið klæðir sig rétt. Þetta er aðeins litil sönnun á kenningum hans. Ég tek aftur allt það, sem ég sagði um að ég vildi að gjaldra- nornirnar í Zaire syðu George Foreman í pottum sinum. Það tíð- kast ekki lengur. Gaddafi er vinur minn, ég hef þrívegis dvalið i höll hans. Hann gaf svörtum Múhammeðstrúarmönnum i Bandarikjunum fé. Við erum bræður þótt áætlanir hans séu aó sumu leyti ólíkar okkar. Þegar ég keppti fyrst við Frazier bar ég ekki virðingu fyrir honum. Ég kom ekki til keppninnar með réttu hugarfari. Sama er að segja um keppnina við Norton. Hann vann ekki þá keppni ég tapaði. Eg var á flækingi, æfði á börum og dýrum hótelum og neytti ekki réttrar fæðu. Eg var 222 pund þegar keppnin hófst. Þegar seinni keppnin við Frazier hófst var ég dásamlega fallegur, 212 pund á þyngd, sem var sama og þyngd min þegar ég barðist um heims- meistaratitilinn við Liston fyrir mörgum árum. Þá dansaði ég all- ar tólf loturnar. Nat Loubet (útgefandi Ring Magazine) hafði þetta að segja: Ég held að Foreman muni sigra en allt er komið undir hugar- ástandi og líkamlegri þjálfun Alis. Hann er ekki eins snöggur nu og hann var fyrir tiu árum siðan, þótt hann viti það ekki sjálfur. Hann verður að berja snöggt, vera á sífelldri hreyfingu allan tímann. Ég hygg aó hann muni verða stórkostlegur fyrstu loturn ar, en hann getur ekki dansað stöðugt og Foreman gæti náð hon- um í köðlunum. Ali verður að varast kaðlana, eða hann hefur tapað. Ég held að Foreman muni sigra hann i fimni til sex lotum, en þó má ekkert fullyrða. Þetta er eins og kvenfólkið, stundum gengur þér vel stundum bara sæmilega. Það fer eftir því, hvernig maður vaknar á rnorgn- ana. AIi notar bongo-trommur við æfingar. I læknisskoðun Á æfingu Lúskrar Jerry Quarry Þungt högg frá Frazier Sigurviss

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.